Fréttir - Eyjafréttir - 17.01.2008, Page 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 17. janúar 2008
ELLIÐI MEÐ BÖRNUM sínum Nökkva Dan og Bjarteyju Bríeti sem bæði eru í skóla um þá segir hann: Skólarnir í Vestmannaeyjum eru stórir og mikilvægir vinnus-
taðir. Þar fer fram mótun framtíðarinnar og hvergi má slá af kröfunni til Vestmannaeyjabæjar um að vel sé þar að verki staðið.
Þórsheimilinu var opnað í byrjun skólaárs og
hefur það gefið góða raun.
Féló
Vestmannaeyjabær hefur lengi getað státað af
rekstri félagsmiðstöðvar fyrir unglinga.
Þangað hafa eldri nemendur grunnskólans
getað sótt sínar tómstundir og þátttaka hefur
verið nokkuð góð. Húsnæði það sem í boði
var hafði þó löngu gengið sér til húðar.
Aðgengi fyrir fatlaða var til vansa og lítil
endumýjun hafði átt sér stað. Því var tekin
ákvörðun um að flytja félagsmiðstöðina í
annað og hentugra húsnæði. Húsnæði það
sem áður hýsti leikskólann Rauðagerði varð
fyrir valinu og ráðist í breytingar á því. Við þá
ákvörðun skipti ekki hvað síst máli aðgengi
fatlaðra og nálægð við skólann. Vel hefur tek-
ist til með þessar breytingar og er aðsókn góð.
Samgöngur
Samgöngur eru og verða eitt helsta hagsmuna-
mál Eyjamanna. Núverandi bæjarstjóm hefur
lagt höfuðáherslu á varanlegar úrbætur í sam-
göngumálum og einróma samþykkt að flýta
framkvæmdum við Landeyjahöfn (Bakka-
fjöm) eins mikið og verða má. Þar með fjölg-
ar ferðum gríðarlega, ferðatími styttist og
kostnaður við siglingar minnkar. í fram-
kvæmd sem slíkri skiptir hagsmunagæsla
miklu. Tryggja þarf að nýtt skip verði öflugt
og ömggt, verðskrá verði hagstæð heima-
mönnum, ferðatíðni verði há, frátafir verði
ekki meiri en nú eru, rútuferðir verði tíðar,
þjónustustig verði hátt og þannig mætti áfram
telia.
A árinu 2007 fór mikil slík hagsmunagæsla
fram sem vonandi skilar árangri þegar fram
líða tímar. Hvergi má svo slaka á þessari
hagsmunagæslu og þurfa Eyjamenn allir að
sýna samstöðu hvað kröfur varðar. Vest-
mannaeyjabær beitti sér einnig fyrir fjölgun
næturferða en því miður varð dráttur á að slíkt
fengist í gegn og skaðaði það án efa hagsmuni
atvinnulífsins og þá sérstaklega ferðaþjónust-
unnar. Kröfu Vestmannaeyjabæjar um fleiri
ferðir með flugi var mætt og mun verða flogið
þrisvar sinnum á dag milli Vestmannaeyja og
Reykjavíkur skv. sumaráætlun
SASS
Mikil breyting átti sér stað á starfi SASS á
árinu 2007. Með þátttöku okkar hefur verið
unnið að hagræðingu og einföldun stjóm-
kerfis. I stað tveggja framkvæmdastjóra er nú
stefnt að því að vera einungis með einn auk
þess sem leggja á aukna áherslu á sameigin-
lega hagsmunagæslu, jákvæða ímynd Suður-
lands og atvinnuþróun. Vestmannaeyjabær
lagði höfuðáherslu á að styrkja tengsl við
nágrannasveitarfélögin. Hefur það gefið góða
raun og er stefnt að enn nánari samvinnu í
ýmsum málum.
Skipulagsmál
Ný hverfi hafa verið skipulögð og áhersla
hefur verið lögð á að greiða leið þeirra sem
vilja ráðast í verklegar framkvæmdir. Mikið
af góðum lóðum er standa nú Eyjamönnum til
boða og hefur það skilað því að þó nokkur ein-
býlishús eru nú á leið í byggingu.
