Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 22

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Qupperneq 22
22 Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 Yndislegt að sjá skipin koma inn þessa fallegu innsiglingu -segir Kolbrún Þorsteinsdóttir, eiginkona Sverris Gunnlaugssonar, sem nú er með Gullberg VE - Kolla hefur fylgt bónda sínum í siglingar, tók að sér að kokka í afleysingum á Jóni Vídalín og leysti af sem háseti á Vestmannaey þegar á þurfti að halda ÁSTIR samlyndra hjóna Kolla og Sverrir eru samrýmd og viðtalið er í raun ástarjátning sjómannskonunnar sem nýtir þær stundir sem gefast með sínum karli til hins ýtrasta. Viötal GúðBjðrg'SIgúfgéirsdöffir" gudbjorg @ eyjafrettir. is Kolbrún Þorsteinsdóttir er sannköll- uð sjómannskona en maður hennar, Sverrir Gunnlaugsson, skipstjóri, hefur stundað sjóinn öll þeirra bú- skaparár. Hún er stolt af sínum manni og þegar hann kemur í land tekur hún á móti honum á bryggj- unni hvort sem er að nóttu eða degi. Og hún hefur ekki látið þar við sitja. Kolla hefur fylgt bónda sínum í siglingar, tók að sér að kokka í afleysingum á Jóni Vídalín og leysti af sem háseti á Vest- mannaey VE þegar á þurfti að halda. Hún fer enn einn og einn túr með bónda sínum, svona til að fylgjast með enda líkar henni vel á sjónum. Kolla og Sverrir eiga tvo syni, Þorstein og Jón Kristin, sem báðir búa með fjölskyldum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Alltaf verið sjómanns- kona Kolla tekur á móti blaðamanni á fallegu heimili þeirra hjóna við Birkihlíð. Garðurinn í kringum húsið hreint út sagt ótrúlegur og þar skarta furur og blágreni sínu feg- ursta. Allt snyrtilegt og vel við haldið og hún sér sjálf um að mála skrautmuni sem prýða garðinn. „Sjáðu þessa, nú er hún komin í gulan kjól, var í fjólubláum í fyrra,“ segir Kolla og bendir á tréskúlptúr af konu við eitt beðið. „Já ég hef alltaf verið sjómanns- kona. Við Sverrir giftum okkur 28. desember 1968 og keyptum okkur íbúð við Urðaveginn fyrir spari- merkin. Sverrir byrjaði á Berg árið 1967 en fyrst eftir að hann kom til Eyja var hann sendill í bakaríinu hjá Simma. Ég vissi alltaf af honum, við vorum í stórum vinahóp sem fór saman á böll, bíó og partí. Við hittumst alltaf á Hressó áður en við fórum í bíó og einhverju sinni var hann blankur og einhver spurði hvort ég gæti lánað honum. Ég hélt nú ekki, hann gæti bara borgað fyrir sig sjálfur. Þegar hann spurði eftir mér á Vesturveginum í fyrsta skipti kom mamma til dyra og kallaði á mig. Þegar ég sá hann sagðist ég ekki mega vera að því að tala við hann, ég væri að vaska upp og skellti á hann. Ári seinna varð hann maðurinn minn.Yndislegur og góður maður. Margsinnis í siglingar Það er ofboðslega gaman að vera sjómannskona. Eg hef farið marg- sinnis með Sverri í siglingar og það er frábært að koma á staði eins og Grimsby, Hull, Cuxhaven og Bremerhaven. Þegar Vestmannaey fór í slipp til Esbjerg í Danmörku fór ég með og var úti allan tímann. Viðgerðin átti að taka tvær vikur en tók heilan mánuð. Það var frábært að vera úti og við mættum alltaf á sama pöbbinn klukkan sex á kvöld- in og fengum okkur Hof og Gammel Dansk þannig að heima- fólkið var farið að þekkja okkur. Við komum ekki til Eyja fyrr en á jóladag en Þorsteinn sonur okkar var þá sex ára og í góðu yfirlæti hjá foreldrum mínum,“ segir Kolla og