Fréttir - Eyjafréttir - 23.10.2008, Qupperneq 1
FRÉTTIR
Bílaverkstæðið BRAGGINN sf. Flötum 20 ^ T —rf*- .w ’ ujB
Viðgerðir og smurstöð - Réttingar og sprautun - Sími 481 3235 Sími 481 1535
Færandi
björgina
heim
Huginn VE kom til Vest-
mannaeyja á mánudaginn með
atla úr norsk-íslenska síldar-
stofninum. Aflinn var um 500
tonn af frystri sfld og svipað fór
í bræðslu. Páll Guðmundsson,
útgerðarstjóri, segir árið hafa
verið gott hjá þeim fram að
þessu og er aflaverðmæti
nálægt 1300 þúsund krónum.
Síðustu þrjá túra var Huginn á
veiðum við Noreg þar sem hann
landaði þremur túrum. „Við
eigum lítið eftir af kvótanum
okkar í norsk-íslensku sfldinni
og ætlum að hvfla okkur á
henni í bili. Þeir stoppa ein-
hverja daga og næsta verkefni
er íslenska sfldin þar sem við
eigum um 3000 tonn. Þeir eru
byrjaðir að fá sfld í
Breiðafirðinum. Veiði byrjaði
þar um þetta leyti í fyrra og ef
allt gengur að óskum verða
þetta þrír túrar hjá okkur,“
sagði Páll.
Myndina tók Oskar Pétur
þegar Huginn kom á mánu-
daginn.
35. árg. I 43. tbl. I Vestmannaeyjum 23. október 2008 I Verð kr. 250 I Sími 481-1300 I Fax 481-1293 1 www.eyjafrettir.is
HUGINN VE kemur til hafnar í Eyjum á mánudaginn.
Greiðslur fyrir fisk-
afurðir skila sér ekki
Talsmenn útgerða taka ástandinu með mikilli ró
og vonast eftir að það lagist þegar líður á vikuna
Gjaldeyrisviðskipti hafa gengið illa
við útlönd undanfarnar þrjár vikur
og peningagreiðslur fyrir fiskafurðir
ekki skilað sér. Talsmenn útgerða
virðast þó taka ástandinu með mik-
illi ró og vonast eftir að ástandið
lagist þegar líður á vikuna.
Þórður Rafn Sigurðsson, formaður
Utvegsbændafélags Vestmannaeyja,
sagði stöðuna óbreytta frá því í
síðustu viku en illa hefur gengið að
senda greiðslur milli landa. „Það er
annað verra að greiðslur hafa farið
inn á vitlausa kennitölu eins og
gamla bankann hjá Glitni," sagði
Þórður og vildi ekki meina að menn
væru stressaðir vegna ástandsins.
„Ríkisstjórnin er búin að ábyrgjast
allar greiðslur og menn eru slakir
yfir þessu. Þetta ástand gengur yfir á
einhverjum árum.“
Bergur - Huginn hf. hefur ekki
fengið gjaldeyrisgreiðslur vegna
útflutnings á fiski frekar en aðrir
sem standa í útflutningi á íslandi í
dag. „Þetta er þriðja vikan sem við
fáum engar greiðslur,“ sagði Þor-
steinn Ingólfsson, skrifstofustjóri
fyrirtækisins. „Við höfum látið
geyma greiðslur fyrir okkur því það
er allt frosið. Seðlabankinn er að
setja upp hjáleiðir og ég hef heyrt að
ein og ein greiðsla komist í gegn en
svo eru miklu fleiri sem eru týndar í
kerfinu. Við bfðum meðan við
getum, þetta hlýtur að leysast og það
er orðið lífsspursmál fyrir mörg
fyrirtæki."
Asdís Sævaldsdóttir, útgerðarstjóri
Bergs ehf., segir að ekkert hafi
gengið með gjaldeyrisviðskipi frá
útlöndum. „Við frystum allt úti og
þeir geyma greiðslumar fyrir okkur
því við höfum heyrt sögur af pen-
ingum sem eru fastir í kerfinu. Við
erum að fara aftur um 20 til 30 ár í
gjaldeyrisviðskiptum,“ sagði Asdís
og var í framhaldinu spurð hvort
útgerðin þyldi þetta öllu lengur.
