Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Page 13

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Page 13
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 13 Dlaárið 2009 til 2010 gert upp - FIV: Fleiri nemendur, lægri fjárframlög: Hvernig áhrif viltu hafa á annað fólk? -Hvernig viltu að aðrir upplifi þig? Viltu að fólki fínnist að það sé óhætt að treysta þér? Viltu vekja óöryggi hjá fólki eða viltu að því finnist þú vera réttlátur og heiðarlegur? Þetta voru spurningar sem Fanney Ásgeirsdóttir, skólastjóri, beindi til nemenda í tíunda bekk Grunnskólanum var slitið í Höllinni þar sem tíundi bekkur var útskrif- aður. Þar komu saman kennarar, nemendur og aðstandendur nem- enda. „Utskriftarhópurinn okkar að þessu sinni telur 75 nemendur. Þeir eru reyndar ekki alveg allir hér með okkur í dag, en það er gleðilegt hve margir hafa séð sér fært að koma og vera með okkur á þessum tíma- mótum,“ sagði Fanney Asgeirs- dóttir, skólastjóri, í skólaslitaræðu sinni. ÞAU hlutu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur. RAKEL Ýr Leifsdóttir skemmti gestum með píanóleik. Stóð hún sig mjög vel. Viðurkenningar til nemenda í tíunda bekk Eftirtaldir nemendur fengu viðurkenningar fyrir góðan námsárangur: Náttúrufræði: Guðrún Svanlaug Gunnarsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir. Samfélagsfræði: Sigríður Lára Garðarsdóttir og Alexander Gautason, bæði með einkunnina 10,0. Islenska: Berglind Dúna Sigurðardóttir og Bjartey Helgadóttir. Stærðfræði: Bjartey Helgadóttir og Jón Þór Guðjónsson. Listgreinar - Textflmennt: Rakel Ýr Leifsdóttir. Viðurkenningar fyrir góðan námsárangur í fram- haldsskólaáföngum: Enska: Friðbjöm Sævar Benónýsson. Islenska: Guðrún Svanlaug Gunnarsdóttir og Klara Ingólfsdóttir. Stærðfræði: Klara Ingólfsdóttir. Danska: FIV veitti fjómm stúlkum viðurkenningu fyrir góðan námsárangur á stúdentsprófí í dönsku. Þetta eru þær Guðrún Svanlaug, Rakel Ýr, Selma Jónsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir - sem gerðu sér lítið fyrir og urðu hæstar á stúdentsprófinu. Krakkar til fyrirmyndar Það fór ekki á milli mála að Fanney er ánægð með krakkana sem nú vom að yfírgefa skólann. „Eitt af því sem mig langar að nefna, árganginum til hróss, er að nú er nýafstaðið skólaferðalag tíunda bekkjar. Það fóru reyndar ekki allir en ég hef ekki heyrt annað en að þeir sem fóru hafi skemmt sér vel og átt góða daga saman. Það er gaman að segja frá því í dag - að það var eftir því tekið hvar sem þið komuð í þessari ferð, krakkar, hversu vel hópurinn kom fyrir og þið hafið fengið þann vitnisburð að öll umgengni ykkar og framkoma hafi verið til fyrirmyndar í hví- vetna. Frábær hópur á ferðinni og skólanum okkar, ykkur sjálfum og samfélaginu okkar til sóma. Sömu sögu er að segja af um- sögnunum sem mörg ykkar fengu á síðustu starfsfræðsludögum. Mig langar til að fá að grfpa niður í nokkrar af þessum umsögnum svona bara til að undirstrika hvemig mynd fólkið, sem tók á móti ykkur uppi á landi, fékk af ykkur,“ sagði Fanney en meðal umsagna var: Þeir voru frábærir, áhugasamir og duglegir í alla staði. Spurðu margra spuminga. Fyrir- myndar nemendur og persónur. Eiga bjarta framtíð fyrir sér í hverju sem þeir munu taka sér fyrir hendur. Þá nefndi Fanney tíunda bekk ÁST sem gaf öllum sjöttu bekk- ingum boli þar sem varað var við einelti. Auk þess sem þau gerðu stuttmynd um einelti og afleiðingar þess. „Við, stjórnendur og starfs- fólk skólans, viljum taka undir þetta, en jafnframt viljum við færa tíunda ÁST okkar bestu þakkir fyrir frábært framtak. Þetta var glæsilegt verkefni og hópurinn hefur sett gott fordæmi fyrir alla nemendur skól- ans, með því að vilja miðla til annarra því sem hann hefur lært um mikilvægi þess að vanda sig í sam- skiptum." Undirbúningur undir líf og starf Fanney sagði að á svona stundu sé gaman að líta til baka yfir skóla- göngu nemenda og sjá hve margt hefur gerst og mikið breyst á þess- um tíu árum. „Þeir sem hafa leitt þennan hóp í gegnum skólagöng- una, hvatt þá og stutt og vakað yfir velferð þeirra, geta glaðst yfir því að áfanga er náð og verk þeirra hafa skilað árangri. Þar eruð þið, foreldrar góðir, að sjálfsögðu fremstir í flokki, en þar leikur starfsfólk skólans