Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Qupperneq 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 11. mars 2010
Nýfœddir
Vestmannacyingar:
25. september 2009 fæddist þeim
Inga Þór Arnarssyni og Kristínu
Tryggvadóttur drengur á
Heilbrigðisstofun Vestmannaeyja.
Hann vó 3460 gr við fæðingu og
var 51 cm á lengd. Hann hefur
fengið nafnið Amar Bogi Andersen
Fjölskyldan er búsett í
Vestmannaeyjum.
Þann 9. janúar eignuðust Ragnar
Benedikt Sigurjónsson og
Ragnheiður Jónsdóttir stúlku sem
hefur verið skírð Arna Björk. Hún
fæddist á Landspítalanum og var 17
merkur og 53 cm. Með henni á
myndinni eru stóm systkinin,
Olafur Brynjar og María
Ragnhildur. Fjölskyldan býr í
Reykjavík.
Úr bloggheimum:
Gísli Hjartarson bloggar:
Kúlúlán og
Icesave
Um Kúlulán og
Icesave, frá kúlu-
láni og Icesave, til
kúluláns og lce-
save. Mér er það
en hulin ráðgáta
hvemig flokks-
mönnum datt í hug
að kjósa hana aftur sem varafor-
mann stærsta stjórnmálaflokks á
Islandi. Getur verið að þetta sé
ágætis stelpa, en hún er ekki á
réttum vinnustað eftir það sem á
undan er gengið. Verst að hún skil-
ur það ekki sjálf, þar liggur kannski
rótin í málinu.
Þetta er elskan sem hló framan í
fréttamanninn þegar hún gerði lítið
úr visku erlends fræðimanns þegar
hann setti út á undirstöður íslensks
fjármálalífs og sagði að hann ætti
kannski að sækja endurmenntunar-
námskeið á Islandi. Ég veit ekki en
kannski er það svo í dag að þessi
maður gæti frekar haldið hér endur-
menntunamámskeið, kannski að
hún kíki þá á það námskeið þessi
elska?
http://fosterinn.blog. is
Þorkell Sigurjónsson bloggar:
Skollaleikur
Ég verð bara að segja það um þessa
fyrstu þjóðaratkvæðagreiðslu, að
hún er meir en lítið skrítin og algjör
skrípaleikur. Það er mér óskiljan-
legt að ríkisstjórnin skyldi ekki
blása hana af með því að draga lögin
til baka. Það, að segja um þessar
kosningar að þær sýni umheiminum
hvað við búum við mikið víðsýni og
lýðræðisást er aðeins til þess eins að
berja í bresti flokka hjá þeim póli-
tíkusum, sem kenna sig mest við
Sjálfstæði og Framsýni.
http.V/hector. blog. is
Eyjamaður vikunnar:
Væri til í að hitta indjána
forfeður mína í f öðurætt
Árshátíð FÍV var haldin á föstu-
dagskvöld í Höllinni. Fastur liður á
árshátíð skólans er að velja og veita
viðurkenningar fyrir hin ýmsu afrek
sem reyndar eru misvinsæl meðal
þeirra sem þau hljóta. Eitt stendur
þó alltaf upp úr, það er herra og
ungfrú FÍV. í ár var herra FÍV
valinn Arnar Escobar Guðmunds-
son og ungfrú FÍV var Dorothy Joe
Lowery. Dorothy gerði sér lítið
fyrir og vann einnig Ijósmynda-
keppni sem haldin var á opnum
dögum í síðustu viku. Dorothy er
Eyjamaður vikunnar að þessu sinni.
Nafn: Dorothy Joe Lowery.
Fæðingardagur: 2. mars.
Fæðingarstaður: USA, Flórída.
Fjölskylda: Bjarni Einar
Kristjánsson, Aníta Katrín
Kristjánsdóttir og Trausti þór
ívarsson.
Draumabfllinn: Volkswagen-
bjalla.
Uppáhaldsmatur: Fiskur.
Versti matur: Borða allt.
