Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Síða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Síða 15
Frcttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 15 Róðrarkeppnin ætlar að draga dilk á eftir sér - Jötunn svarar fyrir sig: Jötunn - Vitum að það er sárt að tapa -Verðandimenn í væluhamnum og reiðir mjög, segir í lögfræðiáliti Eftir að lögfræðingar Jötuns hafa yfirfarið kæru Verðandi og vísað henni til föðurhúsanna vill Jötunn Sjómannafélag taka eftirfarandi fram: Það er sárt að tapa SS Verðandi kærir Sjómannafélagið Jötun fyrir að tefla fram ólöglegu liði í kappróðri á Sjómannadaginn. Tilurð kærunnar er að lið Jötuns lagði lið Verðandi í harðri keppni í kappróðri. Það er sárt að bíða ósig- ur. Verðandi heldur fram að Jötunn hafi keypt lið í róðurinn. Ef Verð- andi kallar það að kaupa menn með miði einum göróttum og það ekki dýrum, ættu þeir að líta í eigin barm. Þeirra róðrarmenn fá laun erfiðisins einnig borguð í miði einum rammgöróttum, nokkru dýrari en Jötunsmenn fá fyrir sitt ómak. Að halda fram að lið Jötuns sé ólöglegt er hin mesta rökleysa og hneisa fyrir stéttarfélagið Verðandi, sem vill njóta virðingar samborgara sinna. I fyrsta lagi hefur Jötunn aldrei fett fmgur út í þó Verðandi hafí skipað lið sitt „ólöglegum" mönn- um, enda vitum við um metnað þeirra og stolt. Svo berum við undirmennirnir óttablandna og djúpa virðingu fyrir „skipstjór- unum“ í Verðandi róðrarliðinu. í annan stað er enginn Óttar Steingnmsson í liði Jötuns. Vegna fákunnáttu lögfræðings Verðandi í ættfræði, eiga þeir líklega við Óttar nokkum Gunnlaugsson sem sann- arlega er félagsmaður í Jötni en ekki í róðrarliðinu að þessu sinni. Það eina rétta í kærunni allri er, að tengdasonur Óttars Gunnlaugs- sonar, Grétar Eyþórsson, er góður í handbolta. Hvort menn eru þrautþjálfaðir íþróttamenn eður ei verður að telj- ast matsatriði sem ekki er á færi leikmanna að meta. Síðan má með sanni halda því fram að miðað við áhöfn Verðandi, er áhöfn Jötuns þrautþjálfuð, burtséð frá öllum íþróttafræðum. Og þarf ekki mikla þjálfun til. Að blanda fyrrverandi formanni Jötuns í málið sýnir rökþrot Verð- andi og er fullkomlega ómaklegt enda kemur málið honum ekki á nokkurn hátt við. Tilhlýðileg virð- ing verður að vera, þó menn séu í væluhamnum og reiðir mjög. Allir í áhöfn Jötuns eru ungir og upprennandi sjómenn og félags- menn í Jötni. Mér er mjög til efs að áhöfnin á Verðandi, margir hverjir, muni hvemig það var að byrja til „Gerist áhöfn Verðandi ellimóð mjög. Það þýddi bara eitt, að yngri og hraustari menn myndu vinna kappróðurinn millum félag- anna.“ sjós sem hásetar, en látum það kyrrt liggja- Skorað er á Jötun í reiptog til að leysa úr þessu „viðkvæma" deilu- máli segir í kærunni. Það er við- kvæmt að tapa að sögn Verðandi. Undanfarin 18 ár hefur Jötunn tapað fyrir Verðandi með reisn og virðingu, ekki viðkvæmni. Verðandimenn væru menn að meiri að taka ósigrinum með reisn en ekki viðkvæmni að hætti ónefnds kyns. Sá sem þetta ritar ræddi við skip- stjóra Verðandi liðsins til 18 ára, fyrir kappróðurinn og tjáði hann mér og fleirum að hann hefði hætt á toppnum í fyrra. Vildi hann sjá endurnýjun í liðinu, enda gerist áhöfn Verðandi ellimóð mjög. Það þýddi bara eitt, að yngri og hraust- ari menn myndu vinna kappróð- urinn millum