Fréttir - Eyjafréttir - 11.03.2010, Qupperneq 16
plús i# ☆
™ Sw wmnrnot*
UM&ODÍBWM:
fÆfjnsjy/ fl/JifjbosjsWJJ
£ó-J0'J-,'J -\v6JW->'\ 'Jvv
'd /í'jinjíJ&vJjjjjjiiW
SKILABOÐIN VORU SKÝR í þjóðaratkvæðagreiðslu um ICESAVE-lögin á laugardaginn. Nei sögðu
134.397, eða 93,2% þeirra sem kusu, en já 2.599 eða tæplega 2%. Kjörsókn yfir landið var 62,7%, mest í
Suðurkjördæmi 66,2%. Myndin er tekin á kjörstað í Eyjum þar sem Viktor Hjartarson setur atkvæði sitt í
kassann. Ester Garðarsdóttir, Fjóla Róbertsdóttir og Fríða Hrönn Halldórsdóttir sáu um að allt færi fram
lögum samkvæmt.
Bæjarráð -Þjónusta og rekstur Heilbrigðisstofnunar Vm:
Bæjarstjóri geri úttekt
-Fari yfir rekstrarþætti og samfélagslegt mikilvægi hennar
Verulegur niðurskurður á rekstrarfé
til Heilbrigðisstofnunar Vestmanna-
eyja (HV) þýðir skert þjónustustig
stofnunarinnar sérstaklega hvað
varðar skurðdeildina sem verður
lokuð um tíma í sumar eins og á
síðasta ári.
Þetta kom fram hjá Gunnari
Gunnarssyni, forstjóra og Eydísi
Osk Sigurðardóttur hjúkrunarfor-
stjóra sem mættu á fund bæjarráðs á
þriðjudaginn.
Kom fram hjá þeim að á seinasta
ári var skurðstofan lokuð í sex vikur
og auk þess voru allar stöður yfir
50% færðar niður um 5%. Vakta-
fyrirkomulagi sjúkradeildar var
breytt, opnunartími matstofu skert-
ur, lyfjasamningar endurskoðaðir og
fleira. I ár er áfram gert ráð fyrir
niðurskurði og verður skurðstofan
lokuð í 6 vikur í sumar auk þess sem
öðrum niðurskurðaraðgerðum verð-
ur áfram beitt.
I fundargerð kemur fram að bæjar-
ráð lýsir yfir áhyggjum af niður-
skurði á grunnþjónustu Heilbrigðis-
stofnunar. „Enn og aftur veldur það
umtalsverðum vanda fyrir samfélag-
ið að hafa ekki stjórnunarlega að-
komu að grundvallarþjónustu þess.
Af þeim sökum á samfélagið erfitt
með að sinna nauðsynlegri hags-
munagæslu á viðsjárverðum tíma,“
segir í bókun bæjarráðs sem fól
bæjarstjóra að kanna forsendur fyrir,
og eftir atvikum að ráðast í úttekt á
Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
hvað varðar rekstrarþætti og sam-
félagslegt mikilvægi stofnunarinnar.
Verði það gert í góðu samráði við
heilbrigðisyfirvöld.
Meðal annars skuli horft til og ljósi
varpað á raunkostnað vegna inn-
gripa við skurðaðgerðir og fæðingar
hér í samanburði við Landspítalann
(LSH). Vegið verði meðaltal launa
HV og LSH, hlutfall reksturs og
launakostnaðar og hvaða þjónustu
Sjúkrahús Vestmannaeyja getur veitt
og á hvaða verði ef skurðstofur eru
fullnýttar. Hvort það séu helstu
sóknarfæri stofnunarinnar.
Líka að kannaður verði kostnaður
sem leggst á sjúklinga og sjúkra-
tryggingar ef þjónusta er flutt til
Reykjavíkur. Ferðir sjúklinga metn-
ar m.t.t. öryggis og óþæginda ásamt
samfélagslegum áhrifum. Til dæmis
áhættufæðingar sem fluttar eru til
LSH og hversu lengi verðandi
mæður eru frá fjölskyldu sinni og
hver ber kostnaðinn.
