Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Page 1
Viðgerðir
og smurstöð
-Sími 481 3235
BRAGGINN Réttingar
og sprautun
Bílaverkstæði - Flötum 20 - Sími 481 1535
37. árg. I 24. tbl. I Vestmannaeyjum 17. júní 2010 I Verð kr. 300 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is
NUTIMASAGA Sigurmynd Gunnars Friðfínnssonar í ljósmyndasamkeppni Frétta og Ljósmyndasafnsins fyrir
maímánuð. Þemað var nútímasaga og segir Gunnar um myndina: Myndin endurspeglar að minu mati þá nútímasögu
sem börnin okkar koma til með að Iæra um í náinni framtíð, s.s. um gosið og bankahrunið. Þema júnímánaðar er íþróttir
eða önnur áhugamál.
bólar á sjúkraflugvél
Ekkert
Mikil óánægja er í Vestmannaeyjum
með að ekki er sjúkraflugvél stað-
sett í Eyjum. I neyðartilvikum er
send flugvél frá Akureyri. það hefur
þegar gerst nokkrum sinnum. Fréttir
ræddu við bæjarfulltrúana Páleyju
Borgþórsdóttur, Sjálfstæðisflokki
og Pál Scheving, Vestmannaeyjlista
og eru þau sammála um að ástandið
sé óviðunandi.
„Ég er engan veginn sátt við að
sjúkraflugvél sem sinna á sjúkra-
flugi fyrir okkur hér í Vestmanna-
eyjum sé staðsett á Akureyri," sagði
Páley.
„Engu líkara er en að búið sé að
gjaldfella borgara þessa sveitarfé-
lags, í það minnsta lítur út fyrir að
við séum ekki jafnverðmæt og ann-
ars staðar á landinu. Vestmannaeyja-
bær, með Elliða í broddi fylkingar,
hefur a.m.k. tvisvar sinnum tekið
slaginn við ráðuneytið vegna þess-
ara mála og barist fyrir því að
sjúkravélin sé ávallt staðsett í
Eyjum.
Við þekkjum öll þær aðstæður
þegar ekki er hægt að lenda hér en
engu að síður hægt að taka á loft.
Viðbragðstími frá Akureyri er ein-
faldlega alltof langur hvemig sem á
það er litið. Þetta er gríðarlegt ör-
yggisatriði sem hefur margsannað
sig og í raun Guðs mildi að ekki fór
verr í nýlegu slysi hér í bænum
þegar vélin þurfti að koma alla leið
frá Akureyri.
Skýlaus krafa Vestmannaeyjabæjar
er að sjúkravélin sé ávallt staðsett
hér í Eyjum. Til þess að svo megi
verða þarf ráðuneytið að semja við
nýjan flugrekanda um sjúkraflugið
og forsenda fyrir því er skilningur
og vilji heilbrigðisráðuneytisins.
Við emm með öflugt atvinnulíf sem
byggir á sjávarútvegi en sjómennska
hefur nú hlotið þann vafasama
heiður að vera talin hættulegasta
starfið, hér búa 4200 manns, við
erum landfræðilega einangmð auk
þess sem íbúafjöldi hér tvö- og þre-
faldast nokkrum sinnum á ári í
tilefni íþróttamóta, gosloka, þjóð-
hátíðar o.fl. Það er því engan veginn
viðunandi að sjúla-avélin sé ekki
staðsett hér og mun bæjarstjórn
áfram berjast fyrir því að svo verði,“
sagði Páley að endingu.
„Það er með öllu ótækt að þetta
öryggistæki sé ekki staðsett í Vest-
mannaeyjum. Fyrir þessu er ekki til
afsökun," sagði Páll.
„Við börðumst með oddi og egg
fyrir því að Flugfélag Vestmanna-
eyja fengi sjúkraflugið, bæði til að
styrkja rekstur félagsins og ekki síst
til að auka öryggi okkar hér í
Eyjum. Þó félagið starfi ekki lengur
er engin afsökun fyrir því að hér sé
ekki sjúkraflugvél. Við búum á eyju
og þekkjum að við vissar aðstæður
er hægt að fara í loftið þó ekki sé
hægt að lenda. Það vill enginn halda
á blóðugu bami sínu, bjargarlaus, en
við getum öll lent í þeirri stöðu.
Island er Evrópuríki en ekki útkjálki
þar sem íbúamir verða oft að sætta
sig við ömurlegar aðstæður. Og við
eigum að gera kröfur þó verið sé að
skera niður. Sjúkraflugvél verður að
vera í Vestmannaeyjum, það er ein
af stoðunum í tilveru þessa bæjar-
félags," sagði Páll.
Landeyjahöfn:
Fyrsta
ferðin
21. júlí
-Unnið á vöktum allan
sólarhringinn
Gert er ráð fyrir að ferjusiglingar í
Landeyjahöfn hefjist 21. júlí og
nú er allt kapp lagt á að ljúka
framkvæmdum við höfnina.
Suðurverk hf. hefur séð um hafn-
argerðina og þar á bæ hafa menn
fulla trú á að höfnin verði klár á
tilsettum tíma. Björgun ehf. sér
um dýpkun hafnarinnar og henni
verður lokið 15. júlí.
Eysteinn Dofrason, verkefnis-
stjóri framkvæmdanna hjá Suður-
verki, sagði að 100 þúsund rúm-
metrar af grjóti hafi verið sóttir á
Seljalandsheiði til viðbótar við
það sem áður var áætlað. „Við
erum að flytja grjótið í garðana og
það gengur vel. Við emm líka að
byrja að keyra burðarlagið í veg-
inn sem liggur frá höfninni og upp
á þjóðveg," sagði Eysteinn.
„Auk þess sjáum við um fyll-
ingar og burðarlög í öll plön og
vegi niður að höfn en aðrir sjá um
lagnir, malbik og lokafrágang á
hafnarsvæðinu. Við trúum því
statt og stöðugt að þetta verði
klárt hjá okkur ef ekkert óvænt
kemur upp,“ sagði Eysteinn en
gosið setti strik í reikninginn og
veðrið var óhagstætt í vetur.
„f vetur var suðaustanátt ríkjandi
og einu skiptin sem gerði norðan-
átt var um jól og páska og þá voru
allir í fríi. Við eigum eftir að klára
einn haus og sú vinna fer í gang
eftir viku. Það er allt í góðu og
keyrt á vöktum allan sólar-
hringinn og verður þannig fram í
miðjan júlí. Þetta verður fínasta
höfn, ég hef engar efasemdir um
hana,“ sagði Eysteinn að lokum.
Nánar á bls. 8.
VIÐ LÁTUM BÍLINN GANGA...
...SVOÞÚ ÞURFIR ÞESS EKKI
SMURSTÖÐ OG ALHLIÐA 8ÍLAVIÐGEÐIR / ÞJÓNUSTUAÐILITOYOTA í EYJUM
mar
VÉLA- OG BÍLAVERKSTÆÐI
FLATIR 21 / S. 481-1216 / GSM.864-4616
| Friðarhöfn | Sími481 3500 |
Ejeimskip
Yfir hafá oj heim