Harmonikublaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 5
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
2002 og 2003 var sá háttur hafður á að
Iagahöfundar sáu um að kynna og flytja
eigin lög þar sem árshátíðargestir völdu
lag kvöldsins. Árið 2002 var lag Aðal-
steins ísfjörð "Hopp og hí" hlutskarpast
og árið 2003 lagið "Lögurinn" eftir Thor-
vald Gjerde.
Eins og áður kom fram var haldin laga-
keppni í tengslum við landsmótið '93 þar
sem 11 lög kepptu frá jafnmörgum félög-
um. Keppt var í tveimur flokkum. í flokki
leikinna laga kepptu 7 lög og vann lag
FHUR "Flökkustelpan" eftir Garðar 01-
geirsson íþessum flokki, í flokki spilaðra
og sunginna laga kepptu 4 lög og þar
varð hlutskarpast lag HFÞ “Æskuást" eftir
Aðalstein ísfjörð við texta Þórgríms
Björnssonar
Á vordögum '90 og '92 voru teknir upp
nokkrir “Saumastofudansleikir" þar sem
félagar úr HFH sáu um spilamennskuna,
voru þeir á vegum Hermanns Ragnars
Stefánssonar fyrir Ríkisútvarpið.
Eins og áður kom fram er árshátíð
fastur liður í starfsemi félagsins. Fyrsta
árshátíðin var haldin í samvinnu við
Danshópinn Fiðrildin. Árin '90-'93 var
hún haldin í samvinnu við Karlakór
Fljótsdalshéraðs og ein árshátíð í sam-
vinnu við Egilsstaðabæ í tilefni 50 ára af-
mælis staðarins. Vel hefur verið vandað
til þessara samkoma og hafa flestir bestu
harmonikuleikarar landsins verið heið-
ursgestir við þau tækifæri.
Ágústdansleikirnir eru fastir liðir í
starfsemi félagsins og hafa þeir verið
mjög vel sóttir. Félagar í Harmonikufélagi
Þingeyinga hafa verið mjög duglegir að
heimsækja félagið af þessu tilefni og tek-
ið þátt í spiiamennskunni á dansleikjun-
um á móti heimamönnum, einnig hafa
félagar í Félagi harmonikuunnenda við
Eyjafjörð mætt á ágústdansleiki hjá HFH.
Síðustu 3 árin hefur félagið verið með
útileguhátíð í Svartaskógi um verslunar-
mannahelgina.
í júní '91 komu í heimsókn til félagsins
4 sænskir harmonikuleikarar undir leið-
sögn Eyþórs Stefánssonar læknis í
Gautaborg. Þessi atburður varð eflaust til
þess að Eyþóri var falið að útvega gesta-
spilara á landsmótið á Egilsstöðum '93.
Þá komu tveir ungir piltar, þeir Tatu
Kantomaa frá Finnlandi og Daníel ísaks-
son frá Svíþjóð og léku fyrir landsmóts-
gesti af slíkri snilld að eftir var tekið. Er
ekki að efa að þau kynni sem HFH hafði
af Tatu þá urðu til þess að hann var feng-
inn til að koma til Egilsstaða í ársbyrjun
'95 til að veita félögum í HFH tilsögn í
harmonikuleik. Kom hann beint á þorra-
blót á Egilsstöðum, sem þar var um
kvöldið og lék þar með Hreini Halldórs-
syni áður en dagskráin hófst. Hrifningin
var slík að stöðva varð leik kappanna svo
dagskráin gæti hafist.
Félagið stóð fyrir tónleikum með Tatu
í öllum landsfjórðungum, alls 17 tónleik-
ar frá 11. febrúar til l.maí. Þeir fyrstu í
Valaskjálf og þeir síðustu í Félagsheimili
Kópavogs fyrir fullu húsi. Þeir tónleikar
voru teknir upp á myndband. Að þessu
loknu hvarf Tatu til síns heima. Þann 2.
mars '96 kom hann aftur til félagsins og
spilaði þá inn á geisladiskinn "Á taug-
inni"sem kom út á því ári og var með lög-
um eftir heimamenn og í framhaldinu var
gefinn út geisladiskurinn "í skýjunum"
með lögum úr fjórðu lagakeppninni.