félaganna. Sem urðu að sönnu áhrínsorð. Að þekkja sinn vitjunartíma er góður og gegn siður. Neðanmáls í kæru Verðandi er því haldið fram að undirritaður hafi brugðist hinn versti við þegar hann var beðinn að lesa kæruna á Stakkó. Hið rétta er að hr. Sigurjón Ingvarsson, einn úr áhöfn Verðandi, rétti mér kæruna og bað mig upp lesa í heyranda hljóði. Tók hann fram að kæran væri yfirfarin af lög- manni félagsins, Jóhanni Péturssyni hdl. Ég tók við kærunni og fór yfir hana. Brá mér niður í króna hans Óskars á Háeyri og reddaði kaðli fyrir reiptogið enda ekki smeykur við þá keppni. En að vel athuguðu máli bað ég Verðandimenn, í vitna viðurvist, að lesa upp kæruna sjálfir, enda þeir sem kæra, ekki Jötunn. Þeir heyktust á því. Hvers vegna veit ég eigi, ætli þeir hafí séð eftir því að bjóða ungum og hraust- um mönnum í reiptog, hver veit? Varðandi hryggspennukeppni um þjóðhátíðina við formann Verðandi, verð ég að hryggja formanninn með því að ég verð ei staddur á Eyjunni grænu í þann tíð. Svo er álitamál hvort tveir gamlir skápar eins og við Bergur Kristinsson, sem erum komnir af léttasta skeiði, ættum nokkuð að taka áhættuna af því að hrasa og slasa okkur. En til gamans gætum við skipað fulltrúa fyrir okkar félög í eina bröndótta. Auðvitað í sameiningu og sam- starfi milli félaganna. Ps. Ber er hver að baki nema sér bróður eigi. Pps. Sigurjón Ingvarsson: Enginn er annars bróðir í leik. Með félagskveðju, Valmundur Valmundsson, formaður Jötuns. Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja fer fram í Höllinni á laugardag: Lady Gaga mun svífa yfir vötnunum GLÆSILEGAR Stúlkurnar þrettán sem taka þátt í keppninni. Þeim standa til boða glæsileg verðlaun. Mynd Konný. Sumarstúlkukeppni Vestmannaeyja fer fram í Höllinni á laugardag. Þrettán stúlkur á aldrinum 18 og 19 ára taka þátt í keppninni sem fer nú fram í 24. sinn. Hjördís Elsa Guðlaugsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sumarstúlkukeppn- innar, sagði að stelpurnar kæmu fjórum sinnum fram um kvöldið. „Þær koma fram í opnunaratriði sem Ama Hrönn Baldursdóttir aðstoðaði mig við að setja saman. Þar ætlum við að taka Lady Gaga til fyrir- myndar en búninga saumaði Thelma Sigurðardóttir. Svo koma þær fram í tískusýningu frá Axel Ó. og Flamingo og í lokaatriði er hver og ein kynnt sérstaklega," sagði Hjör- dís en fimm manna dómnefnd velur sumarstúlkuna, sportstúlkuna, Ijós- myndafyrirsætuna, bjartasta brosið og sjálfar velja stelpumar velja vin- sælustu stúlkuna. Dómnefnd skipa þau Súsanna Georgsdóttir, danskennari og for- maður dómnefndar, Anna Svala Amadóttir, framkvæmdastjóri Ung- frú Suðurlands, Tanja Björg Sigur- jónsdóttir, Sumarstúlka Vestmanna- eyja 2006, Sigríður Lára Andrés- dóttir, förðunarfræðingur og Sigur- jón Brink, tónlistarmaður. Hjördís Elsa segir ýmis skemmti- atriði verða í boði og þeir sem koma fram em; Sigurjón Brink og Vignir Snær, Eyþór Ingi, Höddi og Böddi, og félagamir í I svörtum fötum. „Kynnir er Bessi hressi og Einsi kaldi sér um matinn og svo er loka- ball sumarsins í Höllinni eftir mið- nætti með hljómsveitinni I svörtum fötum." Stelpurnar hafa æft vel undanfam- ar vikur og hafa fengið að stunda Hressó eins og þær vilja. „Ég vil þakka öllum sem koma að keppn- inni með einum eða öðmm hætti. Stelpunum á Dizo, Laufeyju Konn- ýju