Fréttir - Eyjafréttir - 17.01.2008, Side 17
Fréttir / Fimmtudagur 17. janúar 2008
17
Útboðsgögn vegna nýrrar ferju sem sigla á í Bakkafjöru:
Verður 60 til 70 metrar, ristir 3,3
metra og ganghraðinn 15 mílur
- 300 farþegar og 50 bílar - Grunngjald á farþega 500
krónur - Gert ráð fyrir afslætti upp á 40%
Hugmynd Siglingastofnunar um nýja ferju
\
1-1 O 0 c O 0 Ö 0 6
—
MEz w "w-- 1 ■ 1" '*■ "1 • i > i iji 11 >T 5*£. X -rT^íi' •
KXKS_____
III! . 4
... n
*
0D
MOWMIMMM
Éir
V "'kl
□ í
MOMOOlŒ
ÖALOON MCK
r~ adr Jnr Q
V -J
«<OTK>H IN MC0MP
Þannig skal ferjan vera
Hefðbundið ekjufarþegaskip.
Heildarlengd skal vera á bilinu 60-70 metrar.
Breidd skips skal vera á milli 15-17 metrar.
Hámarksdjúprista við fulla lestun verði ekki meiri en 3,3 metrar.
Lágmarksfarþegafjöldi 300 farþegar.
Lágmarksbílafjöldi bifreiða 50.
Tvær aðalvélar og tvöfaldur skrúfubúnaður.
Bógskrúfa að framan.
Gjaldskrá fyrir farþega og bfla
Böm 12 til 15 ára 250 kr.
Fullorðnir 500 kr.
Ellilífeyrisþegar, öryrkjar 250 kr.
Uppbúið rúm í klefa 1.000 kr.
Bifreiðar 1.000 kr.
Lengdarmetri flutningabifreiðar (m/vsk) 1.000 kr./m
Lengdarmetri aftanívagn, dráttarvagn 2.000 kr./m
Afsláttarkort 50 miðar, 40% afsláttur 50 stk. 7.500 kr.
Nú liggja fyrir útboðsgögn vegna
Bakkafjöruferju og er gert ráð fyrir
að tilboð verði opnuð í apríl nk. Um
er að ræða einkaframkvæmd á smíði
og rekstri skipsins og að undan-
gengnu forvali var Eimskipum,
Nýsi, Samskipum og Vinnslustöð-
inni í samstarfi við Vestmannaeyja-
bæ gefinn kostur á að bjóða í verkið.
Tilboðið kemur í framhaldi af
skýrslu stýrihóps sem var falið að
taka mið af tillögum starfshóps um
samgöngur til Vestmannaeyja og
leggja fram tímaáætlun um verkið.
Miðað var við að ný ferja hefji
siglingar milli lands og Eyja árið
2010.
Gerð hafnar vel möguleg
Meginniðurstaða stýrihópsins er að
gerð Bakkafjöruhafnar sé vel mögu-
leg og að áhrif ferjusiglinga milli
Vestmannaeyja og Bakkafjöru séu
mjög jákvæð. Að baki niðurstöð-
unni liggja frumrannsóknir Sigl-
ingastofnunar, áhættumat fyrir
siglingaleiðina, þarfagreining vegna
stærðar ferju, mat á áhrifum starf-
seminnar á samfélagið og mat er-
lendra aðila á niðurstöðum Sigl-
ingastofnunar.
Stærð skips
Við hönnum skipskrokks á að taka
mið af þægindum fyrir farþega og
draga á úr álagi á festingar farms,
bfla og vagna og einnig til að
minnka líkur á sjóveiki hjá far-
þegum. Tryggja á gott aðgengi allra
farþega að ölium farþegasölum, sér-
staklega skal hugað að aðgengi
hreyfihamlaðra og þá sérstaklega
þeirra sem nota hjólastóla. í skipinu
skulu vera farþegasalir með sætum
fyrir þann fjölda farþega sem ferj-
unni er heimilt að flytja. í farþega-
sölum skulu vera sjónvarpsskjáir
sem farþegar geta horft á. Með tilliti
til þess að auka vellíðan farþega skal
matsalur og veitingaaðstaða ekki
vera staðsett framarlega í skipinu,
heldur sem næst miðju skipi.
í ferjunni skulu vera fjórir klefar
með fjórum kojum og þrír með
tveimur kojum.
Breidd akstursopa og búnaður fyrir
akstursbrýr skal þannig útfærður að
unnt sé að nýta akstursbrýr sem fyrir
eru í Vestmannaeyjum og Þorláks-
höfn.
Áætluð lengd siglingar frá
Bakkaíjöru að Básaskersbryggju í
Vestmannaeyjum er um 6,4 sjómflur
og tæki hún um hálftíma.
Áætlun skipsins
f útboðsgögnum er ákveðin áætlun
sem er mismunandi eftir árstíðum
en í allt er gert ráð fyrir 1900 ferðum
á ári. Ferjan á að leggja úr höfn í
Vestmannaeyjum að jafnaði alla
virka daga kl. 07:30 og til baka kl.
8:30. Síðasta ferð yfir vetrarmánuð-
ina er að jafnaði frá Bakkafjöru kl.
