Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 8
8
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011
KARI á heimaslóðum -Draumurinn var auðvitað að komast út í atvinnumennskuna og besti sýningarglugginn er Meistaradeildin. Reyndar fengu Haukar hörmulegan drátt fyrsta
árið, við fórum til Italíu, Danmerkur og Slóveníu. En ég var þarna í fjögur ár hjá Haukum.
Dvölin í Sviss var
eins og að éta pappír
-Handboltakappinn Kári Kristján Kristjánsson spilar nú í bestu
deild í heimi, þeirri þýsku og var með íslenska landsliðinu á HM
Kári Kristján Kristjánsson er
líklega sá handboltamaður frá
Vestmannaeyjum sem hefur
náð hvað lengst í sinni íþrótt.
Kári spilar nú í bestu deild í
heimi, þýsku úrvalsdeildinni
en hann á að baki einn vetur
með þýska liðinu Wetzlar.
Kári fór jafnframt með ís-
lenska landsliðinu á HM í
Svíþjóð og því er óhætt að
segja að síðasti vetur hafi
verið ævintýralegur. Kári
settist niður með Júlíusi
Ingasyni þar sem þeir fóru
yfir ferilinn.
Kári hafði leikið upp alla yngri
flokkana með ÍBV og var orðinn
fastur maður í meistaraflokksliðinu
þegar hann ákvað að söðla um fyrir
tímabilið 2006 og fara yfir í Hauka.
„Haukar voru einfaldlega besta
liðið á íslandi. Það sem kannski
reið baggamuninn var að þeir tóku
þátt í Meistaradeildinni," segir
Kári.
„Draumurinn var auðvitað að
komast út í atvinnumennskuna og
besti sýningarglugginn er Meist-
aradeildin. Reyndar fengu Haukar
hörmulegan drátt fyrsta árið, við
fórum til Italíu, Danmerkur og
Slóveníu. En ég var þama í fjögur
ár hjá Haukum.
Fyrsta árið töpuðum við Islands-
meistaratitilinum á innbyrðis viður-
eign, töpuðum úrslitaleik í bikam-
um en unnum deildarmeistara-
bikarinn. Þannig að við vorum
svona silfurliðið það árið. Við
skitum á okkur árið eftir en þá tók
Aron Kristjánsson við liðinu og
Haukar unnu Islandsmeistaratitilinn
þrjú ár í röð eftir það.“
Fannst þér þú taka framforum í
Haukum ?
„Já, sérstaklega eftir að Aron tók
við liðinu. Seinna árið sem ég lék
undir hans stjóm var sérstaklega
gott hjá mér. Ég spilaði vel, m.a. í
Meistaradeildinni gegn Flensburg
þar sem ég skoraði 8 mörk úr 8
skotum.“
Evrópuleikur gegn
Flensburg breytti öllu
Hugurinn leitaði hins vegar alltaf út
fyrir landsteinanna en Kári segir að
hann haft alltaf verið að bíða eftir
rétta tækifærinu. „Leynt og ljóst
var draumurinn alltaf að verða
atvinnumaður og það komst aldrei
annað að. Ég kláraði stúdents-
próftð og fór svo m.a. f stjóm-
málafræði. Það var algjör afleikur.
Þar sá ég að ég átti enga leið með
fólki sem býr í 101. Eftir það fór
ég að vinna í eitt ár en dreif mig
svo í Háskóla Reykjavíkur í
íþróttafræði, sem ég hefði auðvitað
átt að drullast í strax. Ég kláraði
eitt ár í því en námið er tvö ár.
Stefnan er að klára íþróttafræðina
en því miður get ég ekki tekið hana
í fjamámi. Hún er svo djöfulli
hörð á því, kerlingin sem ræður.
Hún má lesa þetta, ég meina það,“
sagði Kári glottandi.
Kári segir að eftir leikinn gegn
Flensburg í Meistaradeildinni hafi
síminn verið rauðglóandi. „Ég
fékk óteljandi símtöl frá umboðs-
mönnum sem sögðust geta komið
mér að hjá atvinnumannaliðum
víðs vegar um heiminn. Svo kom
sá tímapunktur þar sem ég þurfti að
velja einn og ég sé svo sem ekkert
eftir því hvem ég valdi. Hann
heitir Sören Gerster, er þýskur og
hefur reynst mér ákaflega vel en
hann er með fleiri íslendinga á
sinni könnu. Ég var reyndar
svolítið spældur út í hann fyrir að
henda mér til Zúrich en
samningurinn var góður."
Ekki góð reynsla af Sviss
Eins og Kári kemur inn á þá fór
hann frá Haukum til liðsins Am-
icita Zúdch í Sviss. „Dvölin þar
var ömurleg,“ segir Kári og hlær.
„Þeir stóðu reyndar alltaf við