Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Page 2
2
Fréttir / Fimmtudagur 4. maí 2009
Forstöðumaður Barnaverndarstofu: Kreppan eykur spennu unglinga
Viðkvæmastir fyrir sveiflum
í versnandi efnahagsástandi
-Miklar framfarir í Vestmannaeyjum að hans mati - Strax var brugðist
við, segir bæjarstjóri- Grettistökum lyft á hverjum degi að hans mati
FRÁ ÚTSKRIFT Grunnskólans í gær. Myndin tengist fréttinni á engan hátt.
í Morgunblaðinu í gær segir í við-
tali við Braga Guðbrandsson, for-
stjóra Bamavemdarstofu, að sterkar
vísbendingar séu um aukinn vanda á
unglingastigi gmnnskóla í sveitar-
félögum um allt land. Tilkynningum
frá skólum til Barnaverndarstofu um
vaxandi ofbeldishegðun barna og
unglinga hefur fjölgað. Fyrstu fjóra
mánuði ársins var tilkynnt um 138
atvik þar sem bam beitti ofbeldi, en
á sama tímabili í fyrra var tilkynnt
um 105 slfk tilvik, að því er kemur
fram í Morgunblaðinu.
Bragi segir þetta almennt viðhorf
forystumanna barnavemdarmála og
um 20% aukning hafi orðið á fjölda
tilkynninga til barnavemdamefnda
að meðaltali fyrstu mánuði ársins.
Sérstök ástæða sé til að hafa áhyggj-
ur af stöðu barnavemdarmála og
álagi á starfsfólk í Reykjavík, þar
sem aukningin er um 40%, og jafn
mikið í Reykjanesbæ.
I samtölum við starfsfólk bama-
verndarnefnda hafi viðhorfið al-
mennt verið að vaxandi vandamál
meðal unglinga séu helsta áhyggju-
efnið. „Unglingar eru viðkvæmastir
fyrir sveiflum eins og þeim sem
fylgja versnandi efnahagsástandi,"
segir Bragi við Morgunblaðið.
„Þeir verða fyrir áhrifum af ástand-
inu heima við og þeir leita út af
heimilunum. Spennan verður meiri í
þessum hópi og vanlíðan áberandi,
sem aftur lýsir sér í agaleysi og and-
félagslegri hegðun og svo virðist
sem neysla ýmiss konar sé að
aukast. Þetta samræmist þeirri
þróun sem varð í kreppunni í Finn-
landi, en þar komu áhrif kreppunnar
fyrst fram meðal unglinga á sínum
tíma.“
Bragi segir að víðast hvar um
landið sé ástand barnaverndarmála
mjög þokkalegt. Sveitarfélög hafi á
undanfömum árum fjölgað starfs-
fólki í þessum málaflokki og leitast
við að hafa fagfólk í þessum störf-
um. Sums staðar hafi orðið miklar
framfarir og nefnir Bragi staði eins
og Austurland, Húnavatnssýslur og
Vestmannaeyjar. Barnaverndar-
nefndir eru 30 talsins.
Strax brugðist við
„Hér í Eyjum tókum við strax í
upphafi kreppunnar ákvörðun unt að
standa dyggan vörð um málefni fjöl-
skyldna í Vestmannaeyjum,11 segir
Elliði Vignisson, bæjastjóri, vegna
þessara ummæla Braga. Bendir
hann á að á fundi bæjarráðs 14.
október síðastliðinn hafi bæjarráð
samþykkt víðtæka aðgerðaáætlun til
að mæta þeim þrengingum sem þá
voru fyrirséðar.
„Meðal annars var ákveðið að allar
gjaldskrár á velferðarsviði Vest-
mannaeyjabæjar, gjaldskrár Frí-
stundavers, Tónlistarskóla, heimil-
isþjónustu og leiguverð félagslegs
húsnæðis yrðu ekki hækkaðar, leik-
skólagjöld færð niður fyrir lands-
meðaltal, niðurgreiðslur vegna
fæðisgjalda í grunnskóla auknar,
öllum bæjarbúum boðið gjaldfrjálst
aðgengi að söfnum í rekstri Vest-
mannaeyjabæjar, öllum börnum
boðið gjaldfrjálst aðgengi að sund-
laug og áfram mætti telja,“ sagði
Elliði.
Þá voru styrkir til félags eldri
borgara hækkaðir um 50% og
íþróttafélögum veittir viðbótar-
styrkir sem alls nema 5.5 milljónum
til að auka þjónustu við böm og
unglinga.
í mínum huga er það hafið yfir vafa
að þessi úrræði hafa virkað eins og
vonast var til. Þá skiptir afar miklu
að starfsfólk okkar á félags- og fjöl-
skyldusviði er í alla staði einstakt.
