Harmonikublaðið - 01.09.2009, Qupperneq 4

Harmonikublaðið - 01.09.2009, Qupperneq 4
Sumarhátíðin á Breiðumýri 24.-26. julí 2009 Heil og sæl og takk fyrir gott útilegumót. Óformlega hófst mótið á fimmtudegi með reisingu á tjaldinu yfir danspallinn úti í rjóðrinu. Var það gert með hraði milli rign- ingarskúra enda valinkunnir menn að störfum. Tveir byggingameistarar sem töl- uðu og bentu, einn kjötskurðarmeistari, einn rafvirkjameistari, tveir bændur og bifreiðastjórinn ogberjabóndinn ÍHólkoti. Fjöldi gesta var mættur á svæðið, okkar fastagestirfrá unnendum ÍReykjavík, Klaka- höllin að vestan og fleiri og fleiri. Ekki er vitað um heildarfjölda enda heyra allartölur undir bankaleynd í dag. Föstudagurinn var nokkuð hefðbundinn þar sem formenn félaganna tveggja, Harm- onikufélags Þingeyinga og Félags harm- onikuunnenda við Eyjafjörð, drógu upp fána félaganna. Þar heilsaðist fólk, faðmaðist og kysstist eins og oftast gerist á þessum „fjölskyldumótum" og þykir að góður siður á þessu svæði. Um kvöldið setti Stefán Þór- isson, formaður HFÞ, hátíðina og hóf spila- mennskuna með Ásgeiri Stefánssyni fyrstu 40 mínúturnar en félagar úr HFÞ og FHUE spiluðu til skiptis til klukkan þrjú að nóttu. Samhliða innidansleikvar dansað ítjaldinu og voru það félagar og gestir mótsins sem spiluðu við góðar undirtektir mótsgesta enda voru þar fullkomnar græjur innstilltar af sunnanmanninum Helga Eiríki. Móts- gestir höfðu auk þess orð á því að í tjaldinu væri meiri rómantíkenda litrfkar Ijósaserfur er lýstu upp kvöldkyrrðina. Laugardagurinn var bæði bjartur og hlýr en klukkan 13 hófst sölusýning hjá Einari Guðmundssyni og Gísli Brynjólfsson kynnti hljómdiskinn sinn. Einnigvarsú nýbreytni á að tvær konur voru með söluhorn fyrir allskonar handverk og listmuni, þessi nýbreytni virðist lofa góðu. Klukkan tvö voru svo tónleikar þar sem eftirtaldir spiluðu nokkur vel valin lög: Hans Friðrik, Einar Bjarni Einarsson 7 ára, Aðalsteinn ísfjörð og barnabarn hans Tanja Mjöll Magn- úsdóttir 14 ára og Gunnar Kvaran og Hreinn Vilhjálmsson. Gestaspilararnir okkar í ár voru svo Grétar Geirsson og Bragi Hlíðberg. Lagavalið þótti gott, stutt lög og hnitmiðuð. Einn skuggi á tónleikunum var þó sá að sumir gestanna voru með einhver fram- söguerindi á miðjum tónleikum. Eftirtón- leikana var gert hlé sem notað var til að skrafa, hlæja, spila og syngja. Klukkan 18 var komið að sam- eiginlegu grilli. Ballið hófst klukkan 22 og tók þá við glaumur og gleði, bæði úti og inni. Happadrættiðvarklukkan 23 en það innihélt marga góða vinninga frá ýmsum fyrir- tækjum. Útidansleikurinn stóð til klukkan eitt en inniballið var til klukkan þrjú. Þegar sólin tók að lyftast á sunnudeginum fórfólkaðtygja sig til brottfarar. Margir héldu þó kyrru fyrir enda upphófst um kvöldið mikill söngur með Ómari á nikku og stóð gleðin til miðnættis. Sönggestirvoru frá öllum landsfjórðungunum, sem dæmi má nefna Þingeyri, Súðavík, Raufarhöfn, Suður- eyri og Kópavog. Nú er helgin því orðin að fimm dögum. Við viljum þakka gestum fyrir komuna og góða þátttöku og húsverði fyrir sína góðu þjónustulund en böð og snyrtingar voru opnar öllum til mánu- dags. Með vináttukveðjum, Númi og Filippía Meðfylgjandi myndir tókSteinberg Pálsson 4

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.