Harmonikublaðið - 01.05.2008, Blaðsíða 11
Nokkur ungmenni tekin tali á
ungmennalandsmóti 2007
Nafn: Kristfn Hálfdánardóttir
Aldur: Ég er 13 ára.
Hjá hverjum ertu að læra?
Ég er að læra hjá Hrólfi Vagnssyni (Hrólla).
Hvaða lag ertu að æfa núna?
Ég er að æfa tvö, eitt er ég að verða búin
með og það er Ungverskur dans nr.4 eftir
Brahms en ég er ný byrjuð á hinu og það er
El Relicario.
Hvað ertu búin að spila lengi
á harmoníku?
Ég er búin að læra í sjö ár en ég
erað byrja á áttunda.
Hvernig fannst þér ungmennamótið?
Bara mjög gaman.
Hvað fannst þér skemmtilegast
á mótinu?
Örugglega tónleikar eldri nemenda en
þetta var samt allt mjög skemmtilegt.
Hvað hefðir þú viljað hafa öðruvísi?
Ég hefði ekki viljað hafa þetta neitt öðru-
vísi.
Nafn: Jónas Á. Ásgeirsson
Aldur: 14 ára.
Hjá hverjum ertu að læra?
Guðmundi Samúelssyni Tónskóla
Eddu Borg.
Hvaða lag ertu að æfa núna?
-Kvölda tekur, sezt er sól
-Lekande Steg
-Tico tico
-Novelty accordion
-Fast fingers
Hvað ertu búinn að spila lengi
á harmoníku?
Á sjötta ári.
Hvernig fannst þér ungmennamótið?
Mjög skemmtilegt.
Hvað fannst þér skemmtilegast á mótinu?
Þetta var allt mjög skemmtilegt.
Hvað hefðir þú viljað hafa öðruvísi?
Ekkert, nema kannski að bæta fleiri krökk-
um við.
Nafn: Haukur Hlíðberg
Aldur: 14 ára.
Hjá hverjum ertu að læra?
Hjá Reyni Jónassyni.
Hvaða lag ertu að æfa núna?
Ég er að læra Vorgleði eftir Braga Hlfðberg
og Olive Blossoms eftir P. Frosini ásamt
nokkurum öðrum.
Hvað ertu búinn að spila lengi
á harmoníku?
Þetta er sjötta árið mitt.
Hvernig fannst þér ungmennamótið?
Mér finnst það skemmtilegt að hitta fleiri
sem spila á harmonikku og líka uppbyggjandi
fyrir framkomu á tónleikum og í samspili.
Hvað fannst þér skemmtilegast á mótinu?
Það sem mér fannst skemmtilegast var að
vera í félagsskap og líka að fá comment frá
fleiri kennurum en bara mfnum.
Hvað hefðir þú viljað hafa öðruvísi?
Ekki mikið nema kannski bara að hafa fleiri
samspil í minni hópum eftir getu og hversu
langt nemendurnir eru komnir.
OíarmoniíqMunnendur
9tin árCega. ‘Breiðumýmrí.átíð
H.F.Þ. og F.H.U.E. verður að Breiðumýri 25. - 27. júlí 2008
Hátíðin hefst á föstudagskvöld með uppákomum og dansleik.
Tónleikar verða laugardaginn kl 14:00 þarsem fram koma
ýmsir góðir harmonikuleikarar.
Sameiginlegt grill verður að sjálfsögðu og endað á dansleikjum
frá kl.22:oo-03 (dansað á tveimur stöðum bæði inni og úti)
Við vonumst til að sjá sem flesta harmonikuunnendur.
F.h. stjórna félaganna, Stefán Þorisson / Einar Guðmundsson