Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Page 1
Bílaverkstæðið
BrAGGINN sf.
Flötuivi 20
Viðgerðir og smurstöð - Sími 481 3235
Réttingar og sprautun - Sími 481 1535
37. árg. I 10. tbl. I Vestmannaeyjum 11. mars 2010 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
Menn almennt ánægðir með loðnuvertíðina sem er að ljúka:
Aflinn í Eyjum 35 þúsund tonn
/
- Ahersla var lögð á hrognavinnslu - Framleiðslan hér rúm 2200 tonn
Loðnuvertíðinni er að ljúka og eru
um 35 þúsund tonn komin á land í
Eyjum sem var hlutur Eyjamanna í
kvótanum sem var í heild 150
þúsund tonn. Ahersla var lögð á
hrognavinnslu og náðust rúm 300
tonn af hrognum.
Megináhersla var lögð á að ná sem
mestum verðmætum úr takmörk-
uðum heimildum og áhersla lögð á
hrognavinnslu. Verð á mjöli og lýsi
er hátt þannig að sá hluti vinnsl-
unnar skilar líka sínu og menn
almennt ánægðir með vertíðina.
„Við eigum eftir 1000 tonn og
klárum það í dag eða á morgun,"
sagði Eyþór Harðarson, útgerðar-
stjóri Isfélagins. Við erum með
22.600 tonn og það hefur mestallt
farið í hrognatöku. Rúmlega 2000
tonn voru fryst á Guðmundi fyrir
Rússlandsmarkað. Allur annar afli
fór í hrognavinnslu sem þýðir yfir
2000 tonn af afurðum."
ísfélagið var með fjögur skip við
veiðarnar, Guðmund, Þorstein,
Alsey og Júpiter. „Við erum mjög
ánægðir með hvemig spilaðist úr
þessu. Það var gott að ná þessu á
þeim tfma þegar mestu verðmætin
nást úr aflanum. Annaðhvort heppn-
ast þetta eða ekki. Nú taka bolfisk-
veiðar við hjá Þorsteini og Suðurey
og hinir bíða eftir norsk- íslensku
síldinni og makríl, eitthvað fram yfir
sjómannadag," sagði útgerðarstjóri
Isfélagsins.
Páll Scheving, verksmiðjustjóri
FES, sagði að búið væri að taka á
móti 26 þúsund tonnum til bræðslu
á þessu ári og þar af 16.500 tonnum
af loðnu. Við fengum einn farm af
færeysku skipi og vonumst eftir
öðru og erum að landa upp úr
Guðmundi núna,“ sagði Páll þegar
talað var við hann á miðvikudag.
„Við framleiðum hágæðamjöl og
verð á mjöli og lýsi er hátt og meiri
líkur en meiri á því að verð á mjöli
haldist hátt. Við erum sáttir því
vertíðin gekk mjög vel,“ sagði Páll.
Vinnslustöðin var með Sighvat,
Kap og ísleif við veiðarnar. Fengu
skipin 11.250 tonn af loðnu og fór
hún öll í hrognavinnslu. „Við fryst-
um ekki loðnu á þessari vertíð og
náðum að vinna allt í hrogn, rúm-
lega 1200 tonn og nýtingin þar með
hámörkuð. Fyrsta löndun hjá okkar
var 22. febrúar og sú síðasta 8.
mars. Þrjú skip voru við veiðar og
Kap II var einu sinni notuð sem
lutningaskip með afla,“ sagði Guðni
Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri
Vinnslustöðvarinnar.
Sigurður Friðbjörnsson, verk-
smiðjustjóri í FIVE, sagði alla loðnu
hafa verið unna í hrogn en hratið
sem fór í bræðslu var 11.330 tonn af
þeirra skipum og Hugin.
Vinnsluskipið Huginn VE var með
2000 tonna kvóta og var hluti aflans
unninn í hrogn. „Það gekk bara vel
og við erum ánægðir sagði Páll Þór
Guðmundsson, útgerðarstjóri.
GERA VÍÐREIST Hafdís Guðnadóttir og Eyþór Björgvinsson eru stödd í sannkallaðri ævintýraferð um Kyrrahafið. Þau prófuðu m.a. fall-
hlífarstökk yfir Nýja Sjálandi og eins og sjá má, skemmti Hafdís sér ágætlega. Sjá nánar á bls. 10.
Herjólfsdalur:
Varanlegt
svið
Skipulags- og byggingarfulltrúi
lagði fram breytingu á deiliskipu-
lagi í Herjólfsdal á síðasta fundi
umhverfis- og skipulagsráðs.
Breytingin er að stóra sviðið verði
stækkað og þar verði salernis-
aðstaða. Samþykkt var að auglýsa
tillöguna .
Gunnlaugur Grettisson, for-
maður ráðsins, sagði hugmynd
þjóðhátíðarnefndar vera að koma
upp vísi að varanlegu sviði. „I
gildandi aðalskipulagi er leyfi
fyrir byggingu en byggingarreit-
urinn er stækkaður samkvæmt
núgildandi skipulagi. Við lögðum
áherslu á að tekið verði tillit til
umhverfissjónarmiða og að bygg-
ingin falli vel að umhverfi
Herjólfsdals," sagði Gunnlaugur.
Tryggvi Sæmundsson sagði
þjóðhátíðarnefnd ætla í samstarfi
við bæinn að steypa upp kjallara
sem verður undir stóra sviðinu í
Herjólfsdal. „Húsið er þrír metrar
á hæð og um 280 fermetrar. Við
notum gamla sviðið og hífum upp
á kjallarann næstu þrjú til fjögur
ár en planið er að þarna verði
varanlegt svið til framtíðar en við
þurfum að fá arkitekt eða hönnuð
til að koma að þeirri vinnu.
Tryggvi sagði reiknað með að í
kjallaranum verði geymslur og
aðstaða fyrir starfsfólk og þó svo
að ekki sé gert ráð fyrir almenn-
ingssalerni þar, samkvæmt deili-
skipulagi, þá fmnst honum það
koma vel til álita. „Við reiknum
með að kjallarinn verði kominn
upp fyrir þjóðhátíð og gamla
sviðið sett þar ofan á þannig að
þetta verði komið í gagnið í
sumar.“
Þegar Tryggvi er spurður nánar
út í sviðið og hvernig það komi til
með að líta út í framtíðinni sagði
hann enga endanlega ákvörðun
liggja fyrir. „Það er ekki endilega
að það standi uppi allt árið.
Niðurstaða liggur ekki fyrir, um-
ræða þarf að fara fram og allar
hugmyndir verða kynntar fyrir
bæjarbúum.
73 milljónir í jarðvegsvinnu
Heildarkostnaður við jarðvegs-
vinnu við byggingu fjölnota
íþróttahúss, tilboð og aukaverk
vegna magnaukningar, varð sam-
tals um 73 milljónir króna.
Þetta kom fram á síðasta fundi
framkvæmda- og hafnarráðs.
Friðarhöfn I Símiú81 3500
Ejeimskip
Yfirhafið oj heim
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA... íetJÉhamar VÉLA- OG BlLAVERKSTÆÐI
...SVO ÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI ’
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA BÍLAVIÐGEÐIR / <&) ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM FLATIR2I / S.481-1216 / GSM.864-4616
> y.