Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 7

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 7
Fréttir / Fimmtudagur 7. júní 2007 7 VINKONUR Sandy Hahn ásamt Margo Renner sem settist hér að og hefur búið hér síðan. Eins og að koma heim -segir Sandy Hahn sem var skiptinemi í Eyjum 1971 og kom hingað í fyrsta skipti síðan þá um miðjan maí I , ; J VIÐTfiL Guðbjörg Sigurgeirsdóttir gudbjorg@eyjafrettir.is Sandy Hahn heimsótti Eyjamar um miðjan maí og dvaldi hér í viku- tíma. Það væri í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema fyrir það að Sandy dvaldi hér sem skiptinemi sumarið 1971. Þá kom hún hingað ásamt öðmm skiptinema, Margo Renner sem settist hér að og hefur búið hér síðan. Ohætt er að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan Sandy kom hingað sem ung stúlka og ekkert minna en heilt eld- gos í millitíðinni. Það er því for- vitnilegt að heyra hvernig Eyjamar koma henni nú fyrir sjónir og rifja upp ýmislegt frá dvölinni hér. Fann ekki Vestmannaeyjar á korti „Eg kom hingað á þjóðhátíðar- daginn 17. júní 1971 og var hér fram í ágúst, eða í tíu vikur. Ég var skiptinemi hjá Jónu og Bimi Guð- mundssyni á Birkihlíðinni og átti þar góða daga enda var þetta frábær tími,“ sagði Sandy þegar hún var spurð út í vemna hér en hún hafði ekki hugmynd um að hún væri á leið til Islands fyrr en fjórum dögum fyrir brottför. „Island var ekki inni í myndinni fyrr en þessi möguleiki kom upp og ákvað ég að grípa tækifærið þó svo að ég vissi lítið sem ekkert um landið. Við vorum fjögur sem vomm send til Islands sem skiptinemar þetta sumar en við hittumst í New York áður en haldið var til landsins. Þar hitti ég Margo fyrst og það kom í ljós að við yrðum báðar hjá ijölskyldum í Vestmannaeyjum. Við Margo fundum strax að við áttum ýmislegt sameiginlegt og við höfum alltaf haldið tengslum og vinskap. Við emm báðar frá miðríkjum Banda- ríkjanna, komum frá fylkjum sem liggja saman og við erum báðar fæddar í desember ég er fædd 30. og hún 29. desember. Þegar Sandy frétti að hún ætti að dvelja á stað sem héti Vestmanna- eyjar fór hún strax að skoða landakort en fann ekki Vestmanna- eyjar þar sem þær voru ekki merktar inn á kortið. „Við Margo vissum voða lítið um staðinn fyrir- fram og ég man að við spurðum þá sem tóku á móti okkur í Reykjavík hvort það væri möguleiki á því að við gætum hitt hvor aðra á eyjunni yfir sumarið. Þegar við komum hingað varð okkur ljóst að við ættum örugglega eftir að sjást oft og mörgum sinnum," segir Sandy og hlær að öllu saman. Hefur alltaf haldið góðu sambandi Þegar Sandy er spurð hvemig henni hafi litist á eyjuna og Eyjaskegga stendur ekki á svari. „Ég elskaði að vera hér frá fyrstu stundu, hér er svo fallegt og friðsælt. Tíminn sem ég dvaldi í Vestmannaeyjum er alltaf hluti af mér og fylgir mér alla tíð. Mér finnst gott að koma aftur þrátt fyrir allar þær breytingar sem hér hafa orðið. Ég ætlaði að koma aftur 1972 en ég byrjaði í háskóla og svo stofnaði ég fjölskyldu." Sandy er félagsfræðingur og vinnur meðal annars með fólki sem er á skilorði og aðstoðar þá sem hafa verið í afbrotagengjum. Hún hefur líka fengist við að halda fyrir- lestra fyrir lögreglu og fleiri. „Ég er gift og á tvo syni, eldri sonur minn er að vinna að mastersritgerð og yngri sonur minn er að læra tölv- unarfræði þannig að tíminn líður og nú loksins lét ég verða að því að koma aftur til Eyja. Ég hef alltaf haldið góðu sam- bandi við Margo sem ílentist hér en hún kynntist eiginmanni sínum Runólfi, heitnum Gíslasyni sumarið sem við dvöldum héma. Margo kom alltaf í frí til Banda- ríkjanna annað hvert ár og ég hitti hana þá heima hjá foreldrum hennar í Milwaukee og hún kom og heimsótti okkur til Minnesota. Þannig kynntust bömin okkar og í áraraðir hef ég ætlað að koma til Eyja. Margo sagði mér að Runi hefði alltaf sagt að ég ætti eftir að koma aftur og þegar ég hitti hana úti í desember var ákveðið að ég kæmi hingað í vor.