Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 6
6 Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011 FARÞEGAR á leið um borð í Landeyjahöfn Milli þessara hafna flutti skipið í maí 2011 samtals 20.540 farþega og 5.440 bfla og bifhjól. Og í júní voru farþegarnir 43.777 og bflar og bifhjól 9.631. Meðalfarþegafjöldi í ferð var 265 og meðal ökutækjafjöldinn 23. Eitt ár frá því Herjólfur tók að sigla í Landeyjahöfn Á ýmsu hefur gengið Væntingar eru miklar -Vissulega gera allir sér ljóst að hnökrar kunna að verða þegar veður taka að versna - Þá þarf að leysa - Líkt og gert var með Þorlákshöfn á sínum tíma - Þá komu upp svipuð vandamál - Höfnin engu að síður bylting í samgöngumálum Vestmannaeyja - Gæti reynt á þolinmæðina meðan menn leita lausnanna - Og kannski sjáum við ekki lausnina fyrr en með nýju skipi sem hentar betur Nú er rétt um eitt ár frá því siglingar í Landeyjahöfn hófust. Herjólfur fór í jómfrúarferð sína þangað þriðju- daginn 20. júlí 2010. Áætlunar- siglingar hófust svo miðvikudaginn 21. júlí og var fyrsta ferðin kl. 7.30 að morgni þess dags. Það var bros á hverju andliti í þessari fyrstu ferð, hér var að verða stærsta samgöngu- bót Vestmannaeyinga a.m.k. frá því að fyrsti Herjólfur kom til Eyja 12. desember árið 1959. Tíu þúsund á þjóðhátíð Fyrstu fimm dagana sem siglt var í Landeyjahöfn flutti Herjólfur 8110 farþega. Og þjóðhátíðin var sú stærsta frá upphafi og þar kom Herjólfur mjög við sögu en hann flutti um 10 þúsund þjóðhátíðargesti til Eyja og annað eins síðan á brott. Og frá 21. júlí til 1. september 2010 flutti Herjólfur nærri 75 þús- und farþega. Flutningar Herjólfs milli Eyja og Landeyjahafnar hafa farið fram úr bjartsýnustu spám. Milli þessara hafna flutti skipið í maí 2011 sam- tals 20.540 farþega og 5.440 bfla og bifhjól. Og í júní voru farþegarnir 43.777 og bflar og bifhjól 9.631. Meðalfarþegaljöldi í ferð var 265 og meðal ökutækjafjöldinn 23. - Þessi samgöngumáti hefur svo sannarlega sannað sig. Það er orðin bylting á samgöngun við Vestmannaeyjar. Það eru miklar væntingar bundar við þessa siglingaleið, en vissulega gera allir sér ljóst að hnökrar kunna að verða þegar veður taka að versna. Það eru þá væntanlega hnökrar sem vinna þarf í að leysa, líkt og gert var með Þorlákshöfn á sínum tíma. Vandamál sem þarf að leysa Strax í september 2010 byrjuðu dýpisvandamál við Landeyjahöfn og Herjólfur gat ekki siglt þangað. Dýpkunarskipið Perlan bilaði 20. september og 28. september byrjaði Herjólfur að sigla til Þorlákshafnar á ný eftir að hafa tekið niðri við inn- siglinguna í Landeyjahöfn. Síðan gekk á ýmsu, ölduhæð of mikil fyrir Perlu svo hún gæti dýpkað, dýpk- unarrör brotnaði og festist í botni hjá Perlu, en alltaf var sagt að Land- eyjahöfn væri alveg að opnast. Það var svo ekki fyrr en 23. nóvember að Herjólfur hóf aftur siglingar í Landeyjahöfn eftir að tekist hafði að dýpka nægjanlega. Þann 12. janúar 2011 var sigl- ingum í Landeyjahöfn hætt vegna dýpisvandamála og ölduhæðar. Dýpkunarskipinu Skandia, sem fengið hafði verið til að dýpka höfn- ina í stað Perlu, seinkaði og þar að auki var veður óhagstætt og öldu- hæð of mikil og höfnin því lokuð allt til 4. maí, þegar siglingar hófust þangað að nýju. Fram til 15. maí var siglt í Landeyjahöfn eftir sjávar- föllum og eftir það hefur verið siglt samkvæmt sumaráætlun skipsins, fjórar og síðan fimm ferðir á dag. Landeyjahöfn hefur verið opin frá 4. maí og siglingar þangað gengið vel með örfáum undantekningum, en aðeins fjórar ferðir hafa fallið niður á þessum tíma, ýmist vegna veðurs eða bilana. Siglingastofnun segir að gosið í Eyjafjallajökli hafí aukið mjög á sand- og öskuburð að Landeyjahöfn og megi rekja dýpisvandamálin að miklu leyti til þess. Þá hafi ölduhæð og veður verið óvenjuslæm í vetur með tilliti til siglinga þangað. Þegar höfnin var hönnuð var líka gert ráð fyrir minna og grunnristara skip. Núverandi Herjólfur sé því hluti vandans. Ekki nýtt vandamál En vandamál við siglingar milli lands og Eyja er ekki nýtt vandamál. Þannig hefur það alltaf verið og verður um ókomna framtíð, við nátt- úruöflin verður erfitt að ráða. Og eflaust muna margir að á fyrstu árum Þorlákshafnar þurftu bátar í verstu veðrum að sigla út úr höfn- inni vegna ókyrrðar við bryggju. Þegar Herjólfur nr. II kom til Eyja 4. júlí 1976 hófust daglegar sigl- ingar milli Eyja og Þorlákshafnar og fyrsta árið flutti skipið um 50 þúsund farþega. Og alls flutti skipið 