20:00. Síðasta ferð á sumrin er að
jafnaði frá Bakkafjöru kl. 23:00.
Vetraráætlun
Yftr vetrarmánuðina frá 1. nóvem-
ber til 1. mars er miðað við fjórar
ferðir á dag. Á annasömum dögum
er miðað við að ferðir geti orðið allt
að sex á dag. Alla virka daga nema
föstudaga verða íjórar ferðir á dag
frá Vestmannaeyjum kl. 7:30, 9:30,
17:00, 19:00 og frá Bakkafjöru kl.
8:30,10:30,18:00,20:00.
Á föstudögum verða fimm ferðir á
dag frá Vestmannaeyjum kl. 7:30,
9:30, 14:00, 17:00, 19:00 og frá
Bakkafjöru kl. 8:30, 10:30, 15:00,
18:00, 20:00. Á laugardögum verða
þrjár ferðir á dag frá Vestmanna-
eyjum, kl. 7:30, 9:30, 17:00 og
Bakkafjöru kl. 8:30, 10:30 ogl8:00.
Á sunnudögum verða fjórar ferðir
á dag, frá Vestmannaeyjum kl.
11:30, 15:00, 17:00, 19:00.
Vor- og haustáætlun
Á vorin frá 1. mars til 30. apríl og 1.
september til 31. október er miðað
við fimm ferðir á dag, á annasömum
dögum geta ferðimar orðið allt að
sjö á dag.
Sumaráætlun
Yftr sumarmánuðina frá 1. maí til
31. ágúst er miðað við sex ferðir á
dag, á annasömum dögum geta ferð-
imar orðið allt að átta á dag. Alla
virka daga nema föstudaga verða
sex ferðir á dag, frá Vestmanna-
eyjum kl. 7:30, 9:30, 16:00, 18:00,
20:00, 22:00 og frá Bakkafjöru kl.
8:30, 10:30, 17:00, 19:00, 21:00, og
23:00. Á föstudögum verða sjö ferð-
ir á dag, frá Vestmannaeyjum kl.
7:30, 9:30, 11:30, 16:00, 18:00,
20:00,22:00 og Bakkafjöru kl. 8:30,
10:30, 12:30, 17:00, 19:00, 21:00,
23:00. Á laugardögum verða fjórar
ferðir á dag, frá Vestmannaeyjum kl.
7:30, 9:30, 16:00, 18:00 og frá
Bakkafjöru kl. 8:30, 10:30, 17:00,
19:00. Á sunnudögum verða sjö
ferðir á dag, frá Vestmannaeyjum kl.
9:30, 11:30, 14:00, 16:00, 18:00,
20:00 og 22:00 og frá Bakkafjöru kl.
10:30, 12:30, 15:00, 17:00, 19:00,
21:00, 23:00.
Aukaferðir skulu famar, í kringum
föst stórmót í íþróttum, sem haldin
eru í Vestmannaeyjum, eða að öðm
tilefni, ef verkkaupi óskar þess. Ein
ferð er t.d. farin aðfaranótt mánu-
dags eftir Peyjamót, ein ferð getur
verið farin í kringum Pæjumót og
goslokahátíð.
Farþegaaðstaðan í Bakkafjöru er
enn óhönnuð en gert er ráð fyrir húsi
sem verður um 225 fermetrar með
snyrtiaðstöðu, aðstöðu fyrir starfs-
mann og afgreiðslu.
Þar verða sæti fyrir allt að 120
manns og gert er ráð fyrir lágmarks
veitingasölu.
Lýsing á Bakkafjöruhöfn
Höfnin verður afmörkuð af tveimur
bogadregnum brimvarnargörðum.
Hvor þeirra er um 600 m á lengd.
Skilgreind viðmiðunarmörk ferju-
siglingar frá Vestmannaeyjum til
Bakkafjöru eru miðuð við ölduhæð
á Bakkafjörudufli og flóðhæð.
Viðmiðunarmörkin eru ákveðin sem
3,6 metra ölduhæð að viðbættum
25% af flóðhæð miðað við stór-
straumsfjöru. Fari ölduhæð á
Bakkadufli yfir þessa viðmiðun er
heimilt að fella niður ferðir.
Skilgreind viðmiðunarmörk vind-
álags eru 25 m meðalvindur í 10
mínútur á Bakkaflugvelli og 30 m
meðalvindur í 10 mínútur mælt á
Stórhöfða. Ef vindhraði fer yfir
viðmiðunarmörk er heimilt að fella
niður ferðir.
Skipstjóra ferjunnar ber að leggja
mat á ölduhæð, flóðhæð og vindálag
Draumur eða veruleiki?
„Eigum við að fá okkur ís í Vík?
Eða kannski fara í sund í Laugar-
dalslaugina? Svona gæti spjall
hljómað á heimili í Vestmanna-
eyjum á laugardagsmorgni þegar
Bakkafjöruferjan er komin í
notkun," segir í kynningarbæklingi
sem samgönguráðuneyti, Siglinga-
stofnun og Vegagerð hafa gefið út.
Vonandi að þetta rætist.