Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Blaðsíða 6
6 Frcttir / Fimmtudagur 7. júní 2007 Finnskir krakkar endurgjalda heimsókn krakka í Grunnskólanum: Eiga svo margt sameiginlegt GESTIRNIR frá Finnlandi ásamt gestgjöfum. Viðtal Ómar Garðarsson omar@ eyjafrettir.. is í síðustu viku voru 23 krakkar og þrír kennarar frá Finnlandi í heim- sókn í Grunnskóla Vestmannaeyja þar sem krakkamir í 7. AST Barnaskóla voru gestgjafar. Þau voru að endurgjalda heimsókn Eyjakrakka sem fóm til Finnlands í september sl. Krakkarnir gislu inni á heimilum gestgjafa sinna, líkt og krakkarnir frá Eyjum gerðu í sept- ember. Öll voru þau að koma til Vestmannaeyja í fyrsta skipti, fyrir utan kcnnara þeirra, Tuiju Laitinen en hún var að koma til Vestmanna- eyja í sjötta sinn. Krakkarnir hafa verið í sambandi á MSN-inu síðan í september þann- ig að þau þekkjast orðið. Verkefnið sem bekkirnir hafa unnið saman kalla þau Tröllaverkefni. Bekkirnir höfðu „tröllaskipti" í september í Finnlandi. Sjöundi ÁST fór til Finnlands með íslenskt tröll sem heitir Ymir. Ymir var skilinn eftir í Salo í Finnlandi sem einhvers konar skiptinemi þar. Finnsku krakkamir sáu svo um að kynna land, þjóð og venjur fyrir Ymi á meðan á dvöl hans stóð. íslensku krakkarnir fóru heim með Múmínsnáðann Múmma sem var einhvers konar skiptinemi hjá þeim. Eyjakrakkarnir sáu svo um að kynna land, þjóð og venjur okkar fyrir Múmma á meðan á hans dvöl stóð. Upplifanir Ýmis og Múmma voru svo skráðar á sameiginlega vefsíðu hjá Nordplus Junior. Nemendur sáu um að setja inn sögur og myndir af því sem var í gangi hjá skipti- nemunum. Slóðin er: http://www2.edu.fi/ magazinefacto- ry/magazines/trollnews/. Síðan komu Finnarnir til Eyja að sækja tröllið sitt og fylgja Ými til síns heima. Aðalmarkmið verkefnisins var að efla áhuga, þekkingu og skilning norrænna þjóða á menningu, tungumálum og lífsskilyrðum frændþjóða í gegnum skólastarf. Einnig að auka norræna samkennd sem byggir á sameigin- legu gildismati Norðurlandabúa. Mikil viðbrigði Finnsku krakkarnir og kennarar þeirra koma frá Salo sem er ekki langt frá Helsinki, höfuðborg Finn- lands. Kennararnir, Henna Seppa- Tapio, Tuija Laitinen og Reja Vinikkala-Smith létu vel af dvöl- inni á Islandi þó veðrið hefði mátt vera betra. Þær sögðu lítið líkt með Finnlandi og Islandi en dásömuðu náttúrufegurðina hér og voru ánægðar með viðtökurnar. Þess má geta að stærsta verksmiðja síma- framleiðandans Nokia er í Salo. Fréttir ræddu við tvo finnska krakka Merituuli Ylönen 14 ára og Kuismapekka Loiske 15 ára og Eyjakrakkana Rakel Ýr Leifsdóttur og Sindra Frey Guðjónsson sem bæði eru 12 ára. Eins og áður hefur komið fram eru krakkamir að koma í fyrsta skipti til íslands en það kemur í ljós að Kuismapekka er nokkuð sigldur miðað við aldur, hefur komið til átta landa utan Finnlands, í Evrópu, Ameríku og Asfu en hann er ánægður að vera kominn til Vest- mannaeyja. „En þetta eru mikil viðbrigði" sagði hann og nefndi fyrst veðrið þar sem komið er al- vöru sumar í Finnlandi en hér hafði lítið bólað á því. „Heima er lfka vetur þegar á að vera vetur. Reyndar var óvenju lítill snjór og tiltölulega hlýtt í vetur en venjulega er mikill snjór og allt að 15 stiga frost. Landslagið hér er líka allt öðruvísi, lítið um tré og þessi fjöll allt í kringum bæinn,“ sagði GENGIÐ upp í Elliðaey Kuismapekka en hópurinn fór víða um Heimaey, m.a. gengu þau á Eldfell sem finnsku krökkunum fannst mjög sérstakt, fóru í Hundraðmannahelli, Strembuhelli, Páskahelli og út í Elliðaey. íslenskir krakkar tala meira „Það hefur verið mjög gaman að vera hérna,“ sagði Merituuli en nafn hennar þýðir vindur hafsins á íslensku sem á vel við í Vestmanna- eyjum. „Fólkið er mjög hjálplegt en krakkar í Vestmannaeyjum tala meira en við gerum,“ bætti hún við og var sömu skoðunar og Kuismapekka um íslenska náttúru. „Þegar við komum til landsins var fyrsta spurningin, hvar eru trén?