Hljómsveitin XD3 var fengin til að koma
lögunum í flutningshæfan búning ásamt
því að flytja þau. Tatu var fenginn til liðs
við hljómsveitina þar sem hann var í að-
alhlutverki við útsetningar og flutning.
Á aðalfundi í maí 2001 var samþykkt
að gera Tatu að heiðursfélaga í HFH.
Þá má fullyrða að heimsókn Tatu á
landsmótið og síðan til þeirra Héraðsbúa
hafi verið mikill fengur fyrir harmonikulíf
í landinu og hafa margir notið krafta hans
síðan, hitt er svo ekki verra að hann hef-
ur dvalið langdvölum á íslandi síðan og
má segja að hann sé sestur hér að,
minnsta kosti í bili.
Tatu hefur fengist við kennslu og tekið
þátt íýmsum menningarsamkomum t.d. í
Þjóðleikhúsinu og leikið í hlómsveitinni
Rússibönum svo fátt eitt sé talið.
Hér hefur verið stiklað á stóru í starf-
semi HFH þau tuttugu ár sem það hefur
starfað og upplýsingar sóttar í rit HFH í
tilefni 10 ára afmælis félagsins auk sam-
antektar Guttorms og Hreins frá síðustu
10 árunum. Þessari samantekt lýkur svo
með frásögn af 20 ára afmælisárshátíð-
inni sem haldin var í Valaskjálf, Egils-
stöðum þann 3. apríl síðastliðinn. Vona
ég að ekki séu margar staðreyndavillur í
þessari samantekt, ef svo er biðst ég fyr-
irfram afsökunar á því. J.J.
Tuttugu ára afmælisárshátíð Harmoníkufélags Héraðsbúa
Þann 3.apríl var haldin árshátíð Harm-
oníkufélags Héraðsbúa og jafnframt
haldið upp á 20 ára afmæli félagsins sem
var stofnað þann 30.mars 1984. Guttorm-
ur Sigfússon formaður félagsins bauð
gesti velkomna og fól síðan veislustjóra
kvöldsins, Sigurði Eymundssyni gjald-
kera félagsins, að stjórna samkomunni.
Veislustjóri bauð gestum að gjöra svo
vel að ganga að hlaðborði og fá sér á
diskana af þeim kræsingum sem þar biðu
og létu menn ekki segja sér það tvisvar.
Nokkrir formenn harmonikufélaga auk
landsambandsformanns voru mættir á
staðinn, færðu þeir félaginu gjafir í tilefni
tímamótanna og fylgdu þeim góðar óskir
til framtíðar. Þá var komið að skemmti-
dagskránni þar sem fyrst steig á svið
Harmonikuhljómsveit Fellamanna skip-
uð ungum nemendum Ármanns Einars-
sonar og léku þeir tvö lög,"Whiter shade
of tale" og "Libertango". Þá komu fjórir
nemendur úr Brú-
arásskóla, þau
Helga Rún |óns-
dóttir og Benedikt
Guðgeirsson sem
léku á harmonikur
og tveir fiðluleikar-
ar þau Kolbrún
Gestsdóttir og Sig-
ríður Auðna Guð-
geirsdóttir, léku
þau pólskan vals
frá Varsjá, kennari
þeirra er Suncana
Maria Slamnig. Því næst komu þrír ungir
nemendurThorvalds Gjerde frá Tónlistar-
skóla Egilsstaða þau Steinunn Rut Frið-
riksdóttir, sem lék á píanó og Freydís
Æft fyrir átök kvöldsins. Einar Guðmundsson og Tatu Kantomaa.