Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 19

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 19
Fréttir / Fimmtudagur 17. júní 2010 19 ■ Pæjumót ÍBVog TM: Martin Eyjólfsson Allt fyrsta flokks í Eyjum MARTIN ásamt dóttur sinni Sylvíu. Martin Eyjólfsson þekkja líklega ílestir Eyjamenn sem komnir eru til vits og ára. „Bjargvætturinn“ er í guöatölu hjá stuðningsmönn- um IBV eftir að hafa skorað mik- ilvæg mörk tvö ár í röð sem komu í veg fyrir að IBV félii niður úr efstu deild. Martin hefur síðustu ár verið búsettur á höfuðborg- arsvæðinu en var staddur á Pæju- mótinu um helgina með dóttur sinni, Sylvíu Martinsdóttur, sem keppti með Fram. „Það var bara gaman að kynnast þessu sem aðstandandi keppanda," sagði Martin í samtali við blaða- mann. „Ég hef alltaf verið hinum megin við borðið, bæði sem skrásetj- ari hjá Lalla Kobba og svo sem dómari. En ég sé að þetta gengur sem fyrr eins og vel smurð vél enda valinn maður í hverju rúmi. Mér fannst sérstaklega gaman að fylgjast með viðbrögðum mótsgesta í kringum mig. Það voru allir mjög jákvæðir í garð mótsins enda móts- haldið í föstum skorðum og Framaramir töluðu mikið um það hversu skipulagið væri gott og hversu vel væri staðið að mótinu í heild sinni. Fram gisti í Kiwanis- húsinu og þau vom mjög ánægð þar en ég var reyndar sjálfur á æsku- slóðum á Brimhólabrautinni." Hvernig gekk xvo Fram á mótinu? „Frömumm gekk upp og niður, aðal- lega niður. En stelpumar vom glaðar og lögðu sig allar fram í leikjunum og það er aðalatriðið. Það er verið að byggja upp kvennaknattspymu hjá Fram, menn hafa tekið þau mál fastari tökum og nú er t.d. teflt fram meistaraflokki í fyrsta skipti í mörg ár. Mér sýnist vera nokkuð bjart framundan hjá Fram.“ Er þetta fyrsta mótið sem þú ferð á sem foreldri? „Nei við fórum á Siglufjörð í fyrra og vorum líka á Símamótinu í Kópavogi. Símamótið er allt annars eðlis enda koma langflestir keppend- urnir af höfuðborgarsvæðinu, mæta um morguninn og fara svo heim um kvöldið. En hér og á Siglufirði gista allir og þar var mjög vel staðið að mótshaldinu eins og hér. Eyjamenn voru auðvitað frumkvöðlar í svona mótshaldi en sem betur fer hafa fleiri fylgt í kjölfarið og sýnt að þetta er hægt annars staðar. En það jafnast auðvitað ekkert á við að vera í Eyjum, sérstaklega eftir að nýja sundlaugarsvæðið var tekið í notkun. Mikil ánægja með það hjá Fram- stelpunum og svo var maturinn hjá Einsa kalda og hans fólki fram- úrskarandi. Aðstaðan uppi íHöll var meira í líkingu við fínt veitingahús en ekki eins og mötuneyti eins og oft vill verða í svona mótum. En það er bara eins og með mótið allt saman, þetta er allt fyrsta flokks," sagði Martin að lokum. |Pæjumót ÍBV og TM: Guðmundur Hreiðarsson Á réttri Guðmundur Hreiðarsson, fyrrum markvörður og núverandi mark- varðaþjálfari kvennalandsliðs Islands í knattspyrnu, var að fylgjast með mótinu þegar blaða- maður Frétta rakst á hann. Dóttir Guðmundar, Bríet, var að taka þátt í Pæjumótinu í fyrsta skipti og Guðmundur þar af leiðandi líka. Hann sagði í samtali við Fréttir að hann hefði haft gaman af því að fylgjast með móts- haldinu. „Ég kom hingað á föstudagsmorgni og er að fylgjast með dóttur minni í Breiðabliki. Ég hefði komið fyrr ef ég hefði ekki verið að sinna öðrum skylduverkum með KR í Laugar- dalnum á fimmtudagskvöldið. Það var reyndar