Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 23

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 23
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 23 ÚTSKRIFTARNEMAR Frá vinstri: Eyþór Þórðarson (4. stig vélstjórans og rafvirkinn), Sævald Páll Hallgrímsson (4. stig vélstjórans og rafvirkinn), Ágúst Halldórsson (4. stig vél- stjórans og rafvirkinn), Halldór Ingi Guðnason (4. stig vélstjórans og rafvirkinn), Vignir Arnar Svafarsson (4. stig vélstjórans og rafvirkinn) og Brynjar Smári Unnarsson (stýri- maðurinn og verðlaun fyrir hæstu einkunn í siglingafræðum). Fimm Eyjamenn útskrifast úr Tækniskólanum - Fimm vélstjórar - Einn skipstjóri Stefna á sjóinn til að byrja með -Frændurnir og vélstjórarnir Eyþór og Sævald í spjalli við Júlíus G. Ingason Viðtöl Júlíus G. Ingason Julius @ eyjafrettir. is Fimm Eyjamenn útskrifuðust á dögunum úr Tækniskólanum. Fjórir kláruðu fjórða stig vélstjórans og einn útskrifaðist með skipstjómar- réttindi. Þetta eru þeir Eyþór Þórð- arson, Sævald Páll Hallgrímsson, Ágúst Halldórsson, Halldór Ingi Guðnason, Vignir Amar Svafars- son, sem allir vom í vélstjómar- námi og Brynjar Smári Unnarsson sem fór í skipstjómamám. Fjór- menningarnir úr vélstjómarbraut- inni luku meðfram námi sínu, námi í rafvirkjun. Þá fékk Brynjar Smári verðlaun fyrir hæstu einkunn í siglingafræðum við útskriftina. Byrjaði 15 ára á sjó Eyþór Þórðarson er 27 ára gamall, sonur þeirra Þórðar Karlssonar og Þórsteinu Pálsdóttur. Eyþór á tvö systkini, Sigurbjöm Ámason og Þórdísi Þórðardóttur. Eyþór er að vinna um borð í ísleifi en þar hefur hann fengið pláss sem vélstjóri á makrílveiðum í sumar. Hann tók vel í það að koma í smá spjall. Eyþór segir að hann hafi byrjað aðeins fimmtán ára gamall að róa. Fékk hann hásetapláss sumarið 1997 hjá Kristjáni Óskarssyni á Emmu VE. „Eg var ekkert sérstak- lega búinn að velta sjómennsku fyrir mér en vildi fá góða vinnu og hafa góðar tekjur yfir sumarið. Eg ákvað að prófa að fara á sjó og líkaði það bara mjög vel, sérstak- lega líkaði mér við félagsskapinn. Það er mjög mikilvægur þáttur, sérstaklega á bátum sem em lengi úti í einu. Svo fór ég auðvitað í gegnum nýliðaprófin, var beðinn um að sækja hnútabókina upp í brú og þess háttar grín en það var búið að vara mig við þessu. Eg var á Emmu um sumarið og líkaði það mjög vel. Eg hafði reyndar verið um borð sem polli en Bjössi bróðir hafði tekið mig með í túr þegar ég var átta ára gamall. Ég man reynd- ar ekki mikið frá þeirri lífsreynslu en þetta fyrsta sumar mitt á sjónum gekk bara mjög vel. Ég var alla- vega engin fiskifæla," segir Eyþór og brosir. Hlakka til að prófa mak- rílveiðar Eyþór hefur nánast verið á sjó síðan, milli þess sem hann hefur stundað námið. „Ég var mest um borð í Vestmannaey, bæði gömlu og svo nýju og svo á Berg. En núna er ég kominn um borð í Isleif, sem útgerð Hugins VE hefur tekið á leigu. Þótt skipið sé gamalt hlakka ég til að prófa makrílveiðar. Ég fór einn túr með Hugin um jólin og lfkaði bara ágætlega á uppsjávar- veiðum. Útgerðin hefur líka alltaf gengið vel þannig að mér líst mjög vel á að vera farinn að vinna þama. Þetta verða einn og hálfur til tveir mánuðir og menn hafa talað um að makrílveiðamar verði ólympískar veiðar þar sem menn keppast við að ná sem flestum kílóum til að afla sér veiðireynslu. Það verður gaman að fá að taka þátt í því.“ Tekur mörg ár að fá full réttindi Hvað varð til þess að þú valdir vél- stjómarnámið umfram annað nám ? „Ég sá að atvinnumöguleikamir vom miklir að loknu vélstjómar- námi. Það eru ekki allir sem fara á sjó eftir svona nám og möguleikar á að vinna í landi em miklir. Svo tókum við rafvirkjann líka og gott að hafa möguleika á að vinna við rafvirkjun ef allt annað klikkar." Var námið erfitt? „Bara miserfið fög eins og gengur og gerist. Síðasta veturinn var maður meira og minna í skýrslu- gerð en við nemendumir unnum mjög vel saman í nárninu," segir Eyþór en 33 útskrifuðust úr vél- stjórnamáminu og 9 úr skip- stjómamámi. Éftir að fimm ára náminu lýkur þurfa vélstjórnarnemendur að ljúka 15 mánaða vinnu í smiðju og 24 mánaða vinnu á sjó til að fá full réttindi. Eyþór segist stefna að því að Ijúka þessum tímum sem fyrst. „Ætli ég fari ekki og vinni hjá Héðni í Reykjavík eftir áramót. Ég er búinn með fjóra mánuði í smiðj- unni og ætla að klára smiðjutímann