Fréttir - Eyjafréttir - 24.07.2008, Page 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 24. júlí 2008
Blogghelmar
Georg Eiður Arnarson:
Lundafréttir
Eyjamaður vlkunnar:
Alltaf gaman að vinna strákana
í Fréttum á fimmtudaginn er grein
eftir Egil Amgnms-
son, undir heitinu
Sjarminn dofnar.
Þama er Egill að
senda bæjarstjóm-
inni tóninn (sýnist
mér) fyrir að hafa
tekið þá ákvörðun
að banna frjálsar
veiðar á heimaland-
inu og neyða menn til að stofna
félag. Eg get tekið undir þessa
grein hjá honum að mestu leyti, en
langar þó að benda á hluti sem að
ég veit ekki hvort að Egill gerir sér
grein fyrir. Eins og t.d. að varðandi
veiðikort, þá eru þetta einfaldlega
landslög sem hafa verið í gildi í
nokkur ár, en því miður er ljóst að
talsverður fjöldi manna hefur ekki
sinnt því, og þarf því núna að
kaupa sig inn á námskeið til þess
að fá þetta leyfi. Þetta er einfald-
lega trassaskapur og ég held að
menn geti lítið annað en kennt
sjálfum sér um.
Einnig gagnrýnir hann stofnun
veiðifélags á Heimaey og að til
þess að ganga í félagið, þurfi menn
að borga eingreiðslu 20 þús.
krónur. Það getur vel verið að ein-
hverjum finnist þessi upphæð
frekar há, en það skal tekið fram,
að ákvörðunin um þessa upphæð
var tekin áður en við vissum um
hversu hátt gjald Vestmannaeyjabær
færi fram á og er mér mikil ánægja
af því að upplýsa það, að miðað við
þann fjölda sem nú þegar hefur
skráð sig, þá eigum við sennilega
nú þegar inni á reikningi fyrir
greiðslu næsta árs (ef fyrirkomulag-
inu verður ekki breytt). Mig langar
líka að benda honum á, að í mörg-
um veiðifélögum í Eyjum eru jafn-
vel dæmi um það, að sumir veiði-
menn veiði jafnvel nokkur þúsund
lunda á hverju sumri, en fái ekki
nema rétt jafnvel í soðið út úr því
sjálfir, því að félagið á alla veiðina.
Þannig verður þetta ekki hjá okkur,
en í þessum samanburði finnst mér
20 þús. krónur ekki vera hátt gjald,
en ítreka það að enginn af okkur
bað um þessar breytingar, þær voru
samþykktar af bæjarstjórninni með
öllum greiddum atkvæðum og var
enginn á móti.
Gísli Hjartarson:
Ánægður með
þoku og rigningu
segja í öll þau skipti
sem ég heyri um
þessa fellibylji sem
berja á hinum og
þessum löndum þá
fæ ég svona sting í
magann því ekki
myndi ég vilja
lenda í þessu
veðurfyrirbæri,
síður en svo.
Það blæs nú oft hér á skerinu fagra
í suðri en það er nú mun skárra en
þetta hvirfilbyljafyrirbæri, meira að
segja blæs oft svo hressilega á
Fjólugötunni hjá mér að maður
heldur að kofinn færist jafnvel úr
stað en til þess hefur nú aldrei
komið. Og núna þegar hefur verið
þoka og rigning í 2 daga er ég mjög
sáttur og finnst þetta mjög þægilegt
öðru hvoru, stóð t.d. í bílskúrs-
dyrunum í einar 30 mínútur í
gærkvöldi þegar ég var búinn að
sópa út og gera klárt fyrir næstu
skref í framkvæmdunum í kjall-
aranum og dáðist að þokunni og
úðanum og því að skyggni var
nánast ekkert - þetta var fullkomið
- eitthvað svo hlýtt og notalegt.
..en svo rofar sennilegast til
fljótlega og þá kemur kannski
sólarglæta ... ég er ekki að grínast
þegar ég segi að mér finnst
unaðslegt að rölta í þoku og þéttum
úða um götur míns fagra heima-
bæjar...
Það verð eg að
Sign'ður Lára er Eyjamaður vikunnar.
Sigríður Lára Garðarsdóttir hefur
staðið sig frábærlega í golfinu í
sumar. Síðasta afrek hennar var að
ná þriðja sætinu í Holukeppni ung-
linga.
Nafn: Sigríður Lára Garðarsdóttir,
Sísí Lára.
Fæðingardagur: 11. mars 1994.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Foreldrar mínir heita
Garðar og Rinda og svo á ég einn
bróður sem heitir Sæþór.
Draumabfllinn: Eg veit nú ekki
mikið um bíla, en ég væri til í að fá
einn Golf Gti, eða vera á mótor-
hjóli.
Uppáhaldsmatur: Allt sem
mamma eldar.
Versti matur: Ég er ekki enn búin
að smakka hann.
Uppáhalds vefsíða: fotbolti.net og
kylfingur.is.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Bara svona stelputónlist.
Aðaláhugamál: íþróttir, þ.e.a.s.
fótbolti, handbolti, golf, fjölskyld-
an, vinir og ferðast.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Það eru nú margir, Ronaldinho,
Ronaldo, Gerrard, Torres og Tiger
Woods.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar, Taíland
og Búlgaría.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV og Golfklúbbur
Vestmannaeyja, GV, svo held ég
upp á marga íþróttamenn, eins og
Torres, Hermann Hreiðars, Tiger
Woods og Margréti Láru.
Ertu hjátrúarfull: Hvað er það?
Stundar þú einhverja íþrótt: Já,
fótbolta, handbolta og golf.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Bara
grínþættir, horfi annars voða lítið á
sjónvarp.
