Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Blaðsíða 15
Fréttir / Fimmtudagur 11. mars 2010
15
Fitness:
Ég kem af yndislegu fólki
- segir Eyjakonan Katrín Eva Auðunsdóttir sem sigraði í einu stærsta fitnessmóti ársins
HELKÖTTUÐ. Katrín Eva Auðunsdóttir ásamt kærasta sínum,
líkamsræktarfrömuðinum Magnúsi Bcss.
Katrín Eva Auðunsdóttir, sem er
fædd og uppalin í Eyjum náði
hreint mögnuðum árangri í
alþjóðlegu fitness móti en Katrín
Eva gerði sér lítið fyrir og sigraði
í sínum flokki. Mótið, sem kennt
er við Arnold Schwarzenegger,
líkamsræktarmann, Hollywood-
leikara og nú ríkisstjóra Kali-
forníu, er eitt af stærstu mótum í
íþróttagreininni sem haldið er ár
hvert. Sigurinn er því mjög
athyglisverður og kannski ekki
síst í ljósi þess að enginn Is-
lendingur hafði einu sinni komist
á verðlaunapall áður en Katrín
Eva steig á sviðið.
Fyrir þá sem eru í ættfræðinni þá er
Katrín Eva dóttir Kötu Gísladóttur,
sem er dóttir Sjafnar Kolbrúnar
Benónýsdóttur, Bobbu, og Gísla
Sigmarssonar. Júlíus Ingason fékk
Katrínu Evu til að svara nokkrum
spurningum um þátttökuna og fit-
ness.
Hefurðu stundað líkamsrœkt lengi?
„Eg hef æft íþróttir alla ævi, prófað
flestallar íþróttir held ég. Var mest í
fótbolta á mínum yngri árum, síðan
prófaði ég ólympíska hnefaleika og
varð heilluð af því. Ég er íþrótta-
nörd og elska að hreyfa mig. En það
eru ekki nema svona þrjú ár síðan ég
fór að lyfta að ráði og svo fór allt að
gerast fyrir rúmum tveimur árum
þegar ég fór að lyfta með kærast-
anum mínum, vaxtarræktargoði
íslands, Magnúsi Bess. Hann tók
mig algjörlega í gegn og ég fór að
lyfta eins og hann.“
Hvenœr ákvaðst þú að taka þátt í
þessu sterka móti?
„Draumurinn kviknaði strax eftir
þátttökuna á mínu fyrsta móti. Ég
leyfi mér að dagdreyma mikið. Mér
fannst fáránlegt að Maggi hefði
aldrei keppt í Ameríku og því sótt-
um við unr fyrir hann í ágúst á síð-
asta ári, mín umsókn fylgdi með í
djóki. Ég hoppaði því hæð mína
þegar hún var samþykkt," sagði
Katrín en aðeins er ár síðan hún
byrjaði að keppa. Árangurinn hefur
farið stigvaxandi en hún varð m.a.
Islandsmeistari í sínu fyrsta móti
hérlendis. „Ég byrjaði því framar
vonum í þessu sporti en ég er lfka
með þann besta á Norðurlöndunum
og 29 faldan íslandsmeistara mér
við hlið, sem hefur endalausa trú á
mér og rífur mig upp þegar ég fer að
efast.“
í góðu formi allt árið
Katrín segist alltaf halda sér í góðu
formi og því hafi það kostað hana
minni átök að undirbúa sig fyrir
þetta mót. „Minn stærsti veikleiki
er að höndla gagnrýni og þarna er ég
að labba upp á svið og gefa færi á
því að allir gagnrýni mig. En kost-
urinn við þetta er að þarna er þörf á
sjálfsaga og ég er smátt og smátt að
læra hann af Magga. Hann getur
maður nýtt sér á fleiri sviðum í
lífinu og það er stefnan."
Hvemig fer svona keppni fram?
