Harmonikublaðið - 01.12.2013, Page 8
BRAGIHLIÐBERG NIRÆÐUR
Nafnið Bragi Hlíðberg er svo vel þekkt meðal
harmonikuunnenda um allt land og víðar að ég
þori að fullyrða að þeir séu afar fáir, ef þá
nokkrir sem ekki þekkja nafnið og bera virðingu
fyrir manninum sem það ber. Tónlistarferil
Braga þekkja líka flesrir og kannski óþarfi að
fara mörgum orðum um hann í stuttri grein.
Mig langar samt að stikla á nokkrum atriðum
svona til gamans í hans ferilsskrá. Reyndar hef-
ur í gegnum árin eftir útkomu blaðsins Harmo-
nikan og svo síðar Harmonikublaðsins nokkrum
sinnum verið fjallað um Braga. I fyrsta tölublaði
fyrsta árgangs Harmonikunnar 1986 er viðtal við
Braga og svo af og til í áranna rás hafa birst
greinar um atburði tengdum honum.
Fullu nafni heitir maðurinn Jón Bragi Hlíðberg.
Hann er fæddur 26. nóvember 1923 á Braga-
gömnni í Reykjavík, þar sem hann átti sína æsku.
Eins og Bragi hefur sagt sjálfur frá byrjaði hann,
10 ára gamall, að fikta við hnappaharmoniku
með norskum gripum, sem pabbi hans átti. Það
verður því að teljast með hreinum ólíkindum
eftir að hafa einungis verið tvo vetur í harmo-
nikunámi að ganga sjálfur aðeins 14 ára gamall
til fundar við Petersen bíóstjóra Gamla bíós í
Reykjavík og óska eftir að fá húsið leigt til tón-
leikahalds. Faðir Braga varð að ganga á fund
bíóstjórans til að staðfesta að ekki væri um gabb
að ræða. Kennari Braga var Sigurður Briem
fiðluleikari, sem varla vissi hvað snéri upp eða
hvað niður á harmoniku, en hann lék fyrir Braga
þær æfingar og þau lög sem átti að skila hverju
sinni. Umræddir tónleikarnir voru svo haldnir
þann 8. september 1938 fyrir troðfullu Gamla
bíói, sem síðar varð óperuhús okkar Islendinga
og þóttu takast ákaflega vel. Meðal verka á efn-
isskránni voru Hot Fingers eftir P. Frosini,
Schottish Acropatic eftir O. E. Akre og Dixie
Shake eftir P. Deiro svo einhver verk séu nefnd.
Hann gekk til liðs við Félag harmonikuleikara
í Reykjavík 1939. Félagið stóð fyrir keppni í
harmonikuleik það ár og vann Bragi þar til
8
fyrstu verðlauna þá aðeins 15 ára gamall. Hann
var sagður hafa verið fyrsmr til að leika klass-
iskt lag á harmoniku hérlendis, aðeins 11 ára
aríu úr Rigoletto. Var lárinn standa uppá flygli
í Oddfellowhúsinu í Reykjavík svo áhorfendur
sæju hann. Hvað annað en undrabarn var hægt
að kalla þennan unga harmonikuleikara? Síðar
gerðist það að Ríkisútvarpið stóð fyrir því að
hlustendur veldu sinn uppáhalds hljóðfæra-
leikara og vinsælasta útvarpsefnið, þar sem okk-
ar maður krækti sér í titilinn, besti
hljóðfæraleikari landsins. Þar var harmonikan
kosin vinsælasta hljóðfærið. Bragi fór að spila
við hin fjölbreyttustu tækifæri og á ýmsu gekk
þessi fyrstu námsár. Hann byrjaði á nikku með
norsku borði og er önnur fullkomnari var pönt-
uð reyndist hún óvart með sænsku borði, þá
þurfti að læra alla fingrasetningu upp á nýtt. A
stríðsárunum skipti hann svo yfir í píanóborð
sem hann hefur haldið sig við síðan. Eftir þenn-
an skrautlega byrjunarferil og nám vestanhafs
fer nafn Braga á flug með-
al stjarnanna hér heima og
hefúr trónað þar á toppn-
um allt til þessa dags, í það
minnsta hvað harmonik-
una áhrærir. Það er ákaf-
lega dýrmætt að hafa
kynnst þessum hægláta
listamanni og virðulega
góðmenni Braga Hlíð-
berg.
