Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 1

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 1
clIlllllMIIllMlllllMlllllMlllllllllllllllIIIIIIIII Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20 psir^ssi Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535 ■ ------------------------------------------------------------------------------------------------------------ -------- 34. árg. I 22. tbl. I Vestmannaeyjum 7. júní 2007 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is SJÓMANNADAGURINN var haldinn með pompi og prakt um helgina. Þátttaka var góð þrátt fyrir að veður hefði mátt vetra betra. Bls. 16 & 17. Skýrsla Hafrannsóknastofnunar mikið högg fyrir Eyjar: Niðurskurður yrði 7106 tonn -Skerðingin liðlega einn og hálfur milljarður í útflutnings- verðmæti, verði að farið að tillögum stofnunarinnar f upphafí yfirstandandi fiskveiðiárs voru Vestmannaeyjar kvótahæsta verstöðin með 10,76% aflaheimilda í þorskígildum talið. Eitthvað hefur hlutfallið vaxið síðan ekki síst vegna kaupa Isfélagsins á Hraðfrystistöð Þórshafnar í byrjun ársins og lætur nærri að hlutur Eyjamanna sé nálægt 13% þegar allt er talið. Samtals eru aflaheimildir Vest- mannaeyinga um 47.000 tonn í okkar helstu botnfisktegundum, þorski, ýsu, ufsa og karfa og því ljóst að verði farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar mun það hafa mikil áhrif hér. Ekki síst verði þorskurinn skorinn niður um þriðj- ung, úr 197 þúsund tonnum í 130 þúsund tonn. Verði það gert munu aflaheimildir Eyjamanna í þorski ýsu og ufsa fara úr 39.200 tonnum í 32.094 tonn og minnka um 7106 tonn. Samkvæmt samantekt Frétta eru aflaheimildir Eyjaflotans í þorski 10.700 tonn, 11.500 í ýsu, 10.000 tonn í ufsa og um 7000 tonn í karfa. Úthlutað aflamark fyrir yfirstand- andi fiskveiðiár í þorski var 193 þúsund tonn en nú leggur Hafró til 130 þúsund tonn, sem er samdráttur upp á 32,6%. Það þýðir að fiskveiði- heimildir Vestmannaeyja færu úr 10.700 tonnum í 7212 og er sam- drátturinn 3488 tonn. I ýsu er heildaraflamark 105 þúsund tonn en nú er lagt til að það verði 95.000 tonn sem er samdrátt- ur upp á 9,5%. Sé þetta yfirfært á Vestmannaeyjar fer ýsukvótinn úr 11.500 tonnum í 10.407 tonn og munar 1093 tonnum. I ufsa er lagt til að aflamark fari úr 80.000 tonnum í 60.000 í tonn á næsta fiskveiðiári eða um 25%. Það þýðir að aflaheimildir Eyjamanna fara úr 10.100 tonnum í 7575 tonn og er munurinn heil 2525 tonn. Verði þetta reyndin dragast afla- heimildir Vestmannaeyja saman a.m.k. um 7106 tonn. Karfa innan lögsögunnar er skipt í tvennt, gullkarfa og djúpkarfa. Samanlagt aflamark þeirra á þessu fiskveiðiári er samtals 57.000 tonn, 35.000 tonn í gullkarfa og 22.000 tonn í djúpkarfa. Lagt er til að afla- mark verði áfram 35.000 tonn í gull- karfa en aflamark fyrir djúpkarfa er gefið út í október. Sé þetta mælt í krónum og aurum þá er gert ráð fyrir að fullur niðurskurður í þorski þýði 20 millj- arða í minni útflutningstekjum fyrir þjóðina. Eyjamenn hafa yfir að ráða 5,4% þorskkvótans sem þýðir að tekjutap hér yrði liðlega milljarður. Þá er gert ráð fyrir að skerðing í ýsu og ufsa kosti þjóðina 5 milljarða og þar eru Eyjamenn mjög sterkir, með 10,9% í ýsu og 12,6% í ufsa sem þýðir milli 500 milljóna og 600 þúsund króna og samtals yrði skerðingin liðlega einn og hálfur milljarður í útflutningsverðmætum. Vilja hitta nýjan samgöngu- ráðherra Á bæjarstjómarfundi í síðustu viku lagði minnihluti V-lista fram tillögu um að óska eftir fundi bæjarstjómar með Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra um nútíð og framtíð í samgöngum við Vestmannaeyjar. f greinargerð segir að sam- göngur við Vestmannaeyjar séu ófullnægjandi og nauðsynlegt að ráða á þeim bót án tafar með fjölgun ferða og nýjum skipa- kosti. „Varðandi framtíðarsam- göngur við Vestmannaeyjar þá hefur nauðsynlegum rannsóknum ekki verið lokið til þess að mögu- legt sé að meta hvaða kostur sé heppilegastur. Mikilvægt er að ljúka öllum rannsóknum sem fyrst. í ljósi þess að ný ríkisstjóm hefur verið mynduð og nýr sam- gönguráðherra tekið til starfa er rétt að kynna ráðherra sjónarmið bæjarstjórnar,” sagði í greinar- gerðinni. Meirihluti sjálfstæðismanna lagði til að bæjarstjóri og bæjar- ráð, sem fer með samgöngumál Vestmannaeyja, óski formlega eftir fundi bæjarstjómar með Kristjáni hið fyrsta. Helst vilja þau að fundurinn fari fram í Eyjum. Þetta var samþykkt samhljóða. Nýjar sögur og sagnir í 2. sæti Bók Sigurgeirs Jónssonar, Nýjar sögur og sagnir úr Vestmanna- eyjum, sem út kom í síðustu viku, hefur selst mjög vel bæði í Eyjum sem og á fastalandinu. Á lista yfir söluhæstu bækur hjá Pennanum, Eymundsson og Máli og menningu er bókin í 2. sæti yfir söluhæstu bækur í flokki handbóka, fræðirita og ævisagna og aðeins íslenska orðabókin sem slær henni við í sölu. í Eyjum fæst bókin bæði í Office 1 og Bókabúð Pennans. SMURSTÖÐOG ALHLIÐA ne ‘tÉhamar VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI VÉLA- OG BÍLAVIÐGERÐIR úf* ÞJÓNUSTUAÐILITO/OTA í EYJUM / VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMI...! FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616 Br b £0" 1S t um fjarstýringuna á þínu heimili; FJéLSÝN Áskriftarsíminn er 481-1300 PEPSI PE&S/ Í'0*'U enaji uuHtr TILB0D - SENT 9" pizzc m/3 áteggs1. QjQÆgp - 9 hvitlaiiksnrauö -12 1. Pepsi dos 12“ pizza m/3 áleggst. torUKTTLp - 9 h\ itlauksbr. margaríta - I 2 I. Pcpsi dós t-J ud-A->-4r 16“ pizza m/2 áleggst. PnQemrm, f • ■ 16 hxitlauksbr. maruaríta ■ 2 1 l’cpsi dos tSQÍCjlilif3 UX) H—k_

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.