Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Síða 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 PERLAN við dýpkun í Landeyjahöfn sem gengur vel. Landeyjahöfn: Dýpkun gengur mjög vel Það gengur mjög vel,“ sagði Jóhann Garðar Jóhannsson, út- gerðarstjóri Björgunar, þegar hann var spurður út í dýpkun hafnarinnar. „Það hefur aðeins bæst við magnið og við teljum það aðal- lega stafa af hlaupinu úr Markar- fljóti. En við erum á áætlun og verðum tilbúnir um miðjan júlí.“ Jóhann sagði fátt hafa komið á óvart varðandi framkvæmdina. „Þetta er sama efni og reiknað var með samkvæmt útboðsgögnum en heldur meira af því. Reyndar höfum við orðið fyrir meiri töfum en gert var ráð fyrir vegna veðurs en suðaustanátt hefur verið ríkj- andi. En við verðum klárir 15. júlí, það er ekki spurning," sagði Jóhann Garðar. MIKILL fjöldi vinnur við smíði hússins. Farþega- aðstaðan tilbúin 9. júlí SÁ Verkausnir sjá um byggingu á farþegaaðstöðu og frágang á hafnarsvæðinu. Sigurður Ágúst Marelsson, framkvæmdastjóri, sagði bygg- ingu hússins vera á áætlun og reiknað með að það verði tilbúið 9. júlí. „Við stefnum á að klára að malbika að húsinu og ferju- bílastæðið eða 1. áfanga áður en siglingar hefjast. Við erum að vinna lagnavinnu í dag og svo þarf að fylla í og gera klárt en það verður eitthvað eftir við lóðafrá- gang. Nú eru um þrjátíu manns að vinna við húsið, smiðir, pípu- lagningarmenn, múrarar og verkamenn. Það er því nóg að gera og lokaspretturinn hafinn. Húsið fellur vel að umhverfmu þakið er bogadregið og minnir á öldu,“ sagði Sigurður og hafði í nógu að snúast þegar talað var við hann á þriðjudag. ÞANNIG var staðan á framkvæmdum í Landeyjahöfn í síðustu viku. Húsið er risið, Búið er að rjúfa haftið inn í innri höfnina þar sem Perlan er að dýpka höfnina. Verið er að ljúka við aðstöðu við brúna og stutt í að bryggjugúlfið verði steypt. Fjölmennur fundur um málefni Landeyjahafnar á Hvolsvelli: Mikill áhugi á smábátaaðstöðu s -Jómfrúarferðin 21. júlí - Hvatt til samstarfs beggja megin Alsins Mjög mikill áhugi er á því meðal heimamanna í Rangárþingi að komið verði upp aðstöðu fyrir smá- báta í Landeyjahöfn. Þetta kom skýrt fram á fjölmennum fundi um málefni Landeyjahafnar á Hvols- velli á fimmtudaginn. Fram komu varnaðarorð frá Siglingastofnun að smærri bátum gæti stafað hætta af sjólagi utan við höfnina. Á fund- inum kom fram að stefnt er að jóm- frúarsiglingu Herjólfs í Landeyja- höfn 21. júlí og í framhaldi af henni hefjist siglingar samkvæmt áætlun. Á fundinum, sem Atvinnuþróunar- félag Suðurlands og sveitarfélagið Rangárþing eystra stóðu að, var farið yflr málefni tengd Landeyja- höfn, stöðu framkvæmda, framtíðar- horfur, tækifæri og margt fleira. Frummælendur voru að mestu þeir sömu og á sambærilegum fundi í Vestmannaeyjum í vor. Hjá fulltrúum Siglingastofnunar, Gísla Viggóssyni og Sigurði Áss Grétarssyni, kom fram að heildar- kostnaður yrði 4,3 milljarðar en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir 5 milljörðum, því hefðu sparast 700 milljónir króna. Líka sögðu þeir ekkert því til fyrirstöðu að höfnin verði tilbúin til notkunar 21. júlí eins og nú er áætlað. Guðmundur Nikulásson, frá Eim- skip, sagði að búið væri að semja