Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 17.06.2010, Qupperneq 20
(FRÉTTIRl piús t/IA ™ SSSm yMraí^H Frétta- og auglýsingasími: 481-1300 / Fox 481-1293 rj‘JÍ)jJjjjJLlj‘ PJjjjJxJDJjéJikyjj siáSrJ-Tj '\évJ -JvgJáJ S'AiMliMálrjJ/i-iLk Hafðu Lund inni í myndinni í sumar.. LUNDUR er fjölskylduvænn sumarleyfisstaður í Öxarfirði, skammt frá Ásbyrgi, fyrir hópa og einstaklinga. í boði er m.a. fjölbreytt gisting, góður matur á góðu verði, tjald- stæði, frítt í sundlaug og pott fyrir alla næturgesti. I IMni | P FERÐAÞJÓNUSTA www.lundurtravel.com L. UI r| U V/ l \ Nánari upplýsingar i simum 822 6632 (Sibba) eða 696 3667 (Eyvi) PÆJUMÓT ÍBV OG TM var haldið um síðustu helgi en mótið hefur sjaldan verið jafn fjölmennt og í ár. Eins og venja er, fór fram landsleikur mótsins þar sem Landsliðið lék gegn Pressuliðinu. Díana Helga Guðjónsdóttir var fulltrúi ÍBV í I.andsliðinu. Sjá blaðsíður 18 og 19 í Fréttum í dag. Hlakka til að skreppa í sunnudagsbíltúr til Eyja -segir Sigmar Jónsson sem reka mun farþegaaðstöðu í Landeyjahöfn Strandaglópur ehf. rekur afgreiðslu Herjólfs í Landeyjahöfn en Sigmar Jónsson er eigandi og framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. Sigmar hefur í nokkur ár starfað við Bakkaflugvöll en færir sig nú um set og kemur til með að hafa umsjón með afgreiðslu skipsins, farþegaaðstöðu og svæð- inu í kring. „Þetta leggst ljómandi vel í mig. Ég reikna með að vera með tvo til þrjá starfsmenn með mér þegar komin er reynsla á þetta. Ég verð var við mikinn áhuga hér á svæðinu í kring og sérstaklega er fólk ánægt með að geta skroppið með fjölskylduna í sunnudagsbíltúr til Eyja,“ sagði Sigmar en taldi að tíminn yrði að leiða í ljós hver framtíð Bakkaflug- vallar verður með tilkomu Land- eyjahafnar. „Það má reikna með að SIGMAR er Eyjamönnum að góðu kunnur eftir margra ára starf á Bakkaflugvelli. umsvifin verði minni en það getur allt gerst.“ Sigmar sagði farþegaaðstöðuna við höfnina vera ágæta en húsið mun verða um 317 fermetrar eða 260 að grunnfleti. Ekki hefur verið ákveðið hvort veitingasala verður í farþega- aðstöðunni eða sjálfsalar. „Ég reikna með að það verði mikil traff- ík og fari vaxandi. Það er spennandi að takast á við þetta enda allt nýtt. Ný aðstaða, höfn og siglingaleið. Nú eiga menn möguleika á að ferð- ast fram og til baka samdægurs og það verður spennandi að fylgjast með þróuninni. Ég veit ekki hvaða áhrif það hefur á sölu á gistingu í Eyjum en auðvitað vilja einhverjir gista á staðnum. En þetta verður að koma í ljós,“ sagði Sigmar. UNNIÐ við að frysta makríl í ísfélaginu. Makrílveiðar ganga þokkalega Þór stækkar við sig Undanfarnar vikur hafa verið miklar framkvæmdir í húsakynn- um Vélaverkstæðisins Þórs við Norðursund. Búið er að lyfta þakinu á annarri af tveimur álmum byggingarinnar og stækka þannig vinnusalinn. Garðar Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Þórs sagði í stuttu samtali við Fréttir að með þessu stækki salurinn í 200 fermetra. „Auk þess að lyfta þakinu, þá steypum við gólfplötuna og hækkum hana þannig að gólfflöt- urinn er allur í sömu hæð. Með þessu fáum við einn stóran sal en þetta rými, sem við erum að breyta, nýttist mjög illa áður. Það eru 2Þ sem sjá um þessar breyt- ingar hjá okkur en Þór Engla og hans menn hafa unnið þetta hratt og örugglega. Svo er húsið púss- að að utan og málað en ætli þetta verði ekki tilbúið í haust," sagði Garðar. Nokkur gangur er kpminn í makrfl- og sfldveiðar. Hjá Isfélaginu hefur Júpíter landað þrisvar, samtals um 600 tonn af makríl sem unnin eru til manneldis. „Þá eigum við von á Þorsteini með 160 tonn en þeir eru að fá makríl sex til sjö tíma austur af Eyjum," sagði Páll Scheving, þegar rætt var við hann í gær. Hjá Vinnslustöðinni eru Kap VE og Sighvatur Bjamason VE saman á makrflveiðum á partrolli. Guðni Ingvar Guðnason, útgerðarstjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði að skipin hafi komið inn með 100 tonn af makrfl í vikunni og hefðu farið aftur út á þriðjudagskvöldið. Huginn VE er á sfldar- og makrfl- veiðum. Páll Guðmundsson, út- gerðarstjóri, sagði að skipið kæmi inn til löndunar á föstudaginn með fullfermi. „Það era um 500 tonn af frystu. Þar af eru þetta um það bil 400 tonn af sfld en rest makrfll. Þessu verður landað á föstudaginn og svo haldið aftur út og þannig verður það vonandi næstu mánuði." VIKUTILB0Ð 17.-23. |úní 0PNUNARTÍMI: Món. - Föst. kl. 7.30 - 19.00 Laugordago kl.10.00 - 19.00 Sunnudaga kl.11.00 -19.00

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.