Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 12
12
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011
Gestgjafinn - Tvennir frábærir tónleikar - Fimm hljómsveitir:
Vonandi vísbending um betri tíð í tónlistinni
ARNÓR DAN og félagar hans í Agent Fresco leggja sig alla fram.
VALDIMAR hefur komið með ný viðmið inn í íslenska tónlist og getur lagt heiminn að fótum sér.
ÞAÐ sama má segja um Of Monsters and Men. Krakkar sem eiga eftir að ná langt ef þeir nenna.
Hljómsveitir sem komið hafa fram
undanfarið á Islandi hafa ekki verið
daglegir gestir í Vestmannaeyjum
en nú gerðust þau undur og stór-
merki að hingað komu ekki færri
en fimm hljómsveitir, hver annarri
betri, og héldu tvenna tónleika á
Gestgjafanum. f hvorugu tilfellinu
voru tónleikarnir auglýstir og
aðsókn í samræmi við það á fyrri
tónleikana en fiskisagan náði að
fljúga og var vel mætt á þá seinni.
Veisla númer eitt
Á tónleikunum á fimmtudags-
kvöldið léku Kiriyama Family og
Valdimar. Strákamir í Kiriyama
Family koma af Suðurlandi og eru
tveir úr hljómsveitinni Nilfisk sem
vann sér það til frægðar að hita upp
fyrir Foo Figthers í Laugardalshöll-
inni. Allir em þeir flínkir spilarar
með góð lög og af þeirri kynslóð
sem kann að nýta sér tölvutæknina.
Þá var komið að stóm stundinni
að fá loks að sjá og heyra í drengj-
unum sjö í Valdimar. Er hún ein
athyglisverðasta hljómsveit seinni
tíma hér á landi með Valdimar
Guðmundsson, söngvara og bá-
súnuleikara í fararbroddi. Góðir í
útvarpi en helmingi betri á sviði og
úr varð stund sem seint gleymist.
Veisla númer tvö
Það var ekki síðri veisla á Gest-
gjafanum á mánudagskvöldið þar
sem þrjár sveitir, Of Monsters and
Men, sigurvegarar Músíktilrauna
2010, Lockerbie og Agent Fresco.
í Of Monsters and Men fara fremst
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, gítar
og söngur og Ragnar Þórlíallsson,
söngur og gítar. Oll em þau frá-
bærir tónlistarmenn en Nanna
Bryndís og Ragnar eru í sérflokki
sem söngvarar og þau hafa náð að
skapa sér sinn eigin tón, ögn írskan
sem kemur svo vel fram í lagi
þeirra, Little Talks, sem er mikið
spilað í dag.
Lockerby er hefðbundin hljóm-
sveit, flinkir strákar sem geta átt
eftir að góða hluti í tónlistinni en
þeir stóðu svolítið í skugganum af
OMAM þetta kvöld.
Um Agent Fresco segir að sveitin
spili polyrythmískt oddtime-rokk
með djass- og fönk-ívafi. Þeir, eins
og OMAM, tóku þátt í Músíktil-
raunum 2008 og bám sigur úr
býtum auk þess sem þeir fengu
verðlaun fyrir gítarleik, trommuleik
og bassaleik. Sama ár á Islensku
tónlistarverðlaununum hlaut
hljómsveitin verðlaun sem Bjartasta
vonin.
AF em Hrafnkell Örn Guðjóns-
son, trommur, Þórarinn Guðnason,
gítar, píanó, Amór Dan Amarson,
söngur og Vignir Rafn Hilmarsson,
rafmagnskontrabassi, bassi. Af
þessu sést að þama em engir
aukvisar á ferð og þeir bjóða upp á
svo miklu meira en tónleika, því
allir fara þeir hamfömm á hljóð-
færin og, Jagger hvað, varð blaða-
manni að orði þegar Amór Dan
byrjaði að túlka lögin í söng, dansi
og látbragði sem er það kröftugasta
og öflugasta sem sést hefur í
Vestmannaeyjum.
Það leyndi sér ekki að þeir áttu
sér marga aðdáendur meðal gesta
sem fengu sitt fyrir allan peninginn
sem var þúsund kall þetta kvöldið.
Það er greinilegt að Vestmanna-
eyjar em komnar inn á kortið hjá
ungum hljómsveitum og vonandi er
þetta vísbending um betri tíð í tón-
listinni.
HRUND, Erla, Unnur og Aníta seldu boli. Á myndinni fyrir neðan eru Grétar Þór og Palli að dorga.
Eins og svo oft áður lék veðrið
við stuðningsfólk handbolta ÍBV
á Bryggjudeginum sem er orðinn
er fastur liður í starlinu á hverju
ári. Þarna gefst fólki kostur á að
kaup fisk og var úrvalið gott.
Einnig var hægt að kaupa kaffi
og með því og krakkarnir tóku
þátt í dorgkeppni þar sem
bikarar voru í boði. Þá gátu þeir
sem vildu fengið skrens á kröft-
ugri tuðru.
Þetta er eina skiptið á ári sem
Eyjamönnum stendur til boða
ferskur fiskur og því tilh-
lökkunarefni þegar líða fer að
Bryggjudegi IBV.
MAGGI og Óla Heiða buðu ýmislegt góðgæti úr ríki Ægis.