“ Rakel og Sindri eru á sama máli um mismuninn. Þegar talið barst að helstu áhuga- málum ungs fólks í dag kom í ljós að munur milli landanna er lítill sem enginn. Þau hlusta á sömu tón- listina þó auðvitað sé smekkurinn misjafn. Þegar finnsku krakkarnir voru spurð hvort Evróvisjonhetj- urnar í Lordi væru í uppáhaldi sögðu bæði nei, þau hefðu fengið nóg af látunum í kringum þá en þau voru ánægð með hvemig þeim gekk í keppninni í fyrra. Það kom í Ijós í spjallinu að Kuismapekka er á sömu línu og þessir landar þeirra en hans hetjur eru Metallica. Einnig horfa þau á sömu kvik- myndirnar og tölvuleikimir eru þeir sömu. Ekki virðist heldur vera mik- ill munur á skólum hér og í Finn- landi. Helst er að þar byrja þau að læra ensku í þriðja bekk en hér í fimmta bekk. Auk þess er boðið upp á sænsku og samísku sem eru opinber tungumál í Finnlandi ásamt finnskunni. Finnska og íslenska eiga sameiginlegt að vera einangr- uð tungumál og því nauðsynlegt fyrir bæði Finna og Islendinga að vera vel að sér í erlendum tungu- málum, þar er enskan efst á blaði og hana nota krakkamir sín á milli. Þegar talið berst að samskiptum krakkanna eru þau sammála um að þau séu af hinu góða. Rakel og Sindri segja að það hafi verið mjög gaman að fara til Finnlands og hafa þau haldið sambandinu síðan, m.a. á MSN-inu. í spjallinu kemur fram að krakkar í Finnlandi hittast ekki eins oft og krakkar hér þar sem nálægðin er meiri. Eðlilega vom finnsku krakk- arnir famir að velta framtíðinni meira fyrir sér, enda eldri og gera sér betur grein fyrir að aukin sam- keppni kallar á meiri menntun. „Við ætlum að leggja áherslu á tungumál,1' sögðu Merituuli og Kuismapekka og hann átti síðasta orðið. „Ef maður ætlar að fá góða vinnu verður maður læra og þar skipta tungumál miklu máli.“ Slagurinn um VSV: Hjámar kaupir K.G. fiskverkun, félag í eigu Hjálmars Kristjánssonar stjórnarmanns í hefur keypt í Vinnslustöðinni fyrir 1,4 milljónir króna, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar. Um er að ræða 170.399 hluti, keypta á genginu 8,5. Stilla ehf., félag í eigu Guðmundar og Hjálmars Kristjánssona hefur lagt fram samkeppnistilboð í allt hlutafé Vinnslu- stöðvarinnar hf. vegna fram komins skyldutil- boðs Eyjamanna ehf. til yfirtöku á félaginu. Skólamálaráð: Að ýmsu að hyggja vegna aldursskiptingar Á síðasta fundi skólamálaráðs var farið yfir framkvæmdir í tengslum við aldursskiptingu Grunnskóla Vestmanneyja. Lagður var fram listi yfir þær framkvæmdir sem tengjast aldursskiptingunni. Aðgengismál í Barnaskólanum eru á lis- tanum ásamt viðhaldi skólahússins sem er í höndum Eignarhaldsfélagsins Fasteignar hf. Líka eru listanum salur og anddyri Barnaskólans, eldhús, aðstaða kennara í kennslustofum, tölvuaðstaða og breytingar á núverandi vinnuaðstöðu kennara, stjórnenda og afgreiðslu ásamt viðhaldi og viðgerðum. Líka á að setja upp skápa fyrir unglinga í Barnaskólanum. Listinn fyrir Hamarsskóla er umtalsvert styttri, þar er bara minnst á eldhúsaðstöðu og aðkeyrslu. ágústa og finna Marý: Gáfu afrakstur tombólu Þessar stúlkur Ágústa J. Ólafsdóttir og Anna Marý Guðmundsdóttir komu og færðu Heilbrigðisstofnuninni andvirði hlutaveltu krónur 11.510. Færum við þeim þakkir fyrir. Starfsfólk Heilbrigðissíofnunnar Vestmannaeyja

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.