einnig stórt hlutverk. Hlutverk grunnskólans er að búa nemendur sfna undir líf og starf í síbreytilegu þjóðfélagi, í samvinnu við heimilin - og nú er komið að því að láta reyna á hvemig sá und- irbúningur nýtist ykkur krakkar. Þið eruð prófsteinninn á hvernig til hefur tekist, við höfum gefið ykkur besta veganesti sem við höfðum yfir að ráða - nú er undir ykkur komið hvemig þið spilið úr því og hvemig þið byggið ofan á þann grunn sem þið hafið lagt á undan- fömum árum. Eg las spakmæli um daginn sem hljóðaði svona: Lífið er eins og strigi, gerðu listaverk úr þínu. Og það er einmitt það sem þið emð byrjuð að gera - svo haldið endilega áfram að vanda ykkur svo líf hvers og eins ykkar verði einstakt listaverk." Að leggja sig fram Fanney sagði sama hvort nemendur hefðu ákveðið hvað gera skuli í framtíðinni eða ekki, séu þetta spennandi tímar og ýmsir mögu- leikar í stöðunni Sama hvaða leið sé valin, hún hafi vafalaust sína kosti og galla. „Það sem ég hins vegar held að skipti öllu máli er að hvaða leið sem þið veljið þá leggið þið ykkur öll fram um að inna þau verkefni sem þar bfða ykkar vel af hendi.“ Fanney sagði að nemendur hefðu dálítið gott af að velta fyrir sér öðru hverju hvaða áhrif þeir hafa á þá sem í kringum þá eru. „Það er reyndar önnur spuming sem er kannski enn mikilvægari. Hún er: Hvemig áhrif viltu hafa á annað fólk? Hvemig viltu að aðrir upplifi þig? Viltu að fólki finnist að það sé óhætt að treysta þér? Viltu vekja óöryggi hjá fólki eða viltu að því finnist þú vera réttlátur og heiðar- legur? Þetta eru spumingar sem enginn getur svarað fyrir mann en það er oft gott að velta þeim fyrir sér - því við emm oft svo upptekin af því hvemig aðrir koma fram að við gleymum alveg að skoða okkur sjálf. Mig langar að minna ykkur á þetta aftur, núna á kveðjustundinni - af því ég veit að þetta er mikil- vægt. Hugsið um hvemig þið viljið að skólafélagar ykkar og aðrir sem þið umgangist muni eftir ykkur - ekki bara - hvernig vini vil ég eiga - heldur lfka, hvernig vinur vil ég vera? Hvemig persóna vil ég vera? Því það að temja sér að koma vel fram við alla í kringum okkur er stór hluti af því að vaxa upp til að verða heilsteyptur og vandaður full- orðinn einstaklingur sem hægt er að líta upp til. Þetta er ein af ástæð- unum fyrir hve lífsleikniverkefnið, sem ég var að tala um áðan, gladdi mig - og okkur sem við skólann störfum - vegna þess að með þessu eruð þið að skilja eftir þá minningu hjá yngri skólafélögum ykkar að þið vilduð miðla þeim af ykkar reynslu - og að ykkur væri umhugað um þá.“ Mistök til að læra af Fanney sagði að ekki tækist fólki alltaf að verða þær persónur sem það vill vera. „Stundum mistekst það og við sitjum uppi með að hafa gert hluti sem við erum ekki stolt af. Mistök af því tagi eru alltaf leiðinleg - og stundum bæði erfið og sár - ef þau ganga út yfir aðra - en mistök eru samt líka tækifæri til að læra. Ég hef oft sagt - líka við einhver ykkar - að það þarf ekki endilega að vera slæmt að gera mistök. Það er bara slæmt ef maður gerir þau sömu aftur og aftur. Það er nefnilega líka dýrmæt reynsla að viðurkenna mistök, taka ábyrgð á þeim, gera sitt besta til að bæta úr þeim og læra af þeim í leiðinni. Það er til spakmæli sem segir að eina leiðin til að gera aldrei mistök sé að gera aldrei neitt - og það er ekki leiðin sem við viljum að þið farið. Ég vil óska ykkur alls hins besta í framtíðinni og ég veit að ég tala fyrir munn starfsfólks skólans þegar ég segi að við munum fylgj- ast með ykkur á komandi árum, staldra við nöfnin ykkar í blöð- unum þar sem kemur fram að þið séuð að útskrifast úr frekara námi, taka við nýju starfi, eða stofna ykkar eigin fyrirtæki og við mun- um gleðjast yfir hverju merki um að þið séuð að nýta hæfileika ykkar á hvaða sviði sem er. Ég vil að endingu biðja ykkur um að setja markið hátt, hvaða braut sem þið veljið ykkur í lífinu - leggja ykkur fram um að gera ævinlega ykkar besta í því sem þið takið ykkur fyrir hendur og koma fram af heilindum og heiðarleika í öllum samskiptum við þá sem í kringum ykkur eru. Ég trúi því að í því felist lykillinn að því að famast vel í lífinu," sagði Fanney um leið og hún sleit skólanum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.