Hvenær byrjaðir þú að stunda
golf: Ég var átta ára.
Ertu ánægð með aðstöðuna í
Vestmannaeyjum: Já, hún er mjög
góð, ég get alltaf farið í golf, án
þess að panta rástíma og það er
mjög gott að vera hér, góðir vallar-
starfsmenn sem sjá um völlinn sem
er gott. Ég væri samt alveg til í að
fá knattspymuhús, en það er eigin-
lega ekki neitt sem ég er óánægð
með, þetta er fínt eins og það er.
Hvað er mest spennandi við
golfið: Bara allt, þetta er ekki bara
að slá eina kúlu, heldur líka bara að
hafa gaman af þessu og maður
getur alltaf bætt sig, því æfingin
skapar meistarann. Ég hef líka
verið dugleg að æfa mig og það
skilar sér, félagsskapurinn er mjög
góður, strákamir em mjög fínir og
það er alltaf gaman að vinna þá,
hehe. Það var líka maður sem sagði
mér að eiginlega væri það 50%
félagsskapurinn sem skipti máli.
Matgozðingur vikunnar:
Grænmetisbaka a la Halldór Ingi
Halldór Ingi Guðmundsson tók
áskorun bróður síns, Bjama Olafs,
um að bjóða upp á úrvalsuppskrift.
Er það grænmetisbaka ala Halldór
Ingi.
Hráefni:
2 msk. ólífuolía
1 sæt kartafla, skorin í skífur.
2 -3 stilkar sellery í skífum.
1 msk. ferskt engifer.
1 zukkíni í skífum.
4 gulrætur í skífum.
1 paprika söxuð í litla bita.
U.þ.b. 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 askja PHILADELPHIA LIGHT
HVITLÖK/URTER
RJÓMAOSTUR
'/2-1 glas FILIPPO BERIO GRÆN
PESTO SÓSA
1-2 msk. THAI SWEET CHILI
SAUCE eftir smekk
Halldór Ingi Guðmundsson er
matgœðingur vikunnar.
Láta allt á pönnu, krauma og
mýkja þar til grænmetið er orðið
mjúkt.
Setja í eldfast fat og setja rifinn
ost og parmesanost og svo
DURKEE GARLIC ROMAN.
SPRINKLE sáldrað yfir og sett
undir grill í 5 mín. til að fá fallegan
brúnan lit og ostinn örlítið stökkan.
Gott með fiski eða kjöti einnig
sem aðalréttur með góðu brauði,
fínt í tjaldið á þjóðhátíð.
Þetta er meinhollur andskoti og
það má graðka þessu í sig eins og
enginn væri morgundagurinn.
Hráefnið fæst væntanlega allt í
Vöruvali á góðu verði.
Ég skora á Daða Garðarsson í að
tefla fram næstu uppskrift.
Kveðja, Halldór Ingi.
Mynd óskast:
Brátt fer í gang það þarfaverk að taka upp þráðinn sem niður féll við skráningu listaverkasafns
Vestmannaeyja. Ætlunin er að gera svo ítarlega grein fyrir listaverkunum, sögu þeirra og listamönnunum
sem nokkur kostur er og hafa samantektina á góðum og áberandi stað í nýjum Sagnheimum. Nú er okkur
einn vandi á ferðum. Sá er að vita betur og þó enn fremur að eignast mynd af listamanninum Axel Einars-
syni. Helgi Pálmarsson kom færandi hendi 27. mars sl. og gaf safninu fádæma fallega mynd eftir Axel sem
hér er prentuð. Frá þeim tíma höfum við leitað að mynd af listamanninum, en ávallt gripið í tómt. Nú er
leitað á náðir lesenda Frétta ef nokkur lúrir á mynd af Axel eða geti frætt okkur nánar um þann góða lista-
mann. Sem fyrr er vinsamlegast beðið um að hjálpsamir komi á Bókasafnið eða hringi í síma 481 1184.
Kirkjcir bazjarins:
Landakirkja
Laugardagur 26. júlí
Kl. 11.00. Útför Margrétar Ágústu
Ágústsdóttur.
Sunnudagur 27. júlí. 10. sunnu-
dagur eftir þrenningarhátíð.
Kl. 11.00. Guðsþjónusta í
Stafkirkjunni.
Á síðasta sunnudegi fyrir
þjóðhátíð hefur skapast sú venja að
þann sunnudag sé messað í
Stafkirkjunni og er þeirri venju að
sjálfsögðu viðhaldið. Védís
Guðmundsdóttir og Ámi Óli annast
hljóðfæraleik og söng.
Sr. Guðmundur Örn Jónsson
prédikar og þjónar fyrir altari.
Kl. 14.00. Guðsþjónusta á
Hraunbúðum. Védís og Ámi annast
hljóðfæraleik og söng. Sr.
Guðmundur Öm Jónsson prédikar.
Viðtalstímar prestanna eru
þriðjudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur 24.
K1 kl. 20:30 Bænaganga, skipum
okkur í skarðið.
Laugardagur 26.
Engin samkoma!
Sunnudagur 27.
7 kl. 13:00 Hátíðarsamkoma inn-
setning nýs forstöðumanns safn-
aðarins, Guðna Hjálmarssonar.
Snorri Óskarsson, Vörður Trausta-
son og fleiri taka þátt í samkom-
unni. Kaffiveitingar að samkomu
lokinni. Allir hjartanlega velkomnir.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Vertu velkominn að rannsaka með
okkur Biblíuna kl. 10:30. Sérstök
dagskrá fyrir bömin.
Sjáumst!