Uppáhalds vefsíða: Engin sérstök.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Metal og rock, fer svo eftir
því hvemig liggur á mér.
Eyjamaður vikunnar
Dorothy J. Lowery.
Aðaláhugamál: Bömin, bflar,
íþróttir og skólinn.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Indjána forfeður mína í föðurætt.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar auðvitað.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: ÍBV.
Ertu hjátrúarfull: Já.
Stundar þú einhverja íþrótt:
Iþróttir í skólanum og fer stundum
að lyfta.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Drama
seríumar.
Mættir þú á heilsueflingardaginn
í íþróttahúsinu (spurt af síðasta
Eyjamanni vikunnar): Veit það
ekki.
Hvers viltu spyrja næsta
Eyjamann vikunnar: Hvort það
eigi að skella sér á páskaball?
Áttir þú von á því að vera valin
ungfrú FIV: Nei átti nú ekki von á
því.
Nú vannstu líka Ijósmynda-
keppnina, hefurðu tekið myndir
lengi: Já það hefur verið mitt
áhugamál í 12 ár.
Af hverju var sigurmyndin: Hún
var af honum Patta kettlingi sem ég
gaf Alberti Snæ.
Eitthvað að lokum: Vona að það
fari að birta til hjá öllum.
Matgazðingcir vikunnar:
Humar til heiðurs The Gunners
Ég vil byrja á því að þakka ástkœrri
dóttur minni jyrir áskorunina og
skorast að sjálfsögðu ekki undan
því að taka þátt í þessum skemmti-
lega leik. Þessar línur skrifa ég í
sannri sigurvímu eftir góðan sigur
minna manna í Meistaradeildinni
þar sem portúgalskt smálið varð
fyrir því óhappi að lenda undir
Arsenalhraðlestinni. Og ég var
auðvitað á staðnum. En af því að
ég er í hátíðarskapi þá býð ég upp
á tvo gæða humarrétti.
Humar í smjördeigi
Humar
Smjördeig (til í pökkum)
Sítrónupipar
1 '/2 tsk hvítlaukssósa (frá Argen-
tínu)
1 egg (hrært)
Fletjið út smjördeigið, leggið 2
stykki hráa humra oná það, létt-
kryddið humarinn með sítrónupipar,
setjið 1 '/2 tsk. af hvítlaukssósu yfir
humarinn, lokið smjördeiginu yfir
humarinn, penslið smjördeigið með
eggjahrærunni.
Matgœðingur vikunnar er
Jóhann Freyr Ragnarsson
Inn í ofn í 12-15 mín við 180° eða
þangað til smjördeigð er orðið létt-
brúnt
Humar í tartalettum
12 stórir humrar
1 Baconostur
I Sveppaostur
1 dós sveppir (Ora)
8 skinkusneiðar
Bræðið saman ostana ásamt
safanum úr sveppadósinni, skerið
skinkuna smátt út í það, skerið
hvern humar í tvennt. Steikið
humarinn upp úr smá hvítlaukssalti.
Hver humar skorinn í tvennt og
settur ofan í hverju tartalettu ásamt
hinu. Dreifið síðan smá osti yfir.
Passar á ca. 24 tartalettur.
Inn í ofn í 12 mín við 180°.
Eftir svona stórkostlega loðnuvertíð
og ekki tala ég nú um svona
Arsenal leiki eins og í vikunni, þá
er við hœfi að skora á golfarann og
Arsenalmanninn Gauja Gunnsteins,
vélstjóra á aflaskipinu Kap VE 4
sem næsta matgœðing. Þannig að
nú er komið að honum að reiða
fram töfrarétti en ekki biðja um þá.
JterraKvöld ÍBl/ verður tyaldið lau<§arda<§ipp 20. mars í jWtftyes.
- /T\atreiðslu/T\eistari99 f^ári l/i^fússoi)
/tuiq bjóða upp á 5jávarréttal?laðborð.
- l/eislustjón} uerður í työpdum páls
5el?evÍQ<5 li^varssopar.
