Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Qupperneq 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 7. júní 2007
Baráttan um Vinnslustöðina - Guðmundur og Hjálmar
Kristjánssynir vilja allt hlutaféð:
Heimamenn ráða yfir
tveimur þriðju hlutafjár
-Ekki að sjá að Vestmannaeyingar ætli almennt að taka tilboði
bræðranna sem er 85% hærra en tilboð Eyjamanna ehf.
BINNI: Ég skil áhyggjur fólks en ég vil ekki ætla Guðmundi og
Hjálmari það að leysa upp félagið. Mér er ekki kunnugt um þeirra
forsendur eða framtíðarsýn.
Eins og fram hefur komið í fjöl-
miðlum þá er bitist um hlutafé
Vinnslustöðvarinnar hf. Um miðjan
maí lögðu Eyjamenn ehf., sem er
félag nokkurra hluthafa í Vinnslu-
stöðinni, fram yfirtökutökutilboð til
annarra hluthafa félagsins á genginu
4.6.
I lok mánaðarins lagði Stilla ehf.,
félag í eigu bræðranna Guðmundar
og Hjálmars Kristjánssona, fram
samkeppnistilboð í allt hlutafé
Vinnslustöðvarinnar á genginu 8,5
sem er 85% hærra en tilboð Eyja-
manna ehf. Félög, tengd Stillu ehf.
og bræðrunum, eiga samtals tæpt
31% af hlutafé félagsins en Eyja-
menn ehf. eiga 50,04% hlut.
Eyjamenn ehf. hafa ákveðið að
taka ekki samkeppnistilboðinu en
þeirra hlutur ásamt öðrum hluthöf-
um í Vestmannaeyjum mun vera á
bilinu 65% til 67%. Lífeyrissjóður
Vestmannaeyja er hluthafi og
áreiðanlegar heimildir herma að
stjómendur þar vilji ekki selja sinn
hlut. Allt bendir því til þess að
Vinnslustöðin verði áfram í höndum
Vestmannaeyinga.
Binni í Vinnslustöðinni:
Eyjamanna að
ákveða að selja
„Staðan er einfaldlega sú að Eyja-
menn ehf. hafa gert með sér sam-
komulag um stjórnun og rekstur
Vinnslustöðvarinnar og hafa lagt
fram yfirtökutilboð í hlutafé fé-
lagsins eins og skylda er. Til viðbót-
ar hefur borist samkeppnistilboð frá
Guðmundi Kristjánssyni, Hjálmari
Kristjánssyni og félögum þeim
tengdum. Við bjóðum á genginu 4,6
og þeir bjóða 8,5. Eyjamenn ehf.
hafa ákveðið að selja ekki,“ sagði
Binni í Vinnslustöðinni þegar hann
var spurður út í stöðuna hjá félag-
inu.
„Eyjamenn ehf. og aðrir Eyjamenn
eiga 65% til 67% hlut í Vinnslu-
stöðinni og það verður hver og einn
að gera það upp við sig hvort hann
vill selja eða ekki. Ég er ekkert hissa
á að Guðmundur og Hjálmar vilji
kaupa og það er hverjum frjálst að
bjóða í Vinnslustöðina. Það er ekki
við þá að sakast. Hins vegar er það
Eyjamanna að ákveða hvort þeir
selja eða ekki.“
Nú hefur mikið verið rœtt um stöð-
una í sjávarplássum að undanförnu
og þá sérstaklega með tilliti til
stöðunnar sem komin er upp á
Flateyri og í Vestmannaeyjum, hvað
finnst þér um þessa umrœðu?
„Það er bara þannig að Vest-
mannaeyingar hafa það í hendi sinni
hvort þeir selja eða ekki. Það var
Flateyringur sem ákvað að selja og
að því leyti samanburðarhæft. En
það sem skilur á milli Flateyringa og
Eyjamanna er að Eyjamenn vilja
ekki selja. Það hefur verið gæfa
Vestmannaeyja að þeir sem hafa selt
heimildir hafa látið önnur útgerðar-
félög í Vestmannaeyjum hafa for-
gang við kaupin."