“ Uppskrift að kökunni hennar Jónu Það fer ekkert á milli mála að Sandy á góðar minningar héðan og hefur mikið dálæti á staðnum og er ánægð með að vera komin aftur. „Þetta hefur verið dásamlegt. Ég hef gegnið mikið um eyjuna og hef séð það gamla í bland við það nýja. Þetta er á einhvern hátt eins og koma heim,“ sagði Sandy þegar hún var spurð hvemig tilfinning það væri að koma eftir svo langan tíma. I framhaldinu var hún spurð hvort hún hafi hitt eitthvað af fólki sem hún var í samskiptum við sumarið sem hún dvaldi hér. „Við heimsóttum Sigrúnu Sigur- geirsdóttir en við vomm í góðu sambandi við hana þetta sumar og við skoðuðum myndir frá þessum tíma sem var mjög gaman. Fyrstu árin eftir að ég var héma var ég alltaf í sambandi við fjölskylduna sem ég dvaldi hjá og skrifaðist á við Bjöm en hann og Jóna kona hans eru bæði látin. Ég fór og tók mynd af húsinu sem þau áttu við Birkihlíð. Það er líka gaman að segja frá því að við Margo fórum í heimsókn til Sigrúnar Þorsteins- dóttur og ég fór að segja henni frá dásamlega góðri köku sem Jóna bakaði og var í miklu uppáhaldi hjá mér. Þá kom það upp að mamma Sigrúnar, Anna á Blátindi, og Jóna þekktust vel og Sigrún átti upp- skriftina að kökunni. Þetta er skemmtileg tenging og nú tek ég uppskriftina af kökunni hennar Jónu með mér heim og mér finnst það mjög skemmtilegt." Yfirþyrmandi að sjá þetta Nú skilur heilt eldgos á milli tímans frá því þú varst hér sem skiptinemi og þegar þú kemur aftur. Er ekki sérstætt að sjá breytingar sem hafa orðið á öllu umhverfinu? „Jú, það er mjög sérstætt. Ég kom með ferjunni og þar af leiðandi blasti þetta allt við þegar við sigldum inn höfnina. Það var yfirþyrmandi og þegar ég sá nýja eldfjallið fékk ég tár í augun. Og öll heimilin sem eru horfin. Það er hins vegar þakkarvert að allt fólkið bjargaðist þrátt fyrir eldsum- brotin,“ sagði Sandy og það er ljóst það fékk á hana að sjá með eigin augum verksummerkin eftir eld- gosið. „Það hefur margt breyst, Höllin þar sem við fórum í bíó og á böll hefur fengið nýtt hlutverk. Og golfvöllurinn, ég man ekki eftir honum en eflaust hefur verið golfvöllur þegar ég var hérna en hann hlýtur að hafa verið miklu minni. Nú eru komin hús á vesturhluta eyjunnar og það er líka breyting frá því ég var héma. Við fórum líka í bakaríið og í mjólkur- búðina þegar ég bjó hérna því þá voru ekki stórmarkaðir. Þannig að það er margt breytt en ég sé líka hús og staði sem eru lítið breyttir frá því ég var hérna." Fjölskyldan á íslandi er sterk Sandy er ákveðin í að koma aftur til Eyja en ítrekar að tíminn líði hratt og þjóti áfram. „Það er erfitt að trúa því að það séu rúm þrjátíu og fimm ár síðan ég var héma, mér finnst það alveg ótrúlegt. Það er mikilvægt hvað það er friðsælt hérna, sjórinn og nálægðin við náttúruna. Það er stult í allt og þetta er algjör andstæða við hraðann og umferðina heima. Ég hef ekki athugað með tölumar á lottómið- anum mínum, vonandi á ég vinning þegar ég kem heim. Þá kaupi ég hús hérna,“ segir Sandy og brosir við tilhugsunina. Þegar hún er spurð hvort hún finni mun á amerísku og íslensku sam- félagi hugsar hún sig um og telur fjölskyldutengsl sterkari hér en annars staðar. „Fjölskyldan á íslandi er mjög sterk. Ég tel afar mikilmægt að konur á íslandi fá níu mánaða fæðingarorlof en það þekkist ekki í Bandaríkjunum. Þetta er einn liður í því að styrkja fjölskylduna ásamt ýmsu öðru. Ég held hins vegar að hægt sé að mynda vináttusambönd og tengsl við fólk alls staðar í heiminum en hér er fólk samt sem áður einstak- lega vinsamlegt. Menntun er á háu stigi á íslandi, hér geta allir lesið og skrifað en því er ekki þannig farið í mínu heimalandi. Hér er enginn her og það er líka mikil- vægt.“ Þakkar gestrisnina Sandy stoppaði í viku í Eyjuni að þessu sinni en ætlaði síðan að skoða sig um á fastalandinu. „Margo ætlar að fara með mig á Gullfoss, Geysi og Þingvöll en ég sá ekki þessa staði og lítið af fasta- landinu þegar ég kom hingað síðast. Við fórum bara beint hingað út í Eyjar frá Reykjavík. Við ætlum líka að skoða Bláa lónið en það var ekki komið þegar ég var hérna þannig að það hefur margt breyst," sagði Sandy og vildi að lokum koma á framfæri þakklæti til allra Vestmannaeyinga. „Ég vil þakka fyrir gestrisnina og bið að heilsa þeim sem ég náði ekki að hitta þegar ég var hér í heimsókn.“ „Ég kom hingað á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1971 og var hér fram í ágúst eða í tíu vikur. Ég var skiptinemi hjá Jónu og Birni Guðmundssyni á Birkihlíðinni og átti þar góða daga enda var þetta frábær tími.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.