Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Page 16

Fréttir - Eyjafréttir - 07.06.2007, Page 16
16 Fréttir / Fimmtudagur 7. júní 2007 HEIÐRANIR Eins og venjulega voru sjómönnum veittar viðurkenningar fyrir vel unnin störf. Það eru stéttarfélögin sem veita viðurkenningarnar. F.v. Sævald Pálsson, skipstjóri, sem fékk viðurkenningu frá Skipstjóra og stýrimannafélaginu Verðandi, Elías Björnsson fékk viðurkenningu frá Sjómannafélaginu Jötni og Vélstjórafélag Vestmannaeyja heiðraði Arnar Sighvatsson. Auk þess veitti sjómannadagsráð Brynjúlfi Jónatanssyni í Neista viðurkenningu fyrir áratuga þjónustu við flotann og Stefáni Sigurjónssyni, fráfarandi stjórnanda Lúðra- sveitar Vestmannaeyja, sem er ómissandi á sjómannadaginn. Dóttir Stefáns, Sigrún, tók við viðurkenningunni fyrir hönd föður síns og hér er hópurinn ásamt Snorra Oskarssyni. Sjómannadagurinn stóð undir nafni: Vestmannaeyingar eru stoltir af sjómönnum sínum Þátttaka í dagskrá sjómannadagsins var yfirleitt góð og hefur núverandi sjómannadagsráði, undir stjórn Stefáns Birgissonar, náð að hefja þennan hátíðisdag sjómanna til vegs og virðingar á ný. Má segja að dagskrá standi frá fimmtudegi til sunnudags og ekki skammast Vestmannaeyingar sín fyrir sína sjómenn og halda sjómannadaginn hátíðlegan með þeim og eru ekki að kalla hann eitthvað annað. Laugardagurinn Það leit ekki vel út með veður á laugardaginn þegar hátíðahöldin hófust við Friðarhöfn en það rættist úr því og fjölmennti fólk til að fylgjast með því sem þama fór fram. Dagskráin var óvenju fjöl- breytt og margir tilbúnir til að taka þátt í kappróðri, karahlaupi og koddaslag. Mikla athygli vakti líka framlag Guðmundar Vigfússonar og félaga sem léku listir sínar á reiðhjólum, hjólabrettum og snjó- brettum þar sem þeir renndu sér niður heimagerða brekku og svifu út í sjó. Allt hófst þetta með því að sr. Guðmundur Örn Jónsson, preslur Landakirkju, blessaði daginn og á eftir tóku Lúðrasveit verkalýðsins og Glenn Kaiser Band nokkur lög. Þá kom kappróður, koddaslagur og spretthlaup á lokum. Líka var krökkum boðið í siglingu á sjóþot- um sem var vinsælt. í kappróðrinum hófu félagar í Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðra- sveit Vestmannaeyja leikinn. Og þó fallegra róðrarlag hafi sést verður að taka viljann fyrir verkið og úr varð besta skemmtun. Síðan tók við keppni áhafna, félaganna Verðandi og Jötuns og liða eins og Pipar- sveina sem hafa lengi keppt í kapp- róðri á sjómannadaginn. í kappróðri áhafna stóðu strák- amir á Vestmannaey VE uppi sem sigurvegarar, Verðandi vann fé- lagabikarinn og í kappróðri peyja sigruðu Mömmustrákar. I stöðva- keppni kvenna unnu stelpumar í Vinnslustöðinni og Lúðrasveit SVIFIÐ á snjóbrettum á sjómannadegi í Vestmannaeyjum. verkalýðsins hafði betur í lúðra- sveitakeppninni. í koddaslagnum var barist til „síðasta blóðdropa“ en allir sluppu við meiðsli þrátt fyrir mikinn at- gang. Það sama gerðist í loka- keppninni þar sem hlaupið er á lokum af fískiköram og er alveg bráðskemmtilegt á að horfa. Þá var keppt í skák þar sem land- krabbar kreistu fram sigur á sjómönnum. Vönduð dagskrá Á laugardagskvöldið fór svo fram hið árlega sjómannadagsball í Höllinni. Eins og alltaf er veralega vandað til skemmtidagskrár og maturinn frá Grími og félögum var í hæsta gæðaflokki. Aðsókn í mat og skemmtun var líka mjög góð en alls voru um 430 manns í mat. Óhætt er að segja að skemmti- dagskráin hafi verið á heimsmæli- kvarða. Jóhannes Kristjánsson, eftirherma, reið á vaðið og kitlaði hláturtaugarnar. Bjami töframaður gerði það sama og tónlistarmað- HART TEKIST á í kodda- slagnum. LÚÐRASVEIT VM leggur í hann. urinn KK náði góðri stemmningu og naut sérlegrar aðstoðar Bergvins Oddssonar í tveimur lögum. Hápunktur skemmtidagskrárinnar var hins vegar tvíþættur. Fyrst steig á sviðið hljómsveitin Obbosí ásamt brasssveit og spilaði tvö lög. Besta atriði kvöldsins var hins vegar þegar hljómsveitin Tríkot og Lúðró stigu á svið en sveitin var tvívegis klöppuð upp. Árni Johnsen leiddi að lokum fjöldasöng í lok skemmtikvöldsins. Hljómsveitin Daltón lék svo fyrir dansi á ballinu sem stóð langt fram á nótt. Sunnudagurinn Hátíðahöldin á sunnudegi sjó- mannadagshelgarinnar vora með hefðbundnu sniði. Lengi vel leit út fyrir að leiðindaveður yrði meðan á hátíðinni stóð en þegar á reyndi var veðrið hið ágætasta. Dagskráin byrjaði reyndar í Landakirkju með sjómannamessu sem var vel sótt að vanda. Að henni lokinni var stutt minningarathöfn við minnisvarða hrapaðra og drukknaðra. Sigurður Georgsson og Guðný Fríða Einarsdóttir lögðu blómsveig við minnisvarðann en Snorri Óskarsson hélt stutta ræðu. Á Stakkó söfnuðust svo hátíðar- gestir saman klukkan þrjú en á sama tíma var kvenfélagið Líkn með sitt árlega hátíðarkaffi í Alþýðuhúsinu og var það vel sótt. Lúðrasveit Vestmannaeyja og Lúðrasveit verkalýðsins tóku á móti gestum og gangandi með léttum lögum á Stakkó en Bjarni töfra- maður reið svo á vaðið og skemmti ungum sem öldnum. Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, hélt hátíðarræðuna að þessu sinni en að henni lokinni fór fram verðlauna- og heiðursafhend- ing en Snorri Óskarsson sá um heiðranimar eins og undanfarin ár. Fimleikafélagið Rán endaði svo hátíðahöldin með stuttu atriði ungra fimleikastúlkna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.