Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Qupperneq 10

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Qupperneq 10
cSuuiari túlUa fttta/tttaet//7/ 2007 Sumarstúlka Vestmannaeyja verður valin laugardagskvöldið ló.júní í Höllinni sem stendur að keppninni ásamt Fréttum. Að þessu sinni munu tíu glæsilegar stúlkur taka þátt í keppninni, sem nú er nú haldin í 21. skiptið. Að venju verður í boði glæsilegur matseðill frá Grími kokki og hans fólki.Ýmis skemmtiatriði verða á dagskrá og svo mun Kántrýsveitin Klafar skemmta fólki langt fram á nótt. Hana skipa Birgir Nielsen og Herbert úr Skítamóral, Leifur úr OFL, Mummi úr Sóma og Maggi úr Oxford. Fram- kvæmdastjóri keppninnar er Hjördís Guðlaugsdóttir og er Súsanna Georgs- dóttir henni til aðstoðar. Ljósmyndari keppninnar að þessu sinni er Jose Henriksen. Anna Ester Óttarsdóttir Hvenær ert þú fædd? Ég er fædd 23. feb. 1989. Fjölskylda? Foreldrar mínir eru Óttar Gunnlaugsson og Nanna Dröfn Sigurfinnsdóttir, á eina litla systur, Þorbjörgu Lind og svo heitir kærasti minn Grétar Þór Eyþórsson. Ert þú í skóla eða vinnu? Ég er í Framhaldskólanum í Vestmannaeyjum á almennri braut og er að klára þar það sem ég þarf til þess að fara í hárgreiðslu í Iðnskólanum og einnig fara í snyrtiskóla eða námskeið og stefni á að fara til Rvk.veturinn 2008. Ég vinn hjá Bigga og Lóu í Tvistinum. Hvað stefnir þú á að verða í framtíðinni? Ég stefni á að Ijúka hárgreiðslunámi í Iðnskólanum og væri ég til í að geta tekið einhvað í förðun þannig að ég hafi þau réttindi að bjóða upp á hárgreiðslu og snyrtingu fyrir brúðkaup eða ýmislegt. Hvað ætlar þú að gera í sumar? Ég ætla vinna hjá Bigga og Lóu ÍTvistinum, vera á þjóðhátíð í Eyjum og fara svo einhvað út með kærastanum mínum en það er ennþá óákveðið. Stundar þú einhverjar íþróttir? Líkamsrækt. Hver er þinn uppáhalds staður á íslandi? Vestmannaeyjar eru alltaf fallegasti staðurinn og hvergi er betra að vera. Hver eru þín helstu áhugamál? Hárgreiðsla,förðun, fjölskyldan, kærasti, vinir,ferðast,sérstaklega til útlanda. Er þú hjátrúarfull? Já. Hvað finnst þér vera mikilvægast í lífinu? Eiga góða fjöl- skyldu, vera í góðra vina hópi og vera hamingjusöm. Hver er þín helsta fyrirmynd? Ég hef alltaf litið mikið upp til afa míns, Finns teiknikennara, og einnig langafa míns Sigurfinns sem lést á afmælisdeginum mínum fyrir 3 árum. Hvað finnst þér um jafnréttismál? Mér finnst jafnrétti vera af hinu jákvæða. Hvenær skemmtir þú þér best? í útlöndum og á þjóðhátíð;) Hvað telur þú vera það besta og versta í þínu fari? Það besta er að ég er ákveðin og skynsöm en það versta er að ég er með lítið hjarta. Hvert er þitt lífsmottó? Að standa mig vel í því sem ég tek mér fyrir hendur. Anna María Halldórsdóttir Hvenær ert þú fædd? Ég er fædd 14. sept. 1989. Fjölskylda? Móðir mín, íris Valgeirs.faðir minn er Halldór Þór Guðmundsson, ég á 4 systkini og þau heita Elsa Valdís, Bjarni Jón, Gunnar Már og Pálína Ýr. Kærastinn minn heitir Orri Arnórsson. Ert þú í skóla eða vinnu? Já ég er í skóla og vinnu, ég er í FÍV á félagsfræðibraut, og er að byrja á þriðja ári. Ég vinn hjá Arnóri bakara, ÍTvistinum og eithvað smávegis í Golfskálanum. Hvað stefnir þú á að verða í framtíðinni? Eins og er stefni ég á það að verða annað hvort næringarfræðingur, sjúkra- þjálfari eða einkaþjálfari,er samt ekki alveg ákveðin. Hvað ætlar þú að gera í sumar? I sumar ætla ég að vinna einsog vitleysingur,vera með vinum og fjölskyldu og farasvo út með stelpunum í skirmish og kærastanum til Costa del Sol. Stundar þú einhverjar íþróttir? Já, ég er í handboltanum og ég stunda líka þrek. Hver er þinn uppáhalds staður á íslandi? Það eru auðvitað eyjarnar. Hver eru þín helstu áhugamál? Vera í kringum vini og skemmtilegt fólk, vera með kærastanum, kaupafötog hreyfa mig. Er þú hjátrúarfull? Nei,ég myndi ekki segja það. Hvað finnst þér vera mikilvægast í lífinu? Hamingja,fjölskyldan og auðvitað heilsan. Hver er þín helsta fyrirmynd? Það er auðvitað hún móðir mín, íris Valgeirs, kraftaverka- konan sjálf, getur allt og gerir allt. Hvað finnst þér um jafnréttismál? Auðvitað á að vera jafn- rétti alls staðar,ekki á að gera upp á milli fólks. Hvenær skemmtir þú þér best? Með vinum,fjölskyldunni og kærastanum, svo er auðvitað alltaf gaman að fara til útlanda. Hvað telur þú vera það besta og versta í þínu fari? Ég hef nú alltaf látið aðra dæma um það og ég held að ég haldi því þannig áfram. Hverter þitt lífsmottó? Ég man að mamma sagði alltafvið mig: „Maður veit aldrei hvenær maður lokar hurðinni á eftir sér." Hef ég einhvern veginn alltaf lifað eftir því, því maður veit ekki hvenær maður yfirgefður þessa jörð, það getur verið hvenær sem er. Svo auðvitað á maður að lifa lífinu á meðan maður getur það. FLUGFELAG ISLANDS n| XNDS Æ K A RLo K. RISTM AN N SI Nordica hotel S N Y R T I opio NOKIA H

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.