Fréttir - Eyjafréttir - 17.01.2008, Qupperneq 15
Fréttir / Fimmtudagur 17. janúar 2008
15
a Vestmannaeyjar:
nest á fundum þeirra
SAMFYLKINGARMENN, Lúðvík, Kristján, Björgvin og Róbcrt.
Breytingar á gjaldskrá Herjólfs í skoðun:
Nýtt skip fram að Bakkafjöru-
höfn ekki verið rætt
Vegagerðin hefur aldrei skilað
rökum hvers vegna nauðsynlegar
rannsóknir voru ekki kláraðar. Það
liggja fyrir tillögur um að ljúka
rannsóknum næst Heimaey sem
Vegagerðin sleppti. Við emm með
tilboð upp á 50 milljónir til að Ijúka
þessum rannsóknum. Það verður að
gera og mun ekki hafa nokkur áhrif
á framkvæmdir í Bakkafjöru sem
hefjast á næstu mánuðum."
Ámi vísaði til þess að Sjálfstæðis-
flokkur og Samfylking hefðu lofað
að Ijúka rannsóknunum og nú sætu
þessir flokkar í nkisstjóm og því
ættu að vera hæg heimatökin að
fylgja loforðinu eftir. „Það verðum
við að gera til að fá að vita hvar við
stöndum. Líka til að standa ekki í
eilífu rifrildi um það hvort þetta er
hægt eða ekki. Samgönguráðherra
er þessu velviljaður þannig að þetta
ætti ekki að vera mikið mál.“
Loforð um rannsóknir?
Ámi hvatti nafna sinn Mathiesen að
láta pening í rannsóknirnar og var
því vel tekið af fundargestum og var
ekki annað að skilja á ráðherranum
en að hann væri tilbúinn að skoða
málið í fullri alvöru.
Næst sneri Ámi sér að Bakkafjöru
þar sem hann sagði að Eyjamenn
yrðu að halda vöku sinni. Tilboð í
skip verður opnað 2. aprfl nk. og 16.
sama mánaðar verður ákveðið hvort
það verður Eimskip, Samskip, Nýsir
eða Vestmannaeyjabær í samstarfi
við Vinnslustöðina sem hreppir
hnossið.
Gert er ráð fyrir um 1900 ferðum á
ári en í dag fer Herjólfur um 700
ferðir. I tillögum er gert ráð fyrir
fjórum ferðum í vetraráætlun og allt
að átta á sumrin. Árni sagði að þessi
áætlun hljómaði við vilja bæjarráðs
en bæta þyrfti við ódagsettum auka-
ferðum.
Fargjald, 500 krónur fyrir full-
orðna, 1000 fyrir bíl og 250 krónur
fyrir böm og eldri borgara er of hátt
að mati Ama. Sagði hann liggja
fyrir ósk um lægri gjaldskrá, 400
krónur fyrir fullorðna, 700 krónur
fyrir bflinn og 200 fyrir börn og
eldri borgara. Líka hefði komið
fram ósk frá bæjarstjórn um að
miðað yrði við 18 ára en ekki 16
eins og er í dag. „Ég vona að þetta
gangi eftir og að ekki verði ákveð-
nar okurgreiðslur fyrir vöruflut-
ningabfla."
Hafnargarður og vegur frá þjóðvegi
1 niður að höfninni verða boðin út
sér og verður það gert í febrúar eða
mars á Evrópska efnahagssvæðinu
sem tekur 56 daga. „Ættu fram-
kvæmdir þá að geta hafist í júní.“
Það er of seint fyrir flutning á grjóti
í garðana en til þess þarf tvo vetur
og tapast tveir mánuðir í vor. „Þetta
gæti seinkað gerð hafnargarðanna
sem á að ljúka um mitt ár 2009. Að
mínu mati er því óraunhæft að
höfnin verði tilbúin fyrr en árið
2011“
Ámi sagði því áríðandi að fá nýjan
Herjólf en núverandi skipi er ætlað
að brúa bilið verði nýtt skip ekki
tilbúið þegar höfnin klárast. Sá ann-
marki er á því að djúprista Herjólfs
er of mikil. Ristir hann 4,2 metra en
nýja Bakkafjöruferjan á að rista 3,3
metra. „Við vitum ekki hvað langan
tjma tekur smíða nýja ferju," sagði
Ámi.
Milli 70 og 80 sóttu fund Samfylk-
ingarinnar í Höllinni á sunnu-
dagskvöldið. Þar voru mættir
Kristján Möller, samgönguráðherra,
Björgvin G. Sigurðsson, viðskipta-
ráðherra, Lúðvík Bergvinsson,
alþingismaður og formaður þing-
flokks Samfylkingarinnar og Róbert
Marshall, aðstoðamaður samgöngu-
ráðherra.
Eðlilega voru samgöngumálin
fyrirferðarmest en Lúðvík og
Björgvin komu inn á þau mál sem
hæst ber í þjóðfélaginu þessa
dagana. Lúðvík sagði að miklir pen-
ingar hefðu komið til Vestmanneyja
á fjárlögum þessa árs. Mest færi í
samgöngur en með því væri verið að
styrkja ferðaþjónustu sem er ört
vaxandi atvinnuvegur. Hann vill líka
láta breyta ráðningu dómara, það sé
nauðsynlegt því fólk verði að hafa
trú og traust á dómstólum í landinu.