mjög ljúft skylduverk sem hélt mér frá Eyjum en það hefði engu að síður verið gaman að koma leið með mót sem þetta Guðmundur og dóttir hans, Bríet skemmtu sér bæði vel á Pæjumótinu. og fylgjast með frá upphafi. Mér fínnst rosalega vel að mótinu staðið og gaman að fylgjast með stelpunum, þessari ástríðu hjá þeim að spila fótbolta. Hér er gleðin númer eitt, tvö og þrjú en alvaran alltaf í bakhöndinni. Én þetta er vel skipulagt mót, vel að öllu staðið og stelpumar hjá Breiðabliki em mjög ánægðar með móttökur, skipulag, leikina, dómgæslu og ekki yfir neinu að kvarta.“ Mikilt/ægt fyrir fótboltann Guðmundur segir mót eins og Pæjumótið afar mikilvægt fyrir kvennaknattspyrnuna í landinu. „Ég hef nú unnið með kvennalandsliðinu líka og tek dóttur mína sem dæmi hvað svona mót skipta miklu máli. Fyrir einu ári síðan hafði hún engan áhuga á fótbolta og alveg sama hvað var reynt, áhuginn var enginn. Svo fór ég með hana á fmmsýningu á myndinni Stelpumar okkar. Þar sá hún stelpur spila fótbolta, stemmningu hjá þeim og sá þær stefna að einhverju. Eftir myndina spurði hún mig hvort ég væri til í að koma í fótbolta. Ég vil meina að Vestmannaeyingar eigi mikinn þátt í því að halda uppi áhuga barna á fót- bolta með því að halda þessi glæsi- legu mót, bæði fyrir stelpur og stráka. Stelpurnar eru lfka að sýna það getulega, tæknilega og áhuga- lega séð að þær era ekkert síðri en strákamir. Svo sér maður að þótt gleðin sé númer eitt, þá er kappið vissulega til staðar og það er augnabliks svekkelsi ef hlutirnir ganga ekki upp en það er bara jákvætt. Þannig að ég segi að framtíðin í íslenskri knattspyrnu er björt ef fleiri mót í þessum gæðaflokki eru haldin. Þá erum við á réttri leið.“ [Pepsídeild karla: ÍBV - Fylkir 1:0 I fyrsta sinn á toppinn síðan 2004 - Staða ÍBV mjög góð þegar þriðjungur mótsins og helmingur útileikja er að baki Þótt leikmenn berjist á vellinum er stutt í grínið. Eyþór Helgi Birgisson, leikmaður IBV og Þórir Hannesson, leikmaður Fylkis sjá eitthvað spaugilegt í leik liðanna á sunnudaginn. Staðan ÍBV er óneitanlega góð í upphafi Islandsmótsins en nú þegar um þriðjungi mótsins er íokið, er IBV í 1. - 4. sæti ásamt Fram, Val og Keflavík en öll eru liðin með 14 stig. Það sem ÍBV hefur kannski fram yfir önnur lið, er að Eyjamenn hafa spilað fimm af sjö leikjum á útivelli en alls leika liðin ellefu leiki á útivelli í sumar. Nú síðast lagði ÍBV Fylki að velli á Hásteinsvelli. Lokatölur 1:0 en það var Þórarinn Ingi Valdimarsson sem skoraði sigur- markið mikilvæga. Leikur liðanna var lítið fyrir augað, sérstaklega fyrri hálfleikur sem var hreint út sagt lélegur. Fyrsta mark- tilraunin kom ekki fyrr en á 20. mínútu þegar Matt Garner skallaði að marki Fylkis. Síðari hálfleikur var mun fjörugri og fengu bæði lið algjör dauðafæri strax í upphafi hans. En vendipunktur leiksins var á 59. mínútu þegar Fylkismenn misstu einn mann af velli með rautt spjald og eftir það vom Eyjamenn mun sterkari. