Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Síða 30

Fréttir - Eyjafréttir - 04.06.2009, Síða 30
30 Fréttir / Fimmtudagur 4. júní 2009 [vetrarlokahóf ÍBV-íþróttasambands Vignir og Kristrún fengu Fréttabikarana - Grétar og Þórsteina valin best í meistaraflokkunum á vetrarlokahófi ÍBV Vetrarlokahóf ÍBV-íþróttafélags var haldið í Höllinni á laugar- daginn en félagið heldur tvo lokahóf ár hvert, eitt eftir sumarið og annað eftir veturinn. A vetrar- lokahófinu fagnar handknattleiks- fólk árangri vetrarins, sem var reyndar í slakara lagi í ár en þó var veturinn ekki alslæmur. Leik- mönnum og almennum félags- mönnum var boðið til veislunnar en um 150 manns sóttu hófið. Kristrún Hlynsdóttir og Vignir Stefánsson fengu Fréttabikarana. Hápunktur lokahófs ÍBV er ávallt verðlaunaafhending. Best í hand- boltanum í vetur voru þau Grétar Þór Eyþórsson og Þórsteina Sigurbjörns- dóttir en bæði fóru þau fyrir sínum liðum í vetur. Efnilegust voru þau Vignir Stefánsson og Anna María Halldórsdóttir en mestu framfarirnar sýndu þau Bragi Magnússon og Hildur Sigurðardóttir. Auk þess voru veitt verðlaun fyrir þriðja llokk karla og kvenna og má lesa nöfn verðlaunahafa hér að neðan. Þá var Eyjólfur Guðjónsson, skip- stjóri, dreginn úr Pepsí pottinum en í pottinum eru félagsmenn ÍBV sem hafa lagt sitt á vogarskálarnar til að efla starf félagsins. í verðlaun fékk Eyjólfur ferð á leik í enska bolt- anum. Besta manneskjan í blaki ÍBV-íþróttafélag teflir fram liðum í handbolta og fótbolta en Svavar Vignisson, þjálfari karlaliðs ÍBV í handbolta, laumaðist til að veita ein verðlaun úr annarri íþrótt, Nokkrir Eyjamenn hafa stundað blak af miklum móð undanfarið. Svavar sagði að þeir hefðu ákveðið að velja besta blakmann Eyjanna en þegar búið var að fara yfir mannskapinn kom í ljós að í raun er enginn bestur í blaki í Vestmannaeyjum. Þeir ákváðu því bara að velja bestu man- neskjuna og kom það í hlut Magnúsar Bragasonar. AFREKSFÓLK í MEISTARAFLOKKI. Þessi fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í meistaraflokki í handbolta í vetur. Frá vinstri: Edda Ingibjörg Daníelsdóttir, sem tók við viðurkenningunni fyrir hönd Grétars Þórs Eyþórssonar, Bragi Magnússon, Vignir Stefánsson, Hildur Sigurðardóttir, Anna María Halldórsdóttir og Þórsteina Sigurbjörnsdóttir. Efnilegt handboltafólk Eins og áður sagði var verðlauna- alhendingin hápunktur kvöldsins en Fréttir hafa undanfarin ár veitt Fréttabikara til þess íþróttafólks sem þykir skara fram úr og vera líklegt til afreka í íþrótt sinni í framtíðinni. I ár komu Fréttabikararnir í hlut Kristrúnar Hlynsdóttur og Vignis Stefánssonar. „Vignir hefur lagt hart að sér í vetur en hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki í vetur. Við hann eru bundnar miklar vonir enda hefur hann ekki valdið vonbrigðum í þeim leikjum sem hann hefur spilað. Honum er stundum líkt við Guðjón Val Sigurðsson, landsliðsmann, enda hefur Vignir gríðarlegan sprengi- kraft. Og þrátt fyrir að keppa um stöðu við bestu leikmenn IBV í vetur, þá fékk Vignir að spila talsvert, sem