Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Qupperneq 6
6
Fréttir / Fimmtudagur 11. mars 2010
Loðnuvinnsla kallar á
vatn og rafmagn:
Keyrt eins
og druslan
dregur
Þær tvær til þrjár vikur sem
loðnuvinnsla hefur verið í fullum
gangi er mikið álag á aðveitukerfi
HS veitna hf., bæði vatnsleiðslum
og rafstrengjum.
„Það má segja að nú sé allt keyrt
eins og druslan dregur," sagði
ívar Atlason, forstöðumaður
Tæknideildar hjá HS veitum hf., í
samtali við Fréttir. „Við erum
með tvo sæstrengi og tvær neðan-
sjávarvatnsleiðslur sem eru
keyrðar á fullum afköslum.
Rafstrengirnir flytja 22 MW
sem er það hámark sem setja má
á þá. Sama er að segja um vatns-
leiðslurnar sem geta flutt um
5000 tonn af vatni á sólarhring,"
sagði Ivar en meðalnotkun á
raforku er tíu til tólf MW og á
vatni 2000 til 2500 tonn.
„Ivar segir að ekkert megi fara
úrskeiðis á loðnuvertíð en þeir
hafi orðið töluverðar áhyggjur af
eldri rafstrengnum. „Hann er að
verða 50 ára gamall og Landsnet
vinnur að því að endurnýja hann.
Landsnet er búið að fá öll leyfi en
eftir er að taka ákvörðun um
hvenær hafist verður handa,
vonandi eru ekki mörg ár í nýjan
sæstreng," sagði ívar að lokum.
Fimm óhöpp
en engin slys
Fimm umferðaróhöpp voru til-
kynnt til lögreglu í vikunni sem
leið án þess þó að um slys á fólki
hafi verið að ræða. Tjón á
ökutækjum í þessum óhöppum
var minni háttar.
Fjögur umferðarlagabrot liggja
fyrir eftir sl. viku og var f tveimur
tilvikum um hraðakstur að ræða,
en í hinum tilvikunum var um
stöðvunarskyldubrot að ræða og
akstur án þess að hafa ökuskír-
teini meðferðis.
Vinnuslys
Aðfaranótt sunnudags var lög-
reglu tilkynnt um vinnuslys í
Vinnslustöðinni.
Þar hafði kona sem var að vinna
við loðnufrystingu dottið í stiga
með þeim afleiðingum að hún
ökklabrotnaði.
Konan var flutt á Heil-
brigðisstofnun til aðhlynningar.
Guðfinnur 83 ára - Kenndi sér ekki meins eftir að hafa dottið í höfnina:
Skalf ekki eftir volkið og stál-
sleginn eftir heita sturtu
-Tilviljun að það heyrðist til hans þar sem hann svamlaði í sjónum
Viljum sem flestar ferðir og lægst gjald
-segir Elliði, bæjarstjóri um Herjólf - Vonast eftir niðurstöðu fljótlega
Guðfínnur Þorgeirsson, skipstjóri,
vill ekki gera mikið úr óhappi sem
hann varð fyrir þegar hann hrasaði
á leið um borð í bát sinn Ingu VE
og féll í sjóinn þar sem hún lá við
Bæjarbryggjuna. Ótrúleg tilviljun
réði því að Bjarki Ómarsson, starfs-
maður í Miðstöðinni, var þar nærri
og heyrði í Guðfinni og sótti þrjá
fíleflda karlmenn til að aðstoða við
að ná honum úr sjónum. Guðfmni
var ekki meint af volkinu en hann
stundar enn sjóinn þó hann sé
kominn yfir áttrætt og gefur ekkert
eftir.
„Þetta fór ágætlega. Þeir hífðu
mig upp þarna,“ sagði Guðfinnur
og vildi sem minnst úr þessu gera
en þetta gerðist á miðvikudaginn í
síðustu viku. „Nei, ég var ekki
lengi í sjónum. Ég hafði ekki að
hífa mig upp á bryggjuna því það
var enginn stigi þarna. Ég kallaði
og Bjarki heyrði í mér,“ sagði
Guðfinnur og tók fram að þeir sem
hjálpuðu við að hífa hann upp ættu
hrós skilið.
„Nei, mér var ekki kalt, ég var í
þykkri og góðri lopapeysu. En
þegar maður er í svona góðri peysu
verður maður svo þungur. Það var
samt engin hætta á ferðum, ekki
þannig," sagði Guðfinnur og er
þakklátur Bjarka fyrir að gá að
honum.