Þá hefur umtalsverð ásókn verið í iðnaðar-
lóðir og þá sérstaklega á hafnarsvæðinu. Ólíkt
því sem verið hefur undanfarin ár er nú mikið
að gera hjá iðnaðarmönnum og verktökum og
ekki útlit fyrir annað en að enn eigi umsvifin
eftir að aukast.
Sala á hlut okkar í HS
Á árinu 2007 var tekin ákvörðun um að selja
hlut Vestmannaeyjabæjar að nafnvirði kr.
512.756.280 í Hitaveitu Suðumesja. Ákvörð-
un þessi var tekin að vel ígrunduðu máli og
ríkti alger einhugur meðal bæjarfulltrúa hvað
þetta varðaði.
Vestmannaeyjabær leggur áherslu á góða
þjónustu við bæjarbúa og telur það hlutverk
sitt að haga fjárfestingum sínum í samræmi
við það. I kjölfarið á þessari sölu hefur
áhersla verið lögð á að greiða niður skuldir
bæjarfélagsins og horft til þess að rekstrarfor-
sendur þess, til lengri tíma litið, verði í kjölfar-
ið sterkari. Um leið og sala þessi gefur Vest-
mannaeyjabæ aukin tækifæri til að ráðast í
þarfar framkvæmdir sem auka þjónustu við
bæjarbúa verður áhersla áfram lögð á hag-
ræðingu og aðhald í rekstri.
Þátttaka í forvali vegna útboðs á nýjum
Herjólfi
í haust komust Vestmannaeyjabær og Vinnslu-
stöðin hf. að samkomulagi um þátttöku í for-
vali vegna útboðs á rekstri ferju, sem sigla á
milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar.
Þessir aðilar eru sammála um að sú breyting
sem felst í 30 mínútna siglingum milli Vest-
mannaeyja og hafnar í Landeyjum beri með
sér mikil sóknarfæri fyrir Vestmannaeyjar,
bæði ibúa og atvinnulíf.
Þá er það einnig sannfæring beggja aðila að
viðskiptaleg tækifæri felist í eignarhaldi og
rekstri ferjunnar og því sé mikilvægt fyrir
heimamenn að kanna af fullri alvöru forsendur
reksturs og eignarhalds á ferjunni með þátt-
töku í forvali fyrir útboð. í kjölfarið á forval-
inu var svo tekin ákvörðun um þátttöku í
útboði og er nú unni að því.
Mótvægisaðgerðir
Ákvörðun ríkisstjómar um 30% niðurskurð á
þorskkvóta var og mun verða þungt högg fyrir
atvinnulífið og samfélagið hér í Eyjum.
Vestmannaeyjabær tók strax ákvörðun um að
líta á ákvörðunina sem verkefni en ekki vanda-
mál. Því var lagt í mikla vinnu við gerð
mótvægisaðgerða og þær kynntar.
Nú þegar hefur sú vinna skilað árangri því
fjármagn hefur fengist til margra samfélags-
Iegra verkefna svo sem til eflingar Fram-
haldsskólans, fjölgun næturferða með Herj-
ólfi, fjölgun ferða með Flugfélaginu, viðhald á
Heilbrigðisstofnun, framlag til eflingar
Setursins og þannig mætti áfram telja. Vonir
okkar standa til að enn sé borð fyrir báru því
án myndarlegrar aðkomu hins opinbera er hætt
við að neikvæð áhrif verði meiri en ella.
Áhersla verður eftir sem áður lögð á frum-
kvæði okkar heimamanna.
Endurbætur á Barnaskólu
Á árinu var ráðist í löngu tímabærar endurbæt-
ur á Barnaskólanum. Ferlimál voru bætt veru-
lega, félagsaðstað endumýjuð, starfsaðstaða
kennara löguð, kennslustofur endumýjaðar og
fleira. Auk þess voru tvær lyftur settar í húsið.