segir mikið um hans getu,“ sagði Júlíus Ingason sem afhenti Fréttabikarana í ár. _ „Kristrún hefur verið í byrjunarliði IBV í öllum leikjum vetrarins, bæði í 3. flokki og meistaraflokki. Hún býr yfir afar öflugri gabbhreyfmgu sem andstæðingar hræðast og vilja yfírleitt fá dæmd skref á hana. Auk þess gengur Kristrún vasklega fram í varnarleiknum, svo vasklega að stundum er kvartað undan henni. Hún er mikil fþróttakona, á ekki langt að sækja hæfileikana. Pabbi hennar, Hlynur Stefánsson þótti liðtækur í handbolta en valdi fót- bolta, mamma hennar, Unnur Sigmarsdóttir kom eitthvað nálægt flmleikum en var mest í handbolta. Sjálf hefur Kristrún orðið Islandsmeistari í fimleikum og er vel að því kontin að hljóta Frétta- bikarinn í ár.“ Verðlaunahafar 3. flokkur kvenna Mestu framfarir: Aníta Elíasdóttir. IBV-ari ársins: Gígja Óskarsdóttir. Efnilegasti leikmaðurinn: Dröfn Haraldsdóttir. 3. flokkur karla Mestu framfarir: Þorgeir Agústsson. IBV-ari ársins: Anton Bjömsson. Efnilegasti leikmaðurinn: Brynjar Karl Óskarsson. Meistaraflokkur kvenna Mestu framfarir: Hildur Sigurðar- dóttir. Efnilegasti leikmaðurinn: Anna María Halldórsdóttir. Besti leikmaðurinn: Þórsteina Sigur- björnsdóttir. Meistaraflokkur karla Mestu framfarir: Bragi Magnússon. Efnilegasti leikmaðurinn: Vignir Stefánsson. Besti leikmaðurinn: Grétar Eyþórs- son. Handhafar Fréttabikarsins 2009 Kristrún Hlynsdóttir. Vignir Stefánsson. Hlaupahópurinn ásamt Kristínu Óskarsdóttur, formanns Ægis. Comeníus - íþróttir án landamæra: Góðgerðarhlaup fyrir íþróttafélagið Ægi Þriðjudaginn 2. júní fór fram góðgerðarhlaup í Grunnskóla Vestmannaeyja. Hlaupið er liður í Comeníusarverkefninu íþróttir án landamæra. Nemendur í 5.-7. bekk tóku þátt í hlaupinu og var hlaupið frá Týssvellinum og niður á Stakkó. Allir krakkamir vom í eins bolum með merki verkefnisins Sports without bord- ers. Vinnslustöðin, ísfélagið, Alþýðuhúsið, Sparisjóður Vestmannaeyja og Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður og fyrrverandi nemandi Gmnnskólans styrktu verkefnið með því að borga bolina. Krakkar í 7. bekk söfnuðu áheitum fyrir hlaupið ásamt Júlíönu Silfá starfsmanni skólans. Aheitin renna óskert til íþróttafélagsins Ægis í Vest- mannaeyjum. Svona hlaup verða hlaupin í öllum löndum sem taka þátt í þessu verkefni en það eru auk Islands; Þýskaland, Spánn, Italía og Tékkland. Öll hlaupin verða í júní og hvert land styrkir góð- gerðarstarfsemi í sínum heimabæ. Comeníusarhópurinn - íþróttir án landamæra EFNILEGIR KRAKKAR. Þessi fengu viðurkenninjgar fyrir góðan árangur í þriðja flokki. Frá vinstri: Brynjar Karl Óskarsson, Dröfn Haraldsdóttir, Gígja Oskarsdóttir, Þorgeir Agústsson og Anton Björnsson. A myndina vantar Anítu Elíasdóttur. BESTA MANNESKJAN. Svavar Vignisson afhenti Magnúsi Bragasyni bikar fyrir að vera besta manncskjan í blakliði fyrrum handboltakappa. Á LEIÐ TIL ENGLANDS. Eyjólfur Guðjónsson var dreginn úr Pepsípottinum en hér er hann ásamt Tryggva Má Sæmundssyni, varaformanni IBV.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.