Skilur þú áhyggjur fólks af stöðu
mála?
„Ég skil áhyggjur fólks en ég vil
ekki ætla Guðmundi og Hjálmari
það að leysa upp félagið. Mér er
ekki kunnugt um þeirra forsendur
eða framtíðarsýn. Én miðað við þá
þekkingu sem ég hef á sjávarútvegi
þá myndi ég að minnsta kosti ekki
treysta mér til að reka fyrirtækið í
þeirri mynd sem nú er gert ef hlutafé
er keypt á því gengi sem þeir
bjóða."
Gunnlaugur Grettisson,
forseti bæjarstjórnar:
Þungt högg, fari
aflaheimildir í burtu
Gunnlaugur Grettisson, forseti
bæjarstjórnar sagði það fyrst og
fremst ánægjulegt hversu mikil
samstaða væri meðal Eyjamanna að
verja kvóta bæjarfélagsins. „Mér
finnst það sérstaklega ánægjulegt að
sjá að okkar útgerðarmenn og eig-
endur útgerðarfélaga og ekki síður
hinn almenni hluthafi bréfa í
Vinnslustöðinni virðast bera gæfu til
þess að verja hlut samfélagsins hér
og standa vörð um kvóta Eyja-
manna. Ég held að fólk geri sér
fyllilega grein fyrir alvarleika máls-1
ins enda Vinnslustöðin stórt og
öflugt fiskvinnslufyrirtæki, með
fjölda fólks í vinnu hjá sér. Það yrði
auðvitað þungt högg ef rekstur
fyrirtækisins myndi breytast á þann
hátt að einhver hluti veiðiheimilda
færi frá Eyjum. Við því megum við
ekki.
Hlutabréfakaup eru langtímafjár-
festing eins og sjá má á viðbrögðum
Lífeyrissjóðsins og annarra eigenda
hluta í Vinnslustöðinni. Það er því
lífsspursmál fyrir Vestmannaeyjar
að kvótinn haldist hér í heimabyggð
og af því má ekki gefa neinn af-
slátt,“ sagði Gunnlaugur.
Páll Scheving, talsmaður
minnihlutans:
Snúum vörn í sókn
Páll Scheving, oddviti Vestmanna-
eyjalistans segir stöðu starfsfólks
Vinnslustöðvarinnar vissulega al-
varlega og skilur áhyggjur þeirra, en
segist ekki jafn áhyggjufullur sjálf-
ur. „I þessu máli ræður markaðslög-
málið. Ekkert annað. Átökin um
Vinnslustöðina snúast um viðskipti.
Ég hef þá trú að meirihluti eigenda
fyrirtækisins meti stöðuna þannig að
þessi fjárfesting í Vestmannaeyjum
sé enn heppileg.
Það hefur gengið vel að reka sjáv-
arútvegsfyrirtæki í Vestmannaeyjum
og því ekki rík ástæða til þess að
selja. Það er lykilatriði. Þess vegna
eru enn nægar aflaheimildir í Vest-
mannaeyjum. Til þess að svo verði
áfram verður umhverfið kringum
útgerðina að standast tímans tönn.
Stórskipahöfn með öflugu upptöku-
mannvirki og frystigeymslum mun
verja samfélagið og færa aflaheim-
ildir til Vestmannaeyja en ekki frá
þeim. Ráðumst í það verkefni og
snúum vörn í sókn. Menn eru í
þessu til að ávaxta sitt pund og afla-
heimildimar munu leita þangað sem
hagkvæmast er að gera út. Höfum
það hugfast," sagði Páll.