við Sigmar Jónsson, sem verið hefur annar af umsjónarmönnum Bakka- flugvallar, um rekstur farþega- aðstöðunnar í Landeyjahöfn. Gert er ráð fyrir fjórum stöðugildum í kringum rekstur Herjólfs í Land- eyjahöfn. Hann sagði að jómfrúar- siglingin, 21. júlí, væri í undirbún- ingi og félagið sæi mörg tækifæri með nýrri samgönguleið. Kristín Sigurbjömsdóttir, Vega- gerðinni, upplýsti að búið væri að semja við Bíla og fólk ehf. um fólksflutninga milli Landeyjahafnar og Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir tveimur ferðum á dag, kvölds og morgna. Friðrik Pálsson, hótelstjóri á Hótel Rangá, sagði mikla möguleika felast í ferðaþjónustu á Suðurlandi og þar væri margt vel gert en samvinna á öllu svæðinu væri lykill að árangri. Ekki síst með tengingu Vestmanna- eyja við fastalandið með tilkomu Landeyjahafnar. Klasasamstarf í ferðaþjónustu á Suðurlandi hefði gefist mjög vel og hvatti hann sem flesta aðila til að taka höndum saman og vinna að sameiginlegum markmiðum í ferðaþjónustu. Elvar Eyvindsson, fráfarandi sveitarstjóri í Rangárþingi eystra, sagðist líta björtum augum til tengingarinnar við Vestmannaeyjar og Rangæingar sæju ntikla mögu- leika opnast við það að fá Eyjamenn sem næstu nágranna. Hrafn Sævaldsson, verkefnisstjóri hjá Atvinnuþróunarfélagi Suður- lands í Vestmannaeyjum, var mjög ánægður með mætinguna en hann kallaði erindi sitt, Nýir nágrannar, ný tækifæri. Hrafn sagði að mikið hefði verið spurt um aðstöðu fyrir smábáta og um gang mála við höfn- ina. Upplýst hefði verið af fulltrúum Siglingastofnunar að aldan utan við höfnina gæti verið varhugaverð smábátum við vissar aðstæður, viðmiðunarmörkin væru töluvert lægri en almennt hefði verið rætt um til þessa, meðal almennings. Meðal annars kom fram á fund- inum að það gæti verið hagkvæmt að byggja aðstöðu fyrir smábáta um leið og höi'nin er kláruð, þ.e. á meðan tæki og tól eru til staðar á sandinum. Hrafn sagði það vonbrigði að ekki yrði gert ráð fyrir nema tveimur rútuferðum á dag og ekkert bendi til þess að samgönguráðherra ætli sér að svara tilboði heimamanna um að leggja fram 6 milljónir króna til að fjölga ferðum um 125 og tryggja þannig fjórar ferðir að lágmarki á dag. Annmarkar vegna þessa munu koma skýrt fram þegar skipið hefur vetraráætlun, farþegar sem hyggjast koma til Eyja að morgni til, munu ekki geta komist til Eyja fyrr en eftir hádegi að öllu óbreyttu. Þetta sagði Hrafn mjög slæmt mál, bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki beggja vegna hafsins. Hann vonast þó til að farsæl niðurstaða náist sem allra fyrst svo hægt sé að nýta þau tækifæri sem skapast geta með þessari miklu samgöngubót að fullu. Kynnti Vestmannaeyjar „Það sem ég lagði áherslu á í mínu erindi var að kynna það sem við höfum upp á að bjóða hér í Vest- mannaeyjum, innviði Eyjanna. Eg finn fyrir mikilli tilhlökkun fyrir siglingum í Landeyjahöfn meðal Eyjamanna og það eru fjölmargir aðilar sem sjá mikil tækifæri í framtíðinni. Tækifærin eru beggja vegna hafsins. Eg er í miklum sam- skiptum við Sunnlendinga vegna starfs mfns. Á Suðurlandi er síst minni áhugi en í Eyjum, þar er fjöl- margt í boði sem Eyjamenn ættu að skoða vel, samstarfsfletirnir eru víða. Mér finnst mikilvægt