Harmonikublaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.09.2009, Blaðsíða 14
Frá Harmonikufélagi Héraðsbúa Dansgólfið í Brúarðsi Sumarhátíd Harmonikufélags Héraðsbúa og Hótels Svartaskógs var haldin að venju um verslunar- mannahelgina. Dansleikir voru haldnir ííþróttahúsinu við Brúa- rásskóla, sem býður upp á 350 fermetra dansgólf, bæði áföstu- dags-, og laugardagskvöld og skemmtidagskrá frá 14 til 17 á laugardaginn. Tjald- og húsbfla- stæði voru við Hótel Svartaskóg og þaðan gekk rúta á samkomu- stað. Á dansleikjum spiluðu félagar HFH ásamt gestum. Að þessu sinni gekk skemmtidagskráin að mestu út á harmonikuleik og komu þar fram heimamennirnirGuttormurSigfússon, Sigurður Eymundsson og Páll Sigfússon. Einnig kom Aðalsteinn ísfjörð og lék eigin lög en sérstakir gestir okkar voru ungu mennirnir Jónas Ásgeirsson og FlemmingValmundsson sem fóru á kostum svo ekki sé meira sagt. Einnig mætti til leiks hinn frábæri sögumaður Sigfús Vilhjálmsson frá Brekku í Mjóafirði og skemmti fólki með sögum úrsinni sveitog víðar. Að venju var boðið upp á kvöldverðarhlaðborð í Hótel Svartaskógi og var uppselt og komust færri að en vildu. Harm- onikufélag Héraðsbúa vill þakka öllum sem með ýmsu móti gerðu okkur kleyft að halda þessa hátfð ogöllum gestum fyrir komuna og bjóðum alla velkomna til okkar að ári ' L' » ' l m M 10 é' ■ J 31 Mjf i T* W7Au ^ Í n Frá vinstri Þórarinn Rögnvaldsson bassi, Andrés Einarsson gítar, lón Sigfússon harmonika, Gylfi Björnsson harmonika, lónas þór hljómborð og Páimi Stefánsson trommur Fiemming ogjónas ðnægðir eftirfrábæra spilamennsku. Myndir: Lára lónsdóttir Fjölskyldumót í Húnaveri Dagana 19.-21. júní héldu H.U.H.og F.H.S harmonikumót í Húnaveri í 11. sinn. Það er alltaf fyrsta mót sumarsins hjá „harmoniku- fjölskyldunni" ogallir glaðir að sjást nú enn og aftur. Fyrstu gestir koma á fimmtudag og fjöldi á föstudag. Og svo er ball um kvöldið. Álaugardag, efgotterveður„sem oftast er“ fara að heyrast nikkutónar um túnið fyrir hádegi. Þá er líka sölusýning á harmonikum sem EinarGuðmundsson sérum ogeinnigerþar mikið úrval af geisladiskum til sölu. Tón- leikar eru kl. 14.00 þar sem ýmislegt er í boði t.d. nemendur f harmonikuleik, fiðlu- leikur með nikkuundirleik og fleira. Kaffihlaðborð sjá kvenfélagskonur úr sveitinni um með mikilli prýði. Um kl. 17.30 er svo kveikt upp í tveimur stórum tunnugrillum og þar geta þeir sem vilja grillað sitt kjöt og borðað inni íhúsinu ef vilja. Klukkan 22.00 hefst svo seinna ballið og stendur það til kl. 02.00. Hljóm- sveitirúrfélögunum oggestaspilararskipta með sér tímanum. í lokin eru allir sælir og sveittir eftir dansinn. Sunnudagurinn fer íað hvíla sig, kveðja vinina og koma sér heim. Mæta svo á næstu hátíð. Kveðja, Ingibjörg Kristjáns. Harmonikuviðgerðir Tek að mér viðgerðir á harmonikum Gunnar Kvaran sími: 824-7610 14

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.