Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 11.12.2008, Blaðsíða 4
4 Fréttir / Fimmtudagur 11. desember 2008 Bloggheimar Eyjamaður vikunnar: Kirkjur bazjarins: Aðalsteinn Baldursson: Af hverju? Af hverju þarf lögreglan að bjóða e-h skríl inn til sín til viðræðna? Lögreglan á að fá vinnufrið en ekki að þurfa að standa í þessum skrípaleik. Er þá ekki kominn tími til að allir þeir sem keyrt hafa drukknir flykkist niður að stöð og heimti að fá lausan hvern þann sem tekinn er fyrir að keyra drukkinn. Af hverju mætir ekki skríllinn til þess að mótmæla þegar innbrotsþjófur er tekinn og honum stungið inn? Látið lögguna í friði, þetta eru einstaklingar sem eru að vinna sína vinnu. Ef þið getið ekki sætt ykkur við afleiðingarnar þá skuluð þið hætta þessum skrílslátum. http://nkosi.blog.is/blog/nkosi/ Gísli Foster Hjartarson Hugsið ykkur, Siv ætlaði að fela sig grein fyrir því að fólkið í landinu getur ekki falið sig á þessum tímum þegar hún og hennar líkar í þessu spillta stjórnkerfi eru búnir að drulla upp á bak og fólkið horfir á allt sitt hverfa. Það vantar ekki að þetta lið á til hnífs og skeiðar og rúmlega það og búið að vera á spenanum hjá hinum og þessum - það er í góðu lagi að þetta lið hrökkvi aðeins við og geri sér grein fyrir að það eru ekki alltaf jólin hjá fólki. Get samt ekki sagt að ég sé sammála þessari uppá- komu að öðru leyti, fannst hún döpur en ég hef sagt það áður og segi en að ég er hissa að aldrei skuli hafa soðið verulega upp úr í þessum átökum öllum. Svo er nú að verða alveg óþolandi hvað menn eins og Arni Matt, Björgvin G og Þorgerður Katrfn eru bökkuð upp - ef þetta lið hefði ein- hverja almenna skynsemi væri þetta lið búið að draga sig í hlé á meðan þeirra og þeirra nánustu gjörningar eru skoðaðir. Siðferðislega blint lið - svo segir þetta lið að enginn sé sekur fyrr en sekt er sönnuð en gjörningar þessa liðs eru ekki hafnir yfir allan vafa og á meðan svo er á þetta lið að stíga til hliðar, láta skoða þetta ofan í kjölinn og koma þá bara til baka með hreint borð ef svo er, en það ætla ég að vonafyrir hönd íslensku þjóðarinnar að menn eins og Árni Matt hverfi sem allra allra fyrst af þingi, reynd- ar eru þar margir aðrir sem mega missa sig - hvað er t.d.Valgerður Sverrisdótir að vilja upp á dekk - come on er ekki alveg í lagi með hana, það er bara hjá henni eins og henni hafi aldrei verið mislagðar hendur í starfi - Guð hvað hlýtur að vera erfitt að vera hún - það þarf að taka til á Alþingi og í bankakerfinu og það sem fyrst. Drottinn blessi fslensku þjóðina. http://fosterinn.blog.is/blog/fos- terinn/ Æth hun gen ser Leiðindaskjóða segir bróðirinn Sara Hlín er Eyjamaður vikunnar. Á föstudaginn var kveikt á jóla- trénu á Stakkagerðistúninu en það kom í hlut Leiðindaskjóðu að kveikja á jólaljósunum. Leið- indaskjóða er ein af karakterum í leikritinu Grýla gerir uppreisn en það er Sara Hlín Sölvadóttir sem leikur Leiðindaskjóðu. Sara fór hreinlega á kostum í frumsýningu leikritsins á laugardag og er því Eyjamaður vikunnar. Nafn: Sara Hlín Sölvadóttir. Fæðingardagur: 15.janúar 1996. Fæðingarstaður: í Vestmannaeyjum. Fjölskylda: Pabbi minn heitir Sölvi og mamma mín Anna Sigga. Eg á einn bróður sem heitir Grímur Orri. Draumabíllinn: Veit ekki hvaða tegund ég myndi vilja eiga en ég vil pottþétt jeppa. Uppáhaldsmatur: Ég mundi segja spaghettí. Versti matur: Skata. Uppáhalds vefsíða: www.you- tube.com. Hlusta mikið á tónlist þar. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Ég mundi segja jólatónlist. Aðaláhugamál: Leiklist. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Jessicu Alba. Hún er frábær leikkona. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Gardavatn á Italíu. Fór þangað með fjölskyldunni í sumar og við fórum líka til Feneyja. Þær voru ekki eins fallegar. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Örlygur Helgi Grímsson, frændi minn er uppá- haldsíþróttamaðurinn ntinn. Uppáhaldsíþróttafélagið mitt hér- lendis er ÍBV og í enska boltanum er það Manchester United. Ertu hjátrúarfull: Nei, alls ekki. Stundar þú einhverja íþrótt: Nei, fæ mikla útrás í leikfélaginu. Uppáhaldssjónvarpsefni: Man in trees, Gray’s anatomy, 90210, Brothers and sisters og Gossip Girls. Hvernig er að leika Leiðinda- skjóðu: Það var geðveik lífs- reynsla. Dálítið leiðinlegt að vera með svona brjálaða hárgreiðslu en það er þess virði. Ertu leiðindaskjóða: Bróðir minn segir að ég sé leiðindaskjóða en hann er vonandi sá eini. Hvernig gekk að vinna með jólasveinunum: Það gekk bara mjög vel. Frábært að vinna með þeim öllum en Grýla var svolítið erfið. Ætlarðu að halda áfram í leik- listinni: Já, pottþétt. Matgazðingur vikunnar: Odýrt og auðvelt í kreppunni Guðriín er matgœðingur vikunnar. -Ég þakka Karli Gauta fyrir áskor- unina og tek henni hér með og býð upp á ostabuff og marmaraköku, segir Guðrún Guðjónsdóttir mat- gæðingur vikunnar. Ostabuff 400 g nauta, kálfa eða lambahakk 1 dl rasp ldl rifinn ostur Salt, pipar og krydd eftir smekk !. egg Öllu blandað saman, mótaðar buff- kökur sem eru steiktar á pönnu. Þá er komið að sósunni, þeim máium er bjargað snarlega I -2 dl rjómi 1 dl vatn 5-6 msk. saxaður laukur Slalti af tómatsósu Sett út á pönnuna yfir buffin og látið malla smá stund. Meðlæti eins og hver og einn vill. Nota má meira af osti, hann gerir gæfumuninn. Verði ykkur að góðu. Draumakaka sýslumannsins, þessi mórauða Marmarakaka 200 gr sykur 150 gr smjörlíki 3 egg 300 gr hveiti I tesk. lyftiduft I dl mjólk 1 tesk. vanillu- dropar 2 msk. kakó 2 msk. mjólk Vinnið vel saman sykur og smjörlíki. Setjið eggin saman við, eitt í einu og hrærið vel. Mjólk, vanilla, hveiti, lyftiduft sett saman við og hrært í ca 45-60 sekúndur. Takið einn þrið- ja eða helming af deiginu frá og blandið kakói og mjólk saman við með sleikju. Karl Gauti vill hafa meira af brúna (mórauða) deiginu. Sett í form, fyrst hvíta deigið, svo dökka, svo aftur hvítt og aðeins farið ofan í formið með sleikjunni til að mynda marmara í kökuna. Bakað við 180° íca. I klst. Skora hér með á vinkonu mína, Þuríði Guðjónsdóttur, sem næsta matgæðing Frétta, hún er snillingur í matargerð. Landa- kirkja Fimmtudagur 11. desember Kl. 10.00. Foreldramorgunn. Kakó og smákökur. Síðasti foreldramorg- unn fyrir jól. Föstudagur 12. desember Kl. 13.00. Æfing hjá Litlu lærisveinunum, yngri hópur. Kl. 14.00. Æfing hjá Litlu læri- sveinunum, eldri hópur. Sunnudagur 14. desember. 3. sunnudagur í aðventu: Kl. 11.00. Barnaguðsþjónusta. Kveikt verður á 3. kerti aðventu- kransins, Hirðakertinu. Söngur og gleði eru allsráðandi. Skoðað verður í fjársjóðskistuna, saga sögð o.fl. Von er á óvæntri heimsókn að þessu sinni. Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Kveikt verður á 3. kerti aðventukransins, Hirðakertinu. Kór Landakirkju syngur aðventusálma. Sr. Guðmundur Örn Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kafftsopi eftir guðsþjónustu Kl. 20.00. Jólatónleikar Kirkjukórs Landakirkju ásamt einsöngvurum. Mánudagur 15. desember Kl. 19.30. Jólafundur Vina í bata. Miðvikudagur 17. desember Kl. 11.00. Helgistund á Hraunbúðum. Viðtalstímar prestanna eru þriðjudaga til föstudaga milli 11.00 og 12.00. Hvítasunnu- kirkjan Fimmtudagur 11. desember Biblíulestur fellur niður í kvöld. Laugardagur 13. desember Kl: 17.00 Skreytingardagur, brettum upp ermar og mætum. Sunnudagur 14. desember Kl. 13.00 Vakningarsamkoma, ræðumaður Guðni Hjálmarsson. Alla virka morgna Bænastund kl: 7.15 og kyrrðarstund kl: 17.00 með fyrirbæn. Allir hjartanlega velkomnir að koma á hverja stund. Aðvent- kirkjan Laugardagur Vertu velkominn að rannsaka með okkur Biblíuna kl. 10:30. Sérstök dagskrá fyrir börnin. Sjáumst! Frostrósir heilluðu Hann var þétt setinn salurinn í Höllinni á þriðjudagskvöldið þegar Frostrósir stigu þar á svið. Frostrósirnar samanstóðu af fimm söngvurum, barnakór og hljómsveit. Alls voru gestir um 600 og skemmtu þeir sér konunglega þegar Frostrósirnar lluttu hvert jólalagið af öðru. Tónleikarnir stóðu í hálfan annan tíma og voru það þakklátir gestir sem héldu heim á leið og listafólkið var ánægt með viðtökurnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.