Heyrði kallað eftir hjálp
Bjarki var leið niður í Fiskiðju
með efni þegar hann heyrði kallað
Heimtur úr klóm Ægis. Guðfinnur og Valgerður kona hans sem var
ánægð með að hafa fengið sinn karl heim heilan á húfi.
eftir hjálp. „Ég hljóp upp í Miðstöð
og sótti menn til að aðstoða við að
koma manninum upp úr sjónum og
það gekk mjög vel,“ sagði Bjarki
og aðspurður sagði hann það hafa
verið hreina tilviljun að hann var
þarna á þessum tfmapunkti og hann
sá engan á ferli þarna á bryggj-
unni.“
Agúst Þórarinsson, starfsmaður í
Miðstöðinn, sagði Bjarka hafa
komið og óskað eftir aðstoð við að
koma manni úr sjónum. „Við fórum
með honum; ég, Þór Engla og
Kristján Ingvarsson. „Það gekk vel
að ná honum upp úr sjónum,
Guðfinnur er fílhraustur og skalf
ekki einu sinni. Hann er sterkur og
alveg ótrúlegur karl,“ sagði Ágúst
sem keyrði Guðfinni heim eftir að
hann komst á land aftur.
„Mér frnnst þetta nú eiginlega
ekki vera fréttaefni. Það þótti
enginn viðburður að detta í sjóinn
þegar ég var krakki. Það skeði á
hverjum degi, “ sagði Guðfinnur og
var þá spurður hvort ekki hefði
verið meiri mannskapur á bryggj-
unum í gamla daga. „Jú, það var
öðruvísi og yfirleitt mikil hreyfmg
á fólki. Sem betur fer heyrði
strákurinn í mér og hann er hetjan í
þessu öllu saman. Mér varð ekkert
meint af þessu og fór í heita sturtu
þegar ég kom heim og þá var það
gott.“
Guðfmnur hefur stundað sjóinn
frá því hann var fimmtán ára
gamall utan eitt sumar þegar hann
vann í landi. „Sjómennskan hefur
verið mín atvinna," sagði Guðfinn-
ur sem bráðum verður 84 ára. „Ég
fer á sjóinn þegar það er gott veður.
Það er alltaf jafn gaman og breytist
aldrei. Gott að vera út af fyrir sig
og tala við fýlinn. Ég stunda þetta
áfram ef þeir leyfa, það er alltaf
verið að breyta og skera niður.
Maður veit aldrei hvernig þetta
verður.“
„Nei það hefur aldri verið inni í
myndinni að við reynum að hnekkja
samkomulagi Vegagerðarinnar og
Eimskipa. Þvert á móti þá gerum
við allt sem í okkar valdi stendur til
að vinna með þeim að því að sam-
göngur við Vestmannaeyjar verði
með þeim hætti sem við teljum væn-
Iegt,“ sagði Elliði Vignisson,
bæjarstjóri, um þá ákvörðun Vega-
gerðarinnar að framlengja samningi
við Eimskip um rekstur Herjólfs
fram á mitt næsta ár.
Bærinn hafði sýnt áhuga á að taka
yfir reksturinn en Elliði segir að það
hafi ekki beinst gegn Eimskip. „Þeir
hafa staðið sig afar vel í rekstri
skipsins seinustu ár og ég veit að hjá
þeim og Vegagerðinni er vilji til að
þróa þjónustu Herjólfs úr lágmarks-
þjónustu yfir í staðla sem hæfa
alþjóðlegri ferðaþjónustu.
Ástæðan fyrir því að við óskuðum
eftir að koma að rekstrinum var tví-
þætt. Annars vegar að vera við
borðið á meðan verið er að taka
ákvörðun um gjaldskrá og ferðatíðni
og hins vegar að reyna að tryggja að
heimamenn eigi þátttöku í stjómun
skipsins eftir að það fer að sigla í
Landeyjahöfn. Það hefur verið afar
bagalegt að eiga þessa grunnþjón-
ustu ætíð undir ríkinu og þurfa að
eiga samskipti við ríkið þegar sam-
félagið hefur vilja til að fjölga ferð-
um eða flytja til.
Okkar hagsmunir eru að sigldar
verði sem flestar ferðir fyrir sem
lægst gjald og að veitt verði sem
mest þjónusta. Það hver rekur skip-
ið er algert aukaatriði. Best þætti
mér að fjármagnið sem fer til niður-
greiðslu kæmi til okkar Eyjamanna
og við önnuðumst svo útboð og
eftirlit með rekstri jafnvel þótt skip-
ið yrði áfram rekið af skipafélagi
eins og Eimskip eða Samskip. Eins
og staðan er núna eigum við enga
aðkomu að ákvörðunum um skipið.
Ráðum engu og berum enga ábyrgð.
