Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 6
6
Frcttir / Fimmtudagur 17. júní 2010
HUGMYND að því hvernig sviðið gæti litið út. Neðri hæðin rís í sumar en vilji bæjaryfirvalda er að efnt verði til samkeppni um útlit sviðsins og
haft verði að leiðarljósi að byggingin falli sem best að umhverfinu. Aðeins leyft að hafa auglýsingar uppi yfir þjóðhátíð.
Framkvæmdirnar í Herjólfsdal - Unnið eftir deiliskipulagi frá 1999:
Varanlegt svið stærra en
upphaflega var gert ráð fyrir
-Klæða á húsið með efnum sem hæfa umhverfinu, t.d. blágrýti
Breyting á deiliskipulagi samþykkt í mars
Þann 25. maí 1999 voru kynnt drög að að deiliskipu-
lagi Herjólfsdals og að teknu tilliti til athugasemda var
eftirfarandi samþykkt í umhverfisnefnd:
Lagt var til að brú yfir tjörnina verði ekki varanleg og
verði ekki á því deiliskipulagi sem er til afgreiðslu.
Nefndin lagði hins vegar til að leyfilegt sé að hafa brú
uppi í 3 til 4 vikur á ári í kringum þjóðhátíðina.
Nefndin álítur mikilvægi slíkrar brúar ekki það mikið
að þörf sé á henni, og tekur undir mikilvægi þess að
halda tjörninni í Herjólfsdal eins lengi opinni og nátt-
úrulegri eins og hægt er. Hins vegar er mikilvægi
brúarinnar fyrir þjóðhátíðina eðlilegt enda hún orðin
fastur póstur í heildarmynd hátíðarinnar. Nefndin telur
að nauðsyn á varanlegri brú sé ekki til staðar og
einnig komi hún til með að vera of áberandi í
umhverfinu.
Nefndin leggur lil að göngu- og hjólastígur meðfram
Dalvegi verði að hámarki 2,5 metrar á breidd í stað
3,0 metra samkvæmt tillögu. Einnig leggur nefndin til
að stígurinn endi við veginn inn að vatnspósti en ekki
við hlaupabrautina samkvæmt tillögu.
Lagt var til að göngustígur milli brennustæðis og
ræðustóls við setbrekku verði ekki á deiliskipulagi.
Nefndin taldi ekki þörf á meiri stígagerð í Herjólfsdal
en nauðsyn krefur. Þá var nefndin á móti göngustíg
milli vegar inn að vatnspósti og snúningssvæði og
hlaupabrautar og stóra sviðs.
Þá var óskað eftir því að stígur út í Stafnes, þ.e. frá
setbrekku og upp hlíðina yfir Dalfjallið, verði settur
inn á uppdrátt sem göngustígur. Stígurinn er til staðar
og mikið notaður og því nauðsyn að hans sé getið á
uppdrætti.
Að öðru leyti var umhverfisnefnd samþykk skipu-
lagstillögunni.
Breyting á deiliskipulagi
Bæjarstjóm samþykkti breytingu á deiliskipulagi í
Herjólfsdal þann 9. mars sl. Breytingartillagan fólst í
því að byggingarreitur fyrir stóra svið stækkar úr 390
fm í 600 fm og byggingarreitur fyrir salemisaðstöðu
stækkar úr 300 fm í 600 fm.
Deiliskipulagstillagan verður til sýnis hjá umhverfis-
og framkvæmdasviði Vestmannaeyjabæjar að Tanga-
götu 1, 2. hæð og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar frá
10. mars 2010 - 21. apríl 2010.
Athyglisvert er að brúin yftr Daltjömina hefur staðið
í allan vetur og að ÍBV hefur ekki sinnt tilmælum yftr-
valda um að fjarlægja úr Dalnum búnað sem tengist
Þjóðhátíð.
Viðbrögð fólks við byggingunni,
sem nú er að rísa í Herjólfsdal, eru
blendnar, sumum finnst allt í lagi að
byggja varanlegt svið fyrir þjóðhátíð
en öðrum finnst að með henni sé
verið að skemma ásýnd Dalsins. En
þetta á ekki koma nokkrum á óvart
því varanlegt mannvirki er hluti af
deiliskipulagi frá árinu 1999 þar
sem gert er ráð fyrir að stóra sviðið
verði byggt varanlega.
