Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 1

Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 1
Viðgerðir og smurstöð -Sími 481 3235 Réttingor og sprautun Bílaverkstæði - Flötum 20 * Simi 481 1535 38. árg. I 29. tbl. I Vestmannaeyjum 21. júlí 2011 I Verð kr. 350 I Sími 481-1300 I www.eyjafrettir.is VEÐURBLIÐAN sem leikið hefur um Vestmannaeyjar undanfarna daga er kærkomin enda margir farnir að bíða eftir betri tíð eftir fremur kalsamt vor og sumarbyrjun. Stelpurnar sem léku sér í Skansfjörunni á þriðjudag kunnu svo sannarlega að meta sól og sumaryl og léku sér í sjónum enda sumarið loksins komið. Átök harðna í eigendahópi VSV - Bræðurnir frá Rifí felldir úr stjórn: Allt á suðupunkti Harkaleg átök í eigendahópi Vinnslustöðvarinnar, VSV birtust ljóslega á aðalfundi félagsins á dögunum, bæði í stjómarkjöri og af- greiðslu mála. Þar áttust annars vegar við heimamenn sem ráða um tveimur þriðju hluta í félaginu og hins vegar bræðumir frá Rifi, Guð- mundur og Hjálmar Kristjánssynir. Þeir fara með um þriðjungshlut í félaginu, aðallega gegnum Stillu út- gerð ehf., stærsta einstaka hlut- hafann með tæplega 25,8% hlut. Aðalfundinn sóttu fulltrúar hlut- hafa sem ráða yfir 99,85% hlutafjár, sem er einsdæmi í félaginu. Hlut- hafar em alls 259 talsins. Stilla útgerð ehf. Iagði fyrir aðal- Meiríhluti vísaði öllum tillögum Stillu frá í at- kvœðagreiðslu. fundinn þrjár tillögur um rannsókn á starfsemi VSV og tilheyrandi þátt- um í bókhaldi og ársreikningum félagsins. Þar kom meðal annars við sögu fyrirkomulag afurðasölu, um- boðslaun, flutningskostnaður, kaup á félaginu About fish ehf., afleiðu- samningar og vaxtaskipta- og gjald- miðlasamningar. Skemmst er frá að segja að meiri- hluti eigenda vísaði öllum þessum tillögum Stillu frá í atkvæðagreiðsl- um. Segja má að þar hafí meiri- hlutinn látið kné fylgja kviði því skömmu áður gerðist það að hvorki Hjálmar né Guðmundur náðu endur- kjöri til aðal- og varastjórnar félagsins. Hjálmar hafði setið í frá- farandi fimm manna aðalstjóm VSV ásamt Jögmanni Stillu, Magnúsi Helga Ámasyni, en Guðmundur sat í varastjóm. Þeir buðu fram óbreytta skipan af sinni hálfu en einungis Magnús Helgi náði kjöri til aðal- stjómar. Af hinum eigendavængnum náðu kjöri til aðalstjórnar Einar Þór Sverrisson hrl. sem er nýr stjómar- maður, Guðmundur Öm Gunnars- son, Leifur Ársæll Leifsson og Sigurjón Óskarsson. Kristín Gísla- dóttir var endurkjörin í varastjóm og nýr varastjómarmaður er Eyjólfur Guðjónsson á Gullbergi. Því má skjóta hér inn að nokkru eftir aðalfund barst krafa frá Stillu um að boða til hluthafafundar þar sem lagt er til að VSV höfði skaða- bótamál gegn nokkram fyrrverandi og núverandi stjómarmönnum og framkvæmdastjóra VSV vegna kaupa á hlutabréfum í Ufsabergi útgerð ehf. Átökum er því engan veginn lokið í VSV. Góð af- koma 2010 Vinnslustöðin gerir upp í evram og hagnaðist um 4,4 milljónir evra eða um jafnvirði ríflega 700 milljóna króna. Hagnaðurinn árið 2009 var hátt í 5,6 milljónir evra. Vinnslustöðin er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins og stendur styrkum stoðum hvemig sem á er litið. Samstæðan velti jafnvirði um 13 milljarða króna árið 2010 en til fróðleiks má nefna að samsvarandi veltutala árið 2002 var 3,6 milljarðar króna. Veltan hefur því meira en þrefald- ast á átta árum. Það segir líka sfna sögu um umfang félagsins í samfélaginu í Eyjum að útgefnir launaseðlar til starfsfólks á sjó og landi vora alls 501 núna í júlí. Launagreiðslur í júní 2011 námu alls liðlega 300 milljónum króna. I júní 2002 gaf VSV gaf hins vegar út liðlega 200 launaseðla og greiddi starfsmönn- um sínum alls 91 milljón króna í þeim mánuði. Sjá meira á bls. 2. Hamborgara- fabrikkan ekki í ár Ekkert verður af því að Ham- borgarafabrikkan verði með sölu- bás á þjóðhátíðinni í ár. Páll Scheving, formaður þjóðhá- tíðamefndar, sagði að málið hefði verið rætt en ekki hafí tekist að landa samningi fyrir þjóðhátíð. „Það hafa í raun og vera engir samningar verið undirritaðir og það verður ekkert af því í ár að Hamborgarafabrikkan verði í Herjólfsdal." Páll segir hins vegar að báðir hafí sýnt áhuga á að halda við- ræðunum áfram. „Og kanna möguleikann á að þeir verði á næsta ári. En nú er stutt í þjóð- hátíð og við eram bara að einbeita okkur að hátíðinni í ár. Annað hefur verið sett í salt. Það hafa engir samningar um næsta ár verið undirritaðir og alls óvíst hvort af þessu verður. En við sjáum þama ákveðin tækifæri í markaðssetningu á þjóðhátíð, auk þess að bjóða upp á fjölbreyttara val á mat í Dalnum."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.