— . r íii' i / ^L- É - . j : «.„i. _ ^ r 1;
^ u 'jj 1 JH: f—^ '
■k L ■ ■ÉFyv
Eykyndill afhenti Heilbrigðisstofnun á
dögunum sérstakan bekk og stól til notk-
unar á slysamóttöku heilsugæslustöðvar-
innar en sá sem var fyrir var orðinn
gamall og úreltur. Bekkinn má hækka og
lækka með einu handtaki en í því felst
mikil hagræðing fyrir s júklinga og heil-
brigðisstarfsfólk. Auk þess gáfu Eykynd-
ilskonur h jólastól til notkunar á heilsu-
gæslunni. Starfsfólk stofnunarinnar lýsti
yfir ánægju með gjöfina sem hefði mikið
gildi fyrir sjúklinga, bæði væri bekkurinn
mun breiðari og að öllu leyti færi betur
færi um sjúklinga. Auk þess væri vinnu-
aðstaða lækna og hjúkrunarfólks allt
önnur. Gjöfin kæmi því öllum til góða.
Brugðist
við of
mikilli
mengun
Á síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs lágu fyrir mengunar-
mælingar vegna Sorpeyðingar-
stöðvar Vestmannaeyja. Mælt var
í janúar sl. og eru helstu
niðurstöður þær að rykmengun
mældist verulega yfir mörkum
sem stöðinni eru sett í starfsleyfi.
Vetnisklóríð mælist einnig yfír
mengunarmörkum en
kolmónoxíð er undir mörkum.
Ekki tókst að mæla lífrænt
kolefni í úblæstri stöðvarinnar.
Það var samþykkt að bregðast
strax við og var framkvæmda-
stjóra umhverfis- og fram-
kvæmdasviðs falið að gera
framkvæmdaáætlun vegna nýs
mengunarvarnarbúnaðar. Ráðið
samþykkti að gera ráð fyrir
framkvæmdum í fjárhagsáætlun
2008 með möguleika á því að
dreifa kostnaði yfir á tvö ár.
Frosti Gíslason, framkvæmda-
stjóri umhverfis- og fram-
kvæmdasviðs, sagði ákvörðun
ráðsins vera í samræmi við
markmið stefnumörkun bæjarins
í sorpmálum Vestmannaeyja. Þar
kom m.a. fram að eitt af mark-
miðum stefnumörkunarinnar
væri að draga úr mengun frá
Sorpeyðingarstöðinni. „Ég er
ákaflega sáttur við þessa
ákvörðun framkvæmda- og
hafnarráðs og tel hana mjög
skynsamlega. Það er gert ráð
fyrir þessu á þriggja ára áætlun
bæjarins en við viljum að
búnaðinum verði komið upp
strax á næsta ári.“
Frosti sagði að Sorpeyðingar-
stöðin sé að nokkru leyti bam
síns tíma en hún var gangsett í
janúar 1993. „Frá þeim tíma hafa
mengunarmörk hækkað og við
því er verið að bregðast."
Nýr löndunar-
krani
Framkvæmda- og hafnarráð
samþykkti að fela hafnarstjóra
að festa kaup á löndunarkrana og
láta setja upp norðan megin í
austurhluta Ériðarhafnar, þ.e.a.s.
fyrir norðan núverandi löndunar-
krana.
Áætlaður kostnaður vegna
kaupa á krananum er 2 milljónir
króna án vsk. fyrir utan uppsetn-
ingu. Ráðið samþykkir að gert
verði ráð fyrir þessum kostnaði í
endurskoðaðri fjárhagsáætlun
Vestmannaeyjahafnar 2007.
ÍJtgefandi: Eyjasýn elif. 480278-054!) - Vestmannafiýjum. RitBtjóri: Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Guðbjörg Sigurgeirsdóttii- og Júlins Ingason. Iþróttir: Jiilíus Ingason.
Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnn: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47.
Símai: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. NetfangAafpóstnr: frettir@eyjafrcttir.is.
Veffang: Iittji/Avww.eyjafix'ttir.is
FRÉTTER koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lairsasölu á Kletti,
Tiistinum, Toppnum, Vöruval, Herjólfi, Flughafmirversluninni, Krónunni, Isjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu i IVidarhölii.. FRÉTtiK eru prentaðar i 2000 eintökum.
FRÉTTIR eni aðilar að Samtökum bœjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun,
notkun ljósmynda og annað er ólieimilt nema lieimilda sé getið.