Fréttir - Eyjafréttir - 27.11.2008, Side 15
Fréttir / Fimmtudagur 27. nóvember 2008
15
[Knattspyrna
Tveir framherjar til ÍBV
Um helgina gekk knattspyrnudeild
ÍBV frá samningum við tvo nýja
leikmenn, þá Viðar Örn Kjartansson
og Elías Inga Arnason en báðir
skrifuðu undir tveggja ára
samninga.
Viðar Örn er 18 ára framherji sem
spilaði með Selfossi í 1. deildinni á
síðasta tímabili. Viðar þótti standa
sig frábærlega í sumar en hann
skoraði 8 mörk í 22 leikjunr og var
fyrir vikið valinn efnilegasti leik-
maður deildarinnar. Viðar hefur
spilað allan sinn feril með Selfossi
en hann hefur einnig spilað fjölda
leikja með ungmennalandsliðum
Islands.
Elías Ingi er 25 ára framherji sem
vakti mikla athygli fyrir frammi-
stöðu sína í sumar. Elías spilaði
með IR sem vann 2. deildina með
yfirburðum í sumar en Elías var
NÝJU LEIKMENNIRNIR. Viðar Örn Elíasson og Elías Ingi Árnason
sem báðir hafa skrifað undir tveggja ára samning við IBV.
lykilmaður í liði Guðlaugs Bald-
urssonar fyrrverandi þjálfara IBV,
skoraði 21 mark í 19 leikjum og
varð markakóngur í 2. deild. Meðal
annars skoraðþ hann tvö mörk í
bikarleik gegn ÍBV síðasta sumar á
Hásteinsvelli þegar ÍBV og ÍR
mættust en leikurinn fór í fram-
lengingu þar sem IBV hafði að
lokum betur. Elías hefur leikið með
Val, Tindastóli, Núma og IR á ferl-
inum.
Allt bendir til þess að Atli
Heimisson, framherji IBV síðustu
tvö tímabil, sé á leið til norska B-
deildarliðsins Asker en ÍBV og
norska liðið eru að komast að
samkomulagi um kaupverð.
Enn er þó ósamið við Bjarna Hólm
Aðalsteinsson og Pétur Runólfsson,
Matt Garner og Heimi Hallgríms-
son, þjálfara liðsins.
Handbolti yngri flokkar
Glæsilegur árangur hjá IBV
5. flokkur kvenna ásamt þjálfara sínum, Þórunni Jörgensdóttur
íslandsmót unglinga-
sveita í skák:
Náðu þriðja
sætinu
Taflfélag Vestmannaeyja tók þátt í
Islandsmóti unglingasveita í skák
en mótið fór fram í Sjálandsskóla
í Garðabæ um helgina. A-sveit
TV gerði sér lítið fyrir og endaði í
þriðja sæti, náði að tryggja sér
bronsið með dramatískum hætti í
lok mótsins. Þetta er jafnframt
besti árangur félagsins til þessa á
Islandsmóti unglingasveita. B-
sveitin var skipuð liðsmönnum
sem allir eru að taka þátt í sínu
fyrsta móti og stóð sveitin sig vel.
A sveitin var þannig skipuð: 1.
borð Nökkvi Sverrisson, 2. borð
Bjartur Týr Ólafsson, 3. borð
Daði Steinn Jónsson, 4. borð
Ólafur Freyr Ólafsson.
B sveitin var þannig skipuð: 1.
borð Sigurður Amar Magnússon,
2. borð Róbert Aron Eysteinsson,
3. borð Jóhann Helgi Gfslason, 4.
borð Jörgen Freyr Ólafsson.
Um helgina fór 5. flokkur kvenna á
sitt annað mót í vetur. Mótið um
helgina var í umsjá Selfoss. Tvö lið
fóru frá IBV en mótið er deildaskipt
og var A-liðið í 2. deild en B-liðið í
3. deild.
Stelpurnar stóðu sig frábærlega á
mótinu og unnu bæði lið sínar
deildir með nokkrum yfirburðum en
á köflum þóttu stelpurnar sýna
afburða varnarleik og eins og allir
vita þá er sókn besta vömin. Góður
andi er einnig í flokknum og búa
stelpurnar að mikilli og sterkri
liðsheild. Liðin færast því upp um
eina deild fyrir næsta mót og það
verður gaman að sjá hvernig þeim
gengur þar.
Þjálfari flokksins er Þórunn
Jörgensdóttir en tæplega 30 stelpur
æfa hjá henni af miklum krafti.
4. flokkur áfram í bikarnum
Fjórði flokkur kvenna spilaði tvo
leiki í 32ja liða úrslitum bikar-
keppninnar um helgina. A-liðið
mætti Fram og vann IBV 24:20. B-
liðið mætti svo Fylki og vann
auðveldþega 17:9. Bæði liðin leika í
1. deild Islandsmótsins og léku liðin
einnig í því móti um helgina. B-
liðið lagði ÍR að velli 16:10 og vann
svo stórsigur á Víkingi 20:10. A-
liðið lagði einnig Val 21:16. A-liðið
er sem stendur í þriðja sæti 1. deildar
og B-liðið í öðru en B-liðið á leik til
góða.
6. flokkur karla
í síðasta tölublaði var sagt frá ár-
angri í 6. flokki kvenna en í umfjöll-
uninni láðist að segja frá árangri í 6.
flokki karla en liðin tóku þátt í fjöi-
liðamóti íslandsmótsins á dögunum.