bætir því við að hann hafi verið mjög sáttur hjá ömmu og afa og spenntur að skoða gjafimar sem foreldramir komu með heim. Kolla segir að það hafi verið nóg að gera þegar komið var í land í útlöndum enda mikið að snúast í búðunum og langir listar yfir allt sem þurfti að finna og kaupa. „Afgreiðslufólkið var farið að þekkja okkur í magasínum þar sem við versluðum. Ég var kannski með 25 til 30 umslög á hlaupum í inn- kaupum fyrir Pétur og Pál úti í bæ. Ég var að kaupa kerrur, dúkku- vagna og hjól og bara nefndu það. Ég hætti því alveg þegar ég frétti að kerlingar sem ég var að versla fyrir voru að hneykslast á því niður í stöð að ég væri enn og aftur farin að elta karlinn í siglingu. Mér fannst hins vegar rosalega gaman í siglingum og þegar við fómm á Hull og Grimsby fómm við í rútu- ferðir til Blackpool og Fleetwood. Það var ýmislegt brallað og þessar ferðir em í mínum huga ógleyman- legar og ég kynntist skemmtilegu og góðu fólki. Á Bergey vom bestu stundirnar á sjónum. Þar fór ég fyrst í nála- körfuna, þar var einstakur mann- skapur eins og stórfjölskylda. Við konumar gerðum margt saman, létum sauma peysur á áhöfnina. Okkur var gefið gull á sjómanna- dag, ferðuðumst til Amsterdam í tíu daga, og London í viku. Eitt stórt ævintýri. Háseti hálfan túr Kolla fylgist vel með veður- og aflafréttum og öllu sem tengist sjónum. „Ég hef trúlega verið sjó- maður í fyrra lífi, eða málari en mér finnst líka voða gaman að mála,“ segir Kolla en þegar Sverrir var með frystiskipið Vestmannaey leysti hún af sem háseti hálfan túr. „Einn skipverjinn missti náinn ættingja og þurfti að fara í land. Ég flaug til ísafjarðar og þar fór ég í björgunarbát sem flutti mig um borð í Vestmannaey og skipverjann í land. „Það var skemmtilegt að sjá og kynnast vinnslunni um borð en mér fannst nýtingin á aflanum ekki góð a.m.k. var miklu meira lagt upp úr nýtingu í ísfélaginu. Þegar Sverrir hætti á Vestmannaey drifum við okkur í Karabíska hafið og vorum síðan á Orlando í sautján daga og áttum yndislegan tíma. Þegar við komum heim aftur beið hans skipstjórnarstaða á Jóni Vídalín sem var gerður út í Þorlákshöfn. Sverrir vildi að við flyttum frá Eyjum en ég sagði að hann kæmi aftur. Ég fór til Þorláks- hafnar og tók á móti honum þegar hann kom í land og á sumrin vorum við með tjaldvagn í Efstadal við Laugarvatn og höfðum það notalegt í þrjátíu tíma stoppum í Kollulundi. Vár alltaf tilbúin Kolla leysti af sem kokkur á Jóni Vídalín tvö sumur. „Fyrra árið leysti ég af sem kokkur tvo túra og seinna árið þrjá túra. Það gaf mér svo mikið sjálfstraust að geta eldað ofan í alla þessa karla en þeir voru sautján um borð. Þeir voru voða ánægðir og ég vann þetta jafnt og þétt. Mér fannst eiginlega erfiðast að vakna klukkan hálf sex á morgnana og hafa til morgunmat- inn. Síðan var tíukaffi, hádegis- verður, þrjúkaffi, kvöldmatur, kvöldkaffi og miðnætursnarl. Áhöfnin vann á sex tíma vöktum fyrir utan skipstjóra og stýrimann sem voru á tólf tíma vöktum. Ég sá líka um að ræsa mannskapinn og strákamir um borð hafa reynst mér yndislegir vinir og sumir eru bara eins og peyjamir mínir. Seinna sumarið vom báðir synir okkar um borð með okkur“. Vinnslustöðin keypti svo Jón Vídalín og Sverrir fylgdi með í kaupunum. „Ég fór oft með Sverri á sjó þegar hann var á Jóni Vídalín,“ segir Kolla og brosir leyndardómsfullu brosi. „Ég