Það var svo í upphafi þessa árs að
sótt var um byggingaleyfi. Það gerði
ÍBV-íþróttafélag sem sótti um leyft
fyrir 360 fm byggingu sem er í takt
við þær breytingar sem hafa verið að
þróast með tilfærslu á færanlegum
mannvirkjum undanfarin ár.
I framhaldi af því var auglýst
breytingartillaga deiliskipulags
samþykkl í umhverfis- og skipu-
lagsráði sem felst í því að setbrekka
stækkar til austurs, byggingarreitur
fyrir stóra svið stækkar úr 390 fm í
600 fm og byggingarreitur fyrir
salernisaðstöðu stækkar úr 300 fm í
600 fm.
Verktakafyrirtækið Steini og Olli
ehf. sér um framkvæmdir en það er
ÍBV-íþróttafélag sem byggir og
kemur byggingin í stað gáma sem
hafa verið notaðir undir stóra sviðið
sem sjoppur. Þessi hluti verður
tilbúinn fyrir þjóðhátíð en lokaá-
fanginn er sjálft sviðið og er vilji
bæjaryftrvalda að efnt verði til
samkeppni um útlit sviðsins og haft
verði að leiðarljósi að byggingin
falli sem best að umhverfmu.
Olafur Snorrason, framkvæmda-
stjóri hjá bænum, og Sigurður Smári
Benónýsson, byggingafulltrúi,
sögðu í samtali við Fréttir að það
væri skiljanlegt að Eyjamenn hefðu
skoðun á því þegar byggt væri í
Herjólfsdal. „Það hefur legið fyrir í
nokkur ár að byggt verður varanlegt
svið í Dalnum og nú er komið að
því,“ sagði Olafur.
„Það er ÍBV-íþróttafélag sem
byggir en bærinn gerir miklar kröfur
um útlit og allan frágang. Þetta
verður ekki steinsteyptur málaður
kassi heldur á að klæða húsið með
byggingarefnum sem hæfa um-
hverfmu, t.d. blágrýti," sagði Sig-
urður Smári.
Byggingin, sem nú er risin, er 360
fm og á að hýsa sjoppurnar á þjóð-
hátíð. Verða átta söluop á hliðinni
sem snýr að tjöminni og eitt á vest-
urhliðinni. Þama verður líka gott
geymslurými, salernisaðstaða sem
uppfyllir kröfur um aðgengi fyrir
alla og öll aðstaða fyrir starfsemi á
stóra sviðinu.
„Þessi hluti verður steyptur upp í
sumar og kláraður að innan og svo
hefur félagið frest fram að þjóðhátíð
á næsta ári til að ljúka við klæðn-
inguna. Næsta skref verður svo
samkeppni um útlit hússins," sagði
Ólafur en hvorugur vildi segja til um
hvenær það yrði.
Önnur verkefni í Dalnum
Þetta eru ekki einu framkvæmdirnar
í Dalnum. Byrjað er á grjótvörn ofan
við setbrekku, lagningu neyðarstígs
frá gamla golfskálanum að Dalvegi
og hellulögn við stóra sviðið. I
samþykkt umhverfts- og skipu-
lagsnefndar í síðustu viku er lögð
áhersla á vandaðan frágang við allar
framkvæmdir og að grjótvörn ofan
setbrekku verði felld að landi eins
og kostur er.
„Það verða settar niður grindur sem
verða fylltar af jarðvegi sem eiga að
mynda vörn gegn grjóti sem getur
hvenær sem er komið niður brekk-
una. Þetta er þvf rhikil slysavöm og
þegar búið er að græða hana mun
hún ekki stinga í stúf við umhverf-
ið,“ sagði Ólafur.
Þá er búið að lagfæra tjaldstæðið
ofan við veginn inn að vatns-
póstinum. „Þama hafa verið nokkur
hvft tjöld en nú verður hægt að
koma þarna fyrir 25 til 30 tjöldum.
Auk þess sem komið hefur verið
upp rafmagnstenglum fyrir 16 hjól-
hýsi,“ sagði Sigurður Smári.
Lögreglan - Síðasta vika mcð rólegra móti:
Fótbrot í Spröngu og skemmdir
Vikan var með rólegra móti hjá
lögreglu og lítið um óhöpp. Þó
varð það slys að stúlka á Pæjumóti
ÍBV datt í Spröngunni og fót-
brotnaði.