að sem flestir aðilar leggi spilin á borðið og sýni hvað þeir hafi upp á að bjóða. Eg m.a. lýsti atvinnulífi, skólastarfi og íþróttum hér í Eyjum og þeim möguleikum sem opnast með Surtseyjarstofu sem verður tekin f notkun í sumar, svo fátt eitt sé nefnt,“ sagði Hrafn. Hann sagði líka að það þyrfti að fara að hugsa fyrir pakkaferðum, þar þurfi fjölmargir aðilar að eiga sam- starf svo árangur náist. Þá sér hann m.a. möguleika á að nýta Bakka- flugvöll, bæði til útsýnisflugs og fyrir þá sem þurfa að komast á milli og vilja vera óháðir áætlun Herjólfs. „Þegar Vestmannaeyjar sameinast Rangárvallarsýslu með tilkomu Landeyjahafnar verður til eining sem telur um 8000 íbúa. Með samvinnu verður þetta öflug eining og ég er sannfærður um að sam- starfið og samskiptin eigi eftir að verða til eflingar fyrir þetta nýja samfélag." Hrafn sagði að lokum að starfsfólk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands væri ávallt reiðubúið að aðstoða ein- staklinga, fyrirtæki, félagasamtök og sveitarfélög að vinna að fram- gangi góðra verka og hvatti áhugasama aðila að hafa samband ef þeir sæju einhver tækifæri með tilkomu Landeyjahafnar. Isólfur Gylfi Pálmason, sem er að taka við sem sveitarstjóri í Rang- árþingi eystra, tók síðastur til máls. Hann sagðist sjá mikla möguleika með tilkomu Landeyjahafnar sem ætti eftir að efla sveitarfélögin sitt hvoru megin við Álinn. Hægt er að skoða allar kynning- arnar af fundinum á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Suðurlands á heimasíðu þess www.sudur.is Framkvozmda- og hafnarráð - Tvö tilboð Gámafélag með lægra tilboðið Framkvazmda- og hafnarráð: Stjórnvöld sviku gefin loforð Á fundi framkvæmda- og hafnar- ráðs kynnti Friðrik Björgvinsson niðurstöður lokaðs útboðs vegna breytinga á stálþili og fleiru vegna endurbyggingar upptökumannvirkja Vestmannaeyjahafnar. Tveir buðu í verkið, Islenska Gámafélagið hf. bauð kr. 9.970.180 og ísar ehf. bauð kr. 12.104.400. Einnig fór Friðrik yfir framgang verksins og yfir verkfundargerð. Ráðið samþykkti að taka tilboði fslenska Gámafélagsins hf. og fól Friðrik framgang málsins. Á sama fundi upplýsti Sveinn Rúnar Valgeirsson að heildarkostn- aður við framkvæmdir á Bæjar- bryggju sé 21,1 milljón. Er það í samræmi við samgönguáætlun 2007 til 2010 og fjárhagsáætlun Vestmannaeyjahafnar. Arnar Sigurmundsson, formaður ráðsins, greindi frá fundi sem hann átti með fjárlaganefnd Alþingis vegna lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2008. Þar kom fram að fjár- laganefnd gat ekki orðið við því að færa 200 milljón króna framlag, sem ætlað var í tjónabætur vegna upptökumannvirkja, í endurbygg- ingu á Binnabryggju. Ráðið lýsti miklum vonbrigðum með þessa afgreiðslu í ljósi þess að fyrir lágu loforð stjórnvalda í árs- byrjun 2009 um að heimila að 200 milljón króna framlagið yrði notað við endurbyggingu Binnabryggju. Sveinn Rúnar fór yfir dýpkunar- framkvæmdir á árinu. Fram kom að 75% af verkinu er lokið og hefur Björgun óskað eftir framlengingu verktíma um 15 vinnudaga og miða við verklok 1. júlí. Það var sam- þykkt og var Sveini Rúnari falið að semja við Björgun um áframhald- andi dýpkun innan hafnar.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.