Fréttir - Eyjafréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 16
/ Sun
'v. invescments SJ_
FASTEIGNASALA A SPÁNI
LINDA RÓS
(0034)646930757
Ímdar&$g@b&tmaii£0m
www.MJfiinvMtincnUlxom
piús 6M ’Cs
IHMl SUmflRfEROIR
iiHimni
UMZGÐÍ&ÚUiJk
" Húsasmíði er mitt fag
og þjónustu mína veiti.
Hringdu í mig strax í dag
og húsinu þínu ég breyti."
Sn kkar nn
j SigurðurOddur j húsasmiður |
| sími: 899-2576 | eyjarl@hotmail.com |
JÓLATRE Fjölmenni var á Stakkagerðistúni þegar kveikt var á jólatrénu á föstudaginn. Ýmislegt var til
skemmtunar gert og var þessi barnakór meðal skemmtiatriða.
Valgerður Guðjónsdóttir í Visku á fundi um stöðu Vm:
Bregðumst við komi til
aukins atvinnuleysis
-Þá yrðu sett upp námskeið - Vonast eftir aðgerðaáætlun
Undanfarin ár hefur Viska símennt-
unarmiðstöð staðið fyrir ýmsum
námskeiðum sem opna leið til
frekari framhaldsmenntunar og
haldið utan um þá sem stunda
fjarnám frá Eyjum. Sólrún Berg-
þórsdóttir er tekin til starfa hjá
Visku sem náms- og starfsráðgjafi
og bætir það enn frekar þjónustu við
bæjarbúa.
Þetta kom fram á fundi á sunnu-
daginn um stöðu Vestmannaeyja,
sem Arni Johnsen stóð fyrir. Val-
gerður Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Visku, sagði að þrátt fyrir
erfiðleika í íslensku efnahagslífi hafi
atvinnuleysi ekki mælst meira í
Veslmannaeyjum en undanfarin ár.
„Atvinnuleysi hefur verið árstíða-
bundið, oft f janúar, og við höfum
brugðist við með námskeiðahaldi í
samstarfi við Vinnumálastofnun.
Þetta hafa verið tölvu-, og sjálf-
styrkingarnámskeið og við munum
bjóða þau í janúar nk. auk þess sem
í boði verður námskeið um fjármál
heimilanna. Þá verður einnig nám-
skeið til að efla liðsheild á vinnustað
í boði og hugmyndin að starfsmenn
vinnustaða komi saman á nám-
skeið.“
Valgerður segir að hún verði vör
við meiri áhuga á námsframboði en
oft áður og telur miklu skipta að
náms- og starfráðgjafi hafi verið
ráðinn til starfa hjá Visku.
„Sólrún Bergþórsdóttir hefur tekið
fólk í viðtöl og nú þegar eru tíu
manns búnir að skrá sig í Grunn-
menntaskólann sem er ætlaður til að
undirbúa fólk fyrir framhaldsnám.
Grunnmenntaskólinn er 300
kennslustundir og svo fer Land-
nemaskólinn, ætlaður útlendingum,
af stað en hann er 120 kennslu-
stundir. Komi til aukins atvinnu-
leysis munum við bregðast við með
því að setja upp námskeið en ég
vonast eftir aðgerðaáætlun frá
ríkisstjórninni því við verðum að
vera viðbúin og fá aukið fjármagn
verði þörfin meiri en við höfum
reiknað með. Miklu skiptir að hafa
náms- og starfsráðgjafa því við
viljum ná til grasrótarinnar og við
erum að vinna fyrir fólkið og viljum
ná til þess,“ sagði Valgerður.
Sólrún byrjaði að starfa hjá Visku í
september og er til viðtals á mánu-
dögum og fimmtudögum eftir há-
degi og alla föstudaga. Hún veitir
almenna ráðgjöf um nám og störf og
nú þegar hafa margir komið til
hennar í áhugasviðsgreiningu. Hún
hefur heimsótt fjóra vinnustaði og
tekið 40 til 50 manns í viðtöl á
árinu, þannig að margir hafa sýnt
námsleiðum og tækifærum til náms
áhuga. Sjá nánar á bls. 12 og 13.
Stílhreinn og nýtískulegur
Volcano Café, nýtt kaffihús og skemmtistaður, tók til starfa á laugardag. Staðurinn, sem er í eigu Björgvins
Þórs Rúnarssonar og Margrétar Hildar Ríkharðsdóttur, er á horni Bárustígs og Strandvegar en í hús-
næðinu var rekin verslun um árabil og síðar skemmtistaður.
Staðurinn hefur verið stækkaður og hannaður upp á nýtt og útkoman er stflhreinn og nýtískulegur staður.
Björgvin og Margrét buðu til teitis í tilefni opnunarinnar á laugardagskvöld og nutu gestir kvöldsins í góðu
yfirlæti. Þannig að byrjunin lofar góðu og Volcano Café er sannarlega góð viðbót við það sem fyrir er og á
vonandi eftir að lyfta upp skemmtanalífi í Vestmannaeyjum. Þau voru mjög ánægð með viðtökur gesta og
eru bjartsýn á framhaldið. Á myndinni má sjá nokkrar af afburðafallegum konum sem mættu á opnunina.
Frissi Fríski 0,75 Kr
verð nú kr 20,-
verð óður kr 58,-
Ora Grænar Baunir v.ds
verð nú kr 98,-
verð óður kr 116,-
Finish uppþv.duft 24 k9
verð nú kr 1198,-
verð dður kr 1398,-
M iTT jgjifei ^^3
ALLT I JOLAMATINN:
Svínahamborgarahryggir frd ALI
Húsavíkur hangikjöt
Jóla steikur í úrvali frú Kjarnafæði
Nýtt svínakjöt
Og margt margt fleira
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ LÍTA VIÐE
VIKUTILBOÐ
11. -17. desember