Fréttir - Eyjafréttir - 21.08.2008, Síða 1
35. árg. I 34. tbl. I Vestmannaeyjum 21.ágúst2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 I www.eyjafrettir.is
Stórtónleikar hippatímans og Hippaball í Höllinni 3. og 4. október:
Úrval tónlistarmanna
-í þeim hópi eru Bjartmar Guðlaugsson, Shady Owens, Rúnar
Júlíusson, Helgi og Ingi Hermannssynir, Chris Foster og Bára
Grímsdóttir - Til stóð að sjálfur Donovan mætti á hátíðina
Hippahátíð er orðin fastur liður í
Eyjum og sjöunda hátíðin verður
haldin fyrstu helgina í október.
Hátíðin hefst með stórtónleikum
hippatímans föstudaginn 3. október
og dagskráin er að venju bæði fjöl-
breytt og metnaðarfull.
Helga Jónsdóttir, talsmaður
Hippabandsins, sagðist verða vör
við mikinn áhuga fyrir hátíðinni og
valinkunnir tónlistarmenn mæta á
hana. Má þar nefna Bjartmar
Guðlaugsson, Shady Owens, Rúnar
Júlíusson, Helga og Inga
Hermannssyni, Chris Foster og
Báru Grímsdóttur.
Hippabandið mun flytja brot af
því besta frá tímabiiinu en bandið
skipa þau Helga Jónsdóttir, Arnór
Hermannsson, Gnmur Gíslason,
Þröstur Jóhannsson, Hrafnhildur
Helgadóttir, Agúst Einarsson, Páll
Viðar Kristinsson og Karl
Bjömsson.
Chris Foster og Bára Grímsdóttir
koma fram á tónleikunum ásamt
Hippabandinu en þau flytja tónlist
sem má flokka þjóðlagamegin í
hippatónlistinni. Þá munu Helga og
Arnór flytja Donovan lög en eins
og komið hefur fram stóð til að
Donovan sjálfur kæmi á hátíðina.
Því miður gat ekki orðið af því en
tónlistin mun engu að síður fá sinn
sess á hátíðinni. „Við Amór höfum
verið miklir aðdáendur tónlistar-
mannsins og ætlum að flytja
nokkur lög eftir hann og komum
til með að njóta stuðnings
Hippabandsins," sagði Helga þegar
hún var spurð út í dagskrána
Davíð Amórsson og Sigurður
Árnason verða í aðalhlutverki þegar
Kinks tónlist hljómar á hátíðinni.
Óhætt er að segja að Davíð og
Siggi séu Kinks vinir en þeir hafa
verið vinsælir á English pöbb í
Reykjavfk. „Þeir hafa gjörsamlega
fallið fyrir öllu sem Kinks hefur
verið að gera í tónlist og það er líka
skemmtilegt að þeir hafa verið að
kynna óþekkt lög The Kinks fyrir
okkur hinum og má fullyrða að þeir
em að ná grúvinu. Bjartmar
Guðlaugsson er öllum kunnur og
minnir okkur á boðskap tímabilsins
og hristir alltaf upp í liðinu, text-
arnir em alveg frábærir."
Papar koma einnig fram á hátíð-
inni, hljómsveitin hefur tekið
nokkrum mannabreytingum en
byggir á gömlum grunni og er að
miklu leyti skipuð hljómlistar-
mönnum frá Eyjum Hermann
Ingi og Helgi Helgason flytja
Rolling Stones lög fyrir gesti og
síðast en ekki síst munu Shady
Owens og Rúnar Júlíusson skipa
stóran sess á hátíðinni. „Shady er
mjög spennt að koma til Eyja.
Hennar þáttur og Rúnars verður
stærri en áætlað var þar sem
Donovan kemur ekki. Þau munu
eflaust verða frábær saman á sviði
og lagaval þeirra ætti að gleðja
aðdáendur Shady og Rúnars Jrví lög
eins og Ég vil að þú komir, Eg
elska alla og Án þín hafa verið vin-
sæl síðan þau vom gefín út fyrst, “
sagði Helga en Hippaballið verður
síðan á sínum stað á laugar-
dagskvöldinu og verður auglýst
nánar síðar.
BÆJARPRYÐI Fréttir fóru um bæinn í leit að húsum sem hafa verið tekin í gegn á síðustu mánuðum og misserum.
Ulugagata 15 er eitt þeirra sem eru sannkölluð bæjarprýði. Bls. 15.
Vantar
leikskóla-
pláss
-Fjölga á dag-
gæsluúræðum
„Staðan á leikskólum er þannig að
rugsanlega náum við ekki að taka
511 18 mánaða böm inn á leikskóla
m við leysum, það með því að
fjölga daggæsluúræðum og þá
bætast við allt að 16 daggæslu-
aláss, sagði Jón Pétursson, fram-
kvæmdastjóri fjölskyldu- og
fræðslusviðs þegar hann var
ípurður út í stöðuna á leikskóla-
plássum í Vestmannaeyjum.
Jón segir að með tilkomu fjög-
urra nýrra daggæsluaðila sem taka
að sér böm í daggæslu ætti að
vera hægt að mæta þörfinni. Sam-
kvæmt reglugerðum bæjarins sé
daggæsla hjá daggæsluaðilum
liðurgreidd fyrir 18 mánaða böm
og einstæða foreldra. Greiðslur
foreldra ættu því að vera svipaðar
og fyrir leikskólapláss.
Jón bendir á að vísbendingar séu
um að yngri foreldrar séu að flytj-
ast hingað og fjölgað hafi í yngri
bekkjum grunnskólans. „Það er
sem betur fer jákvæð þróun en
fæðingar eru um 40 til 45 á ári.
Fáar dagmæður hafa verið starf-
andi í Vestmannaeyjum miðað við
önnur bæjarfélög og við fáum nú
16 daggæslupláss. Stefnan er að
böm fái leikskólapláss í kringum
18 mánaða aldur en eldri börn
bafa forgang. Ef það kemur í ljós
að við höfum ekki úrræði til að
mæta þörfmni þá verðum við að
opna daggæsludeild við leik-
3kóla,“ sagði Jón.
Stórhýsi undir
Þekkingarsetur
Áætlanir em uppi um að byggja
2400 fm hús undir Þekkingarsetur
Vestmannaeyja en mjög er farið
að þrengja að starfseminni að
Strandvegi 50, Hvíta húsinu.
Þetta byggist fyrst og fremst á
þarfagreiningu Ingibjargar Þór-
ballsdóttur.
Bæjarstjórn stefnir því að bygg-
ingu á 2400 m2 húsi í miðbæ
Vestmannaeyja. Þar er hugmynd-
in að vera bæði með Þekk-
ingarsetur og Sæheima. Til
samanburðar má nefna að hús-
næði Þekkingarsetursins í dag er
um 630 fm.
BIs. 8 og 9.
Nýr fjármálastjóri
Bergur Ármannsson hefur verið
ráðinn fjármálastjóri hjá bænum.
Tekur hann við af Páli Einarssyni.
VIÐ ERUM Á MÓTI STRAUMU
netÉhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILI í EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM.864-4616