Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 11. mars 2010
13
Fréttir kynna þátttakendur
í Ungfru Suðurland 2010
Tinna Ósk Þórsdóttir:
Ekkert mikið
fyrir það að
striplast
Fæðingardagur: 18. desember 1990.
Fjölskylda: Una Þóra Ingimarsdóttir, Þór Engilbertsson, Ottó
Þórsson, Gunnar Þór Þórsson, Alma Rós Þórsdóttir og Þórdís
Eva Þórsdóttir.
Kærasti: Valur Smári Heimisson.
Hvaða fjögur orð lýsa þér best: Ákveðin, heiðarleg, dugleg
og hress.
Helstu áhugamál: Ferðalög, líkamsrækt og svo finnst mér fátt
skemmtilegra en að gera eitthvað sniðugt með vinum og fjöl-
skyldu.
Ef þú mættir ferðast hvert sem er, hvert myndir þú fara: Til
Afríku eða Tælands, eitthvað í allt annan menningarheim.
Uppáhalds bíómynd: Titanic er mynd sem ég get horft aftur
og aftur á.
Hvaða sjónvarpsefni missir þú helst ekki af: Gray's Anatomy.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari fólks: Brosinu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra: Óheiðarleiki
og baktal.
Af hverju að taka þátt í fegurðarkeppni: Upplifa eitthvað nýtt,
þetta er eitthvað sem ég hélt ég myndi aldrei gera. Kynnast fólki
og vonandi læra eitthvað í leiðinni. En ég er mjög fegin að hafa
ákveðið að taka þátt, þetta er mun skemmtilegra en ég bjóst við.
Hvað þarf fegursta kona Suðurlands að hafa til að bera:
Hún þarf fyrst og fremst að vera góð fyrirmynd.
Stefnir þú á sigur eða er þetta bara lífsreynsla: Algjörlega
lífsreynslan.
Hvað finnst þér um nærfatasýningu í Ungfrú Reykjavík: Mér
fannst nærfatasýningin sjálf ekkert verri heldur en bikinísýning-
amar em, en myndbandið var kannski aðeins í grófari kantinum.
Ertu stressuð yfir því að koma léttklædd fram: Já frekar, ég
er ekkert rosalega mikið fyrir það að vera striplast eitthvað.
Eigum við að greiða fyrir Icesave: Trygginguna sem fylgdi
reikningunum já, en alls ekki svona mikla vexti.
Hvað ætlarðu að gera í sumar: Vinna og ferðast sem mest,
svo verður að sjálfsögðu farið á þjóðhátíð!:)
Hvar sérðu þig eftir 5 ár: Draumurinn er að vera einhvers
staðar erlendis að læra félagsráðgjöf í gegnum Háskóla íslands.
Eitthvað að lokum: Já ég vil nota tækifærið til að óska
Elisabetu og Gauta til hamingju með litla prinsinn;* .... And
world peace..! hehe:)
Svava Kristín Grétarsdóttir:
Stefni á að hafa
ótrúlega gaman
af þessu
Fæðingardagur: 22. mars .
Fjölskylda: Foreldrar mínir eru Kristný Tryggvadóttir og
Grétar Sævaldsson, tveir yngri bræður, Kristgeir Orri og Ágúst
Emil. Svo eru það yndislegu amma mín og afi á Birkihlíðinni.
Kærasti: Það er í vinnslu.
Hvaða fjögur orð lýsa þér best: Jákvæð, heilsteypt, frumleg,
ýkt.
Helstu áhugamál: Ljósmyndun, tónlist, íþróttir.
Ef þú mættir ferðast hvert sem er, hvert myndir þú fara: Til
Ástralíu.
Uppáhalds bíómynd: Lord of the Rings þríleikurinn.
Hvaða sjónvarpsefni missir þú helst ekki af: Grey‘s
Anatomy, Chuck, Desperate Housewives og þessir stelpu
drama þættir.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari fólks: Heillandi framkomu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra:
Virðingarleysi og neikvætt hugarfar.