A-liðið varð í þriðja sæti í 1. deild,
B-liðið í öðru sæti í 2. deild og C2-
liðið varð í þriðja sæti í 2. deild. Cl-
lið IBV gerði sér hins vegar lítið
fyrir og vann mótið en strákarnir
spiluðu í 1. deild og unnu alla sína
leiki.
lí
Körfubolti
in
Fimleikar
Komust upp um deild
Minnibolti 11 ára gerði frábæra hluti
um helgina þegar flokkurinn lék á
öðru móti vetrarins. Á fyrsta mótinu
fór flokkurinn á kostum og komst
upp um riðil, úr D-riðli í C-riðil.
Mótið fór fram í Stykkishólmi og
var í umsjá Snæfells. Skemmst er frá
því að segja að IBV fór á kostum á
mótinu og vann alla sína leiki með
miklum yfirburðum.
Urslit leikjanna hjá IBV:
ÍBV - Fjölnir b 61-27
ÍBV-ÍR 62-28
ÍBV - Snæfell 60-34
ÍBV - Tindastóll 46-37
Allir í liðinu stóðu sig með miklum
ágætum, þó var Devon Már fremstur
meðal jafningja en hann skoraði
hvorki meira né minna en 76 stig.
Sigurinn á þessu móti gerir það að
verkum að flokkurinn leikur í B-riðli
á næsta móti.
!§s!$si
Glæsilegt í hópfimleikunum
Fimleikafélagið Rán tók þátt um
helgina í haustmóti í hópfimleikum,
en þetta var fyrsta mótið af þremur
sem félagið tekur þátt í. Félagið
tefldi fram hóp stelpna í 1. deild en
tvær deildir eru á mótinu, úrvals-
deild og 1. deild. Aldursskipt er í
deildunum en Rán tefldi fram 3.
flokki sem er elsti aldursflokkur í 1.
deild. Keppt er í þremur greinum á
mótinu, gólfæfingum, æfingum á
dýnu og trampólíni
Stelpumar byrjuðu á gólfinu og
voru fyrstar í röðinni en í gólf-
æfingum felst hópdans. Stelpunum
gekk ekki vel en það var líklega eitt-
hvert stress í hópnum. Eftir gólf-
æfingamar hristu stelpurnar af sér
slenið og unnu báðar greinarnar sem
eftir voru og sýndu frábæra takta á
báðum áhöldum. Svo fór að eftir að
samanlagður árangur var tekinn
saman fóru stelpurnar með sigur af
hólmi. Sannarlega frábær byrjun á
tímabilinu og það verður gaman að
fylgjast með framhaldinu hjá
stelpunum.
íþróttir
Þrjár á lands-
liðsæfingum
í fótbolta
Um helgina fóru fram lands-
liðsæftngar hjá U16 og U19 ára
iandsliðum kvenna í knattspyrnu.
ÍBV átti þrjá fulltrúa á æfingum
en þær bráðefnilegu Berglind
Sigurðardóttir og Svava Tara
Ólafsdóttir tóku þátt í æfingum
hjá U16 ára liðinu og þótlu standa
sig með stakri prýði. Marka-
maskínan Kristín Erna Sigurlás-
dóttir tók hins vegar þátt í
æftngum hjá U19 ára landsliðinu
og stóð sig vel.
Fimm á lands-
liðsæfingar
í handbolta
Seinustu helgi fóru fram æfíngar
hjá U-15 ára landsliði kvenna í
handknattleik. Þrjár stelpur frá
ÍBV tóku þátt í æfingunum, þær
Berglind Sigurðardóttir, Drífa
Þorvaldsdóttir og Sigríður Lára
Garðarsdóttir. Þær æfa með 4.
flokki kvenna undir stjórn Unnar
Sigmarsdóttur. Næstu helgi fara
hins vegar fram æfingar hjá U-19
ára landsliði kvenna. ÍBV á tvo
fulltrúa í þeim hóp en það eru
Dröfn Haraldsdóttir og Eva María
Káradóttir en þær spila báðar með
unglinga- og meistaraflokki.
Auðvelt hjá
strákunum
Um helgina léku bæði Meistara-
flokkur karla og kvenna í hand-
bolta á íslandsmóti. Meistara-
flokkur karla mætti botnliði
Þróttar á útivelli og vann auð-
veldan sigur 25:36. Markaskorun
liðsins dreifðist vel og stóðu
markmenn liðsins sig með prýði.
Þetta var kærkominn sigur fyrir
Eyjamenn sem hafa ekki sýnt sitt
rétta andlit í síðustu leikjum.
Liðið er sem stendur í 6. sæti með
sex stig eftir átta leiki.
Meistaraflokkur kvenna mætti
hins vegar FH á útivelli í hörku-
leik. Staðan í hálfleik var 17:13
FH í vil. FH var hins vegar aldrei
í hættu að missa tök á leiknum í
seinni hálfleik og vann leikinn
29:26. Eyjastelpur eru því í 11.
sæti í 2. deild með tvö stig eftir
tvo leiki.
Framundan
Föstudagur 28. nóvember
Kl. 21.30 Hörður-ÍBV
3. flokkur karla, handbolti.
Laugardagur 29. nóvember
Kl. 12.00 ÍBV-Víkingur,
meistaraflokkur kvk, handbolti.
Kl. 13.30 Breiðablik B-ÍBV
11. flokkur drengja körfubolti.
Kl. 14.00 ÍBV-Grótta
meistaraflokkur karla, handbolli.
Kl. 16.30 Hörður-ÍBV,
3. flokkur karla, handbolti.
Kl. 16.30 HK-ÍBV
2. deild karla, körfubolti.
Sunnudagur 30. nóvember
Kl. 11.15 IBV-Hörður
3. flokkur karla, handbolti.
Kl. 13.00 ÍBV-Selfoss,
4. flokkur karla, handbolti.
Kl. 14.00 Þórir-ÍBV
2. deild karla, körfubolti.