Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 21

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Blaðsíða 21
Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 21 ig nýsköpun í sjávarútvegi tókst vel - Málþing um fyrningarleiðina í dag GÓÐ MÆTING Vel var mætt og kom í Ijós að ekki er eins langt til Vestmanneyja og margur heldur. Rannsóknafólk í stígvélin -sagði Guðmundur Gunnarsson, sérfræðingur Matís á Hornafírði sem flutti erindi um humarklasa á Suðurlandi með aðkomu Eyjamanna GUÐMUNDUR sagði klárt að Matís gæti ekki blómstrað nema í sam- starfi við iðnaðinn. Guðmundur Gunnarsson, sérfræð- ingur Matís á Homafirði, flutti er- indi um humarklasa á Suðurlandi, samstarfsfleti og ávinning sem hafa má af formlegu samstarfi. Guðmundur sagði það ekki ein- göngu þeirra sem starfa í sjávarút- vegi að sækja til þeirra sem vinna við rannsóknarstörf. „Það em líka snillingar á rannsóknarstofum sem hefðu gott af því að fara í stígvélin og niður á gólf. í þessu þurfum við að finna milliveginn, finna ein- hvers konar ástarsamband þama á milli," sagði Guðmundur. Hann sagði klárt að Matís gæti ekki blómstrað nema í samstarfi við iðnaðinn. „I þessu eru tvær leiðir, að vísindamenn ýti á iðnaðinn eða að iðnaðurinn ýti á eftir vísinda- mönnum. Stundum fömm við þá leið að vísindamenn sækja um styrki, nánast vinna verkið og bjóða iðnaðinum svo hvort sem það þarf eða ekki. Að það fari í hina áttina, að iðnaðurinn fari til rannsóknar- geirans er mun sjaldgæfara en rann- sóknargeirinn kallar í raun eftir því,“ sagði Guðmundur. Hann sagði tæknibyltingar reglu- lega koma fram í heiminum og séu yfirleitt byggðar á vinnu vísinda- manna eins og Guðmundar sem flutti til Hornafjarðar með sína tækniþekkingu þegar hann réðist til Matís. Humarveiðar em stór hluti í sjávarútvegi á Homafírði og því eðlilegt að búinn yrði til vett- vangur fyrir rannsóknir á humar- veiðum og hvemig mætti skapa meiri verðmæti. Niðurstaðan er rannsóknaklasi sem nær til alls Suðurlands með þátttöku Matís og Vinnslustöðarinnar í Vestmanna- eyjum. Guðmundur sagði að í gegnum humarklasann hefðu farið fram rannsóknir, hann hefði mótað ný verkefni og eitt þeirra er humar- hótel í Vestmannaeyjum og á Homafirði sem miðar að því að flytja út lifandi humar. Humarklasinn hefur fært vísinda- menn nær því að skilja hverjar þarfirnar eru og greinin uppgötvað hvað vísindamenn hafa fram að færa. „Markmið og fjárhagslegur ávinningur þarf að vera vel skil- greint og lokapunktur verkefnisins þarf að vera áþreifanlegur árangur, ekki bara skýrsla. Þetta birtist okkur í humarverkefninu þar sem byrjað er að flytja lifandi humar á markað erlendis," sagði Guðmundur. Ólafur á Álsey VE: Orð til alls fyrst Ólafur Einarsson, skipstjóri á Alsey VE sat ráðstefnuna en hann sagði í stuttu samtali við Fréttir að ráðstefnan hefði heppn- ast ágætlega. „Það var margt gott sem frarn kom á þessari ráðstefnu og gott framtak hjá þeim að koma um- ræðunni svona af stað. Það var kannski ekkert nýlt eða merkilegt sem kom fram þannig en þarna koma menn saman og bera saman bækur sínar. Ef ég tala út frá eigin brjósti þá er áhyggju- efnið hjá mér alltaf það sama og það er loðnuleit og hvernig staðið er að henni. Það hugsar þetta auðvitað hver út frá eigin ranni en okkur sem stundum loðnuveiðar hefur fundist loðnuleitin ómarkviss og illa undirbúin. Það þyrfti að leggja línumar fram í tímann í samstarfi við þá sem stunda þessar veiðar þannig að menn séu ekki að karpa í miðri leit. Það var aðeins komið inn á þetta á ráðstefnunni og mér líkaði vel við málflutning Eggerts hjá Granda." Var eitthvað á ráðstefnunni sem þérfannst vanta? „Nei í raun og veru ekki. Auðvitað var farið yfir víðan völl á ráðstefnunni, sumt hafði maður áhuga fyrir