strax. En ég hef nú þegar klárað þann sjótíma sem maður þarf,“ sagði Éyþór að lokum. Drullusjóveikur í fyrsta túr Sævald Páll Hallgrímsson útskrif- aðist eins og Eyþór úr vélstjóm- amámi. Sævald er sonur Hallgríms Tryggvasonar og Ásdísar Sævalds- dóttur og er með sjómannsblóð í æðum. Systkini Sævalds eru þau Halla, Einar Ottó og Anna Rós og kærasta Sævalds er Fjóla Sif Ríkharðsdóttir. Sævald var á sjó þegar blaða- maður heyrði í honum en það kom ekki í veg fyrir að hann gaf sér tíma í smá spjall. Sævald segist hafa farið sinn fyrsta túr á sjó á gamla Berg VE 2002, þá sextán ára gamall. „Við vomm á kolmunnaveiðum og þetta gekk mjög vel til að byrja með. Við vomm fljótir að fylla skipið en svo varð ég drullusjóveikur á heim- stíminu. Eg sagðist aldrei ætla að fara á sjó aftur en fór svo strax næsta túr og var á sjó allt þetta sumar og öll sumur síðan. Ég byrj- aði á uppsjávarveiðum en svo breytti útgerðin til, keypti nýjan togara og ég fylgdi auðvitað með yfir á nýja bátinn. Ætli það sé ekki eftirminnilegasti túrinn þegar við sóttum nýja bátinn til Póllands og sigldum honum heim. Við fengum algjöran haugasjó á leiðinni, sann- kölluð skítabræla enda hávetur og mjög eftirminnileg sigling." Ekki dónalegt að sjá launaumslagið eftir fyrsta túrinn Var alltaf stefnan sett á aðfara á sjóinn? „Já, það var alltaf ætlunin að prófa að fara á sjó, allavega eftir að ég varð eldri. Og þó ég hafi orðið mjög sjóveikur í fyrsta túrnum þá ákvað ég að halda áfram. Það var ekkert leiðinlegt að sjá launaum- slagið eftir fyrsta túrinn en svo er félagsskapurinn góður úti á sjó og hann hefur líka mikið að segja í þessu. Ætli það séu ekki launin og félagsskapurinn sem menn sækja í þegar þeir fara á sjóinn." Þó að Sævald hafi ákveðið að stunda sjóinn er hann ekki viss um að það verði hans ævistarf. „Ég byrjaði á sínum tíma í grunndeild rafiðna í Framhaldsskólanum hér ásamt nokkrum snillingum. Á sama tíma voru nokkrir félaga minna í vélstjómamámi í skól- anum. Mér leist vel á námið og færði mig yfir á vélstjórnarbraut. Ég kláraði 2. stigið í FÍV og tók nokkur aukafög fyrir 3. stigið áður en ég færði mig yfir í Tækni- skólann.“ Var mikill munur á FIV og Tœkni- skólanum? „Já ég get ekki neitað því. Tækni- skólinn er auðvitað sérhæfður skóli með mun betri tækjabúnað og fjöl- breyttari kennslu. En það getur líka verið kostur að byrja í FÍV þar sem nándin við kennarana er meiri og auðveldara aðgengi að þeim. Ég tók fjóra vetur heima en var svo í þrjá vetur í Tækniskólanum. Ég bætti við rafvirkjanum, þurfti bara að bæta við nokkrum áföngum og ég bjó vel að því að hafa byrjað í grunndeildinni hér heima.“ Sævald telur að þrátt fyrir að 33 hafi útskrifast af vélstjórnarbraut, séu fæstir útskriftamema að hugsa um að gera sjómennskuna að ævi- starfi. „Flestir hafa hugsað sér að nota þetta nám sem gmnn fyrir áframhaldandi nám. Margir tala um véla- og orkutæknifræði, iðn- fræði, rafiðnfræði og fleira í þess- um dúr. Sjálfur er ég að spá í raf- magnstæknifræði við Háskólann í Reykjavík. Planið er að taka sér ársfrí frá náminu og vera á sjónum, klára sem mest af smiðjutímanum og tímanum á sjó en fara svo aftur í skóla." Hvað gerir rafmagnstœknifrœð- ingur? „Eg veit það bara ekki. Það kemur í ljós eftir að ég klára námið,“ segir Sævald og hlær. Sævald segir nemendur Tækni- skólans hafa fylgst vel með um- ræðunni um sjávarútveginn og að oft hafi verið líf í tuskunum í aðdraganda kosninga þegar legið hefði við að nemendur í sjómanns- fræðum hefðu heilsast að sjó- mannasið í heitum pólitískum umræðum. „Já menn tókust á. Trillustrákamir, sem voru þama í skólanum, vom mjög sáttir við strandveiðamar en allir voru sam- mála um að fymingarleiðin væri algjört rugl. Menn tókust á og það lá stundum við slagsmálum en það er hægt að hlæja að þessu eftir á.“ Hvernig sérðu framtíðina fyrir þér? Er stefnan sett á að búa í Eyjum? „Já það er stefnan. Ég ætla að mennta mig eitthvað meira og reyna fá vinnu við hæfi hér í Eyjum en það kemur allt í ljós síðar.“ Mœlir þú með vélstjómamámi fyrir ungt fólk sem er að íhugafram- tíðina? „Já, hiklaust. Þetta nám býður upp á svo marga möguleika. Það er farið yfir mjög breitt svið og eins og ég segi, þá era margir sem nota þetta nám sem grunn fyrir frekara nám,“ sagði Sævald að lokum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.