742 þúsund farþega þau 16 ár sem skipið þjónaði Vestmannaeyjum. Þegar núverandi Herjólfur kom til Eyja 8. júní árið 1992 var brotið blað í samgöngumálum Eyjanna. Stórt og fullkomið skip með 2 aðalvélar og veltiugga og gang- hraðinn í heimsiglingunni var 17,3 mflur, sem stytti siglingatímann til Þorlákshafnar um 45 mínútur. í hátíðarræðu við komu skipsins var sagt að nú væri loksins „þjóð- vegurinn milli lands og Eyja lagður bundnu slitlagi". Skipið hóf sigl- ingar sínar með hringsiglingu kring- um landið til að markaðssetja það og kynna fyrir landsmönnum og var fyrsti viðkomustaðurinn Þorláks- höfn. í viðtali við Fréttir sagði Jón Eyjólfsson, skipstjóri Herjólfs, aðspurður hvemig honum litist á að sigla svona stóm skipi inn í Þor- lákshöfn: „Þá fer nú taugin að togna, karl minn. Annars er nú best að máta skipið þar áður en meira verður sagt. En það þarf auðvitað að gera Þor- lákshöfn betri, það er ekki nóg að byggja bryggjur á þurru landi, ef innsiglingin er vart fær. Við verðum bara að vinna sameiginlega að þessu mikla hagsmunamáli, að laga inn- siglinguna. í Þorlákshöfn." Þetta sagði Jón skipstjóri árið 1992. Það er eins og lík ummæli hafi líka sést þegar rætt er um Land- eyjahöfn. - Þorlákshöfn hefur síðan þá tekið miklum breytingum til hins betra og þangað hefur Herjólfur siglt nánast í öllum veðmm eftir að endurbætur voru gerðar á höfninni. Það skyldi þó ekki vera að þannig verði einnig um Landeyjahöfn eftir einhver ár, þegar reynslan af henni hefur kennt mönnum hvað þurfi til. Þá sagði Jón Eyjólfsson í sjón- varpsviðtali haustið 1992, eftir að erfiða siglingu frá Þorlákshöfn, að Herjólfur væri allt að því stórhættu- legt skip. Stjómarformaður Herjólfs, Grimur Gíslason, var harðorður í viðtali í Fréttum skömmu síðar, þar sem hann sagði þessi ummæli Jóns skip- stjóra vanhugsuð og hann hefði slátrað þeirri markaðssetningu sem stjóm Herjólfs fór í eftir komu núverandi Herjólfs. Er líklegt að með þessum ummælum hafi Jón Eyjólfsson, lagt gmnninn að brott- rekstri sínum af Herjólfi í ágúst 1994 eftir 18 ára starf. Uppgefm ástæða var trúnaðarbrestur. Skásigla þarf Herjólfi í slæmum veðrum En á ýmsu gekk í upphafi siglinga núverandi Heijólfs til Þorlákshafnar. í Fréttum er sagt frá því í júlí 1992, að innsiglingin í Þorlákshöfn sé alltaf að þrengjast. Bakkinn færist nær hafnarmynninu með hverju árinu og þetta muni halda áfram að versna, meðan ekkert er að gert. Þá sé dýpi í innsiglingunni fulllítið. Því sé líklegt að meiri frátafir verði með tilkomu svona stórs skips sem Herjólfur sé. Jón Eyjólfsson sagði í viðtali við Fréttir 20. ágúst 1992: „Við emm svo sannarlega ekki að tala um manndrápsfleytu. Herjólfur er að mörgu leyti gott skip og mjög tæknivætt. Öll siglinga- og stjóm- tæki em mjög fullkomin og skipið lætur vel að stjóm. En vandamálið er þegar siglt er á móti“. Og aðspurður um hvort Herjólfur henti ekki á þessari siglingaleið segir Jón að hann vilji ekki viður- kenna það, en það leynist í honum uggur í sunnan og suðvestan áttum. Og það hafi verið reiðarslag að upplifa að í fjögurra metra ölduhæð og tíu vindstigum á móti fyrir nokkmm dögum, hafi þeir aðeins getað siglt á fimm sjómflna ferð. Bárður Hafsteinsson hjá Skipa- tækni, sem hannaði Herjólf, sagði eftir þessi ummæli Jóns, að ekki sé rétt siglingaleið valin milli lands og Eyja. Skásigla þurfi Herjólfi í slæm- um veðmm. Jón brást við og sagði í Fréttum: „í dag hljóta menn að gera þær kröfur til nýrra skipa að hægt sé að leggja þau í flestan sjó. Skipasmíði er ekki ný, menn hafa smíðað skip síðan löngu fyrir Kristsburð. Svo er spurningin hvemig á að kmssa í suðvestanátt." Og bætti við: „Auðvitað er það rétt að alltaf má læra betur, en spum- ingin er hver ætti að læra betur.“ Þannig er sagan alltaf að endurtaka sig. Siglingar í slæmum veðmm em og verða alltaf viðsjárverðar, hvert sem siglt er. Mannvirki eins og Landeyjahöfn þarf áreiðanlega ein- hver ár til að þróast og menn þurfa að læra á hana. Ekki er svo víst að tilraunir í líkani þótt gott sé, né vísindalegir útreikningar sjái fyrir öll vandamálin sem upp koma, heldur þarf hin mannlega reynsla að koma tdl. Landeyjahöfn er engu að síður bylting í samgöngumálum Vest- mannaeyja en það gæti reynt á þolinmæðina meðan menn leita lausnanna. Og kannski sjáum við ekki lausnina fyrr en nýtt skip sem hentar betur þessari höfn verður að vemleika. Samantekt Gísli Valtýsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.