Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011 13 Saga mormóna í Vesturheimi - Fræðandi dagskrá og sýning í Sagnheimum: Bara helmingurinn af sögunni -Hinn helmingurinn er skráður hér í bréfunum sem bárust til Vestmannaeyja Þurfum að komast í þau til að fá heildarmyndina - Gaman að sjá að Safnahúsið verða miðstöð rannsókna og miðlunar á sögu okkar - Bækur í smíðum Laugardaginn 16. júlí efndi Þekk- ingarsetur Vestmannaeyja í sam- starfi við Sögusetur 1627 til dag- skrár í tilefni af opnun fyrstu varan- legu sýningarinnar um sögu þeirra Islendinga sem fluttust til Utah á árunum 1854 til 1914. Sýningin er hluti af hinu nýja Byggðasafni - Sagnheimum. Að sögn Kára Bjamasonar, for- stöðumanns Bókasafns Vestmanna- eyja, markaði sýningin upphaf á samstarfí milli háskólans í Utah og Vestmannaeyja um að rannsaka betur sögu þeirra er gerðust mor- mónar og fluttust vestur um haf. „Um 400 einstaklingar fluttust frá Islandi til Utah á árunum 1854 til 1914 og var hvorki meira né minna en rösklega helmingur þeirra héðan úr Vestmannaeyjum“, sagði Kári. Dagskráin hófst við Sendiboðann, styttuna við Mormónapoll sem gefin var árið 2005 að hluta til af sömu einstaklingum og nú hafa hafið nýtt samstarf. Söngur, súpa og saga Þar var boðið upp á súpu hjá Einsa kalda, en sökum tveggja tíma seinkunar Herjólfs var dagskráin stytt þar frá því sem auglýst var og einungis sungið, auk þess sem Kári kynnti hvað framundan væri. Mor- mónakór frá Reykjavík og Selfossi sá um allan söngflutning, en í tilefni dagsins kom um 30 manna kór til Vestmannaeyja auk um 50 annarra gesta úr Reykjavík. Þá var talsverður fjöldi heimamanna mættur. Sögusetur 1627 bauð til sögu- kynningar og fékk Amar Sigur- mundsson til að leiða gesti í allan sannleika um yndi Eyjanna og var farið í 70 manna rútu á vegum Simma og Unnar auk þess sem þrjár minni rútur fylgdu á eftir. í þeim rútum var sett upp talstöðva- kerfi svo unnt var að heyra í Amari í öllum fjómm rútunum. Að lokinni skemmtilegri kynningu á Vestmannaeyjum þar sem m.a. var stöðvað við þá staði sem helst tengjast sögu mormóna í Vest- mannaeyjum og sögu Tyrkjaráns- ins, enda 384 ár á þessum degi frá atburðunum, var stöðvað fyrir utan Safnahúsið. Samstarf við Utah þar tóku Kári og Helga Hallbergs- dóttir, hinn nýi safnstjóri Sagn- heima - Byggðasafns á móti gest- um. Flutt vom ávörp auk þess sem mormónakórinn söng inn á milli atriða. Fyrstur til að stíga á stokk var Páll Marvin Jónsson fram- kvæmdastjóri Sagnheima sem m.a. reka Byggðasafnið. Ræddi hann um mikilvægi þess samstarfs sem framundan væri og lýsti yfir mikl- um áhuga Þekkingarsetursins á því að þróa samstarfið við háskólann betur m.a. með það í huga að taka á móti nemendum frá Utah. Þá tók við Friðrik Björgvinsson og kynnti rannsóknir sínar en hann hefur haft brennandi áhuga á sögu mormónanna á annan áratug og safnað mörgum merkilegum heim- ildum. Kári benti á að Friðrik hefði látið hann og Fred fá alla sína vinnu þegar hann frétti af rann- sóknum þeirra. Sagði Kári að það sýndi vel hversu mikinn áhuga Friðrik hefði í raun á sögunni að hann væri tilbúinn að láta aðra njóta þess sem hann væri búinn að safna til að koma verkefninu sem lengst áfram. Áhugaverð verkefni Eftir söng mormónakórsins talaði GÓÐIR GESTIR frá Utah, Steve Olsen og Fred Woods. Beint fyrir aftan Steve sést í Kim Wilson er opnaði sýninguna. MORMÓNAKÓR frá Reykjavík og Selfossi sá um allan söngflutning. Fred Woods, prófessor við Há- skólann í Utah. Hann kynnti rann- sóknarverkefni sem hann og Kári hófu formlega þennan dag undir merkjum Þekkingarseturs Vest- mannaeyja og háskólans í Utah. Kom fram í máli Freds að um væri að ræða verkefni sem áætlað væri að tæki fjögur ár og markmiðið væri að leita uppi allar heimildir sem enn væru til hjá einstaklingum um sögu þeirra sem fluttu til Utah á árunum 1854 til 1914. Þá yrði efnt til ráðstefna í Vestmannaeyjum og í Utah um sögu frumkvöðlanna, auk þess sem hann og Kári væru með bækur um efnið í