fylgdi honum niður á bryggju og þá var kannski ákveðið að ég færi með og ég skildi bara bílinn eftir á bryggj- unni. Þetta var eftir að við vorum orðin tvö, strákarnir famir að heiman. Ég átti föt og snyrtidót klárt um borð þannig að ég var alltaf tilbúin til að fara með og ekkert mál,“ segir Kolla og þegar hún er spurð hvort hún hafi aldrei verið sjóveik segist hún hvorki hafa fundið fyrir sjóveiki né sjóhræðslu. Geri allt sem ég get sjálf Það er ákveðin rómantík í kringum sjómannslífið? „Já, kertaljós og stórsteikur, alveg draumur í dós. Það er auðvitað dá- lítið sérstætt að vera gift sjómanni og yndislegt þegar þeir koma í land. Ég verð svo hissa þegar konur em þreyttar á að hafa þá heima og vilja koma þeim út á sjó aftur. Þegar Sverrir minn kemur heim þá reyni ég að hafa það þann- ig að hann slappi af og hafi það notalegt." En lendir ekki heimilishaldið alveg á þér, þú hlýtur að halda öllu gang- andi í landi? „Heima á Islandi sé ég um peningamálin en hann sér um þau í útlöndum. Við höfum átt góðar stundir og reynum að fara út tvisvar á ári. Við fómm fyrst út með Jón Kristin þegar hann var níu mánaða og hann fór á hverju ári með okkur þangað til að hann varð 13 ára. Þorsteinn var mikið hjá foreldmm mínum þegar hann var lítill en kom líka með okkur út nokkmm sinn- um. Ég og mamma vomm svo miklar vinkonur, ég lærði svo mikið af henni. Núna eigum við íbúð á Tenerife og reynum alltaf að fara út tvisvar á ári og emm í þijár til fimm vikur. Við vomm úti um síðustu jól og áramót með sonum okkar og fjölskyldum þeirra og við Sverrir ætlum aftur út í haust.“ Nú hefur þú glímt við veikindi, hefur brotnað ótal sinnum? „Þetta er í blóðinu, ég er búin að brotna mjög oft, það er alveg rétt. En ég læt það ekki stöðva mig og geri allt sem ég get sjálf. Það fer hins vegar í taugamar á mér þegar fólk segir; „ertu brotin einu sinni enn,“ það er svolítið særandi. Seinni árin hafa brotin orðið verri og eru lengur að gróa. Ég er ný- komin úr gifsi, “ segir Kolla og útskýrir hvemig hún brotnaði þegar hún var að hengja út þvott eftir dvölina á Tenerife um jólin. „Ég verð rosalega sár þegar þetta gerist. Ég er samt sem áður búin að læra að við verðum að taka því sem okkur er ætlað í lífinu og það er svo margt sem er verra. Ég hef alltaf séð um mig sjálf og þetta hefur alltaf bjargast. Ég þoli ekkert helvítis vesen. Ég þarf að lifa með þessu. Það fer í taugamar á mér þegar fólk er að væla út af smá- munum.“ Yndislegt að sjá skipin koma inn Sverrir hefur verið með Gullbergið undanfarið ár og Kolla segir skemmtilegt að fylgjast með þeim tækninýjungum sem átt hafa sér stað frá því hann byrjaði fyrst til sjós á Berg. Það er rosalega flott spil um borð í Gullberginu og tvö troll. Ég fór með þeim einn túr í fyrrasumar og það var skemmtilegt, eina að hann veltur meira en hin skipin sem ég hef farið með enda styttri. Mér finnst yndislegt að sjá skipin koma inn þessa fallegu innsiglingu í Eyjum. Ég fer alltaf að sækja Sverri þegar hann kemur í land, á hvaða tíma sólarhringsins sem er. Við erum svo samrýmd og okkur Ieiðist báðum kjaftagangur og blaður. Ég hef líka kynnst fólki á sjávarútvegssýningum og Sverrir er að bera mér kveðjur frá hinum og þessum og við þekkjum skip- stjóra út um allt land, “ segir Kolla sem lætur ekkert stoppa sig.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.