Fréttir - Eyjafréttir - 21.07.2011, Blaðsíða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 21. júlí 2011
Þú þarft ekki endilega
kraftmesta bílinn til að vinna
- segir Magnús Sigurðsson, keppandi í torfæruakstri
Magnús Sigurðsson hefur síðustu
tvö ár keppt í torfæruakstri.
Magnús keppir í götubílaflokki en
hann segist stefna ótrauður á að
keppa í flokki breyttra bfla.
„Eg hef alltaf haft mikinn áhuga á
mótorsporti og þegar maður var
yngri var torfæran reglulega í sjón-
varpinu. Þeir sem maður var að
fylgjast með og dást að þá, eru í dag
ágætis kunningar mínir. Ég byrjaði
í fyrra að keppa enda langaði mig
alltaf að prófa. Það var samt ekki
þannig að maður stykki á næstu
bflasölu og keypti bfl. Ég smíðaði
bflinn minn nánast frá grunni, keypti
tjónabfl og notaði nánast bara grind-
ina. Ég fer aðeins öðruvísi leið en
flestir sem eru í götubílaflokki því
ég er með léttari bfl en um leið kraft-
minni. Það gerir lítið til því þetta
snýst um kfló á móti hestafli þannig
að þetta jafnast nánast út,“ sagði
Magnús sem einmitt vann síðustu
keppni sem haldin var á Egils-
stöðum. „Ég sannaði það þar að það
þarf ekki endilega að vera með
kraftmesta bílinn til að vinna.
Mótherjar mínir eru með vélar á bil-
Þetta er hins vegar
þróunarvinna því
ég geng með
stœrri draum í
maganum. Það
er að smíða
algjörlega nýjan
bíl fyrir hinn
flokkinn og koma
með nýjungar í
þann flokk.
inu 383 kúbik upp í 455 en ég er
með 122. Vinnslusviðið er öðruvísi
hjá þeim en þegar upp er staðið er
munurinn lfti 11.“
En snýst þetta ekki líka um manninn
á bak við stýrið?
„Jú, við skulum segja það,“ sagði
Magnús hógvær.
Alls eru mótin fimm á hverju ári,
þrjú eru búin en Magnús hefur keppt
í tveimur af þremur mótum ársins.
„Ég keppti á öllum fimm mótunum í
fyrra og ætlaði að keppa í öllum
mótunum núna. Ég varð hins vegar
fyrir því óhappi fyrir fyrsta mótið að
sjálfskiptingin bilaði klukkutíma
fyrir mót þannig að ég var ekki með,
þótt ég væri á með bflinn á staðnum.
Ef bíllinn hefur verið í lagi þá hef ég
alltaf staðið mig vel. En af því að ég
missti af fyrsta mótinu, þá er ég í
fjórða sæti í heildarkeppninni. Þetta
er hins vegar þróunarvinna því ég
geng með stærri draum í maganum.
Það er að smíða algjörlega nýjan bfl
fyrir hinn flokkinn og koma með
nýjungar í þann flokk. Ég stefni á
að byrja á grindinni í vetur og svo
sjáum við til hvemig gengur."
Eitthvað hlýturþetta að kosta?
„Mesti kostnaðurinn er í að koma
bflnum á milli staða. Ég er með
kerru í láni og dreg bflinn lands-
horna á milli. Það eru engin
peningaverðlaun í þessu og allir sem
koma að þessu, gera það með
áhugann einan að vopni. Þótt menn
séu að keppa sín á milli þá hjálpast
allir að. Menn eru jafnvel að
sameinast um flutninga á bflum og
aðstoðarmenn koma jafnvel á eigin
vegum til að aðstoða mann í þessu.“
Magnús segist vera að vinna í því
að fá mót til Eyja. „Þeir eru í ein-
hverjum vandræðum með að fá
svæði fyrir síðustu tvö mótin. Ég
hef rætt bæði við mótshaldara og
menn hér í Eyjum og við emm að
skoða þetta. Reyndar er vikurinn í
hrauninu algjör dekkjabani og þegar
dekkið kostar um 100 þúsund
krónur, þá eru menn kannski ekkert
mjög spenntir fyrir því. En ég og
fleiri emm að skoða þetta og von-
andi verður hægt að halda mót hér,“
sagði Magnús að lokum.
Þeim sem vilja fylgjast með tor-
færunni er bent á að kíkja á
www.torfaera.is fyrir upplýsingar
og www.heimska.is fyrir myndir og
myndbönd. Svo eru framleiddir
þættir á ÍNN, Motoring en allt efnið
er unnið af sjálfboðaliðum.