„Á IFBB mótum þá er samanburður
í svörtu bikiníi og í sundbol. Síðan
komast sex áfram í úrslit sem yfir-
leitt eru seinnipartinn og þá er
komið fram í lituðu bikiníi.
Samanburðurinn fer þannig fram að
við þurfum að snúa okkur á fjóra
vegu fyrir marga dómara sem dæma
hvernig við erum byggðar.
Fitnessið er ekki lengur svona „hart
lúkk“, reglunum var breytt á síðasta
ári með tilkomu nýs flokks sem
heitir „Classic Bodybuilding" og
sennilega þess vegna hefur mér
verið að ganga vel. Það er verið að
leita eftir vel tónuðum vöðvum og
samræmi milli líkamsparta og það
er dæmt niður fyrir of mikinn skurð
og of mikla vöðva.“
Katrín segir það dýrt áhugamál að
taka taka þátt í svona mótum og
allur kostnaðurinn fellur á kepp-
endurna sjálfa. Hún segist þó hafa
fengið nokkra góða velunnara til að
styðja við bakið á sér. „Þar má
nefna Grím kokk, Veisluturninn,
Extra, Marel, Saffran, BK kjúk-
linga, Nu Skin, Matfugl, Þrjá Frakka
og Sportland. Ég er þeim afar
þakklát fyrir að hafa trú á mér og án
þeirra hefði ég ekki komist út.“
Kemur sigurinn til með að opna ein-
hverjar dyr fyrir þér ífitness?
„Já og nei. I raun bara enn eitt
jákvætt á ferilskránna. Allt eftir því
hvert næsta skref verður. Núna er ég
bara að leika mér og njóta þess að
vera í fríi.“
Stefnir þú á að taka þátt í mótinu á
nœsta ári og verja titilinn?
„Já, ef ég held haus í æfingunum og
ég tel að ég eigi erindi í titilinn þá
verð ég þarna aftur að ári.“
Góöir bakhjarlar
Katrín segist ennfremur vera
afskaplega þakklát þeim fjölmörgu
sem hafa stutt hana, bæði fyrir og
eftir mót. „Mig langar að þakka
öllum þeim sem hvöttu mig áfram
fyrir mótið, ég er þeim afar þakklát
fyrir allan stuðningin sem ég fékk.
Ég kem af yndislegu fólki og er
agalega montin með þau. Pabbi fór
að mæta í ræktina í fyrsta skipti á
ævinni til að taka virkan þátt í
undirbúningnum, mamma og amma
Bobba misstu sig í fréttaflutningi á
facebook og Maggi sagði öllum að
ég myndi vinna. Hann sagði mér
það lfka daglega í heilt ár, þangað til
það varð að veruleika."
Ævintýraferð á Anfield:
Anton lét Liverpool-drauminn rætast
- Tók loforð af vini sínum Sigurði Þór Sveinssyni og bauð honum svo út til Bítlaborgarinnar
STUÐNINGSMENN LIVERPOOL NÚMER 1 OG 2 í EYJUM. Anton Sigurðsson og Sigurður Þór
Sveinsson saman í afmælisveislu Antons sem haldin var stuttu eftir ferðina góðu.
Anton Sigurðsson þekkja flestir
Eyjamenn. Anton er ungur
Eyjamaður, 25 ára gamall og er
þroskaheftur. Hann hefur lengi
haldið með Liverpool og æðsti
draumurinn var að fara til Mekka
Liverpoolmannsins, Anfield, til að
sjá liðið sitt spila. Sigurður Þór
Sveinsson hefur verið Antoni
innan handar í fjölmörg ár og
Anton tók af honum loforð að
koma með sér á leik Liverpool
fyrir 25 ára afmælið. Sigurður,
sem er einnig gallharður Liver-
poolmaður gaf honum loforð en
um síðustu helgi fagnaði Anton 25
ára afmælinu. Og að sjálfsögðu
var ferð á Anfield að baki.