Af hverju að taka þátt í fegurðarkeppni: Því það er alltaf
gaman að gera eitthvað nýtt.
Hvað þarf fegursta kona Suðurlands að hafa til að bera:
Heilsteyptan persónuleika, heillandi framkomu og ekki
skemmir að hafa útlitið í lagi.
Stefnir þú á sigur eða er þetta bara lífsreynsla: Ég stefni
allavega á það að hafa ótrúlega gaman af þessu, en ég hef aldrei
verið þekkt fyrir neitt annað en að taka keppnir alvarlega.
Hvað finnst þér um nærfatasýningu í Ungfrú Reykjavík:
Mér fannst þetta ekki við hæfi í þessari keppni.
Ertu stressuð yfir því að koma léttklædd fram: Nei alls ekki,
ég vissi að það væri hluti af keppninni og hefði trúlega ekki
tekið þátt ef mér hefði fundist það eitthvert stór mál.
Eigum við að greiða fyrir Icesave: Já, á sanngjaman hátt.
Hvað ætlarðu að gera í sumar: Vinna, skemmta mér og kíkja
vonandi til Spánar.
Hvar sérðu þig eftir 5 ár: Búin að læra fjölmiðlun og vonandi
farin að starfa við það.
Eitthvað að lokum: We need to talk.
✓
Birgitta Osk Valdimarsdóttir:
Tek fyrst eftir
því hvort fólk er
kurteist
Fæðingardagur: 15. febrúar 1992.
Fjölskylda: Mamma heitir Guðbjörg Lilja og pabbi minn
Valdimar Gestur. Á tvo bræður sem heita Þórarinn Ingi og
Hafsteinn Gísli.
Kærasti: Kristján Tómasson heitir hann.
Hvaða fjögur orð lýsa þér best: Ákveðin, dugleg, hress og
lífsglöð.
Helstu áhugamál: Skemmta mér í góðra vina hópi, stunda
líkamsrækt af krafti og svo að sjálfsögðu að vera með kæró ;)
Ef þú mættir ferðast hvert sem er, hvert myndir þú fara: Ég
myndi vilja fara til Bandaríkjanna.
Uppáhalds bíómynd: Legally blonde.
Hvaða sjónvarpsefni missir þú helst ekki af: Uppáhalds-
þættirnir eru Desperate Housewives, svo klikka How i met your
Mother og Friends seint.
Hverju tekur þú fyrst eftir í fari fólks: Hvort fólk er kurteist.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra: Þegar fólk er
með dónaskap.
Af hverju að taka þátt í fegurðarkeppni: Gott tækifæri til að
efla sjálfstraustið og kynnast nýjum stelpum og svo auðvitað
hafa gaman af þessu öllu saman.
Hvað þarf fegursta kona Suðurlands að hafa til að bera:
Hún þarf að vera hress og skemmtileg, góð fyrirmynd og hafa
útgeislun.
Stefnir þú á sigur eða er þetta bara lífsreynsla: Fyrst og
fremst er þetta lífsreynsla en auðvitað vill maður alltaf reyna að
standa sig sem best.
Hvað finnst þér um nærfatasýningu í Ungfrú Reykjavík-.
Mér fannst þetta allt í lagi. En mér fanrist myndbandið sem ge.rt
var svolítið gróft.
Ertu stressuð yfir því að koma léttklædd fram: Já, já, sr.ná
stress í manni fyrir það en er það ekki bara hjá öllum gem
þyrftu að gera það.
Eigum við að greiða fyrir Icesave: Nei, við eigum eVki að
gera það.
Hvað ætlarðu að gera í sumar: Ég verð að vinn d á fullu,
hreyfa mig og skemmta mér með vinunum.
Hvar sérðu þig eftir 5 ár: Búin með framhaldsskc,iann, komin
í nám í Háskóla og hef það vonandi gott:)
Eitthvað að lokum: Nei held þetta sé bara kotrúð hjá mér.
~~
—