Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Síða 14

Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Síða 14
14 Fréttir / Fimmtudagur 1 1. mars 2010 Árshátíð Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum: Rólegt og dannað en hvar var fjörið? Nemendur og starfsmenn Fram- haldsskólans í Vestmannaeyjum gerðu sér glaðan dag á föstu- daginn þcgar haldin var árshátíð skólans. Hátíðin var haldin í Höllinni en rúmlega 100 manns mættu á lokapunkt opinna daga sem haldnir voru í Framhalds- skólanum. Sá sem þetta skrifar var eitt sinn ncmandi í skólanum og þá var árshátíðin hápunktur félagslífsins. En ef árshátíðin í ár er hápunkturinn, þá er félagslífið í molum. Það var þó ekki þannig að ekkert hafi verið lagt í árshátíðina. Salur- inn var glæsilegur á að líta, vel skreyttur þar sem notast var við tröll þrettándahátíðarinnar og fleira skemmtilegt. Allirmættu prúðbúnir til leiks og nutu þess að borða frábæran mat sem Einsi kaldi og félagar framreiddu. Skemmtiatriðin voru hins vegar frekar fátækleg, tvö tónlistaratriði, ræða formanns nemendafélagsins og verðlaunaafhending. Þá átti að sýna kvikmynd en af einhverjum ástæðum var það ekki gert. Grfnistinn' Þorsteinn Guðmundsson reyndi hvað hann gat til að kreista fram bros, tókst það endrum og eins en meira að segja hann virtist gefast upp. Á yfirborðinu var allt slétt og fellt og allir brostu. Undirritaður hafði það þó á tillinningunni að hann væri staddur í góðri hrollvekju eftir Alfred Hitchcock. Það var eitthvað sem var að en það var ekki endilega sýnilegt. Sjálfsagt er með undirritaðan eins og flesta aðra, að sjá fortíðina í hillingum en í minningunni var árshátíðin mun meiri hátíð en nú. Reyndar var fjörið stundum full- mikið og mátti alveg draga aðeins ur galsanum. En fyrr má rota en stein- rota. Þegar fjörið er orðið margfalt meira á vorhátíð Félags eldri borg- ara en á árshátíð ungmenna Fram- haldsskólans þá er rétt að staldra aðeins við. Hvar var fjörið? Hvar voru skemmtiatriðin? Hvar var gleðin? Árshátíðinni var lokið um tíuleytið um kvöldið og mátti sjá undir hælana á veislugestunum, enda var ekki annað að heyra en að flestir væru á ieið í partý áður en dansleikur með SSSól byrjaði. Fjörið byrjaði sem sagl ekki á árshátíðinni, heldur þegar henni var lokið. Sérstakt, svo ekki sé meira sagt. Júlíus G. Ingason VERÐLAUNAHAFAR KVÖLDSINS. Þessi hópur fékk hin ýmsu verðlaun fyrir afrek í vetur, m.a. Ijóska skólans, tappi skólans og busi ársins svo eitthvað sé nefnt. Með þeim á myndinni eru þær Birgitta og Elín Sólborg sem afhentu viðurkenningarnar. UNGFRÚ OG HERRA FÍV 2010. Dorothy J. Lowery og Arnar Escobar Guðmundsson fengu þessa eftirsóttu titla. Flóvent Mána, dyraverði, leiddist ekkert að stilla sér upp með hjnni glæsilegu Sveinbjörgu Ósk. SÆTAR VINKONUR. Birgitta, Elín Sólborg og Erna Dögg brostu sínu blíðasta fyrir ljósmyndara Frétta. ELDRI BORGARARNIR. Þeir kölluðu sig sjálfir eldri borgara enda tilheyra þeir eldri nemendum skólans. Þeir komast þó ekki með tærnar þar sem eldri borgarar Eyjanna hafa hælana þegar fjörið er annars vegar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.