Eyjamenn hljóta að spyrja sig hvort
að það sé ásættanlegt," sagði Elliði.
Aðspurður um hugmyndir bæjar-
ráðs um fjölda ferða og gjaldskrá í
Landeyjahöfn sagði Elliði að á
síðasta fundi hefði verið fjallað um
tölvupóst frá Vegagerðinni þar sem
gerð var grein fyrir samningi Vega-
gerðarinnar og Éimskipa.
„I tölvupóstinum var sérstaklega
óskað eftir því að Vestmannaeyja-
bær kæmi með tillögu að tímasettri
ferðaáætlun sem miðist við 1360
ferðir á ári og rúmist innan 14 tíma,
þannig að hvíldarákvæði sjómanna
verði virt. Einnig var óskað eftir því
að Vestmannaeyjabær komi með
tillögur að einhvers konar afsláttar-
kjörum sem munu nýtast heima-
mönnum betur. Þá var einnig óskað
eftir viðræðum um hafnargjöld og
markaðssetningu,“ sagði Elliði sem
á þriðjudaginn lagði fram minnis-
blað með hugmyndum um fjölda
ferða og gjaldskrá.
Elliði er bjartsýnn á að niðurstaða
liggi fljótlega fyrir. „Já, það held ég
hljóti að vera. Siglingar eiga að
hefjast eftir 115 daga og niðurstaða
um áætlun og verðskrá verður því að
liggja fyrir fyrir miðjan mars.
Áfram munum við svo vinna með
Vegagerðinni og Eimskipum að því
að móta þjónustuna. Þar höfum við
margt til málanna að leggja. Til að
mynda viljum að farþegar á bílum
hafi val um að birta fjölda lausra
sæta í bílnum á vefsíðu Herjólfs
þannig að hægt sé að deila kostnaði
og fari t.d. á leið til Reykjavíkur.
Þá viljum við einnig að afsláttar-
fargjöld verði með svipuðu sniði og
er í Hvalfjarðargöngunum, að við
þjóðveg nr. 1 verði gagnvirkt upp-
lýsingaskilti þar sem fram kemur
veðurfar, hvenær næsta ferð verður
farin og fleira. Við viljum einnig
stóraukna markaðssetningu, sveigj-
anlegri brottfarar- og komutíma og
margt fleira. Samstarf okkar við
Eimskip og Vegagerðina hefur allan
tímann verið afar farsælt og ein-
kennst af gagnkvæmu trausti og
skilningi. Von mín er sú að það skili
okkur þeim árangri sem við erum að
sækjast eftir.“
Lögrcglan hafði í ýmsu að snúast í síðustu viku:
Skallaður og nefbrotinn -Innbrot og skemmdarverk
Það var í ýmsu að snúast hjá lög-
reglu í vikunni sem leið og nokkuð
um útköll vegna ölvunar og
óspekta, bæði við skemmtistaði
bæjarins og eins við heimahús.
Ein líkamsárás var kærð eftir
skemmtanahald helgarinnar en um
var að ræða árás á veitingastaðnum
Lundanum aðfaranótt laugardags.
Þama hafði maður, sem reyndi að
stilla til friðar, verið skallaður í
andlitið með þeim afleiðingum að
hann nefbrotnaði. Sá grunaði var
handtekinn og færður í fanga-
geymslu lögreglu.
Hann neitaði ásökunum við
yfirheyrslu. Málið er í rannsókn.
Tvö skemmdarverk vom tilkynnt
í vikunni. I öðm tilvikinu var brot-
ist inn þar sem veitingastaðurinn
Lantema var til húsa. Skemmdir
vom unnar auk þess sem ýmsu
smálegu var stolið Talið er að
innbrotið hafi átt sér stað að kvöldi
21. febrúar sl. Ekki er vitað hver
eða hverjir vom að verki en þeir
sem einhverjar upplýsingar geta
gefið em beðnir um að hafa sam-
band við lögreglu. í hinu tilvikinu
var um að ræða rúðubrot í húsi við
Hásteinsveg en þar liggur fyrir
játning og er það mál upplýst.
Hannyrðakaffi
Bókasafn Vestmannaeyja býður til hannyrðakaffi í
dag, fimmtudaginn 11. mars kl. 15-17. Hanna og
Erla frá föndurstofu Hraunbúða mæta á svæðið
og leiðbeina um hekl. Starfsmenn safnsins kynna
úrval bóka og tímarita um prjónaskap og hann-
yrðir. Heklunálar og kaffi á staðnum, en koma þarf
með eigið garn. Verið hjartanlega velkomin.
Safnahús Vestmannaeyja.