Þau hafa unnið undir miklu álagi og
skilað því með miklum sóma. Ég
efast um að fólk almennt geri sér
grein fyrir þeim grettistökum sem
þar er lyft á hverjum degi og þá oft
fyrir þá sem minnst mega sín í okkar
samfélagi. í þessu skiptir þó senni-
lega mestu sú samstaða og sú
samhjálp sem við Eyjamenn búum
yfir. Það er auðlind sem við megum
aldrei láta frá okkur taka“.
Eyjablikk
stækkar
við sig
Fyrirtækið Eyjablikk ehf. á 12
ára afmæli í ár en starfsemi
fvrirtækisins er nú komin í
endurbætt og mun stærra hús-
næði við Flatir 27. Til að vígja
nýja húsnæðið og fagna
afmælinu, buðu eigendur
fyrirtækisins, þau Stefán Þ.
Lúðvíksson og Andrea Atiadóttir,
starfsmönnum, viðskiptavinum
og kunningjum í afmælisveislu á
laugardaginn. Hið nýja húsnæði
er afar glæsilegt en veislan var
fjölmenn og skemmtileg.
EIGENDURNIR, Andrea
Atladóttir og Stefán Lúðvfksson.
Sigurgeir Jónsson með
nýja bók:
Fleiri sögur
og sagnir úr
Vestmanna-
eyjum
Sigurgeir Jónsson, frá Þorlaugar-
gerði, hefur sent frá sér nýja bók
sem ber nafnið; Fleiri sögur og
sagnir úr Vestmannaeyjum og er í
raun sjálfstætt framhald af bók
sem út kom í hitteðfyrra og hét
Nýjar sögur og sagnir úr Vest-
mannaeyjum. í bókinni eru, eins
og í fyrri bókinni, 150 sögur af
léttara taginu af kunnum Eyja-
mönnum, skemmtilegum til-
svörum þeirra og uppátækjum.
Sigurgeir segir í formála bókar-
innar, að höfuðtilgangur útgáf-
unnar sé að lesendur geti haft af
henni nokkra skemmtan og ef til
vill nokkurn fróðleik með. Og
ekki veiti af á þessum síðustu
tímum. Hér er sýnishom úr bók-
inni:
Hvítvínið ífínu lagi
Fyrir nokkrum árum fóru kenn-
arar úr Eyjum á kennararáðstefnu
á Suðurlandi eina helgi. Farið var
með Herjólfi og ekið austur þar
sem snœddur var sameiginlegur
kvöldverður á veitingahúsi einu á
leiðinni. Hennann Einarsson var
einn af hópnum og við borðið
hans voru allir samþykkir því að
panta hvítvín með matnum. Sá
sem afgreiddi þau var ungur pilt-
ur, einkar röskur og áhugasamur
en nokkuð augljóslega ekki
faglœrður í þjónustustörfum.
Þegar hatvt kom með hvítvínið að
borðinu byrjaði hann strax á að
hella því í glös gestanna.
Hermann sem er kunnáttumaður
um borðsiði, spurði hann hvort
ekki vœri eðlilegt að bjóða gestum
að smakka vínið áður en því vœri
hellt. Pilturinn brosti þá sínu
breiðasta og sagði síðan: „Það er
engin þörf á því. Eg er búinn að
smakka á því og það er allt í fina
lagi með það. “
Bókaútgáfan Hólar gefur bókina
út og í Vestmannaeyjum fæst hún
í Eymundsson, Krónunni, Flug-
kaffi og Kaffiteríunni í Heijólfi.
Forsíðumyndin
Forsíðumyndina tók Óskar Pétur
Friðriksson um borð í Antares VE.
Á henni em Stefán Einarsson og
Pétur Sveinsson.
t'tgcfandi; Eyjasýn ohf. 480378-0549 - Vestmannaeyjum. RitstjórL Ómar Garðarsson.
Blaðamenn: Guðbjörg Sigurgeirsrlóttir og Jíilíus Ingason. íþróttir. Ellert Sclieving.
Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gisli Valtýsson.
Prentviniui; Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannacyjum. Aðsetor ritstjómar: Strandvegi 47.
Simar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1393. Netfang/rafpóstnr frettir@eyjafrettir.is.
Veffang: bttp/Avww.eyjafrettir.is
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er solt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti,
Tvistinum, Toppnum, Vöruval, Ilerjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, Ísjakanum,
verslun 11-11 og Skýlinu í Friðarhöfn.. FRÉTTTR eru prentaðar i 3000 eintökum.
FRÉTTLReru aðilar að Samtöknm Kejar- og bcraðsfréttablaða. Eftirprenhin, hljóðritnn,
notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.