Var hún flutt með sjúkraflugi til
Reykjavíkur þar sem hún gekkst
undir aðgerð. Annars var helgin
róleg og engin teljandi vandræði í
kringum skemmtistaði bæjarins
þrátt fyrir töluverðan mannfjölda í
bænum.
Eitt skemmdarverk var tilkynnt í
vikunni. Skemmdir voru unnar á
bifreið sem stóð við Sóleyjargötu 3
lögrb^
þann 8. júní sl. Hafði bifreiðin
verið rispuð á nokkrum stöðum.
Ekki er vitað hver þama var að
verki en þeir sem hafa upplýsingar
um þann eða þá sem áttu þama hlut
að máli em vinsamlegast beðnir um
að hafa samband við lögreglu.
Lögreglan -15 ára gripnir mað loftbyssa:
Þarf leyFi til að nota slíkar byssur
í vikunni lagði lögregan hald á loft-
skammbyssu sem nokkrir 15 ára
drengir voru að leika sér að skjóta '
úr. Lögregla segir rétt að árétta það
að skotvopnaleyfi þarf til að eiga
og skjóta úr loftskammbyssu en
sömu reglur gilda um slík vopn og
önnur skotvopn.
Aðfaranótt 8. júní sl. var lögreglu
tilkynnt um umferðaróhapp á Birki-
hlíð. Þama hafði ökumaður bif-
reiðar, sem ekið var norður
Kirkjuveg, misst stjórn á bifreiðinni
með þeim afleiðingum að bifreiðin
lenti á umferðarmerki. Töluverðar
skemmdir urðu á bifreiðinni og þá
lagðist umferðarmerkið niður.
Ellefu kæmr liggja fyrir vegna
brota á umferðarlögum en um er að
ræða gmn um akstur undir áhrifum
ávana- og fíkniefna, hraðaksturs-
brot, vanrækslu á að nota öryggis-
belti við akstur, notkun farsíma án
handfrjáls búnaðar í akstri o.fl.
I
Eyverjar:
Ragnheiður
Elín verði
vara-
formaður
Eyverjar, félag ungra Sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum,
skora á Ragnheiði Elínu Arna-
dóttur oddvita Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi að bjóða sig
fram til varaformanns Sjálf-
stæðisflokksins á komandi
landsfundi. Eyverjar telja mikil-
vægt að forysta Sjálfstæðis-
flokksins endurspegli þann fjöl-
breytileika sem einkennir flokk-
inn.
Því er nauðsynlegt að lands-
byggðin eigi fulltrúa í forystu
flokksins. Það liggur beinast við
að sá fulltrúi komi úr Suður-
kjördæmi, kjördæminu þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn er sterk-
astur eins og sást í nýafstöðnum
sveitarstjómarkosningum þegar
flokkurinn vann stórsigur víða
um kjördæmið og nýtur þar hlut-
fallslega mest fylgis.
Ragnheiður hefur, sem oddviti
flokksins í kjördæminu og sem
formaður þingflokksins, sannað
sig sem leiðtogi og öflugur full-
trúi landsbyggðarinnar sem
stendur vörð um grannatvinnu-
vegi þjóðarinnar og er ötull tals-
maður atvinnuuppþyggingar.
Eyverjar telja Ragnheiði réttu
manneskjuna til að gegna
embætti varaformanns og að hún
muni vinna að sókn Sjálfstæðis-
flokksins um land allt með ein-
staklings- og atvinnufrelsi að
leiðarljósi.
Fréttatilkynning.
Eldsneytisverð:
Verðstríð í
Eyjum
Á Eyjafréttum í síðustu viku var
sagt að bensínverð í Vest-
mannaeyjum væri lægst á land-
inu. Orkan bauð bensfnlítrann á
186 krónur en ÓB á 186,10.
Díselverð var einnig það lægsta á
landinu í Vestmannaeyjum en
dísellítrinn hjá Orkunni var á 183
krónur en 183,1 hjáÓB.
Þetta lága eldsneytisverð er af-
leiðing mikillar samkeppni á
eldsneytismarkaði á Suðurlandi
sem teygir anga sína til Vest-
mannaeyja.
Til samanburðar má geta þess
að algengt verð á bensínlítranum
hjá Nl, Olís og Shell var 201,9
og á dísellítranum var algengt
verð á sömu stöðvum 198,9 kr.