Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Blaðsíða 20
NÚ er hugur Iandsmanna hjá þorskinum sem ekki er alltof mikið af.
Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda stéttarfélags:
Hefði getað komið á verri tíma
Arnar Hjaltalín, formaður Drffanda
stéttarfélags segir fyrirhugaða
skerðingu aflaheimilda hefði getað
komið á verri tíma.
„Auðvitað leggst þetta illa í mig en
ég tel okkur hér í Vestmannaeyjum
hins vegar betur í stakk búin til þess
að takast á við slfkan vanda þar sem
hér er meiri kvóti en víða annars
staðar. Svo eigum við eitthvað af
kvóta sem hefur verið leigður frá
okkur og svo er mikill fískur sem fer
beint í gáma og er sendur héðan frá
okkur óunninn. Hins vegar er að
sjálfsögðu um að ræða mikinn
tekjumissi fyrir bæjarfélagið og það
er slæmt.“
Arnar er á því að minni fiskverk-
endur komi frekar til með að finna
fyrir hugsanlegri skerðingu. „Þá er
ég fyrst og fremst að tala um
fiskvinnslu sem er ekki með útgerð.
Ef það er minni fiskur í umferð þá
væntanlega fækkar störfunum. Hins
vegar sýndum við Eyjamenn það að
við gátum staðið saman um
Vinnslustöðina og við þurfum bara
að halda áfram að standa saman.
Við viljum höfða til samfélagslegrar
ábyrgðar útgerðarmanna sem leigja
kvóta eða flytja hann út í gámum.
Ef fiskvinnslan gelur fengið það
sem upp á vantar af þessum fiski þá
verður höggið minna en ella,“ sagði
Arnar.
Sjá nánar í blaðinu dag.
Áhöfnin á Bylgju fékk viðurkenningu
Á sjómannadag fékk áhöfnina á
Bylgju VE viðurkenningu frá Slysa-
varnaskóla sjómanna. Viðurkenn-
ingin er veitt árlega einni áhöfn sem
sótt hefur námskeið hjá skólanum
og hefur öðrum fremur sýnt góða
öryggisvitund að mati kennara
skólans.
Viðurkenningin er farandbikar sem
er afhentur til varðveislu um borð í
viðkomandi skipi ásamt veggskildi
til eignar. Viðurkenningin var
afhent um borð í Sæbjörgu, skipi
Slysavarnaskólans.
Ólafur Snorrason, yfirvélstjóri á
Bylgju VE segir áhöfnina hafa sótt
námskeið síðasta haust. „Við fórum
öll áhöfnin á námskeið hjá þeim og
vorum svo með námskeið og björg-
unaræfingu um borð stuttu síðar þar
sem þeir frá skólanum liðsinntu
okkur. Við fórum ennfremur í gegn-
um öryggisáætlun skipsins, löguð-
um hana enda voru sumir hlutir þar
hreinlega óframkvæmanlegir. Hins
vegar var ekki margt sem þurfti að
laga, mestmegnis voru þetta smá-
atriði sem engu að síður var
nauðsynlegt að breyta."
Meðal þess sem bætt var við voru
sérstakar flóttagrímur en þeim var
komið fyrir í hverjum klefa um borð
en grímurnar eru neyðaröndunar-
grímur ef kviknar í og skipið fyllist
af reyk. „Við höfum reynt að hafa
þessa hluti í lagi og erum alltaf að
bæta og endurskoða. Þeim hjá
Slysavarnaskólanum hefur greini-
lega litist svona vel á það sem við
vorum að gera og það er auðvitað
alltaf gaman að fá svona viður-
kenningu.
Fyrir utan það er auðvitað mikil-
vægt að öryggisbúnaður og áætlun
sé í lagi úti á sjó enda fengum við að
kynnast því í vetur þegar það kom
upp eldur í vélarrúminu. Þá unnum
við út frá nýlagaðri öryggisáætlun
og það gekk mjög vel,“ sagði Ólafur
að lokum en hann var reyndar að
yfirgefa skipið þar sem hann er að
fara vinna í landi hjá ísfélaginu.
Lundakarlar bíða milli vonar og ótta
Lundastofninn hefur verið í lægð
undanfarin ár og í vor var efnt til
sérstakrar ráðstefnu um stofninn.
Menn hafa eðlilega áhyggjur af
stofnstærð lundans en lítið hefur
verið um pysju undanfarin haust. Er
fæðuskorti kennt um og rannsóknir
hafa sýnt fram á að lítið er um
sandsíli við Eyjar sem er megin-
uppistaða í fæðu lundans.
Talið er að ástæðuna fyrir skorti á
síli megi rekja til breytinga í
umhverfi en Valur Bogason hjá
Hafrannsóknastofnun stýrir
rannsóknum á sandsíli við landið
en lítið er til af gögnum frá fyrri tíð
til samanburðar. Uppistaðan í
lundaveiðistofninum er tveggja til
fjögurra ára fugl og ef jafn illa
gengur að koma pysjunni upp og
undanfarin tvö ár er hætt við að
grípa þurfi til sérstakra aðgerða til
að vemda stofninn.
Ingvar Atli Sigursson, forstöðu-
maður Náttúrustofu Suðurlands,
sagði að unnið væri að því að ráða
mann til að skoða stöðuna núna.
Vonast er til að Erpur Snær
Hansen, doktor í vistfræði, taki að
sér verkefnið en hann hefur
rannsakað lunda, skrofu og sæsvölu
í Vestmannaeyjum.
Ingvar taldi of snemmt að grípa til
sérstakra aðgerða áður en upplýs-
ingar um stöðuna núna lægju fyrir.
Ivar Atlason sagði bjargveiðimenn
bíða eftir niðurstöðum rannsókna
sem eiga að fara fram í júní.
Elliðaeyingar stýra nú Bjargveiði-
mannafélagi Vestmannaeyja en hefð
er fyrir því að eyjamar skipti um-
sjón félagsins á sig.
„Bjargveiðimenn leggja mikla
áherslu á að fullt samráð verði haft
við þá ef gripið verður til einhverra
aðgerða. Það eru ýmsar leiðir færar
í þessu og okkur er mikið í mun að
hér verði hægt að stunda lundaveiði
og eggjatöku um alla tíð. Elliðaey-
ingar stýra Bjargveiðifélaginu og
það er okkar skylda að upplýsa
bjargveiðimenn um niðurstöður
rannsókna þegar þær liggja fyrir.
DanCake rúllutertur
verð nú kr 169,-
verð dður kr 219,-
Neutral þvottaefni 2 stk
verð nú kr 479,-
verð dður kr 569,-
Cajp's lambatvirifjur
verð nú kr/kg 1589,-
verð dður kr/kg 1876,-
Cordon bleu
verð nú kr 379,-
verð dður kr 451,-
*milimBIIIIIIIIIBIII6l9IEIf IBBIII1111111118 IIIIIII