Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 9

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Side 9
Frcttir / Fimmtudagur 7. júní 2007 9 Árið 2006 veiddu íslendingar um 157 þúsund tonn úr norsk-íslenska síldarstofninum en heildarveiðin er áætluð um ein milljón tonn. Fyrir árið 2007 lagði Alþjóðahafrann- sóknaráðið til 1280 þúsund tonna aflamark og samkvæmt alþjóðlegu samkomulagi frá janúar 2007 verða því aflaheimildir íslendinga árið 2007 tæp 186 þúsund tonn. Alþjóða- hafrannsóknaráðið veitir ekki ráðgjöf um hámarksafla fyrir árið 2008 fyrr en í október nk. Loðna, náðu að mæla 2005 árganginn Heildaraflinn á loðnuvertíðinni 2006 til 2007 varð 377 þúsund tonn en leyft hafði verið að veiða 385 þúsund tonn. Á síðasta hausti, 2006, tókst að mæla þann hluta loðnu- stofnsins sem veiðin á vertíðinni 2007 til 2008 mun aðallega byggjast á, þ.e. árganginn frá 2005 en meiri óvissa er um eldri árganginn, 2004. Mælingin á árganginum frá 2005 og reiknuð meðalframlegð eldri ár- gangsins, miðað við síðustu tvö ár, svarar til 308 þúsund tonna heildar- aflamarks á vertíðinni 2007 til 2008. Samþykkt aflaregla gerir ráð fyrir að tveimur þriðju þessa aflamarks verði úthlutað til bráðabirgða og jafngildir það 205 þúsund tonna upphafsaflamarki vertíðina 2007 til 2008. Vegna mikillar óvissu í spánni og þess að loðnan bætir ört við sig þyngd yfir sumarmánuðina leggur Hafrannsóknastofnun enn fremur til að ekki verði leyft að hefja loðnu- veiðar fyrr en haustið 2007. Kolmunni, hlutur íslend- inga 300 þús. tonn í ár Árið 2006 veiddu Islendingar um 310 þúsund tonn af kolmunna. Heildaraflinn árið 2006 í Norður- Atlantshafi er talinn hafa verið tæpar tvær milljónir tonna. I mars- apríl 2007 mældist stofninn á hrygningarslóð vestan Bretlands- eyja um 11,2 milljónir tonna, sem er nokkru meira en mældist árið 2006. Aftur á móti hefur hrygningarstofn kolmunna minnkað um 32% frá 2003 til 2006 samkvæmt stofnmati sem gert var árið 2006. Alþjóða- hafrannsóknaráðið lagði til að ekki yrði veitt meira en 980 þúsund tonn árið 2007. Islendingar, Norðmenn, Færey- ingar og Evrópusambandið gerðu með sér samkomulag í desember 2005 um veiðar og skiptingu kolmunnastofnsins og á aðalfundi NEAFC í nóvember 2006 var sam- þykkt að veiðar úr stofninum árið 2007 yrðu 847 þúsund tonn sem skiptist milli veiðiþjóða. Samkvæmt þessu samkomulagi er hlutur Is- lendinga um 300 þúsund tonn árið 2007 en Alþjóðahafrannsóknaráðið veitir ekki ráðgjöf um hámarksafla fyrir árið 2008 fyrr en í október 2007. Humar, stærri stofn Humaraflinn árið 2006 var 1875 tonn, samanborið við 2030 tonn árið 2005. Veiðistofn humars, 6 ára og eldri, árið 2007 er nú metinn um 16.000 tonn eða nokkru stærri en áætlað var á síðasta ári. Stofninn minnkaði í sögulegt lág- mark um 1995 sökum slakrar nýliðunar og mikillar sóknar suð- austan lands árin 1991 til 1994. Vegna sterkari árganga frá árunum um og upp úr 1990 fór nýliðun aftur batnandi á suðausturmiðum eftir 1995 en var áfram slök á suð- vesturmiðum. Horfur á nýliðun eru enn þá góðar við Suðausturland en lélegastar á miðunum við Reykja- nes. Hafrannsóknastofnunin leggur sem fyrr til að aflinn miðist við kjörsókn og að humarafli fiskveiðiárið 2007 til 2008 fari ekki yfir 1900 tonn. Einnig leggur stofnunin til að veiðinni verði dreift á milli veiðir svæða með tilliti til nýjustu upp- lýsinga um stofnstærð hverju sinni. Grafalvarleg tíðindi Ættu að huga meira að ætinu Hafrannsókna- stofnun hefur lagt til að fiskveiðiheim- ildir verði skert- ar á komandi fiskveiðiári. Tillögumar miðast við að ýsukvóti verði 95 þúsund tonn í stað 105 þúsund tonna sem er skerðing um 9,5%, ufsi verði 60 þúsund tonn í stað 80 þúsund tonna sem þýðir skerðing um 25% og þorskvóti verði 130 þúsund tonn í stað 193 þúsund tonna sem er skerðing um 32.6%. Þessar hugmyndir hafa mikil áhrif á afkomu útgerða og sjómanna og sveitarfélagsins. Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE, sagði þetta mjög slæm tíðindi og uggvænlega þróun en tók fram að hann væri ekki búinn að lesa skýrsluna. „Mér fmnst þeir ættu að huga meira að ætinu fyrir þorskinn því þetta eru ábyggilega samverkandi þættir. Við verðum varir við að þorskurinn er horaður og ætislaus eftir hrygningu. Það hefur verið töluvert af þorski á þeim svæðum sem við höfum verið á í vetur en það segir ekki alla söguna. Nýliðunin skiptir máli og menn ættu að skoða betur hvað veldur því ef hún er ekki að skila sér. Menn eru að byrja að ræða þetta á mið- unum en ég á eftir að kynna mér þær upplýsingar sem koma fram í skýrslunni,“ sagði Biggi á Vest- mannaey á þriðjudag. Held að þetta sé fyrirfram ákveðið „Mér fmnst þetta skelfilegt," sagði Bergvin Oddson útgerðarmaður á Glófaxa þegar hann var spurður álits á tillögum Hafrannsókna- stofnunnar. „Það hefur sjald- an verið meiri fískur í sjónum og í vetur. Eg veit ekki hvaðan þessir fiskifræðingar koma, við hvem þeir tala og hvemig þeir athuga þetta. Ekki ræða þeir við menn sem stunda þetta, þeir virðast bara fara eftir fræðunum." Bergvin, sem fór á sína fyrstu vertíð 1961, segir eðlilegt að það séu sveiflur í afla enda stýri nátt- úran því. „Það hafa alltaf komið dánvertíðir og það em áraskipti í þessu. Okkur fannst fiskurinn vera vel haldinn í vetur og nóg æti í honum og ekkert sem gaf til kynna að hann væri styttri og horaðri en eðlilegt getur talist. Þvert á móti var hann vel haldinn, við höfum landað á markað og enginn kvartað. Það er nógur fiskur en við höfum ekki verið spurðir og maður hefur það á tilfmningunni að þetta sé ákveðið fyrirfram. Er ekki erfitt að gera út þegar óvissan er svona mikil? „Það er erfitt að vita aldrei neitt og geta aldrei stillt þetta af. Maður er alltaf að vona að þetta lagist og það liggur við að þetta sé reiðarslag fyrir einyrkja. Það er kannski mark- miðið að ganga frá þessum minni. Eg skil þetta ekki enda ekkert sam- ráð haft við okkur sem emm að stunda þetta." Meiri þorskur núna ef eitt- hvað er „Mér fmnst þetta alltof mikil skerðing á þorskkvóta," sagði Sindri Óskarsson, skip- stjóri á Frá VE. „Ef eitthvað er þá hefur maður orðið var við meiri þorsk undanfarið fiskveiðiár. Mér hefur ekki þótt þorskurinn horaður og ef það er skortur á æti þá er ég ekki hlynntur því að minnka kvótann. Þá þarf að grisja því það þýðir ekki að fjölga þeim sem þarf að metta.“ Sindri segir að vissulega komi þetta við útgerðir, það sé ekki spuming. „Áflaverðmæti kemur til með að minnka og þar með tekjur útgerðarmanna og sjómanna. Á móti kemur að líklega mun fiskverð hækka eitthvað. Annars er alltaf verið að gera það sama og enn verið að draga saman. Það virðist ekki vera einföld lausn á þessu og líklega ráða náttúrulegar aðstæður mestu. Við gætum auðvitað klárað fiskinn í sjónum ef það væm engin takmörk á veiðiheimildum en vemdun hefur ekki skilað því sem vonast var til. Eg get ekki séð að það borgi sig að minnka kvótann ef það er skortur á æti því þá étur hann undan sér. Við höfum fengið þorsk sem er fullur af þorskseiðum þegar vantar æti og þar af leiðandi á ekki að fjölga þeim sem berjast um fæðuna þegar þannig stendur á.