Snilld hans er ekki ein-
vörðungu fólgin í harm-
onikuleiknum, því hann
er líka sannkallaður þús-
undþjalasmiður hvað fjöl-
marga aðra verkþætti
varðar. I umræðum er
heldur ekki komið að
tómum kofa. Hann kafar djúpt í umræðuefnið,
hvort sem umræðan er jarðnesk eða utan henn-
ar og æfinlega er mikið og safaríkt kjöt á bein-
unum. Þá er enn ótalinn lagahöfundurinn Bragi
Hlíðberg, hann hefur samið fjölda laga af mik-
illi snilld sem heillað hafa landslýð til fjölda
áratuga. Fjölmargar hljómplötur geyma sem
betur fer snilld þessa manns sem ég vil meina
að varðveiri kunnátm og túlkun sem seint verð-
ur toppuð. Lagaval Braga er með ólíkindum
fjölbreytt, þjóðlög, dægurlög, danslög og klass-
ísk verk. Mig langar, með leyfi, að draga fram
nokkur orð úr grein úr þriðja tölublaði annars
árgangs Harmonikub/aðsins eftir Högna Jónsson
í tilefni af áttræðisafmæli Braga.
Þar segir Högni: Eghef oft spurt sjálfan mighvort
Bragi Hlíðberg hefði ekki orðið heimfmgur harmon-
ikuleikari hefði hann valið að búa i útlöndum. Salva-
tore Gesualdo kvað uppúrmeðpað að Bragi vœrimeð
svo hreinan oggóðan stíl að einstakt vœri.
Þetta sagði hinn frægi ítalski harmonikusnill-
ingur sem hingað kom eitt sinn og hafði heyrt
Braga spila og tekur undirritaður sannarlega
undir þetta og hefur oft upplifað að ýmsh er-
lendir harmonikusnillingar er heyrt hafa í Braga,
lofa hann og prísa upp allan skalann.
Hér að lokum langar mig að upplýsa um nokkr-
ar viðurkenningar sem Bragi hefur hlotið, utan
þehra sem ég riplaði á í fyrsm. Hann var kosinn
vinsælasti hljóðfæraleikari landsins af áskrif-
endum oglesendumjassblaðsins 1949. Honum
var veitt heiðursviðurkenning á Trekkspillgala
í Grieghöllinni í Bergen 1987. Þá var hann heið-
ursgestur landsmóts SIHU á Egilsstöðum 1993.
Bragi vann önnur verðlaun í danslagakeppni
FHUR, árið 1993 fyrh lagið Á hálum ís. Hann
var gerður að heiðursfélaga FHUR á sjömgsaf-
mælinu 26. nóvember 1993, en hann var einn
af stofnendum FHUR. Bragi var kosinn harm-
onikuleikari tuttugustu aldarinnar af áskrifend-
um blaðsins Harmonikan og var afhent
heiðursskjal því til staðfestingar, gert af lista-
manninum Olafi Th Olafssyni árið 2001. Þá
fékk hann heiðursviðurkenningu í september
2001 frá SIHU, þar sem efthfarandi stendur:
Heiðursviðurkenning i tilefni 20 ára afmœlis Sam-
bands íslenskra harmonikuunnendajýrirfórnfúst starf
og eljusemi ípágu harmonikutónlistar á Islandi. Þá
má geta þess að Bragi var heiðraður af bæjar-
stjórn Garðabæjar 2002 fyrh framlag til menn-
ingarmála. Þá var Bragi gerður að heiðursfélaga
SIHU á landsmótinu á Hellu 2011. Hér hefur
verið stiklað á stóru í viðurkenningum Braga.
Þau hjónin Ingrid og Bragi hafa verið dugleg
að sækja harmonikumót á landinu þar sem
margir hafa fengið að njóta snilldar og fágunar
þessa harmonikusnillings. Síðasta tónleikaupp-
lifúnin með Braga var á árshátíð FHUR þann
23. nóvember síðastliðinn, þar sem hann lék
undir borðum fyrh matargesti rétt fyrh stóraf-
mælið. Bragi hefur sannarlega skráð sig inn í
Islandssöguna með snilld sinni, í það minnsta
tónlistarsöguna og þaðan verða verk hans og
snilli ekki burtu máð. Daginn efth árshátiðina
buðu svo Bragi og Ingrid og fjölskylda til af-
mælisfagnaðar í sal FIH þar sem fjöldi manns
kom til að fagna með honum.
Eg vil hér að lokum koma þökkum mínum til
þehra hjóna og fjölskyldu, með ósk um að
þau geti notið ókominna ára á sem farsælastan
hátt.
Hi/mar Hjartarson. Mynd: Sigurður Harðarson
Oska eftir góðri
96 bassa hnappa
harmoniku.
Sími 894 1297.
Þau hjónin héldu upp á 57 ára brúðkaupsafmali í leiðinni