- l/erð aðeÍQs 3.900 l^r.
/Tyiðapaptar^ir eru þjá V/iKtori ^parssyiji í síma 8964791.
Kirkjur bazjarins:
Landakirkja
Fimmtudagur 11. mars
Kl. 10. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu.
Kl. 11-12. Viðtalstímar presta í
Safnaðarheimilinu alla virka daga.
Kl. 14. ETT - kirkjustarf 11 og 12
ára krakka. Gísli.
Kl. 14.30. Helgistund á sjúkrahús-
inu, dagstofu 2. hæð.
Kl. 20. Biblíulestur í Safnaðar-
heimilinu uppi í fundarherbergi.
Kl. 20. Æfing Kórs Landakirkju.
Kl. 20. Opið hús í KFUM&K
heimilinu í æskulýðsfélaginu
ÆSLAND.
Föstudagur 12. mars
Kl. 13. Æfing, Litlir lærisveinar,
yngri hópur.
Kl. 14. Æfing, Litlir lærisveinar,
Stúlknakórinn. Védís og Gísli.
Laugardagur 13. mars
Sr. Ása Björk Olafsdóttir leysir
presta Landakirkju af þennan dag
vegna héraðsfundar í hinu nýja
Suðurprófastsdæmi. Sami vaktsími:
488 1508.
Sunnudagur 14. mars
Kl. 11. Bamaguðsþjónusta með
miklum söng, leik og sögum.
Kirkjudagur leikskólans Sóla.
Kl. 14. Messa með altarisgöngu.
Fermingarböm lesa úr Ritningunni.
Kór Landakirkju.
Kl. 20. Fundur í Æskulýðsfélagi
Landakirkju-KFUM&K,
ÆSLAND, í Safnaðarheimilinu.
Mánudagur 15. mars
Kl. 16. Kirkjustarf fatlaðra, yngri
hópur.
Kl. 17. Kirkjustarf fatlaðra, eldri
hópur. Gísli og sr. Kristján.
Kl. 19.30. Tólf spora andlegt ferða-
lag. Vinir í bata.
Þriðjudagur 16. mars
Kl. 13. Fermingarfræðsla.
Kl. 20. Opið hús í KFUM&K
heimilinu fyrir 8. bekkinga.
ÆSLAND.
Miðvikudagur 17. mars
Kl. 11. Helgistund í Hraunbúðum.
Allir velkomnir.
KI. 14. Fermingarfræðsla.
Kl. 15. NTT - kirkjustarf 9 og 10
ára krakka. Gísli.
Hvítasunnu-
kírkjan
Fimmtudagur 11. mars
Kl. 20:00 Bænastund, oft er þörf en
nú er nauðsyn.
Föstudagur 12. mars
Kl. 17:00 Krakkafjör, allir krakkar
sérstaklega velkomnir.
Kl. 20.00 Unglingahittingur. Svart
og hvítt.
Sunnudagur 14. mars
Kl. 13:00 Unnur Ólafsdóttir
prédikar. Samskot tekin vegna
afmælis Lindarinnar. Börnin dunda
sér á meðan í rólegheitum.
Aðventkirkjan
Laugardaginn 6. mars
Kl. 11.00 Samkoman hefst með
Biblíufræðslu fyrir böm og full-
orðna. Bama og ungmennastarf í
höndum Ericu Do Carmo. Njörður
Ólason kennir fullorðnum. Efnið er
aðgengilegt öllum á vef kirkjunnar á
www.adventistar.is undir fræðslu-
efni/Biblíulexia. Lexíur þessa árs-
fjórðungs fjalla um ávexti andans.
Éfni þessarar viku er hógværð.
Kl. 12.00 Guðsþjónusta. Bein
útsending frá Kirkju aðventista í
Reykjavík, Brynjar Ólafsson
prédikar.
Vinakafíi- Opið hús
Samvera og léttar veitingar fyrir
gesti og gangandi, alla fimmtudaga
frá klukkan 15-17.