“ Gunnlaugur Páll „Forseti bæjarstjómar, Gunnlaugur Grettisson, segir það mjög alvarlegt mál ef þorskkvótinn yrði skorinn niður eftir tillögu Hafrannsókna- stofnunar. „Skýrslan er klárlega vonbrigði og ef tillögumar ná fram að ganga er um verulega skerðingu að ræða og kemur eðli málsins samkvæmt verst niður á fyrirtækjum sem em að miklu leyti í bolfiski. Ef loðnu- kvótinn yrði eitthvað meiri á næsta fiskveiðiári myndi það milda áhrifin fyrir bæjarfélagið en eins og áður segir kemur skerðingin illa við ákveðin fyrirtæki sem er slæmt. Eg vona að farin verði einhver millivegur í þessu, það er milli tillagna Hafró og núverandi afla- marks. Fyrir þjóðarbúið í heild emm við engu að síður að tala um talsvert minni útflutningstekjur, fjárhæðir upp á einhverja milljarða. Oll skerðing kemur illa við okkur hér í Eyjum, við erum sjávarpláss með alít okkar undir í sjávarútveg- inum. Gunnlaugur vill hins vegar ekki meina að við kvótakerfið sé að sakast einvörðungu. „Auðvitað er kvótakerfið ekki fullkomið en ég hef ekki enn séð þá sem gagnrýna það koma með aðrar lausnir. Vestmannaeyingar hafa ennfremur náð mjög góðum árangri í núver- andi kerfi, hér er útgerð mjög öflug og um hana verðum við að standa vörð,“ sagði Gunnlaugur. „Tfðindin em auðvitað grafalvarleg fyrir okkur Vestmannaeyinga," sagði Páll Scheving, oddviti Vestmannaeyjalistans, um tillögur Hafró um skerðingu aflaheimilda. „Fiskveiðistjómunarkerfið hefur verið umdeilt. Það hefur meira að segja verið stofnaður stjómmála- flokkur til höfuðs því. Það jákvæða við fiskveiðistjómunarkerfið er að það hefur skilað mikilli hagræðingu í greininni og stöndugri fyrir- tækjum. Hins vegar er neikvæða hliðin sú að heilu bæjarfélögin em að leggjast í eyði við hagræðinguna og fiskistofnamir, sem kerfið átti upphaflega að vemda, eru að minnka. Einfaldar staðreyndir. Það er því eðlilegt að margir spyrji sjálfan sig hvort þetta kerfi hafi virkað sem skyldi. Ég hef því miður ekki einfalda lausn á þessum vanda og öfunda sjávarútvegsráð- herra afskaplega lítið þessa dagana. Hver vildi halda á þessum kaleik? Elías lætur af störfum sem formaður Jötuns eftir 32 ár: Kvótakerfið handónýtt frá byrjun ELÍAS tekur við viðurkenningu úr hendi Snorra Óskarssonar á sjó- mannadaginn. Hann er sáttur við útgerðarmenn í Eyjum sem hann segir þá bestu á landinu. Á aðalfundi Sjómannafélagsins Jötuns á töstudaginn bar það helst til tíðinda að skipt var um formann í félaginu en Valmundur Valmundarson tók við af Elíasi Björnssyni. Elías hefur verið for- maður félagsins í 32 ár en hann mun áfram starfa á skrifstofu félagsins og í Alþýðuhúsinu. Elías sagði árin 32 hafa verið viðburðarík í formannsstarfinu. „Það hefur auðvitað mikið breyst á þessum árum, bæði varðandi veiðar og einnig tækjabúnað til sjós. Svo var kvótakerfinu því miður komið á 1984. Staðan var slæm þá en hún hefur ekkert breyst og ennþá er verið að skerða veiðiheimildir í þorski. Kerfið var sett á til að vernda fiskstofninn en þorskstofninn er enn of lítill. Því segi ég að kerfið sé handónýtt og hefur verið það frá byrjun. Það er líka mjög slæmt hversu innbyggt það er í kvótakerfið að kaupa og leigja óveiddan fisk, eins vitlaust og það nú er. Eg var á móti kvóta- kerfinu þegar það var sett á og er enn á móti því í dag. Nýjasta útspil Hafró varðandi niðurskurð í þorskveiðum styrkir mig í þessari skoðun en ef farið verður eftir ráðgjöfum þeirra mun það þýða minni vinnu til sjós og lands og minnkandi þjóðartekjur.“ Elías segir þó margt jákvætt eftir formannssetuna. „Það sem stendur upp úr er hversu lán- samur ég hef verið með sam- starfsfólk bæði í stjórn og trún- aðarstörfum fyrir félagið. Auk þess hef ég verið það lánsamur að hafa ekki orðið fyrir neinum skakkaföllum í starfi og ekki fengið neitt í bakið. Utgerðar- menn verða einnig að fá sitt enda eru þeir einstaklega góðir í sam- starfi hér í Eyjum, þeir bestu á landinu eftir því sem ég heyri,“ sagði Elías að lokum. Ný stjórn Sjómannafélagsins Jötuns er þannig skipuð, Valmundur Valmundsson, for- maður, Sigurður Sveinsson, varaformaður, Þorkell Árnason, gjaldkeri, Haukur Hauksson, ritari og meðstjórnendur eru Júlíus V. Óskarsson, Heimir Freyr Geirsson og Þorvaldur Ásgeirsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.