Bolvíkingar beittu bolabrögð-
s
um á Islandsmótinu í skák
-Kærðu sveit TV og urðu íslandsmeistarar og
Eyjamenn enn og aftur í öðru sæti
Toyota
bregst við
Á fimmtudag og föstudag munu
bifvélavirkjar frá Toyota gera við
þá bíla í Eyjum sem voru inn-
kallaðir vegna mögulegra vanda-
mála í eldsneytisgjöf.
Eigendur Toyotabifreiða, sem
voru kallaðar inn, eiga að hafa
fengið bréf þar að lútandi.
Viðgerðin fer fram á Bíla- og
vélaverkstæðinu Nethamri sem
sér um alla þjónustu við Toyota-
eigendur í Eyjum, aðra en
ábyrgðarviðgerðir. Verkið mun
taka 45 til 60 mínútur og er eig-
anda bílsins að kostnaðarlausu.
„Við viljum koma til móts við
eigendur Toyotabíla í Eyjum og
sjá til þess að þeir þurfi ekki að
leita langt til að fá gert við bfiana
í innkölluninni og þess vegna eru
tveir menn frá okkur í Eyjum nú í
vikunni og við reiknum með að
þeir klári það sem gera þarf fyrir
helgina" segir Rúnar Hjartarson,
framkvæmdastjóri þjónustusviðs
Toyota á íslandi.
Seinni umferð íslandsmótsins í
skák fór fram í Reykjavík um helg-
ina. Eyjamenn voru sem fyrr í
toppbaráttu 1. deildar með sterka
sveit sína en kæra minnkaði mögu-
leika þeirra á sigri. Enduðu Eyja-
menn í öðru sæti.
Sveit Bolvíkinga kærði einn liðs-
manna TV, stórmeistarann Alexey
Dreev eftir fyrri umferðina. Móts-
stjórn og síðar dómstóll Skáksam-
bands íslands komst að þeirri
niðurstöðu að allar skákir Dreev
skyldu skráðar tapaðar. Þegar upp
var staðið urðu Bolvíkingar
Islandsmeistarar en Eyjamenn í
öðru sæti.
Eins og gefur að skilja voru Eyja-
menn alls ekki sáttir við niðurstöð-
una enda voru rök kærunnar þau að
Dreev væri ekki að fmna í félaga-
skrá TV. Eyjamenn höfðu hins
vegar staðfestingu fyrir félagaskipt-
um frá Skáksambandinu og stað-
festingu Fjölnis þar sem Dreev var
áður félagi en allt kom fyrir ekki.
Niðurstaðan varð sú að A-sveit
TV varð í öðru sæti með 36,5 vinn-
inga en Bolvíkingar urðu íslands-
meistarar með 39,5 vinninga. I
þriðja sæti varð A-sveit Taflfélags
Reykjavíkur með 32,5.
Frábær árangur í 4. deild
B- og C-sveitir TV tefldu báðar í 4.
deild sem er langfjölmennasta
deildin. í efstu þremur deildunum
eru nú aðeins átta sveitir en í þeirri
4. er restin. Það þykir því afar
erfitt að komast upp úr deildinni en
það tókst B-sveitinni engu að síður,
varð í öðru sæti, aðeins vinningi á
eftir efstu sveit. Sú sveit sem kom
hins vegar mest á óvart var C-sveit
TV sem endaði í fjórða sæti, aðeins
vinningi á eftir B-sveitinni. Nú eru
uppi hugmyndir að fjölga sveitum í
3. deild í 16 og munu Eyjamenn
því eiga tvær sveitir þar ef af
verður.
VIKUTILBOÐ
11.-17. mars
Frón Mjólkurkex
veri nú kr 299,-
verð óður kr 358,-
Frón kremkex
verð nú kr 399#"
verð áður kr 458,-
Freyju smádraumur 300 v
verð nú kr 498/"
verð áður kr 668,-
Egils Páskaöl 0,5 itr
verð nú kr 148,-
verð áður kr 168,-
OPNUNARTÍMI:
Mán. - Föst.
kl. 7.30 - 19.00
Laugardaga
kl.10.00 - 19.00
Sunnudaga
kl.l 1.00-19.00