en ekki öllu þannig að ég held að það hafi ekkert vantað. Markmiðið með ráðstefnunni var væntanlega að efla samvinnu aðila í sjá- varútvegi. Ég veit ekki hvort svona ráðstefnur skili miklum árangri strax en orð eru til alls fyrst,“ sagði Ólafur að lokum. Niðurstaða ráðstefnunnar: Tækifærin þar sem vandamálin eru EGGERT Bcncdikt, Hreiðar og Arnar Sigurmundsson. Samantekt Hreiðars Þórs Valtýsonar, forstöðumanns Sjávarútvegsmiðstöðvarinnar: • Vandamálið er loðnan, þetta vandamál á stóran þátt í því að skapa þessa ráðstefnu og því von- andi áframhaldandi þróun á sam- starfi - eins og Sigurður Bogason benti á, þá eru tækifærin þar sem vandamálin eru. • Ég skynja þetta sem svo að menn séu sammála um aðalatriðin, meira samstarf, ágreiningur er um ein- staka framkvæmdir svo sem tog- ararall, netarall, bergmálsmælingar. • Megum samt ekki líta á ágrein- inginn sem eitthvað slæmt, eins og Kristján Þórarinsson benti á. Ágreiningurinn er í raun forsenda þróunar. Þó við verðum auðvitað að halda honum innan ákveðinna kurteisimarka eins og Jóhann Sigurjónsson benti á. • Varðandi styrkjaumhverfið þá er hlutfallslega lítill hluti sem fer í sjávarútveg. Kannski er það vegna sjávarútvegsins sjálfs eins og Guðmundur Gunnarsson benti á. Sjávarútvegurinn er kannski ekki nógu duglegur að sækja þekkingu til rannsóknaumhverfisins. Einnig er, eins og Sjöfn Sigurgísladóttir benti á, vandamál við að ráða hæft fólk til rannsókna tengdum sjávar- útvegi. • Eggert Benedikt Guðmundsson talaði um innsæi hjá iðnaðinum á móti reiknikunnáttu (reiknilíkön- um) hjá rannsóknargeiranum sem er nátengt því sem Höskuldur Bjömsson og Þorsteinn Sigurðsson ræddu um, rannsóknareðli gagnvart veiðieðli. Oft er litið á þetta sem tvö andstæð sjónarmið þegar í raun eru þetta hlutir sem ættu að geta styrkt hver annan. • Spurning hvort ekki þarf virka stefnumótun á æðstu stöðum til að breyta þessu því greinilega er þörf á meira samstarfi. • Flestir virðast sammála um að samstarf sé að aukast með aukinni menntun í sjávarútveginum en full þörf er á að efla það enn meira. Litlar svæðisbundnar stofnanir, svo sem þekkingarsetur og útibú, geta skilað veigamiklu hlutverki þama - spurning hvaðan peningar eiga að koma til að efla þetta. Almennt séð virðist mikill vilji hjá aðilum í sjávarútvegi að starfa saman og er eðli stofnana eins og Matís t.d. algjörlega háð því. Eðli Hafró er talsvert öðmvísi enda má skynja það að útgerðin kalli eftir meira samstarfi við þá stofnun heldur en í hina áttina. Samstarf allra aðila hefur hins vegar verið að aukast á síðustu ámm, þó enn sé deilt um útfærslur á einstökum verkefnum. Á meðan þessar deilur em ekki á persónulegu nótunum má þó í raun líta á þær sem hvata til framfara og þróunar. Bæði iðn- aðurinn og rannsóknageirinn hafa mikið fram að færa handa hvor öðmm og því er mikilvægt að skilningur og virðing ríki þama á milli. Sjávarútvegurinn er dreifður um allt landið og því em einnig flestir sammála um að svæðisbundnar rannsóknir beri að efla, þá í tengslum við svæðisbundnar rannsóknastofnanir, útibú eða þekkingarsetur. Þar skapast nálægðin sem er svo mikilvæg til að gagnkvæm virðing ríki. Stofnanir og vísindamenn em hins vegar háð styrkjum og finnst sumum stefna íslenskra rann- sóknarsjóða varðandi rannsóknir í sjávarútvegi vera ómarkviss og með stóra sjóði eins og Rannís er áhersla á sjávarútveg afar lítil. Hluti af ástæðunni má þó vera að sjávarútvegurinn er ekki nógu duglegur sjálfur að sækja þekkingu til rannsóknageirans eða að taka þátt í stefnumótun hans. Einnig hefur ímynd sjávarútvegsins ekki verið góð þannig að rann- sóknarfólk sækir ekki í þennan geira og nemendur sækja ekki í nám tengt sjávarútveginum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.