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði eina mark leiksins á 69. mínútu þegar hann afgreiddi boltann glæsilega í fjærhomið eftir að Fylkismönnum mistókst að hreinsa. Fylkismenn vom reyndar hársbreidd frá því að jafna metin á 90. mínútu þegar þeir áttu hörkuskalla en rétt yfir. Upp frá því komst Eyþór Helgi Birgisson í algjört dauðafæri en í stað þess að senda á Yngva Borgþórsson, sem var með honum gegn markverði Fylkis, ákvað Eyþór að skjóta og það beint í markmanninn. Hins vegar var flautað til leiksloka stuttu síðar. Næst leika Eyjamenn gegn KR á útivelli en KR hafði betur gegn IBV á Hásteinsvelli í bikarkeppninni fyrr í sumar. Það verður því væntanlega hörkuviðureign enda er KR sofandi risi og spuming hvaða lið verði svo óheppið að vekja risann. KR-ingar líta væntanlega á leikinn gegn ÍBV sem upplagt tækifæri til að rétta sinn hlut í Islandsmótinu en gengi IBV á útivelli í sumar hefur verið afar gott. Stuðningsmenn IBV ættu því ekki að sleppa því að mæta í Frosta- skjólið á sunnudaginn. ■ Pepsídeild karla Fram 7 4 2 1 14:9 14 Valur 7 4 2 1 14:10 14 ÍBV 7 4 2 1 11:7 14 Keflavík 7 4 2 1 7:7 14 Breiðablik 7 3 2 2 13:9 11 FH 7 3 2 2 12:12 11 Stjaman 7 2 3 2 16:11 9 Fylkir 7 2 2 3 13:14 8 Selfoss 7 2 1 4 11:12 7 KR 7 1 3 3 11:13 6 Haukar 7 0 3 4 7:16 3 Grindavík 7 1 0 6 6:15 3 íþróttir James Hurst áfram hjá ÍBV Enski bakvörðurinn sterki, James Hurst, mun leika eitthvað áfram með ÍBV í sumar. Samkvæmt fyrsta samningi milli ÍBV og Portsmouth, var Hurst lánaður til Eyjamanna í mánuð og átti hann að snúa aftur heim eftir leikinn gegn Fylki. IBV óskaði hins vegar eftir því að hafa leikmann- inn áfram enda hefur hann verið einn sterkasti leikmaður deild- arinnar. Porstmouth hefur samþykkt nýjan samning en leik- maðurinn er lánaður í mánuð í senn. Enska 1. deildarfélagið getur þó kallað í hann hvenær sem er á samningstímanum. Stórsigur 2. flokks kvenna í Garðabæ Annar flokkur kvenna lagði Stjörnuna að velli í Garðabænum 0:5 en staðan í hálfleik var 0:2. Þriðji flokkur karla tapaði hins vegar fyrir ÍR á útivelli 5:0 á laug- ardaginn. Fjórði flokkur karla tók á móti Víkingum á fimmtudaginn. A-liðið gerði 1:1 jafntefli, B-liðið tapaði 3:4 en C-liðið vann 5:3. Fimmti flokkur karla lék á móti Val á útivelli síðasta föstudag. A- liðið tapaði 5:2, B-liðið vann stór- sigur 1:11, C-liðið vann 4:6 og D- liðið vann 0:4. Daginn eftir léku strákamir svo gegn Haukum. A- liðið tapaði 5:2, B-liðið 5:0, C- liðið 13:0, D1 tapaði 8:1 og D2 tapaði 6:1. Margrét Lára skoraði Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði Kristianstad eitt stig í sænsku úrvalsdeildinni í knattspymu um helgina þegar hún skoraði úr vítaspyrnu á síðustu andartökum leiksins við Sunnaná. Heimaliðið komst yfir í leiknum en leikmenn Kristianstad gáfust ekki upp og fengu víti þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leik- tíma og úr spyrnunni skoraði Margrét Lára, 1:1. Framundan Fimmtudagur 17. júní Kl. 12.00 Fjarðab./Leiknir-ÍBV 1. deild kvenna. Föstudagur 18. júní Kl. 17.00 ÍBV-Selfoss 4. flokkur kvenna. Kl. 18.00 ÍBV-Haukar 3. flokkur karla, AB. Laugardagur 19. júní Kl. 14.00 KFS-Vængir Júpíters 3. deild karla. Kl. 14.00 Víkingur-ÍBV/KFS 2. flokkur karla. Kl. 16.00 Þór/KA/Völsungur-ÍBV 2. flokkur kvenna. Sunnudagur 20. júní Kl. 19.15 KR-ÍBV Pepsídeild karla. Kl. 14.00 ÍBV-Þór/KA/Völsungur 2. flokkur kvenna. Mánudagur 21. júní Kl. 19.00 ÍBV-ÍR 1. deild kvenna. Þriðjudagur 22. júní KI. 19.00 ÍBV/KFS-Gr.vík/N.vík. 2. flokkur karla. Miðvikudagur 23. júní Kl. 17.00 ÍBV-Stjarnan 5. flokkur karla, ABCD. Kl. 17.00 ÍBV-Haukar 5. flokkur kvenna C-lið. Kl. 19.00 ÍBV-Fylkir 2. flokkur kvenna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.