Harmonikublaðið - 01.09.2009, Page 7

Harmonikublaðið - 01.09.2009, Page 7
Harmonikan er fínt hljóðfæri fyrir krakka Matthías Valdimarsson er ellefu ára gamall og hefur lært á harmoniku í eitt ár. Hann hefur náð furðu góðum tökum á hljóðfærinu og finnst harmonikan eiga erindi við krakkana ekki síður en fullorðna fólkið. Af hverju varð harmonikan fyrir valinu? Afi minn spilar mikið á hljóðfæri og ekki sfst á harmoniku og það gera fleiri ífjölskyldunni, til dæmis Elsa amma. Ég prófaði fyrst að spila á hljómborð og lærði svolítið hjá afa en það varð ekki mikið úr því. Svo ákvað ég að fara að læra á harmonikuna af því að ég þekki hana og finnst hún flott hljóðfæri. Ég hef líka hlustað á mjög marga góða harmonikuspilara. Eru margir krakkar sem spila á harmoniku? Já, það eru frekar margir krakkar sem spila á harmoniku. Ein bekkjarsystir mín hefur spilað í þrjú ár og við höfum spilað saman. Það hefur kannski verið hvatning og svo hef ég heyrt marga spila svo flott. Ég hef heyrt það í Árnesi, þar sem er harmonikuhátíð á hverju sumri og svo á geisladiskum. Ég fékk einmitt einn íÁrnesi. Er einhver sérstakur sem þér finnst góður? Já, það er 13 ára strákur, sem heitir Flemming. Hann spilar rosalega fallega og félagi hans sem spilaði með honum f Árnesi er Ifka ofsalega góður. Hann heitir Jónas og hann er svolítið eldri en Flemming. Þeir spiluðu saman á tón- leikum og svo sitt í hvoru lagi og það var æðislega flott. Ég man sér- staklega eftir mjög fallegu lagi sem Jónas samdi og spilaði þarna. Það heitir Dafnandi rósin og er alveg frábært. Hvenær byrjaðir þú að læra á harmonikuna? Ég byrjaði á síðasta hausti hjá Gunnari Kvaran og það hefur gengið nokkuð vel. Það þarf að æfa sig og ég hafði ekki alltaf nógan tíma til þess en þó oftast nær. Ég hef eig- inlega ekki spilað opinberlega, en samt spilaði ég með afa á bryggjunni á Bíldudal ísumar. Þarvarhátíðsem heitir6/7c/ucffl/s grænar og það voru margir að spila. Svo spilaði égá lokatónleikunum ívoroglíka úti á túni í Árnesi. Svo spila ég stundum fyrir fjölskylduna. Heldurðu ekki að þú haldir áfram harmonikunámi ogspili? Harmonikan er bara lokkandi hljóð- færi, sem maður getur spilað endalaust á og það er alltaf gaman. Ég byrja aftur að læra núna 9. september og ætla að halda áfram eins lengi og ég get. Það er gott að byrja ungur að læra á hljóðfæri, því að sem krakki lærir maður best. Harm- onikan er alveg eins fyrir krakka og fullorðna og svo vil ég sér- staklega hvetja stelpur til að spila á harmoniku þvf hún er ekkert síður fyrir þær.

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.