Björgvin tók undir þetta með
dómarana en kom svo að sam-
göngum. sagði nauðsynlegt að allir
stæðu saman um leið að bættum
samgöngum og vísaði þar til
Bakkafjöru.
Kristján sagði það stefnuna í
samgöngumálum að stytta leiðir og
byggja örugga vegi. Það eru miklir
peningar settir í málaflokkinn því á
yfirstandandi kjörtímabili á að setja
110 milljarða í samgöngur.
„Skýrslan um göng til Vestmanna-
eyja var eitt það fyrsta sem kom inn
á borð til mín eftir að ég tók við í
samgönguráðuneytinu. Fjórir millj-
arðar króna eru áætlaðir til Bakka-
fjöru á árinu. Hann tilkynnti fjölgun
í stýrihóp vegna verkefnisins þar
sem hann hafði bætt Róbert Marsh-
all við og Elliða Vignissyni, bæjar-
stjóra, ásamt Unni Brá Konráðs-
dóttur sveitarstjóra í Rangárþingi
ytra. Kristján tilkynnti lfka að Élliði
hefði óskað að segja sig úr hópnum
vegna sameiginlegs tilboðs Vest-
mannaeyjabæjar og Vinnslustöðvar-
innar í smíði og rekstur á ferju í
Bakkafjöru. Skipaði Kristján
Guðjón Hjörleifsson í hans stað.
Kristján upplýsti að skipulags-
vinnu vegna hafnargerðar og ann-
arra framkvæmda vegna hennar
væri lokið og umhverfismati ætti að
ljúka á árinu.
Kristján sagði ljóst að frátafir yrðu
meiri en þegar siglt er Þorlákshöfn.
Sem dæmi þá hefði orðið ófært átta
daga á síðasta ári miðað við öldu-
hæð. Hann sagði að svo gæti orðið
ófært fyrir hádegi og fært eftir há-
degi. Það væri í engu frábrugðið
öðrum samgöngum á landinu þar
sem gæti orðið ófært vegna veðurs,
bæði á landi og lofti.
í umræðum á eftir tóku nokkrir til
máls og spurði Gísli Jónasson,
fyrrum skipstjóri, ráðherrann hvort
hann gerði sér grein fyrir því hvað
litlar rannsóknir lægju að baki
ákvörðun um höfn í Bakkafjöru. Þar
væri bara eitt mælidufl fyrir utan og
það væri allt og sumt sem væri lagt
til grundvallar. Engar straummæl-
ingar hefðu farið fram og sagðist
hann sannfærður um að kostnaður
við höfnina yrði 25 til 30 milljarðar
en ekki 5,6. Líka gæti höfnin fyllst á
einni nóttu af sandi.
Guðmundur H. Guðjónsson, organ-
isti, var óánægður með að ekki var
staðið við loforð alla framboða fyrir
síðustu kosninga að Ijúka rann-
sóknum vegna hugsaniegra ganga.
Hann spurði af hverju gert væri ráð
fyrir að göng til Eyja yrðu átta sinn-
um dýrari en göng á landi. „Átti að
gullfóðra þau?“ spurði Guðmundur
sem tók sem dæmi göng þar sem
kflómetrinn kostar einn milljarð en
ekki þrjá til limm eins og áætlun
Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir um
göng milli lands og Eyja.
Kristján svaraði þessu með því að
segjast hafa lesið skýrslu Vega-
gerðarinnar spjaldanna á milli. Lfka
sagði hann að Gísli Viggósson, hjá
Siglingastofnun, væri þekktur vís-
indamaður á sínu sviði út um allan
heim og svo hefðu allar niðurstöður
verið sendar út til að fá álit fleiri
vísindamanna.
Guðmundur Þ. B. Olafsson, fyrrum
bæjarfulltrúi og forstöðumaður hjá
bænum, spurði hvort von væri á
breytingum á gjaldskrá Herjólfs og
afsláttarkjörum sem fást ef keyptar
eru farmiðaeiningar fyrir rúmar
16.000 krónur.
Lúðvík sagði að í athugun væri að
íbúar í Vestmannaeyjum gætu
fengið meiri afslátt en aðrir.
Vonaðist hann til að það fengist i'
gegn.
Björgvin sagði það stefnu
Samfylkingarinnar að gjaldskrá á
sjó væri sambærileg því sem kostar
að fara sömu vegalengd á landi. Það
mál væri komið í farveg.
Spurningu Sigurgeirs Scheving,
ferðafrömuðar, um hvort von væri á
nýju skipi í stað Herjólfs fram að
Bakkafjöru, svaraði Kristján alfarið
neitandi. Ný ferja yrði boðin út í
aprfl nk. og hún yrði sérhönnuð til
siglinga í Bakkafjöruhöfn.
Guðmundur Þ. B.
✓
Olafsson, fyrrum
bæjarfulltrúi og
forstöðumaður hjá
bænum, spurði hvort
von væri á breyt-
ingum á gjaldskrá
Herjólfs og af-
sláttarkjörum sem
fást ef keyptar eru
farmiðaeiningar fyrir
rúmar 16.000 krónur.
Lúðvík sagði að í
athugun væri að íbúar
í Vestmannaeyjum
gætu fengið meiri
afslátt en aðrir.
Vonaðist hann til að
það fengist í gegn.