sem tók myndir af stelpunum, Anniku og Siggu Láru sem farða stelpumar með Gosh snyrtivörum frá Miðbæ. Ég vil líka þakka Ömu Hmnd og Thelmu og þeim sem styrkja keppn- ina kærlega fyrir," sagði Hjördís Elsa. Veglegar gjafir Stúlkumar em leystar út með veg- legum gjöfum. Allar stúlkumar fá blóm frá Blómaskerinu. Sumar- stúlkan fær blómvönd frá Blóma- skerinu, þriggja rétta kvöldverð, morgunverð og gistingu fyrir tvo frá Hótel Selfossi, gjafabréf frá versl- uninni Flamingo að andvirði 15.000, gjafabréf frá versluninni Axel Ó að andvirði 15.000, Skinny nærfatasett frá versluninni Eyjavík, gjafapakka frá versluninni Miðbæ að andvirði 35.000, OXXO skart- grip frá versluninni Póley, ferða- tösku frá Eymundsson, flug frá Flugfélagi Islands til og frá Reykjavík, gjafabréf í klippingu og lit frá hársnyrtistofunni Dizo og þriggja mánaða lfkamsræktarkort og ljósakort frá Hressó. Sportstúlkan fær blómvönd frá Blómaskerinu, gjafabréf frá Axel Ó að andvirði 15.000, þriggja mánaða líkamsræktarkort og ljósakort frá Hressó, Flug frá Flugfélagi Islands til og frá Reykjavík, gjafapakka frá versluninni Miðbæ að andvirði 30.000. Ljósmyndafyrirsætan fær: Blóm- vönd frá Blómaskerinu, flug frá Flugfélagi íslands til og frá Reykja- vík, gjafapakka frá Miðbæ að and- virði 30.000, Sony myndavél frá Geisla að verðmæti 30.000. Bjartasta brosið fær: Blómvönd frá Blómaskerinu, .-Flug frá Flugfélagi íslands til og frá Reykjavík, gjafa- pakka frá versluninni Miðbæ að andvirði 30.000, gjafabréf frá versl- uninni Flamingo að andvirði 10.000. Vinsælasta stúlkan fær: Blómvönd frá Blómaskerinu, flug frá Flug- félagi íslands til og frá Reykjavík og gjafapakka frá versluninni Miðbæ að andvirði 30.000. Þjóðhátíðin: Mikið bókað Á Ðalurinn.is er sagt að mikið sé bókað í bæði Heijólf og með flugi fyrir þjóðhátíð. Föstudaginn 30. júlí eru settar upp sjö vélar hjá Flugfélagi íslands þar af var uppselt í þrjár. Á laugardag og sunnudag eru tvær vélar settar á og laust í báðar. Mánudaginn 2. ágúst er mjög mikið bókað. Áætlaðar eru þrett- án vélar og þar af er uppselt í níu vélar. „Það stefnir því í enn eina stórhátíðina því yfirleitt hefur flöskuhálsinn verið Herjólfur sem verður farinn að sigla frá Landeyjahöfn um miðjan júlí með mun fleiri ferðir," segir á Dalurinn.is. s I svörtum fötum, Tríkot og Dans á rósum Búið er að semja við hljómsveit- ina I svörtum fötum um að koma á þjóðhátíð. „Hljómsveitin hefur um langt skeið verið meðal fremstu banda landsins og gjörþekkja þeir félag- ar hvernig er að troða upp á þjóðhátíð. Þeir munu spila að- faranótt laugardags og sunnu- dags. Jónsi söngvari sagði í sam- tali við Dalurinn.is að gríðarleg eftirvænting væri í bandinu fyrir þjóðhátíð í ár. Þá kynnum við næstu bönd sem verða á þjóðhátíðinni 2010. Það eru eyjaböndin Dans á rósum og Tríkot. Þessi bönd koma til með að halda stuðinu uppi á Tjarnar- sviðinu líkt og undanfarin ár. Einnig sér Dans á rósum um söngvakeppni barna. Skráning í söngvakeppnina hefst í júlí og verður það auglýst nánar er nær dregur. Það má því búast við miklu stuði á litla pallinum í ár eins og svo oft áður. Verið er að leggja lokahönd á dagskrána og kemur hún í heild sinni inn á dalurinn.is áður en júnímánuður er allur," segir á Dalurinn.is.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.