Sigurður segir að Anton hafi tekið af
sér loforðið fyrir rúmum tveimur
árum. „Hann var alveg harður á
þessu og stóð sig eins og hetja í
undirbúningi ferðarinnar. Hann
hefur lagt pening til hliðar síðan ég
lofaði þessu og þegar upp var staðið,
þá borgaði hann ekki bara undir sig,
heldur bauð hann mér líka með,“
sagði Sigurður í samtali við Fréttir.
Vináttu þeirra Antons og Sigurðar
má rekja til þess þegar Sigurður var
í sambúð með móður hans, Regínu
Kristjánsdóttur en þau búa ekki
saman í dag. Anton hefur reglulega
komið við í Olís þar sem Sigurður
vinnur og kemur nú tvisvar í viku og
aðstoðar í versluninni.
Ferðin sem þeir félagar fóru í var
eftirminnileg í meira lagi. „Ég var
svolítið stressaður fyrir ferðina enda
umgengst ég Anton ekki á hverjum
degi og vissi varla hvað ég var að
fara út í. Það kom mér í raun og
veru svolítið á óvart hversu auðvelt
þetta var en ég viðurkenni það alveg
að maður var orðinn svolxtið þreytt-
ur í lok ferðarinnar. Ég var hins
vegar svo heppinn að tveir af þremur
sonum mfnum, Ævar og Amar Þór,
komu með og hjálpuðu mikið til.
En við fórum sem sagt frá Eyjum
fimmtudaginn 4. febrúar og flugum
svo út snemma morguninn eftir.
Eins og gefur að skilja var Anton
mjög spenntur og hann var reyndar
svo spenntur að kvöldið eftir að við
komum út, þá lagði hann sig bara
því spennufallið var svo mikið.
Enda var það kannski bara ágætt
enda var leikurinn á laugardeginum
og eins gott að vera hress á Anfteld,"
segir Sigurður og glottir.
Derby slagur á Anfield
Leikurinn var ekki af verri end-
anum, derbyslagur milli liðanna frá
Bítlaborginni, Liverpool og Ever-
ton. „Við fórum að sjálfsögðu á
Park fyrir leik, sem er pöbbinn þar
sem stuðningsmenn Liverpool koma
saman. Ég hef tvisvar áður farið á
Anfield en stemmningin var ekkert í
líkingu við stemmninguna á þessum
derbyleik. Leikurinn byrjaði reynd-
ar ekkert sérstaklega, einn Liver-
poolmaðurinn var rekinn út af eftir
hálftíma en við unnum 1:0 og einn
úr Everton fékk líka að fjúka út af.
Þannig að þetta var fullnaðarsigur
fyrir þá rauðklæddu."
Ljómaði á leiknum
En hvað fannst Antoni um þessi
ósköp?
„Anton ljómaði alveg á leiknum.
Við vorum búin að undirbúa hann
aðeins fyrir þetta, ég sagði honum
að hann mætti alls ekki hlaupa frá
okkur og hann gerði sér alveg grein
fyrir því að það gengi ekki upp.
Hann hélt alltaf í hendina á ein-
hverjum af okkur þrentur þannig að
þetta gekk bara eins og í sögu. Svo
kíktum við auðvitað aðeins á Park
aftur eftir leik og gleðin var ekki
minni þar eftir svona góð úrslit.
Daginn eftir fórum við svo á
Bítlasafnið og nutum þess sem
Liverpool hefur upp á að bjóða."
Eins og segir í upphafi viðtalsins
hélt Anton upp á 25 ára afmælið.
Ferðin á Anfield var auðvitað topp-
urinn á afmælisárinu og að sjálf-
sögðu var boðið upp á Liverpool-
afmælisköku. Sigurður hafði útbúið
myndasýningu, bæði með ljós-
myndum og myndbandsupptökum
úr ferðinni sem féll í góðan jarðveg
og fullkomnaði góða afmælisveislu.