Harmonikublaðið - 01.09.2009, Síða 8
Ungur nemur,
gamall temur
Þessi mynd ertekinn 16. mai2009 á ættarmóti þarsem
þau spiludu. Það skemmtilega við þessa mynd er að
það er 71 árs aldursmunur á þessum tveimur harm-
onikuleikurum. Sá eldri er Gestur Friðjónsson sem hefur
spilað lengi á nikkuna víða um land. Yngri nikkuspil-
arinn er dótturdótturdóttir hans Katrín Lind Lúðvíks-
dóttir. Hún hefurverið að læra á nikku ítvö ár. Þau hafa
spilað nokkrum sinnum saman og bæði hafa mjög
gaman af.
Upphafið að öllu þessu var að Katrín fór
eins og svo margir aðrir að læra á flautu.
Sfðan var hljóðfæradagur í skólanum
hennar fyrir tveimur árum og hún prófaði
nikkuna og fannst hún mjög skemmtileg
og fór því að læra á hana.
Hún segist þó ekki vera nógu dugleg að
æfa sig á hana, allavega ekki yfir sumarið,
en veit samt að til að verða góð að spila
verðurhún aðæfavel. Hún erítímatvisvar
íviku að vetrinum til hjá harmonikusnillingi
sem kennir hér á Akranesi, (nú er ég I.G.
ekki alvegviss hvernig nafn hans erstafað)
en hann heitir Yuri, QúrQ.
Katrfn er búin að fara tvisvar á harm-
onikumót, í fyrra fór hún að Reykjaskóla
og nú íártil Reykjanesbæjar. Henni fannst
gaman í bæði skiptin og Ifka að hitta aðra
harmonikuspilara sem eru á hennar
aldri.
Hún sagði að núna væru miklu fleiri að
læra á nikkuna en þegar hún byrjaði að
læra fyrir tveimur árum, alveg fullt af
krökkum.
Henni finnst gaman að spila fyrir aðra,
þó hún sé svolítið feimin við það. Hún
hefur spilað nokkrum sinnum, bæði ein en
líka með langafa sínum. Hún hefur líka
tekið þátt í vortónleikum Tóntistarskóla
Akraness og spilað þar.
í anda Obama á íslandi
Reisukorn og stiklur um stórviðburð
Forláttu! Reisukornið sem égtókstá hendur
í fyrrasumar gæti sannarlega verið í anda
hans:
„Verið góðir hver í annars garð og sýnið
gæsku og kærleik." Hverfum 500 km f
norður frá Reykjavík og stefnum á smábæ-
inn Dalvík, sem erfegurstur bæja á íslandi
með 1500 íbúa.
Fyrir átta árum varð að árlegum viðburði
Fiskidagurinn mikli, þar sem 30 þúsund
gestir sækja hátíðina f bænum í nokkra
daga. Hvað er svo á boðstólum hátíðisdag-
ana? Áður en ég kem að kjarna málsins
hyggst ég nefna fáein atriði. í fyrsta lagi
vináttutengslin sem myndast, þar sem allir
heilsast og njóta þess að faðmast og var
ráðlagt að gera slíkt alla helgina. Á föstu-
dagskvöldið var fiskisúpa og fyrir framan
húsin stóðu kyndlarvið dyrnar. Ljós þeirra
gáfu til kynna að öllum væri velkomið að
ganga inn ogfá sér súpu, sem viðkomandi
fékk í krús og mátti taka með sér yfir til
nágrannans og smakka þar einnig súpu.
Nú var hin góða stemming hafin alveg
ókeypis. Á hátíðinni var einnig bökuð
stærsta pizza og var deigið um hálft tonn,
ásamt 150 kg af osti og
um það bil hálft tonn af
öðrum efnum. Harmon-
ikutónlist hljómaði hvar-
vetna frá kl. 12.00 -
16.00, en tímamörkin
stóðust ekki og dag-
skráin varð nokkuð
lengri.
Þá er það rúsínana í
pylsuendanum. Á laug-
ardeginum var allt
ókeypis, matur og
drykkur, sem hinir tug-
þúsunda gesta þágu. Ég bragðaði t.d. á
steiktum fiskibollum og gamaldags plokk-
fiski og hefégaldrei smakkað annað eins
lostæti. Auk óteljandi mismunandi fiskrétta
var ókeypis kaffi og íspinnar á boðstólum
fyrir gesti hátíðarinnar. Alla fimm dagana
voru mismunandi viðburðir í boði og má
nefna þjóðdansa, kórsöng, Dalvískan
kaffiblús upp á danskan máta. Markaðstorg
þarsem allt mögulegt var til sölu, prjónaðar
peysur og aðrar ullarvörur, ásamt heima-
bökuðum kökum. Um kvöldið var harm-
onikuball frá kl. 24.00 - 04.00 um nóttina
og ókeypis aðgangur eins og á alla aðra
viðburði og síðan lauk herlegheitunum
með stórfenglegri hátíðar flugeldasýn-
ingu.
OBAMA beinir orðum sfnum til fólks-
fjöldans og segir: „Já þau geta“ og eru fyr-
irmynd margra annarra. Á Dalvík búa yndis-
legar manneskjur.
Hermóður Alfreðsson,
Danmörku
8