„Við þolum þetta illa, við höfum
fengið greiðslur vikulega og þurfum
að borga mannskap o.fl. Við feng-
um samt þær fréttir í gær að þetta liti
eitthvað betur út. Við verðum að
vona það besta.“
Guðjón Rögnvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Péturseyjar ehf.,
segir gjaldeyrisgreiðslur ekki skila
sér og séu í raun fastar í kerfmu.
„Það var bæði lagt inn á okkur í
banka í Frakklandi og á Spáni og
það hefur ekki skilað sér.
Vandamálið felst m.a. í því að ef
greiðslur hafa verið lagðar inn á
okkur hafa þær ratað inn í gömlu
bankana og erfitt að fá þær milli-
færðar inn á nýju bankana.
Viðskiptavinur okkar í Frakklandi
hefur ekki náð að taka þessa
peninga út til að geta sent aftur. Eg
veit um peninga sem voru sendir frá
Bandaríkjunum inn á reikning í
Kaupþingi og þeir vom sendir til
baka. Okkur er sagt að þetta komist
í lag á næstu dögum en þetta er afleit
staða. Við verðum að vona að þetta
bjargist," sagði Guðjón
Góður túr
hjá Guð-
mundi VE
-Álsey tilbúin um
mánaðamót
Júpíter, nótaskip ísfélagsins, fór á
þriðjudagskvöldið áleiðis til veiða
á Islandssfldinni í Breiðafirði.
Guðmundur landaði í Noregi í
vikunni fullfermi, 840 tonnum, af
frosnum sfldarafurðum úr norsk-
fslenska síldarstofninum. Þor-
steinn hefur nú lokið uppsjáv-
arveiðum að sinni og er að skipta
yfir á bolfiskveiðar með botn-
vörpu.
Alsey varð fyrir alvarlegri vélar-
bilun í síðustu viku suðaustur af
landinu og dró Hoffellið hana til
Vestmannaeyja. I ljós kom að
stimpill í vélinni hafði gefið sig
og er nú beðið eftir varahlutum.
Skipið verður væntanlega tilbúið
um mánaðamótin og fer þá til
veiða á Islandssfldinni, að sögn
Eyþórs Harðarsonar, útgerðar-
stjóra Isfélags Vestmannaeyja.
Véruleg
hækkun á
fiskverði
Á þriðjudag varð veruleg hækkun
á fiskverði á fiskmörkuðunum.
Selt var 51 tonn af óslægðum
þorski og var meðalverð 317
kr/kg. Þá voru boðin upp 6,7 tonn
af slægðum þorski og þar var
meðalverðið 348. Ysan var einnig
á góðu flugi. Meðalverð á 84,7
tonnum var 240 kr.
Þetta kemur fram á vef
Landssambands smábátaeigenda
og því bætt við að þetta séu afar
góðar fréttir þar sem menn hafi
verið farnir að sjá þorskverðið í
sömu tölu og það var fyrir ári.
Fjármálaráð-
gjöf áfram
Vestmannaeyjabær og Sparisjóður
Vestmannaeyja í samvinnu við
Deloitte bauð einstaklingum og
fyrirtækjum upp á fjármálaráðgjöf
á fimmtudag og föstudag.
Ólafur Elísson, sparisjóðsstjóri
sagði að ráðgjöf yrði veitt áfram á
næstunni ef þörf væri á því. Fólk
getur pantað tíma hjá ráðgjafa í
gegnum Sparisjóðum.
I framhaldinu verður endurmetið
hvort þörf er fyrir frekari þjón-
ustu.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
...SVOÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
netáhamar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / ® ÞJÓNUSTUAÐILI
I EYJUM
FLATIR 21 / S.481-1216 / GSM. 864-4616