smíðum. Var greinilegt að Fred hefur mik- inn áhuga á verkefni þeirra Kára og táraðist hann meðan á flutningi stóð sem er óvenjulegt í kynningu á fræðilegu verkefni. En eins og Kári benti á þá er ekki nóg fyrir fræði- menn að nota heilann, þá fyrst þegar hjartað er einnig sett í verk- efnið er von um góðan árangur. Ekki stór sýning en áhrifarík Steve Olsen, yfirmaður sýningar- mála kirkjunnar, ræddi um sýning- una sem brátt yrði opnuð. Sagði hann að í Bandaríkjunum væru sýningar oft opnaðar í tvennu lagi, fyrst væri opnuð sýning sem sýndi meginhugmyndina og óskað eftir ábendingum frá gestum um það sem betur mætti fara áður en end- anleg sýning yrði sett upp. Sagði Steve að þessi sýning væri ekki fullunnin heldu vildu þeir sem stæðu að sýningunni fá Vestmanna- eyinga til að segja sér hvað helst vantaði þannig að unnt væri að bæta úr áður en sýningin yrði sett upp í endanlegu formi, með haustinu. Þá tók Kim Wilson við en hann er stjómarformaður Sögufélagsins I Utah sem hefur styrkt fjölda sýn- inga og rannsókna á sögu mormóna í ýmsum löndum, þar á meðal sýninguna og rannsóknina hér. Lýsti hann sýninguna formlega opnaða. Endaði þessi fræðandi og skemmtilega dagskrá með söng mormónakórsins og síðan fóru gestir að skoða sýninguna. Blaðamaður náði að smeygja sér inn og skoða herlegheitin. Þetta er ekki stór sýning en það er áhrifaríkt að sjá andlit um helmings þeirra sem fluttust út, en ekki hafa enn fundist myndir af fleirum. Þó er ekki öll nótt úti enn þar sem um 10 myndir hafa bæst við frá því myndir af frumkvöðlunum voru fyrst sýndar á Hofsósi. Þá hefur því verið bætt við að ef viðkomandi er frá Vestmannaeyjum er bæjamafnið einnig tilgreint. Að sögn Kára er ætlunin að búa til sérstakt verkefni þar sem saga mormónanna er rakin út frá bæjamöfnunum. Aðstoðarprófessor í sumarfríinu Blaðamaður settist niður með Kára meðan gestir skoðuð sýninguna og bað hann að segja sér betur frá rannsóknarverkefni þeirra Freds. Kári sagðist vera að fara að leggja upp í sína þriðju ferð til Utah í lok þessa mánaðar en hann hlaut nýver- ið styrk frá háskólanum í Utah að verða aðstoðarprófessor með skrif- stofu og vinnuaðstöðu í háskól- anum meðan hann dvelur ytra. „Ég mun einungis nýta sumarfríið mitt að þessu sinni til að vera hjá þeim, ég er nýkominn úr löngu fríi frá starfi sem ég hef engan hug á að yfirgefa. Ég hef leyfi til að vinna í 20% stöðu að rannsóknum á sögu mormóna í Vesturheimi og háskól- inn ytra og aðrar stofnanir þar greiða þann kostnað. Ég er þakk- látur fyrir tækifærið til að vinna að þessu heillandi verkefni og mun gera mitt besta til að rekja sögu þeirra sem fluttust til Utah. Allar frumheimildir sem við finnum í ferðum mínum eru skann- aðar og munu síðan verða varð- veittar hjá Jónu í skjalasafninu sem og í skjalasafni háskólans ytra. íslendingafélagið í Utah hefur tekið saman fyrir okkur lista með nöfnum um 700 einstaklinga sem líklega eiga frumheimildir, bréf, dagbækur, kvæðasöfn o.s.frv. og verkefnið mitt ytra er að fara með Fred á milli staðanna, ræða við fólkið, þýða og setja í samhengi við það sem við vissum fyrir um frumkvöðlana, auk þess að kynna verkefnið fyrir mögulegum styrktaraðilum.“ Allt vel þegið Að lokum hvatti Kári blaðamann til að segja fólki að drífa sig á sýn- inguna sem og að skoða nýja safnið. „En sérstaklega vil ég biðja alla þá sem luma á heimildum eða sögnum um sögu mormónanna að spjalla við mig. Ég fer út til Utah eins oft og ég kemst en þar er bara helmingurinn af sögunni. Hinn helmingurinn er skráður hér, í bréfunum sem bárust til Vest- mannaeyja. Við þurfum einnig að komast í þau bréf til að fá heildar- myndina." Það er gaman að sjá að Safna- húsið er að verða miðstöð rann- sókna og miðlunar á sögu okkar Vestmannaeyinga og vonandi að starfsmenn þess haldi áfram á þessari góðu braut. Dagskráin um sögu mormónanna er enn einn kaflinn sem verið er að endurskrifa okkur hinum til ánægju og fróðleiks.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.