Fréttir - Eyjafréttir - 04.01.2008, Síða 1
Bílaverkstæðið BrAGGINN sf. Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
35. árg. I Ol.tbl. I Vestmannaeyjum 4. janúar 2008 I Verð kr. 200 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
EYJftMflDun
ortini 2007
| 1 HQÍ- r-. ’ r" |ll I Jfl Wa ' 1
1 '-o cTV L ■ f'jtíL.-, E&ÍlW jajfr-M,- -• liái
SKOTGLEÐIN hófst með brennunni við Hástein.
Friðsælt um jól og áramót
Ekki standa Eyjamenn öðrum landsmönnum að baki
þegar kemur að því að skjóta upp flugeldum á gamla-
árskvöld. Allt kvöldið logar himininn yfir Heimaey en
að loknu Skaupinu hefst leikurinn fyrst fyrir alvöru.
Þvert ofan í veðurspá var veður þokkalegt og þá fengu
þeir útrás sem vilja vera mestir og bestir á þessu sviði.
Allt fór þetta vel fram og segir lögregla að jól og
áramót hafi verið friðsæl. Veðrið setti þó strik í
reikninginn og lögregla aðstoðaði fólk vegna veðurofs-
ans 30. desember og aðfaranótt gamlaársdags. Tryggvi
Kr. Ólafsson sagði að maður hefði lent í ryskingum í
heimahúsi aðfaranótt nýársdags en engin kæra hefði
borist vegna málsins. Þá hefði bifreið verið ekið fram
af flugbrautinni aðfaranótt 3, janúar, ökumaður var einn
í bílnum og slapp með lítils háttar meiðsl.
Fréttapýramídinn
Salurinn í Kiwanishúsinu var
þéttsetinn þegar Fréttir kynntu
val á Eyjamanni ársins 2007 og
þeim sem ritstjórn blaðsins
fannst hafa staðið upp úr á árinu
sem er að líða. Fimleikafélagið
Rán fékk Fréttapýramídann fyrir
framlag til íþrótta í
Vestmannaeyjum og Félag um
Tyrkjaránssetur fékk hann fyrir
framlag til menningarmála á
síðasta ári. Eyjamaður ársins
2007 eru 14 útgerðarmenn sem
hafa sýnt það og sannað að þeir
hafa trú á Vestmannaeyjum.
Kom það ekki síst fram á síðasta
ári þegar sex ný skip bættust í
flota Eyjamanna og skrifað var-
undir samning um kaup á þrem-
ur nýjum skipum. Icelandair
kom að þessu með okkur með
sínum árlegu frumkvöðla-
verðlaunum auk þess sem Bjarni
Sighvatsson og Leifur Ársælsson,
fyrrum útgerðarmenn, voru
kallaðir upp til að taka við
viðurkenningum fyrir framlag
sitt til endurnýjunar á tækjum
fyrir Sjúkrahúsið. Margrét Lára
Viðarsdóttir, íþróttamaður ársins
2007, var líka heiðruð.
Fjölskylda Bjarna Sighvatssonar
hafði ástæðu til að fagna því þrjú
komu við sögu. Margrét Lára,
foreldrar hennar Viðar Elíasson,
sem er einn útgerðarmannanna
fjórtán, Guðmunda Bjarnadóttir
og Bjarni, faðir Guðmundu og afi
Margrétar Láru.
Nánar í miðopnu.
Þrettánda-
gleði með
hefðbundnu
sniði
Þrettándagleði ÍBV-íþróttafélags
hefst á Hánni klukkan 19.00 á
morgun, laugardag en að þessu
sinni fara hátíðahöldin fram 5.
janúar, degi fyrr en venjulega.
Hátíðahöldin verða með hefð-
bundnu sniði. Bæjarbúar taka á
móti jólasveinunum þegar þeir
koma ofan af Molda og fylgja
þeim upp á malarvöll þar sem
kveikt verður í brennu og álfar og
púkar fara um víðan völl.
Friðbjöm Valtýsson, fram-
kvæmdastjóri IBV, sagði að nú
væri unnið að því að vekja upp
tröllin sem hefðu sofið í ár en
vonandi tækist að koma þeim á
lappir í tæka tíð. Grýla, Leppa-
lúði og jólasveinarnir bíða spennt
eftir að hitta krakkana áður en
þau halda á fjöll aftur þannig að
þetta verður öru'gglega gaman.
Þrettándagleðin er haldin degi
fyrr en venjulega og það er gert
til að gefa fleirum kost á að vera
með og bærinn styður félagið á
móti. Það eru allir jákvæðir, bæði
starfsmenn bæjarins og okkar
frábæru sjálfboðaliðar sem hafa
starfað við þetta í áratugi.
Á næsta ári verða 60 ár síðan
Týr byrjaði með Þrettándagleðina
þannig að það er löng hefð fyrir
þessari skemmtan," sagði Frið-
björn.
Spá fyrir morgundaginn er góð.
Grímuball Eyverja:
Allir sem
mæta fá
verðlaun
Eyverjar standa fyrir grímuballi
fyrir yngstu kynslóðinni í
Höllinni á laugardag.
„Ballið hefst klukkan 15.00,
jólasveinar mæta á svæðið og
það verður dansað kringum jóla-
tré. Allir sem mæta fá verðlaun
og síðan verða veittar viðurkenn-
ingar fyrir flottustu búningana og
líflegustu framkomuna. Við
hvetjum alla krakka til að mæta í
búningum og það verður örugg-
lega mikið fjör,“ sagði Margrét
Rós Ingólfsdóttir, formaður
Eyverja.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Höllinni er komið leyfi fyrir
þrettándaballi í Höllinni á laug-
ardag. Hljómsveitin SSSÓL mun
halda uppi fjörinu með Helga
Björns í broddi fylkingar.
Nánar á bls 2.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
...SVOÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
netáhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILI TOYGi/ í EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616