Tilkynning til þeirra sem ætla að stunda
fólksflutninga á komandi þjóðhátíð 2011
Þeim aðilum sem ætla að stunda fólksflutninga á komandi
þjóðhátíð á bifreiðum sem taka fleiri en 8 farþega og hafa ekki
útgefið leyfi samkv. reglugerð, er bent á að sækja um leyfi til
undirritaðs fyrir miðvikudaginn 2. ágúst 2011.
Umsækjendur þurfa aó uppfylla eftirtalin skilyrði:
- Ökuréttindi til farþegaflutninga í atvinnuskyni.
- Bifreiðin sé tryggð til farþegaflutninga fyrir þann fjölda
sem hún fær heimild til.
- Bifreiðin verði færð til aukaskoðunar hjá viðurkenndri
skoðunarstöð.
- Önnur skilyrði: Ökumaður/umráðamaður skal fara eftir öllum
þeim skilyrðum sem starfsmaður skoðunarstöðvar setur. Hann
skal fara eftir sérstökum hraðatakmörkunum og öðrum
umferðarreglum sem settar eru í tengslum við hátíðina.
Vestmannaeyjum 21. júlí 2011
Yfirlögregluþjónninn í Vestmannaeyjum
AA fundir
AA fundir eru haldnir sem
hér segir að Heimagötu 24:
Mánudagar: kl.20.30 spor/erfðavenjur
Þriðjudagar: kl.18.00
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.18.00
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða háifri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath. símatíma okkar, sem eru hvern
dag, hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriöjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
Nudd er heilsurækt!
Nudd er lífsstíll!
Erla Gísladóttir
n u d d a ni
Faxastíg 2a
Sími: 481 1612
/' ' . -—,
Smáar
íbúð til leigu á Álftanesi
Tveggja herbergja fbúð til leigu á
Álftanesinu. Laus stax. Uppl. í
síma 861-1541.
Til sölu utanborðsmótor
Suzuki utanborðsmótor til sölu,
tvígengis, 65 hp. Upplýsingar í
síma 691-9468.
Til sölu mublur
Fallegar mahóní mublur í antik stíl
Amerískur svefnsófi, stór sjón-
varpsskápur, stofuborð, tveir gler-
skápar, borðstofu/kommóða,
lampi og gardínur í stíl og tvö laus
gólfteppi. Uppl. í síma 690-7852.
íbúð til leigu
Stór íbúð, hæð og ris í tvíbýlishúsi
til leigu á besta stað getur verið
laus fljótlega. Uppl. í síma 699-
4794 og 692-4794.
Til sölu
Allt sem viðkemur bekkjabíl á
þjóðhátíð. Öflug grind sem boltuð
er á pallinn með áföstum bólstr-
uðum bekkjum og góðu tjaldi yfir.
Má notast á annan hátt. Uppl. í
481-2418 og 869-2620.
íbúð til leigu
íbúð til leigu í Breiðholtinu, fjög-
urra herbergja. Laus 1. ágúst.
Upplýsingar í síma 848-5528.
Kerra til sölu
Breidd 1.23, lengd 2.014 innra-
mái. Upplýsingar í s 772-5758.
Garðskáli
- garðgeymslur og gestahús
Vönduð sænsk framleiðsla. Löng
reynsla hér á landi. í svona
garðskála er iogn allt árið. Kynntu
þér málið á heimasíðunni.
Jabohús Ármúla 36, Rvk. Sími
581-4070, www.jabohus.is.
Tjaldpláss á þjóðhátíð
Er með pláss fyrir 6 tjöld í
garðinum, með aðgang að sólpalli
með stóium, borði og grilli. Uppl. í
s. 858-7514.
íbúð til leigu
3ja herbergja íbúð (82m2) í fjöl-
býlishúsi (4. hæð) til leigu í
Álfaskeiði í Hafnarfirði. Verð kr.
125 þús/mán. + rafmagn. Reglu-
semi áskilin. Uppl. í s. 615-0041.
Herbalife
Síðustu forvöð fyrir þjóðhátíð.
Sími 481-1920 og 896-3438.
íbúð til leigu yfir Þjóðhátíð
3ja herb. íbúð til leigu yfir
Þjóðhátíð. Væri ekki verra að fá
meðmæli. Uppl. í s. 847-0001.
IsamverkI
GLERVERKSMIÐJA
SPEGLAR
Framleiðum spegla
eftir málum.
www.samverk.is
samverk@samverk.is