Kostnaður við framkvæmdina er vart undir 70
milljónum.
Leikskólagjöld
Leikskólagjöld í Vestmannaeyjum hafa sein-
ustu ár verið þau hæstu á landinu.
Hagræðingaraðgerðir þær sem núverandi
bæjarstjóm greip til í rekstri leikskólanna
fljótlega eftir kosningar gerðu okkur kleift að
lækka leikskólagjöld niður fyrir landsmeðal-
tal. Hafa þarf hugfast að þótt hagræðing geti
verið erfið þá snýst hún í öllum tilvikum um
að nýta fjármagn bæjarbúa sem best í því sjón-
armiði að lækka álögur og auka þjónustu.
Vaxtarsamningur og atvinnuþróun
Vestmannaeyjabær er aðili að Atvinnuþró-
unarfélagi Suðurlands og Vaxtarsamningi. Á
árinu 2007 hefur verið unnið að framþróun og
fjölgun starfa í gegnum þessar stofnanir og
þess í stað verið dregið úr beinni aðkomu
sveitarfélagins að fyrirtækjum og rekstri
þeirra.
Ohætt er að fullyrða að fyrirkomulagið hefur
gefið góða raun. Framkvæmd Vaxtarsamnings
hefur þegar skilað miklu og nægir þar að nefna
stuðning við bjórveksmiðju, Grím kokk,
áframvinnslu humars, nýsköpun í ferða-
þjónustu og margt fleira.
Fleira væri hægt að tína til en skal hér látið
staðar numið hvað árið 2007 varðar og horft til
hluta þeirra miklu verkefna sem bíða Vest-
mannaeyjabæjar á árinu 2008.
Árið 2008 - ár vaxtar og fram-
kvæmdaframkvæmda
Bæjarbúum er ljóst að staða Vestmanna-
eyjabæjar er rekstrarlega sterkari en áður hefur
verið. Ræður þar mestu sala Vestmannaeyja-
bæjar á hlut sínum í HS en einnig hefur verið
ráðist í mikla hagræðingu sem sannarlega
hefur skilað árangri. Það þarf hinsvegar sterk
bein til að halda aftur af þenslu þegar þannig
árar og mikilvægt að vera þess minnug að fjár-
magn það sem snúið hefur rekstri úr tapi í
hagnað hefur orðið til með þrautseigju og elju
íbúa í gegnum áratugi og jafnvel árhundruð.
Með það í huga ber að haga rekstri og
framkvæmdum í sveitarfélaginu þannig að
eignarsala sú sem ráðist hefur verið í snúi
rekstri við til langstíma og gullgæsinni verði
ekki slátrað með því að ganga á höfuðstól
söluandvirðis.
Áfram þarf því að gæta aðhalds í rekstri og
umgangast fjármuni með það í huga að verið
er að sýsla með eignir íbúa Vestmanna-
eyjabæjar. Þetta breytir þó ekki þeirri
staðreynd að víða er þörf fyrir framkvæmdir
og nú er aukin geta til að ráðast í slíkar
framkvæmdir. Skal nú hér reifað það sem helst
verður unnið að á árinu 2008.
Fjölnotaíþróttahús
I samræmi við stefnu allra framboða til sveit-
arstjórnarkosninga og samþykktir Vest-
mannaeyjabæjar er nú stefnt að því að bæta
verulega aðtöðu til vetrariðkunar knattspymu.
Það er mat Vestmannaeyjabæjar að slíkt verði
best gert með því að reisa hér fjölnota íþrótta-
hús enda kemur slík bygging til með að halda
okkur í forystu sveitarfélaga hvað íþróttastöðu
varðar. Fyrirhugað er að húsið rísi vestan við
-og áfast við- Týsheimilið. Þar verður fyrst og
fremst boðið upp á aðstöðu til knatt-
spymuiðkunar en um leið verður þar að finna
frjálsíþróttaaðstöðu og fleira. Þessa daga er
unnið að útboði og stefnt er að því að verk-
legar framkvæmdir hefjist eins fljótt og verða